Morgunblaðið - 04.06.2006, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 04.06.2006, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 61 MINNINGAR Egilssel kúrir und- ir Rangárhnjúki við ytri enda Fellaheið- ar. Nú er enginn lengur þar sem systkinin Rænka, Pétur og Sölvi bjuggu í meira en hálfa öld. Í Egilsseli bjuggu þau í steinhúsi sem á næsta ári verður aldar gamalt. Húsið telst varla stórt en þar var alltaf hlýtt, nota- legt og rúm fyrir alla. Þar var líka alltaf tími fyrir alla. Systkinin í Egilsseli eignuðust ekki börn en áttu samt stóran barnahóp. Fjöldi barna skyld og óskyld voru fóstruð þar um sumur. Þaðan fóru þegar haustaði ungir vinnumenn og vinnukonur nestuð af góðum minn- ingum. Sum komu aftur og aftur. Í hugum okkar afkomenda Eg- ilsselssystra var ættaróðalið stað- ur einhvers óbreytanleika. Þar var lífið í föstum skorðum áratug eftir áratug. Þau Rænka, Pétur og Sölvi höfðu sín föstu hlutverk og alltaf fannst manni eins og þar breyttist ekkert. Síst breyttist þó gestrisni þeirra. Þau tóku á móti gestum á sinn einstaka hátt. Maður var vart kominn í hlaðið þegar Sölvi og eða Pétur voru komnir út á tröppurnar til móttöku. Gestir voru drifnir í eldhús og Rænka tók til góðgerðir á meðan þeir piltar spurðu tíðinda. Góðgerðir komu á borðið og þær voru á einhvern hátt sérstakar enda heimatilbúnar. Kræsingarnar sem bornar voru á borð voru bara hluti gestrisni þeirra í Egilsseli. Aðalhluti hennar fólst í viðmóti, hlýhug og trygg- lyndi systkinanna. Margir lögðu leið sína í Egilssel og þar var oft glatt á hjalla. Það var ekki bara frændfólkið sem þangað lagði leið sína. Vinir og kunningjar komu líka. Kunningjar þeirra pilta höfðu oft með sér eina eða tvær flöskur sem þurfti að klára úr og það var gengið í það eins og hvert annað verk! Tíminn stoppaði og enginn hafði lengur þörf fyrir að flýta sér. Lífið var stillt á rás eitt útvarpsins enda ekki hlustað á aðra útvarps- SÖLVI EIRÍKSSON ✝ Sölvi Eiríkssonfæddist í Egils- seli í Fellum hinn 28. janúar 1932. Hann lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu í Neskaupstað hinn 18. maí síðastliðinn og var útför hans gerð frá Egilsstaða- kirkju 24. maí. stöð í Egilsseli. Svona var þetta alla tíð meðan þau þrjú voru heima. Gestrisni þeirra systkina frá Egilsseli var og er söm. Útibú þar sem sami hlýhugur ríkti voru stofnuð þar sem Egilsselssystur, sem fluttust að heiman, settust að. Á Staf- felli, Stöðulfelli, í Miðdal, á Freyjugöt- unni og Eiríksgöt- unni mætti gestum sami andi. Mér fannst Sölvi, ömmubróðir minn, skemmtilegur karl. Hann, eins og svo margir af hans kyn- slóð, skar sig úr fjöldanum með einhverjum hætti sem erfitt er að lýsa. Kannski var það orðfærið og fasið. Hann og Pétur voru með fá- dæmum orðheppnir og sum tilsvör þeirra pilta voru mjög fyndin. Lík- legt er að frændgarðurinn haldi þeim bestu við! Líkt og með fólk sem ekki eignast eigin börn fylgd- ist Sölvi vel með frændgarðinum. Hann sagði mér að hann væri ánægður með fólkið sitt og fannst vel hafa ræst úr hópnum. Eitt af einkennum Sölva var að hann kvaddi oft snöggt. Mann langaði stundum til að spjalla meira en hann sagði þá gjarnan snöggt: ,,Vertu blessaður“ og fór þangað sem hann ætlaði næst. Þrátt fyrir að maður vissi af veik- indum hans kvaddi hann snögg- lega líkt og hann gerði í lifandi lífi. Eftir stendur í huga mér að karlar eins og Sölvi í Egilsseli eru því miður að verða fáir eftir. Sigfús Guttormsson frá Krossi. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar- hug við fráfall og útför JÓHÖNNU KRISTJÁNSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landa- kotsspítala. Valgerður Þ. Kristjánsdóttir, Gunnar J. Kristjánsson, Erla Kristjánsdóttir, Sigrún Kristjánsdóttir og fjölskyldur. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ást- kæru INDIÖNU ELÍSABETAR GUÐVARÐARDÓTTUR. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sólvangs 2. hæð fyrir góðvild, virðingu og umhyggjusemi í hennar garð, einnig fyrir kyrrláta bænastund með aðstandendum eftir andlát hennar meðan hún enn lá í rúmi sínu. Það er ógleymanleg stund. Sigurður Arnar Einarsson, Lísabet Sólhildur Einarsdóttir, Svana Einey Einarsdóttir, Pétur Hafsteinn Jóhannesson, Jóna Bríet Guðjónsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Innilegt þakklæti fyrir samúð og hlýhug ættingja og vina vegna andláts og útfarar dóttur minnar, BERTU BJARGAR FRIÐFINNSDÓTTUR. Sérstakar þakkir fyrir góða umönnun og hlýhug starfsfólks Skógarbæjar. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurlaug Albertsdóttir. Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns, föður, tengda- föður, afa og langafa, EIRÍKS HREINS FINNBOGASONAR, Sléttuvegi 15, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Jóhanna Pétursdóttir, Pétur J. Eiríksson, Erla Sveinsdóttir, Sigrún Ástríður Eiríksdóttir, Bernard Scrudder, Þórólfur Eiríksson, barnabörn og barnabarnabarn. Kærar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ÁSTU G. PJETURSDÓTTUR, Háaleitisbraut 43, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítala, Landakoti. Gunnþórunn Jónasdóttir, Einar S. Ingólfsson, Pétur J. Jónasson, Örn Jónasson, Gunnar Jónasson, Guðbjörg Eggertsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ást- kæru móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, ÍVU BJARNADÓTTUR, Sóltúni 2, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólksins í Sóltúni fyrir einstaka alúð og umhyggju. Björn Halldórsson, Kristín Bjarnadóttir, Edda Magndís Halldórsdóttir, Kristinn Jóhann Sigurðsson, Viðar Halldórsson, Ragna Bogadóttir, Gyða Halldórsdóttir, Guðjón Reynir Jóhannesson, Dóra Kristín Halldórsdóttir, Kristján Þórðarson, Sigrún Guðnadóttir og fjölskyldur. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður minn- ar, ömmu og langömmu, SIGRÚNAR EIRÍKSDÓTTUR, Eiríksgötu 2, Reykjavík. Óskar Pálsson, Páll Rósinkranz Óskarsson, Sigríður Margrét Ólafsdóttir, Jóhannes Óskarsson, Valgerður Guðsteinsdóttir, Sigrún Óskarsdóttir, Hannes S. Sigurðsson, Erna Elísabet Óskarsdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall okkar elskulega GUÐMUNDAR HJARTARSONAR, Sóltúni 43, Selfossi, áður bónda á Grænhóli í Ölfusi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðis- stofnunar Suðurlands fyrir góða umönnun. Jónína Guðmundsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, systur, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR SIGURBERGSDÓTTUR, Rauðarárstíg 9, Reykjavík. Ólafur H. Ólafsson, Hilmar Skúli Ólafsson, Valur Jóhann Ólafsson, Ingigerður Bjargmundsdóttir, Haraldur Sigurbergsson, Anna Guðný Sigurbergsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.     
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.