Morgunblaðið - 04.06.2006, Page 54
54 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÉG ÞÓTTIST maður með mönnum
þegar ég fékk á unglingsaldri nafn-
skírteini gefið út af sýslumanninum
á Patreksfirði. Með mynd og nafn-
númeri. Þetta nafnskírteini hefur
hingað til verið eina skilríkið, útgefið
af yfirvöldum sem beinlínis var ætl-
að sem persónuskilríki. Með tím-
anum gekk „teinið“ úr sér. Handhafi
eltist og þekkist varla á ferming-
armyndinni sem sett var í skírteinið.
Ekkert þessu líkt hefur komið í stað
þessa nafnskírteinis. Við notumst við
ökuskírteini, bankakort eða vega-
bréf til að sanna hver við erum.
Ökuskírteinið gefur til kynna
vissa kunnáttu til að stjórna öku-
tækjum. Bankakortið okkar notum
við til þeirra viðskipta sem við stofn-
um til. Báðir þessi möguleikar eru
notaðir þegar spurt eru um persónu-
skilríki. Hinsvegar er ekkert sem
segir að þetta séu lögleg persónu-
skilríki. Vegabréfið inniheldur ágæt-
ar persónuupplýsingar um okkur.
Einn er leiður galli á þessu annars
fallega vegbréfi. Það er fremur
óþjált í meðförum og notast ekki
nema við hátíðleg tækifæri og reisur
til útlandsins.
Ég fór að hugsa um þetta atriði og
dró fram þau kort sem veskið hafði
að geyma. Öll eru þau til rafrænnar
notkunar og vel sniðin til geymslu í
nettu veski.
Væri ekki snjallt að fara þess á leit
við stjórnvöld að gera okkur rafræn
persónuskilríki.
Persónuskilríki sem eru eins að
stærð og bankakortið. Kortið væri
með segulrönd sem geymdi neyð-
arupplýsingar um okkur. Upplýs-
ingar á borð við í hvaða blóðflokki
við værum, þekkt fæðu-, lyfja-, eða
annarskonar ofnæmi, notkun lyfja,
sykursýki, flogaveiki o.s.frv. Síma-
númer nánustu ættingja/vanda-
manna, svo fátt eitt sé nefnt. Seg-
ulröndin væri aðeins lesanleg á
sérstökum lesara og veitti aðgang að
lokuðu tölvukerfi sem aðeins lög-
regla, sjúkraflutningsmenn, læknar
og starfsfólk heilbrigðisgeirans hefði
aðgang að. Þarna eru á ferðinni við-
kvæmar upplýsingar og þess gætt að
persónuöryggi handhafa sé tryggt.
Sé komið að slysi er mikilvægt að
bregðast rétt við og hverskonar upp-
lýsingar um hinn slasaða eru dýr-
mætar. Sé persónukortið tiltækt og
verið sé að hringja eftir aðstoð,
mætti gefa upp auðkenni hins slas-
aða sem opnaði bráðaliðum mik-
ilvægar upplýsingar til undirbún-
ings aðhlynningar.
Möguleikar yrðu á að samræma
notkun milli Norðurlandanna, Evr-
ópusambandsríkjanna, Englands,
Kanada og Bandaríkjanna eftir því
sem samvinna yrði á þessu sviði.
Möguleikar á notkun persónu-
kortsins eru miklir hér á Íslandi. Við
erum fá hér á Íslandi og búum við
framúrskarandi tölvutækni og mikla
þekkingu á tölvubúnaði.
Þetta kort losaði okkur við alls-
kyns keðjur, armbönd, hálsmen eða
önnur auðkenni sem gefa til kynna
ofnæmi, sykursýki, flogaveiki o.s.frv.
nema í sérstökum tilvikum.
Einnig ýmis sjúkrasamlags-,
trygginga- og afsláttarskírteini
vegna lyfjakostnaðar osfrv.
Með upptöku þessa persónukorts
værum við fremst meðal þjóða í því
að tryggja einstaklingum örugga
læknis- og/eða bráðameðferð og að
öllu jöfnu örugg og gild persónuskil-
ríki.
Skírteinið væri uppfært eftir þörf
viðkomandi einstaklings, t.d. með ár-
legri heimsókn til heimilislæknisins.
ÞRYMUR SVEINSSON,
Heiðargerði 51, Reykjavík.
Persónu-
skilríki
Frá Þrymi Sveinssyni:
Opið hús í dag
frá kl. 14.00 til 16.00
Höfum fengið í einkasölu sérlega
fallegt og vel staðsett einb. á tveimur
hæðum auk bílskúrs, samtals 201 fm.
Húsið hefur verið talsvert endurnýjað
á vandaðan máta m.a. eldhús,
baðherb. o.fl. Fallegur ræktaður
garður með verönd í bakgarði. Topp eign, frábær staðsetning.
Eddi og Heiða bjóða ykkur velkomin.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hátún 16 - Reykjanesbæ
Opið hús
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Sunnuvegur - Hafnarf. Laus fljótlega
Falleg og vel skipulögð 116 fm efri hæð í þrí-
býlishúsi ásamt 62 fm bílskúr. Húsið er vel
staðsett, rétt fyrir ofan Lækinn og stutt er í
skóla og alla þjónustu. Manngengt geymsluris
yfir íbúðinni og er auðvelt að breyta því í íbúðarrými. Húsið er nýlega málað
og lítur vel út. V. 28,8 m. 5860
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Sumarhús - Álfahraun - Sölusýning
Hraunhamar kynnir: Glæsileg, ný sumar-
hús á kjarrivöxnu eignarlandi í Gríms-
nesinu. Húsin eru fjögur, nr 1, 3, 5, og 7
við Álfahraun í landi Miðengis, afleggjari
til vinstri rétt fyrir ofan Kerið. Húsin eru
60 fm og auk þess eru 25 fm gestahús,
samtals 85 fm, og 150 fm afgirt verönd
með potti. Húsunum verður skilað algjör-
lega fullbúnum að utan sem innan með
öllum tækjum, parketi á gólfum en án
húsgagna. Allur frágangur til mikillar fyr-
irmyndar. Frábær staðsetning, ca 50 mín
frá Rvk. Verð 24,5 millj.
Gunnar byggingaraðili
verður á staðnum.
SÖLUSÝNING Í DAG
frá kl. 13.00 til 17.00
Glæsileg 134,3 fm efri hæð í tvíbýli m. sérinngangi ásamt stæði í bílageymslu. Mikið útsýni. Anddyri, gesta-
snyrting og eldhús. Góð stofa og borðstofa. Einnig rúmgott hjónaherbergi, 2 barnaherbergi, baðherbergi,
geymsla og þvottahús. Glæsilegar eikarinnréttingar, vönduð tæki parket og flísar.
Laus strax.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
ASPARHVARF - KÓP. LAUS STRAX
Magnús Emilsson löggiltur fasteignasali, Bæjarhrauni 10, Hafnarfirði
Hraunhamar fasteignasala
hefur fengið í einkasölu
mjög gott raðhús á tveimur
hæðum, 161,5 fm, þar af er
bílskúr 22,4 fm, vel staðsett
við Vesturtún á Álftanesi.
Húsið er á rólegum stað við
grænt svæði þar sem er út-
sýni til suðurs og vestur.
Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, hjónaherb.,
baðherb., þvottahús, geymslu og bílskúr. Á efri hæð eru tvö góð
herbergi undir súð, sjónvarpshol, snyrting og góðar geymslur.
Gólfefni eru parket og flísar. Glæsilegur garður til suðurs. Gott út-
sýni. Góður bílskúr með rafmagni og hita. Hellulagt bílaplan. Verð
37,3 millj. Myndir af eigninni á mbl.is
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Vesturtún - Bessastaðahr.
Morgunblaðið Kringlunni 1
103 Reykjavík Bréf
til blaðsins | mbl.is
BRÉF TIL
BLAÐSINS