Morgunblaðið - 04.06.2006, Síða 53

Morgunblaðið - 04.06.2006, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 53 UMRÆÐAN KONUM í sveitarstjórnum hefur fjölgað mjög hægt síðast liðin ár en mjakast þó aðeins upp á við. Í kosn- ingunum í ár var kos- ið um 529 sveit- arstjórnarsæti og náðu 339 karlar sæti í sveitarstjórnum og 190 konur. Hlutur kvenna í sveit- arstjórnum er sam- kvæmt niðurstöðum kosninganna 35,9% og hefur aukist um tæp- lega 4% frá því í síð- ustu kosningum. Nið- urstöðurnar koma ekki á óvart því það var ljóst í hvað stefndi þegar framboðslistar voru gerðir opinberir. Þrátt fyrir tiltölulega jafnt hlutfall kvenna og karla á framboðs- listum voru færri kon- ur en karlar í þeim sætum sem líklegt þótti að næðu kjöri. Með sömu þróun má búast við að hlutfall kvenna og karla verði orðið jafnt árið 2022. Eigum við bara ekki að bíða róleg þangað til og hætta þessu veseni? Aldeilis ekki. Það þarf lítið út af að bregða til þess að hlutföllin verði konum enn meira í óhag og þarf ekki að fara lengra en til alþing- iskosninga 2003. Þá lækkaði hluta- fall kvenna á alþingi úr 35% í 30%. Jafnréttisvaktin er eilífðarverkefni sem hver stjórnmálaflokkur verður að taka alvarlega, því það er í gegn- um þá sem konur og karlar komast í pólitískar fulltrúastöður. Flokk- arnir þurfa því fyrst og fremst að viðurkenna að það hallar á hlut kvenna og það þarf að leiðrétta með sértækum aðgerðum. Þannig væru flokkarnir ekki aðeins að uppfylla markmið jafnréttislaga þ.e. að ,,vinna að jöfnum áhrifum kvenna og karla við ákvarðanatöku og stefnumótun í sam- félaginu“ heldur einnig að stuðla að virku lýð- ræði í landinu. Konur eru helmingur þjóð- arinnar sem þýðir að ef við ætlum að hafa virkt lýðræði í landinu, verða konur að hafa jafnmikil völd og karlar og koma að ákvarðanatöku í sama mæli og þeir. Reyndar ætti ekki að þurfa að útskýra leng- ur né færa rök fyrir því af hverju konur eigi jafnmikið erindi í stjórnmál og karlar. Það liggur í augum uppi. Enn er von Um þessar mundir eru flokkarnir í óða önn að skipa fólk í ráð og nefndir á vegum sveitarfélaganna. Að hluta til raðast þar kjörnir fulltrúar en einnig aðrir frambjóð- endur af listum flokk- anna. Það er því ennþá tækifæri stjórn- málaflokka til að jafna hlut karla og kvenna þegar skipað er í ráð og nefndir sveitarfélaganna. Það er skylda okkar allra og þó sér- staklega flokksstofnana, að við tök- um höndum saman og einbeitum okkur að því að jafna hlut kvenna og karla í stjórnmálum. Við bíðum ekki til ársins 2022. Jafnrétti árið 2022? Ragnhildur Helgadóttir fjallar um hlut kvenna í sveitarstjórnum Ragnhildur Helgadóttir ’Þrátt fyrir til-tölulega jafnt hlutfall kvenna og karla á fram- boðslistum voru færri konur en karlar í þeim sætum sem lík- legt þótti að næðu kjöri.‘ Höfundur er formaður kvenna- hreyfingar Samfylkingarinnar. HESTHÁLS 14 - TIL SÖLU Höfum fengið í sölu alla eignina nr. 14 við Hestháls í Reykjavík. Um er að ræða vel stað- setta eign á 32.000 fm lóð í Reykjavík í nánd við Vesturlandsveginn. Hið selda skiptist m.a. í u.þ.b. 3.300 fm skrifstofu og iðnaðarhúsnæði. Eignin skiptist m.a. í skrifstofuálmu með 15-20 herbergjum, opin vinnurými og vinnslusali, lagerpláss, vörugeymslur, búningsklefa, snyrtingar, kaffistofur og fundarsali. Búið er að endurnýja skrifstofuhluta eignarinnar ný- lega. Fimm innkeyrsludyr eru inn í húsið og er lofthæð í vinnslusölum allt að 12 metrar. Húsið er byggt úr límtré. Lóðin er 31.872 fm og er almennt nýtingarhlutfall á svæðinu 0,7. Því er ljóst að hugsanlega má byggja allt 19.010 fm til viðbótar núverandi húsbyggingu. Eignin býður upp á mikla möguleika fyrir framsækin fyrirtæki sem þurfa að tryggja sér höf- uðstöðvar eða hafa þörf fyrir mikið athafnarými á lóð. 5863 Allar nánari upplýsingar veita Sverrir og Óskar. Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali Vantar þig atvinnuhúsnæði? Veldu húsnæði sem hentar þínum rekstri Mörg fyrirtæki hafa gert sér grein fyrir kostum þess að leigja frekar en að eiga fasteignir. Leiga gerir fyrirtækjum kleift að stækka eða minnka við sig eftir þörfum og þar með lágmarka áhættu í rekstri. Fasteignafélagið Kirkjuhvoll á fjölda eigna á höfuðborgarsvæðinu til leigu hvort sem það er til lengri eða skemmri tíma. Hafðu samband við okkur í síma 892-0160 Karl // 861-3889 Aron Fasteignafélagið Kirkjuhvoll ehf.// www.kirkjuhvoll.com // aron@kirkjuhvoll.com // karl@kirkjuhvoll.com Fasteignafélagið Kirkjuhvoll ehf. sérhæfir sig í útleigu á skrifstofu- þjónustu- lager og iðnaðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.