Morgunblaðið - 04.06.2006, Síða 65
ELLEFTA umferð á ólympíu-
skákmótinu í Tórínó var tefld sl.
föstudag. Karlalið Íslands fór ham-
förum gegn Argentínumönnum og
þegar upp var staðið höfðu Suður-
Ameríkumennirnir aðeins náð jafn-
tefli á einu borði, gegn Hannesi Hlíf-
ari, en Henrik, Stefán og Þröstur
unnu sínar skákir.
Konurnar áttu ekki eins góðan
dag, þótt stöðurnar langt fram í
skákirnar væru þeim hagstæðar.
Úrvinnslan fór í handaskolum hjá
Guðlaugu og Sigurlaugu, en Lenka
gerði jafntefli.
Karlasveitin er í 25. sæti í opna
flokknum og kvennasveitin er í 66.
sæti, en nú er aðeins eftir að tefla
tvær umferðir.
Við Íslendingar höfum komist að
því að lyfjaeftirlitið er enn við lýði
hjá alþjóðaskáksambandinu, FIDE.
Kannski ala forystumenn FIDE enn
með sér drauma um að koma skák-
inni inn á ólympíuleikana, en þeir
draumórar munu hafa verið upphaf-
ið að þessu lyfjaeftirliti. Henrik
Danielsen stórmeistari var tekinn í
lyfjapróf, fyrstur Íslendinga, strax
að lokinni sigurskákinni í 10. umferð.
Ekki vitum við hvernig þeir velja þá,
sem verða þess heiðurs aðnjótandi
að fá að kasta af sér vatni í glösin
þeirra. Kannski hefur þeim fundist
taflmennskan svo kröftug hjá Hen-
rik, en hann tefldi mjög vel í um-
ræddri skák. Lyfjanefnd FIDE
heldur áfram að taka Íslendinga fyr-
ir, því að Lenka var tekin í lyfjapróf
eftir umferðina í kvöld.
Á miðnætti í fyrrakvöld komust
konurnar okkar á „brunaæfingu“. Þá
glumdi viðvörunarbjallan í blokkinni
þeirra svo að ólíft varð í húsinu, eins
og vera ber við slíkar aðstæður. Íbú-
arnir voru flestir sofnaðir, en þeir
drifu sig fljótt út úr húsinu. Þeir
flýttu sér mismunandi mikið og var
furðulegt að sjá suma fara niður í
lyftunni. Þegar út var komið stóðu
flestir rólegir og biðu þess að málið
yrði kannað af réttum aðilum. Magn-
us Carlsen, norska stórmeistara-
undrabarnið, lét þetta ekki trufla sig
of mikið, hann hafði með sér gylltan
fótbolta og lék sér að honum á opnu
svæði á meðan hann beið. Lögreglan
og öryggisverðir komu strax á stað-
inn og fljótt varð ljóst að ekki var
neinn eldur í húsinu. Þá vandaðist
málið, því að enginn kunni að
slökkva á bjöllunni! Kalla varð út
mann utan úr bæ og þegar hann
loksins mætti, eftir 45 mínútur, ætl-
uðu öryggisverðirnir ekki að hleypa
honum inn í húsið. Kannski hefur
hann ekki haft skilríki, a.m.k. þekktu
þeir hann ekki. Það tók sérfræðing-
inn 15 mínútur að þagga niður í bjöll-
unni. Þetta segir mikið um skipulag-
ið hér og líklega megum við þakka
fyrir að ekkert alvarlegt hefur gerst,
úr því að mótshaldarar eru ekki fljót-
ari að bregðast við.
Við skulum að lokum sjá skemmti-
lega sigurskák Stefáns í viðureign-
inni við Argentínumenn. Flores er á
höttunum eftir stórmeistaratitli, eins
og Stefán, og leggur þess vegna
snemma til atlögu og hyggst máta
okkar mann í nokkrum leikjum.
Hvítt: Diego Flores
Svart: Stefán Kristjánsson
Enski leikurinn
1.c4 Rf6 2.Rc3 e5 3.Rf3 Rc6 4.e3
Bb4 5.Dc2 0–0 6.Rd5 He8 7.Rg5 –
(Með 7.Df5 d6 8.Rxf6+ Dxf6
9.Dxf6 gxf6 hefði hvítur getað tryggt
sér þægilegra endatafl.)
7…g6 8.h4 Bf8 9.a3 Bg710.Bd3
Re7
Nýr leikur. Þekkt er10…d6
11.Hb1 a5 12.b3 Bd7 13.Bb2 Rxd5
14.cxd5 Ra7 15.f4 f5 16.g4 (og hvít-
ur hefur hættulegt frumkvæði.)
11.h5 Rfxd5 12.cxd5 d6 13.hxg6
hxg6 14.Dc4 Rf5 15.Re4 c6 16.Rc3
cxd5 17.Rxd5? –
(Þessi eðlilegi leikur er upphafið
að erfiðleikum hvíts. Betra er að
leika 17.Dxd5 Hb8 18.Df3 Be6
19.Be4 og staðan er nokkuð jöfn.)
17…Be6! 18.Be4 Re7 19.b4Hc8
20.Db3 Rxd5 21.Bxd5Bxd5 22.Dxd5
e4!
23.Hb1 Dc7 24.0–0 Dc2 25.Hb3 b5
26.f3 –
(Skárra hefði verið að leika 26.d4
Dc4 27.Dxc4 bxc4 28.Hc3 d5, þótt
hvítur hefði ekki átt miklar vonir um
björgun vegna hins geysisterka
valdaða frípeðs svarts á c4.)
26…He5 27.Db7 Hf5 28.Bb2 exf3
29.g4 Dxd2 30.Hxf3 Dd1+ 31.Kg2
Hc2
og hvítur gafst upp, því að hann
var óverjandi mát: 32.Kg3 De1+
33.Kh3 Dh1+ 34.Kg3 Dh2+ mát.
Stórsigur karla-
liðsins á Argentínu
Bragi Kristjánsson
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 65
HUGVEKJA
Kirkjan á afmæli í dag. Hún varð til eftir að„tungur, eins og af eldiværu“ birtust og kvísl-uðust og settust á
hvern og einn postulanna, og þeir
„fylltust allir heilögum anda og
tóku að tala öðrum tungum, eins
og andinn gaf þeim að mæla“, eins
og segir í 2. kafla Postulasögunnar.
Og síðan gerðist eftirfarandi:
„Í Jerúsalem dvöldust Gyðingar, guð-
ræknir menn, frá öllum löndum undir
himninum. Er þetta hljóð heyrðist, dreif
að fjölda manns. Þeim brá mjög við, því
að hver og einn heyrði þá mæla á sína
tungu. Þeir voru frá sér af undrun og
sögðu: „Eru þetta ekki allt Galíleumenn,
sem hér eru að tala? Hvernig má það
vera, að vér, hver og einn, heyrum þá
tala vort eigið móðurmál? Vér erum
Partar, Medar og Elamítar, vér erum
frá Mesópótamíu, Júdeu, Kappadókíu,
Pontus og Asíu, frá Frýgíu og Pamfýlíu,
Egyptalandi og Líbýubyggðum við Kýr-
ene, og vér, sem hingað erum fluttir frá
Róm. Hér eru bæði Gyðingar og þeir
sem tekið hafa trú Gyðinga, Kríteyingar
og Arabar. Vér heyrum þá tala á vorum
tungum um stórmerki Guðs.“ Þeir voru
allir furðu lostnir og ráðalausir og sögðu
hver við annan: „Hvað getur þetta ver-
ið?““
Jú, hér var á ferðinni sýnilegt og
óumdeilanlegt merki um nálægð
Guðs.
Alls gengu 3.000 sálir Kristi á
hönd þennan dag.
Á tveimur öðrum stöðum í Post-
ulasögunni er tungutals getið (10:
46 og 19: 6), og í bæði skiptin – eins
og í hinu fyrsta – er það tengt
starfi heilags anda, þriðju persónu
guðdómsins. Og í Fyrra Kor-
intubréfi (12. og 14. kafla) sést, að
Páll notar það iðulega, kveðst
fremri öllum í þessu efni, en hvetur
til jafnvægis í brúkun þeirrar náð-
argjafar sem hinna. Þær á ekki að
misnota. Allt hefur sinn tíma. Hinn
gullni meðalvegur skal farinn. Að
hefja eitt á kostnað annars getur
verið truflandi og skapað ring-
ulreið í samkomuhaldinu, af því að
við erum ólík, höfum svo mismun-
andi þarfir og hlutverk:
„Einum er fyrir andann gefið að mæla af
speki, öðrum að mæla af þekkingu í
krafti sama anda. Hinn sami andi veitir
einum trú, öðrum lækningagáfu og öðr-
um kraft til að framkvæma undur. Einn
fær spádómsgáfu, annar hæfileika að
greina anda, einn að tala tungum og
annar að útleggja tungutal. En öllu
þessu kemur til leiðar eini og sami and-
inn, og hann útbýtir hverjum einum eftir
vild sinni. Því að eins og líkaminn er einn
og hefur marga limi, en allir limir lík-
amans, þótt margir séu, eru einn líkami,
þannig er og Kristur.“
Tungutal er gefið og ætlað til að
vegsama Guð og færa honum
þakkir. Af því, að
„sá, sem talar tungum, talar ekki við
menn, heldur við Guð.“ Hann „byggir
upp sjálfan sig“. „Því að ef ég biðst fyrir
með tungum, þá biður andi minn, en
skilningur minn ber engan ávöxt.“
„Þannig er þá tungutalið til tákns, ekki
þeim sem trúa, heldur hinum vantrúuðu.
En spámannlega gáfan er ekki til tákns
fyrir hina vantrúuðu, heldur þá sem
trúa.“
Sennilega hafa þessi varnaðar-
orð dregið eitthvað úr iðkun
tungutals þegar fram í sótti, en það
hvarf aldrei með öllu. Sem betur
fer. Jústínus píslarvottur kannast
t.d. við að það sé notað í tilbeiðsl-
unni árið 150 e.Kr., og Írenaeus og
Tertúllíanus árið 200, sem og
Ambrósíus í kringum árið 350, og
Ágústínus frá Hippó um árið 390,
að eitthvað sé nefnt. Og Hildegard
frá Bingen talaði og söng í
ókunnum tungum upp úr 1100.
Lög hennar voru af samtíðarfólki
kölluð „tónleikar í andanum“.
Heimildirnar ná síðan þaðan og
yfir til okkar daga.
Upp úr 1960 frétti blaðamað-
urinn og rithöfundurinn John L.
Sherrill af hópi trúaðra í Banda-
ríkjunum, sem notuðu tungutal og
héldu samkomur í líkingu við þær,
sem minnst er á í áðurnefndu bréfi
Páls, og hóf að rannsaka málið.
Saga hans kom fyrst út á bók árið
1964, undir heitinu „They speak
with other tongues“, og oft síðan,
hefur m.a. verið þýdd á íslensku
(„Þau tala tungum“; 1981). Þar
segir hann m.a.:
„Sá leyndardómsfulli hæfileiki að geta
talað mál, sem viðkomandi kann ekki,
skaut aftur upp kollinum, í skráðum
heimildum frá fjórtándu og sextándu öld
í lífi þeirra sánkti Vincent Ferrer og
sánkti Francis Xavier.
Tungutal kemur fram í upphafi margra
stórra trúarvakninga. Hinir fyrstu
Waldensíanar töluðu óþekkt tungumál.
Það gerðu líka Jansenistar og Kvekarar
og Shakerar og Meþódistar. „Meðan
beðið var til Drottins,“ skrifar W.C.
Braithwaite í frásögn af Kvekarasam-
komum á fyrstu árum hreyfingarinnar,
„meðtókum við oft úthellingu Andans,
og … töluðum nýjum tungum.““
Og þetta er ekki bara eitthvað
sem einu sinni var. Þetta er núna,
og er eitt aðaleinkenni hvítasunnu-
hreyfingarinnar og þeirra annarra,
sem nefndar hafa verið kar-
ismatískar, er að finna út um allan
heim og sem mestu grósku og vöxt
allra kristinna trúfélaga hafa á jörð
um þessar mundir.
Skyldi það vera tilviljun?
O, ætli það.
Hér er góður staður fyrir loka-
orð Jesú Krists úr Markúsarguð-
spjalli, en þar segir hann við læri-
sveinana:
„Farið út um allan heim, og prédikið
fagnaðarerindið öllu mannkyni. Sá sem
trúir og skírist, mun hólpinn verða, en sá
sem trúir ekki, mun fyrirdæmdur verða.
En þessi tákn munu fylgja þeim, er trúa:
Í mínu nafni munu þeir reka út illa anda,
tala nýjum tungum, taka upp höggorma,
og þó að þeir drekki eitthvað banvænt,
mun þeim ekki verða meint af. Yfir
sjúka munu þeir leggja hendur, og þeir
verða heilir.“
Gleðilega hátíð!
Tungutal
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
„Þegar þér komið sam-
an, þá hefur hver sitt
fram að færa: Sálm,
kenningu, opinberun,
tungutal, útlistun“, ritar
Páll í Fyrra bréfi sínu til
Korintumanna.
Sigurður Ægisson
fjallar í þessum pistli
sínum um atburði
fyrsta hvítasunnudags.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Barcelona
í júní
frá kr. 19.990
Munið Mastercard-
ferðaávísunina
Gisting frá kr. 3.990
Netverð á mann á nótt, m.v. gist-
ingu í tvíbýli á Hotel NH Sant Boi
***
Barcelona er einstök perla
sem Íslendingar hafa tekið ást-
fóstri við. Heimsferðir bjóða
þér nú tækifæri til að njóta
sumarsins í þessari einstöku
borg á frábærum kjörum. Þú
kaupir 2 flugsæti en greiðir
aðeins fyrir eitt. Takmarkaður
sætafjöldi í boði.
Flugsæti báðar leiðir með sköttum, m.v. 2 fyrir
einn tilboð, 15., 22. og 29. júní. Takmarkaður sæta-
fjöldi í boði á öllum dagsetningum.
Verð kr. 19.990
50 sæti
2 fyrir 1
Fyrstur kemur – fyrstur fær!
FRÉTTIR
LANDSSAMBANDSFUNDUR
Soroptimista var haldinn nýlega í
Stapa í Reykjanesbæ. Yfirskrift
fundarins var: Konur vinna að friði.
Soroptimistar eru alþjóðasamtök
kvenna og hefur verkefni þeirra síð-
ustu 3 ár einkum beinst að friðar-
verkefnum. Íslenskir Soroptimistar
hafa m.a. tekið þátt í alþjóðaverkefn-
inu Konur í kjölfar stríðs, „Project
Independence, Womer Suvivors of
War“.
Markmið verkefnisins er að vekja
athygli á stöðu kvenna í stríði og að
styðja konur, sem lent hafa í stríðs-
átökum, til sjálfsbjargar. Stuðningur
felst í þjálfun og fræðslu, framfærslu-
styrk og láni til að stofna fyrirtæki
eftir að þjálfun lýkur og tilfinninga-
legum stuðningi í gegnum bréfa-
skriftir. Nítján konur í 10 klúbbum
hafa í eitt ár skrifast á við 19 konur í
Afganistan og sent styrki sem nema
samtals 875.000 kr. til verkefnisins.
Nýr forseti kjörinn
Nýr landssambandsforseti var
kjörinn á fundinum og er það Ágerð-
ur Kjartansdóttir, bókasafns- og upp-
lýsingafræðingur, sem tekur við 1.
október nk. af Sigríði Þórarinsdóttur
sjúkraþjálfara.
Soroptim-
istar vinna
að friðar-
verkefnum
FORSTÖÐUMAÐUR
Fornleifaverndar ríkisins,
dr. Kristín Huld Sigurð-
ardóttir, var kosinn í
stjórn EAC/Europae
Archaeologiae Consilium,
samtaka evrópskra
stjórnsýslustofnana á
sviði minjaverndar, á
ársfundi samtakanna í
Strassborg í mars sl.
Formaður EAC er dr.
Katalin Wollak frá Ung-
verjalandi.
Kosin í stjórn stofnunar
á sviði minjaverndar