Morgunblaðið - 04.06.2006, Side 76

Morgunblaðið - 04.06.2006, Side 76
Síðustu mánuðir hafa veriðhörmungatíð fyrir tónleika-haldara – mikið framboð enlítil eftirspurn. Skýring á þessu er ekki augljós; kannski hafa menn verið að flytja inn (eða flytja ekki inn) hljómsveitir sem fólk vill ekki heyra í, miðaverð hefur verið of hátt, tónleikastaðirnir ómögu- legir eða vorið vondur tími til tón- leikahalds. Það er einnig tilgáta sem vert er að skoða hvort hér sé komin ný efnahagsvísitala – kannski byrjar kreppan einmitt í tónleikahaldinu. Síðan hrynur íbúðaverð, verðbólgan æðir af stað og við erum öll glötuð. Eða þannig. Hvað sem þunglyndi og þreng- ingum tónleikahaldara líður er ljóst að allmargir af þeim tón- leikum sem haldnir hafa verið á árinu eru með þeim bestu sem hér hafa sést. Nefna má til að mynda tónleika Joanna Newsome í Frí- kirkjunni sem voru ævintýralegir í meira lagi (og Smog var líka frá- bær). Mér segist svo hugur að í kvöld verði aðrir slíkir, þ.e. æv- intýralegir og frábærir tónleikar á dagskrá því bandaríska rokk- sveitin Sleater-Kinney leikur á Nasa í kvöld. Sleater-Kinney er skipuð þrem- ur stúlkum frá Olympia í Wash- ington-fylki á norðvesturströnd Bandaríkjanna. Upphaf sveit- arinnar má rekja til þess er Carrie Brownstein, klassískt menntaður píanóleikari, sá Riot Girrl-sveitina Heavens to Betsy á tónleikum og hreifst svo af að hún ákvað að snúa sér að rokkinu, fékk sér rafmagns- gítar og stofnaði hljómsveit. Í framhaldinu kynntist hún einni af liðskonum Heavens to Betsy, Cor- in Tucker, og þeim varð svo vel til vina að þær ákváðu að stofna hljómsveit saman. Fyrsti trommuleikarinn og fyrsta platan Hljómsveitina kölluðu þær stöll- ur Sleater-Kinney eftir götu í ná- grannabæ. Þetta var árið 1994 og til að byrja með voru þær bara tvær í sveitinni. Ári síðar var svo kominn tími til að gera meira úr samstarfinu og fyrsti trommuleik- arinn kom til sögunnar, Lora MacFarlane, og síðan fyrsta breið- skífan, samnefnd sveitinni. Önnur plata, Call the Doctor, kom út 1996, nýr trommuleikari, Janet Weiss, sem enn er í sveitinni, kom til liðs við hana 1997 og sama árið kom ný plata, Dig Me Out. The Hot Rock kom út 1999, All Hands on the Bad One árið 2000 og One Beat árið 2002. Seint á síðasta ári kom svo út platan The Woods, besta verk sveitarinnar hingað til finnst mér, mikil gítarplata sem sýnir að það er fullt af hug- myndum í gangi hjá þeim stöllum. Hreyfingin sem kölluð var Riot Girrls var femínistahreyfing og fyrsta plata Sleater-Kinney var mikil femínistaplata, beinskeytt og kraftmikil. Með tímanum hafa áherslur breyst hjá sveitinni, meira undir ef svo má segja. Tón- listin hefur líka breyst, víst er þetta enn rokk, og verulega kraft- mikið á köflum, en þeim lögum hefur líka fjölgað sem eru meira en rokk, víðari hljóðaheimur og fjöl- breyttari tök á tónmálinu. Á The Woods er mikill gítar eins og endranær, en nú eru líka gít- arsóló, hljómborð og ýmisleg furðulegheit til að krydda allt- saman. Lögin eru líka snúnari, ekki sama klassíska rokksmíðin og forðum, og í endann er svo geggj- aður rafmagnaður spuni. Eins og getið er leikur Sleater- Kinney á Nasa í kvöld. Skakkam- anage og Jakobínarína hita upp. Allir á Nasa Sleater-Kinney heitir tríó þriggja bandarískra stúlkna sem leikur á Nasa í kvöld. Það verður fjör. Sleater-Kinney er skipuð þremur konum frá Washington-fylki í Bandaríkjunum. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson 76 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ eeee VJV, Topp5.is VERÐUR HANN HUND- HEPPINN EÐA HVAÐ! eee S.V. MBL. eee VJV - TOPP5.is Leitið Sannleikans - Hverju Trúir Þú? LOKAUPPGJÖRIÐ Í HINUM STÓRKOSTLEGA X-MEN SAGNABÁLKI. NÚNA MUNU HINIR STÖKKBREYTTU BERJAST INNBYRÐIS SIGURVEGARINN RÆÐUR ÖRLÖGUM MANNKYNS. MEÐ HVERJUM HELDUR ÞÚ? MAGNAÐUR SUMARSMELLUR SEM ENGINN MÁ MISSA AF! NÝ GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA „AMERCAN PIE“ & „ABOUT A BOY“ FRÁ FRAMLEIÐENDUM „BRIDGET JONE’S DIARY“ OG „LOVE ACTUALLY“ eee L.I.B.Topp5.is FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY" OG "PERFECT STORM" HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA. THE POSEIDON ADVENTURE kl. 5 - 7 - 9 - og 11 B.I. 14 ÁRA THE DA VINCI CODE kl. 4 - 6 - 8 - og 10 B.I. 14 ÁRA MI:3 kl. 5 - 8 og 10:30 B.I. 14 ÁRA SHAGGY DOG kl.6 og 8 SAMBÍÓ KEFLAVÍKSAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA STAFRÆ eee V.J.V.Topp5.is eee S.V. MBL. eee V.J.V.Topp5.is POSEIDON ADV.. kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.I. 14 AMERICAN DRE.. kl. 6 - 8 MI : 3 kl. 10 B.I. 14 SHAGGY DOG kl. 4 POSEIDON ADVENTURE kl. 6 - 8 - 10 B.I. 14 ára X-MEN 3 kl. 3- 5:45 - 8 B.i. 12 á DA VINCI CODE kl. 10:10 B.i. 14 á SHAGGY DOG kl. 2 - 4 *ENGAR 4 SÝNINGAR MÁNUDAGINN 6. JÚNÍ TÍMARNIR GILDA LAUGARDAG , SUNNUDAG OG MÁNUDAG eee B.J. BLAÐIÐ Leikarinn Keanu Reevesákvað á sínum tíma að það væri tími til kominn að leita sér sálfræðiaðstoðar eft- ir að það fór að bera á kvíða- köstum hjá honum yfir því að hann væri að verða fertugur. Reeves áttaði sig á því að hann einblíndi um of á vinn- una og hann ákvað að hann þyrfti að hægja á sér og end- urmeta líf sitt. „Ég hóf að sækja meðferð og ég vann með sjálfum mér. Það hlaut að koma að þessu, ég býst við því að það hafi verið tími til kominn,“ segir Reeves. „Ég átti þessa sí- gildu stund þar sem ég var að verða fertugur og allt það sem því fylgir. Að auki vann ég gríðarlega mikið. Það var í rauninni kominn tími til að ég stæði kyrr um stund. En nú er ég tilbúinn að hefja vinnu á nýjan leik,“ segir Reeves sem verður hvorki meira né minna en 42 ára næsta haust. Fólk folk@mbl.is Reuters

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.