Morgunblaðið - 04.06.2006, Side 69
sýningar: Handritin – m.a. Snorra Edda,
Eddukvæðin og Íslendingasögur. Þjóðminja-
safnið svona var það – þegar sýning þess
var í risinu, síðasta sýningarhelgi. Fyrir-
heitna landið – vesturfarar.
Þjóðminjasafn Íslands | Nú stendur yfir
sýning á níu fornleifarannsóknum Kristnihá-
tíðarsjóðs í Rannsóknarýminu á 2. hæð. Hér
gefst tækifæri til að skoða úrval gripa sem
komið hafa úr jörð á síðustu árum en mikil
gróska hefur verið í fornleifarannsóknum.
Vafalaust munu niðurstöður þeirra með tím-
anum breyta Íslandssögunni. Boðið er upp á
fræðslu og þjónustu fyrir safngesti. Þar eru
sýningar auk safnbúðar og kaffihúss. Opið
alla daga kl. 10–17.
Leiklist
Árbæjarsafn | Forsýning Brúðubílsins
„Duddurnar hans Lilla“ annan í hvítasunnu
kl. 14 í Hallargarðinum við Fríkirkjuveg 11.
Frumsýning í Árbæjarsafni þriðjudaginn 6.
júní kl. 14.
Bækur
Listasafn ASÍ | ASÍ – FRAKTAL – GRILL
Huginn Þór Arason og Unnar Örn J. Auðar-
son unnu sýninguna í sameiningu með safn-
ið í huga. Listamennirnir reyna að fletta of-
an af illsýnilegum, óskráðum en kannski
augljósum hliðum þess samfélags /um-
hverfis sem þeir starfa innan. Opið 13–17.
Aðgangur ókeypis. Til 26. júní.
Skemmtanir
Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveitin Úlfarnir
leikur fyrir dansi í kvöld, húsið opnað kl. 22,
frítt inn til miðnættis.
Mannfagnaður
Eden, Hveragerði | Úrval af alls kyns
sumarbústaðadóti fyrir börn og grill og grill-
vörur með 15% afslætti alla helgina. Kanín-
ur, páfagaukar, fiskar og risarækjur Orku-
veitunnar og trúðurinn Eddi. Opið kl. 10–22.
Fréttir og tilkynningar
Ferðaklúbbur eldri borgara | Ferðaklúbbur
eldri borgara verður með ferð á Vestfirði
30. júní til 6. júlí. Nokkur sæti laus, allir eldri
borgarar velkomnir. Upplýsingar í síma
892 3011.
GA-fundir | Er spilafíkn að hrjá þig eða þína
aðstandendur? Fáðu hjálp! Hringdu í síma:
698 3888
Útivist og íþróttir
Úlfarsfell | Hjólreiðafélag Reykjavíkur í
samstarfi við Markið heldur fyrsta bikar-
mótið í bruni á keppnistímabilinu 7. júní kl.
20, í Úlfarsfelli. Keppendur eru beðnir um að
skrá sig sem fyrst til keppni. Verðlauna-
afhending fer fram í Úlfarsfelli.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 69
DAGBÓK
Hér á landi var staddur fyrir skemmstuhönnuðurinn og ráðgjafinn MichaelThomson. Hann var hér á vegumHönnunarvettvangs í stefnumótun og
ráðgjöf.
Michael er aðstoðarforseti alþjóðlegu hönn-
unarsamtakanna Bureau of European Design
Associations (BEDA).
„Nýsköpun leikur lykilhlutverk í hönnun, en til
að hún eigi sér stað þarf að vera til staðar sam-
ræðuvettvangur eða annars konar fókuspunktur
fyrir hlutaðeigandi. Ég sé Hönnunarvettvang sem
grundvöll að slíkri stofnun, sem örvandi hönn-
unarvettvangur sem teygir anga sína bæði inn á
við og út fyrir landsteinana,“ segir Thomson.
Thomson leggur áherslu á að hönnun í víðasta
skilningi, allt frá einföldustu umbúðum til mann-
virkja, geti skipt sköpum fyrir samkeppnishæfni,
og veitt mikið forskot ef rétt er að verki staðið: „Á
Íslandi hef ég orðið var við einbeittan og skapandi
frumkvöðlaanda,“ segir hann. „Með áframhald-
andi stuðningi stjórnvalda og góðu aðgengi að
hæfu fólki, sem og góðum samskiptum milli fyr-
irtækja á sviði viðskipta- og iðnaðar, hönnunar og
ríkisstjórnar, væri hægt að nýta hönnun sem
verkfæri á öllum stigum og um leið styrkja hönn-
unariðnaðinn sem framleiðsluiðnað. Ef hönnun er
vel nýtt í viðskiptum og iðnaði getur hún reynst
mjög verðmæt auðlind, bæði á áþreifanlegan og
óáþreifanlegan hátt.“
Á meðan á heimsókn hans stóð tók Thomson
þátt í vinnufundum með aðstandendum Hönn-
unarvettvangs, hitti ráðherra iðnaðar og við-
skipta, auk þess að halda kynningar fyrir hönnuði
og aðila úr viðskiptalífinu.
„Hönnunarbransinn á Íslandi, rétt eins og ann-
ars staðar í Evrópu, er hlutfallslega smár og
sundraður miðað við önnur svið atvinnulífsins.
Starfsemi hönnunarbransans er að mörgu leyti
svipuð hátækniiðnaði að því leyti að starfsemin er
oft ekki stór um sig, en áhrifin mjög mikil,“ segir
Thomson. „Gerð var rannsókn í Bretlandi þar sem
kom í ljós að hönnunarmiðuð fyrirtæki stóðu sig
að jafnaði betur en FTSE-100 fyrirtæki, og var
mælanlegur munur 10%, eins og sjá má nánar á
slóðinni www.designcouncil.org.uk.“
Með réttu starfi segir Thomson möguleika Ís-
lands mikla: „Huga þarf sérstaklega að áhrifum
hönnunar á smá og meðalstór fyrirtæki, og taka
tillit til sérstöðu Íslands í menningarlegum og
sögulegum skilningi. Stefna stjórnvalda sýnir
skilning á tengslum skipulegar nýtingar hönn-
unar, þróunar þjónustu, framleiðslu og nýsköp-
unar við auknar tekjur og fjölgun starfa.“
Hönnunarvettvangur var stofnaður árið 2005 af
iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti í samstarfi við
Samtök iðnaðarins, Útflutningsráð, Impru-
nýsköpunarmiðstöð, Reykjavíkurborg, og Form
Ísland –félag hönnuða. Hönnunarvettvangur hef-
ur það að markmiði að efla og kynna íslenska
hönnun.
Hönnun | Michael Thomson kynnti sér efnahagsleg áhrif og undirstöður hönnunar á Íslandi
Mikilvægi og möguleikar hönnunar
Michael Thomson
fæddist í Belfast árið
1957. Hann nam þrí-
víddarhönnun við
Ulsterháskólka, Bel-
fast, og stundaði fram-
haldsnám við Fach-
hochschuele für Gest-
altung, Schwabisch
Gmünd, Þýskalandi.
Thomson fékkst við
kennslustörf, var með-
limur British Design Council í sjö ár, og setti á
laggirnar Design Connect 1995. Hann sat í
framkvæmdastjórin ICSID frá 2001 til 2004
og var kosinn varaforseti BEDA 2004.
Michael Thomson er meðlimur Konunglega
listafélagsins.
allt í matinn á einum stað
www.netto.is • Verð birt með fyrirvara um prentvillur
Akranes • Akureyri • Grindavík • Mjódd Reykjavík • Salahverfi Kópavogi
bylting í þrifum heimilisins
sjálfvirkamoppan komin í nettó
Robomop er tæki sem hreinsar gólf, parket, marmara, flísar,
granít, línoliumdúk og eiginlega alla slétta fleti.
Tækið samanstendur af lítilli rafhlöðu drifinni kúlu sem dregur hringlaga plast-
hlemmmeð sér en undir honum er sérstakt filt sem tekur ryk, ló, dýrahár ofl.
Hægt er að tímastilla tækið á einn og hálfan tíma, heilan tíma eða hálftíma.
Þegar tækið verður rafmagnslaust þá er það endurhlaðið, hleðslutæki fylgir.
Þegar filtið er fullt er nýtt sett í staðinn, eitt handtak, 25 stk. í pakka, 500 kr.
pakkinn. Þegar tækið rekst í eitthvað breytir það um stefnu.
Tækið þrífur 60m2 á 1 klst. 98%.
Tækið fer undir rúm, sófa ofl. sem er yfir 8,5 cm.
Þeir sem hafa eignast Robomop eru sérlega ánægðir með það.
Það vinnur ámeðan þú ert í vinnu eða úti í garði!
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Á framandi
slóðir
Frábærar haustferðir
Heimsferða
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Takmarkaður
sætafjöldi
Bókaðu núna!
Nú er rétti tíminn til að heimsækja
Kína, þetta gífurlega stóra og fjöl-
menna land með margra alda sögu,
einstakri menningu, stórbrotnu
landslagi og litríkri þjóðarsál, á
sama tíma og ótrúleg og hröð upp-
bygging á sér stað. Í þessari ferð er
boðið upp á þverskurð af öllu því
merkasta.
Fararstjóri:
Héðinn Björnsson.
Argentína með sinn töfraljóma og
tangótakt og Brasilía, land regn-
skóga, kaffis og karnivals eru lönd-
in sem heimsótt verða í þessari
frábæru ferð. Buenos Aires, sem
stundum er nefnd París Suður-
Ameríku, Iguacu fossar, eitt mesta
náttúruundur álfunnar, Salvador de
Bahia, fyrrum höfuðborg Brasilíu
og hin eina sanna Rio de Janeiro
með Sykurtoppinn, strendurnar og
sambataktinn.
Fararstjóri:
Þóra Katrín Gunnarsdóttir.
Peking – Kínamúrinn – Xian
Terra Cotta herinn – Shanghai
Souzhou – Hong Kong
Guilin o.fl., o.fl.
Perlur Kína
17. okt. – 3. nóv.
Nokkur sæti laus
Argentína – Buenos Aires
Brasilía – Iguacu fossarnir
Salvador de Bahia
Rio de Janeiro o.fl., o.fl.
Suður-Ameríka
1. – 19. nóv.
Nokkur sæti laus
Félagsstarf
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Austfirðir 4 dagar 1. júlí. Síðustu
skráningardagar í þessa frábæru
ferð. Þórsmerkurferð 20. júní. Ekið er
til Hvolsvallar og að Seljalandsfossi.
Stoppað er hjá Jökullóninu undir Gíg-
jökli og litið inn í Stakkholtsgjá. Kaffi-
hlaðborð í Hestheimum. Uppl og
skráning í síma 588 2111.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Þann 14. júní verður farið í dagsferð á
vegum FEBG og FAG. Keyrt verður
um Árnessýslu og kvöldverður
snæddur á Hótel Eddu, Laugarvatni.
Miðasala nk. miðvikud., fimmtud. og
föstudag eftir hádegi í Garðabergi og
miðaverð er einungis kr. 3.500.
Vesturgata 7 | Vorferðalag Félags-
miðstöðva Þjónustumiðstöðva Mið-
borgar og Hlíða fimmtudaginn 8. maí
kl. 12.30. Ekið um Hvalfjörð. Sr. Krist-
inn Jens Sigurþórsson tekur á móti
okkur í Saurbæjarkirkju. Kaffiveit-
ingar í Skessubrunni í Svínadal. Sig-
ríður Norkvist leikur á harmonikku.
Leiðsögumenn. Skráning í síma
535 2740.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Vímulaus æska kl.
20 mánudag. Stuðningshópur for-
eldra.
Kvenfélag Langholtssóknar |
Sumarferð Kvenfélags Langholts-
sóknar verður farin fimmtudaginn 8.
júní. Að þessu sinni verður farið út í
bláinn og endað með þriggja rétta
málsverði í fallegu umhverfi. Skrán-
ing og greiðsla sem fyrst. Símar: 520
1300, 553 0856 og 568 4620.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. Rc3 c6 4. Rf3 d6 5.
Be3 Rf6 6. Dd2 0-0 7. Bh6 b5 8. Bd3 a6
9. Bxg7 Kxg7 10. 0-0-0 Dc7 11. e5 Rd5
12. h4 h5 13. Hde1 Rxc3 14. Dxc3 d5 15.
Rg5 a5 16. Bxb5 a4 17. Bd3 Ha5 18. f4
c5 19. f5 Rc6 20. f6+ exf6 21. exf6+
Kg8 22. Hhf1 a3 23. b3 cxd4 24. Dd2
Rd8
Staðan kom upp í opnum flokki á Ól-
ympíuskákmótinu í Tórínó á Ítalíu sem
lýkur í dag. Tyrkneski alþjóðlegi meist-
arinn Kivanc Haznedaroglu (2.455)
hafði hvítt gegn Llambi Qendro (2.395)
frá Albaníu. 25. Rh7! Kxh7 26. He7 Dc3
27. Bxg6+! Kg8 28. Dg5! Da1+ 29. Kd2
Dc3+ 30. Ke2 Bg4+ 31. Kf2 hvítur er
nú sloppinn frá skákum svarts og til að
forða máti fórnar svartur drottning-
unni. 31. … De3+ 32. Hxe3 dxe3+ 33.
Ke1 Re6 34. Dh6 fxg6 35. Dxg6+ og
svartur gafst upp enda fátt til varnar
eftir 35. … Kh8 36. f7. 13. og síðasta
umferð mótsins fer fram í dag og hægt
er að fylgjast með skákum íslensku lið-
anna í beinni útsendingu á heimasíðu
mótshaldara en mögulegt er að nálgast
vefslóð hennar á www.skak.is.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjórn@mbl.is
Hvítur á leik.
Fréttir í tölvupósti
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is