Morgunblaðið - 04.06.2006, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 04.06.2006, Blaðsíða 80
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alladaga í Lágmúla og Smáratorgi FYRIR 14 árum fæddist þeim Kristínu Björk Jóhannsdóttur og Guðmundi Björg- vini Gylfasyni fyrsta barnið, Hrafnhildur. Gleðin var ríkjandi á heimilinu og einu og hálfu ári seinna fæddist annað barnið, Jó- hann Gylfi. Þegar Hrafnhildur komst á skólaaldur fóru að gera vart við sig erf- iðleikar sem jukust frekar en hitt og eftir langa þrautagöngu kom í ljós að Hrafnhild- ur er með hrörnunarsjúkdóm sem þekktur er undir enska heitinu Batten Disease, á Norðurlöndunum Spielmayer Vogt. Kristín Björk og Guðmundur bera bæði í sér gen sem getur orðið þess valdandi að börnin sem þau eignast saman fæðist með þennan sjúkdóm. Kristín Björk er þroskaþjálfi, starfar við sérdeild Vallaskóla á Selfossi, og Guð- mundur kennir við unglingadeildina í sama skóla. „Hún lá við hliðina á mér og ég fann bara einhvern hristing. Við það vaknaði ég. Ég skildi ekkert í því hvað var að gerast. Sú til- finning að vakna við þetta er ólýsanleg.“ Á þennan hátt lýsir Kristín Björk fyrsta floga- kasti Hrafnhildar, en fyrstu einkenni þeirra sem hafa sjúkdóminn lýsa sér einmitt í því að viðkomandi fær flogaköst. Í upphafi var Hrafnhildur greind með góðkynja barna- flogaveiki en greiningin breyttist fljótlega úr því í að vera staðbundin flogaveiki. Þá voru þau send til Bandaríkjanna með barn- ið, á Mayo Clinic í Rochester, þar sem gerð- ar eru aðgerðir á þeim sem eru að kljást við staðbundna flogaveiki í heila. Kristín Björk og Guðmundur höfðu þá nýverið eignast þriðja barnið sem var sjö mánaða þegar þau héldu til Bandaríkjanna og ungbarnið varð eftir í umsjá móðurömmu sinnar á Selfossi. Úti í Bandaríkjunum kom fljótlega í ljós að eitthvað annað en flogaveiki amaði að Hrafnhildi og er heim var komið tóku við erfiðir tímar. „Þar átti náttúrlega að bjarga veröldinni,“ segir Kristín Björk, „við vorum þess vegna alveg í molum þegar við komum heim.“ Þetta var árið 2001 og árin sem fram- undan voru reyndust fjölskyldunni erfið. „Við tökum alltaf einn dag í einu þó að það vilji vefjast fyrir okkur,“ segir Kristín. Hrafnhildur var orðin ellefu ára loks þeg- ar rétt greining fékkst þó að yfirleitt gerist það fyrr, eða um sex ára aldur. „Tökum einn dag í einu“ Morgunblaðið/Jim Smart Mæðgurnar Kristín Björk Jóhannsdóttir og Hrafnhildur Guðmundsdóttir leiðast á leiðinni út í bíl eftir skóladaginn. Eftir Sigrúnu Ásmundar sia@mbl.is  Missir alla sína færni… | 32 Camp. Að sögn Atla Sigurjónssonar þjálfara voru um hundrað manns á æfingunni og voru all- ar mögulegar æfingar gerðar á grasflötinni við ENGU líkara var en fjöldi fólks væri við stífar heræfingar við ströndina í Rauðarárvík í gær- morgun en þar fór fram útiæfing á vegum Boot sjóinn. Boot Camp-þjálfun vísar til grunnþjálf- unar hermanna og er reynt á þolmörk líkamans til að komast í góða æfingu. Morgunblaðið/Kristinn Stífar heræfingar við Sæbraut FINNUR Ingólfsson íhugar nú tilmæli um að hann komi aftur til þátttöku í stjórnmálum. Í sam- tali hans við Morgunblaðið kemur fram, að eftir sveitarstjórnarkosningarnar á dögunum hafi fjölgað mjög í þeim hópi, sem hvetur hann til að gefa kost á sér í pólitík á nýjan leik og spurningu um hvort hann íhugi málið vegna þessa svarar hann játandi, hann taki mark á því sem þessir menn tali við hann um. Finnur Ingólfsson var varaformaður Fram- sóknarflokksins þegar hann tók þá ákvörðun að hætta í stjórnmálum um aldamótin. Margir töldu hann þá vera krónprins flokksins og arftaka Halldórs Ásgrímssonar á for- mannsstóli. Finnur settist á þing fyrir Reykvíkinga 1991, en hafði áður verið formaður Sam- bands ungra framsóknarmanna og aðstoð- armaður Halldórs Ásgrímssonar í sjávar- útvegsráðuneytinu og Guðmundar Bjarnasonar í heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu. Hann var iðnaðar- og viðskiptaráðherra í tæp fimm ár. Þegar Finnur lét af ráðherradómi fór hann í Seðlabankann, en hafði þar stuttan stanz því í árslok 2002 tók hann við starfi forstjóra Vátryggingafélags Íslands. Nú þegar Exista hefur keypt VÍS eignar- haldsfélag, þar sem Finnur var forstjóri, verður hann starfandi stjórnarformaður Vátryggingafélags Íslands. Íhugar endurkomu í pólitík Finnur Ingólfsson  Ef mér bjóðast | 10–11 MYNDLISTASKÓLINN í Reykja- vík hefur sent bréf til menntamála- ráðuneytisins þar sem kynnt var hugmynd að stofnun þriggja listiðnaðardeilda. Um er að ræða tveggja ára starfsnáms- brautir við ker- amik, textíl og teikningu með möguleika á áframhaldandi námi í samvinnu við erlenda skóla og stofnanir. Nám- ið yrði fjármagnað með þjónustu- samningi við menntamálaráðuneyti, auk skólagjalda. Skólastjórinn, Ingi- björg Jóhannsdóttir, segir að tíðar- andinn kalli á ríkara og sérhæfðara listnám í ljósi þess hversu sjónlistir eru orðnar ráðandi í umhverfi okkar. Því sé mikilvægt að bregðast við skorti á listiðnaðargreinum í skóla- kerfinu. | 44 Þörf á sér- hæfðara og ríkara listnámi Ingibjörg Jóhannsdóttir CHELSEA, enska meistaraliðið í knattspyrnu, vill fá 15 milljón evr- ur, tæplega 1.400 milljónir króna, fyrir íslenska landsliðsfyrirliðann Eið Smára Guðjohnsen. Frá þessu var skýrt í spænska íþróttadagblaðinu Marca í gær. Þar kemur ennfremur fram að Barcelona sé ekki tilbúið til að greiða þá upphæð fyrir Eið Smára en samkvæmt El Mundo Deportivo, íþróttadagblaði sem gefið er út í Barcelona, kemur til greina hjá fé- laginu að kaupa hann af Chelsea fyrir 8–10 milljónir evra, sem er á bilinu 740–920 milljónir króna. Í grein Marca kemur einnig fram að forráðamenn Real Madrid hafi líka spurst fyrir um Eið en fyrr í vikunni var fullyrt í enskum fjölmiðlum að til greina kæmi að hann færi þangað í skiptum fyrir brasilíska bakvörðinn Roberto Carlos, sem Chelsea hefur auga- stað á. Vilja fá 1.400 milljónir fyrir Eið MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út þriðjudaginn 6. júní. Fréttaþjónusta verður alla helgina á mbl.is og hægt er að koma ábendingum á framfæri á netfrett@mbl.is. Skiptiborð Morgunblaðsins er lokað í dag, hvítasunnudag, en opið frá kl. 13 til 20 annan dag hvítasunnu. Áskriftardeild- in er opin á hvítasunnudag frá kl. 8 til 15 en lokuð annan í hvítasunnu. Auglýsingadeild blaðsins er lokuð báða dagana. LÖGREGLAN á Selfossi sótti tvo er- lenda ferðamenn á Bláfellsháls í gærmorgun en þá höfðu þeir verið á gangi í um tólf klukkustundir. Ekk- ert amaði að fólkinu utan að nokk- urrar þreytu gætti eftir gönguna. Höfðu þau ekið bifreið sinni suður Kjalveg, sem opinn er að norð- anverðu að Hveravöllum, og festu bílinn þar. Ætluðu þau að ganga suður en eftir um tólf tíma gáfust þau upp og hringdu eftir aðstoð. Gáfust upp eftir tólf tíma göngu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.