Morgunblaðið - 09.07.2006, Síða 31

Morgunblaðið - 09.07.2006, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2006 31 UMRÆÐAN Haðaland - Einbýli í Fossvogi Vorum að fá í einkasölu eitt glæsilegasta einbýlishúsið í Fossvoginum. Húsið er allt á einni hæð og er sér- lega vel skipulagt. Fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, eldhús og stórar glæsilegar stofur. Arinn er í stofu. Hús, garður og lóð hafa fengið gott viðhald. Gluggasetning í stofum nær frá gólfi og í loft sem gefur húsinu mikla og skemmtilega birtu, ásamt því sem flæði hússins er mjög gott. Húsið stendur innst í botnlanga og ekki langt frá skóla. 5957 Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Smiðjustígur. Einbýli með þremur aukaíbúðum og byggingarrétti Falleg 290 fm húseign, kj., hæð og ris, í miðborginni með byggingarrétti að öðru einbýli/þríbýli á lóðinni. Tvær aukaíb. eru í kj. Húsið er mikið endurnýjað á undanförnum 3-4 árum, m.a. allt járn og tréverk utan á húsinu, gler og gluggar. Einnig hefur önnur stúdíóíb. í kj.hússins verið nánast öll endurnýjuð. Auðvelt að breyta húsinu í eina íbúð. Nýleg um 100 fm vönduð verönd með skjólveggjum við húsið og þaðan gengið á um 150 fm hellulagða lóð. Á lóð hússins er 26 fm frístandandi gestahús (íbúð) sem er í útleigu í dag. Smáraflöt-Garðabæ. Sigvaldahús Glæsilegt 251 fm einbýlishús auk 37 fm bílskúrs, afar vel staðsett á besta stað í enda götu við opna svæðið, hraunið og lækinn neðst á Flötunum. Húsið og innréttingar allar eru teiknaðar af Sigvalda Thordarsyni og skip- tist í forstofu, eldhús, samliggjandi stofur með arni, 5 svefnherb. og tvö baðherbergi, annað inn af hjónaherbergi auk sjónvarpsstofu, þvottaherb., snyrtingu og geymslna í k. 990 fm lóð, ræktuð og frágengin með verönd. Hiti í stétt fyrir framan hús og í innkeyrslu að bílskúr. Stekkjarsel. Mjög fallegt 249 fm einbýlishús með 44,0 fm innb. bílskúr. Nýlega endurnýjað eldhús, björt stofa með góðri lofthæð, um 30 fm sjón- varpsstofa, 4 herb. og flísalagt baðherb. Suðurgarður með miklum timburveröndum og heitum potti. Hiti í innkeyrslu og stétt. Hús málað að utan sl. sumar. Vönduð eign sem hefur fengið gott viðhald. Verð 53,5 millj. Austurgerði 264 fm einbýlishús á tveimur hæðum með 23 fm innb. bílskúr á þessum gróna og eftirsótta stað. Á efri hæð eru forstofa, samliggj. bjartar stofur með útg á lóð til suðurs, eldhús með ljósum harðviðarinnrétt., 1 herb. og rúm- gott flísalagt baðherb. auk gesta w.c. Niðri eru stór sjónvarpsstofa, 3 rúmgóð herb. og baðherb. auk um 70 fm gluggalausu rými. Húsið er nýlega klætt að utan. Ræktuð lóð. Verð 57,9 millj. Hrauntunga-Kópavogi. Fallegt 263 fm einbýlishús á tveimur hæðum. Eignin er vel staðsett í suðurhlíðum Kópavogs og nýtur mikils útsýnis. Samliggjandi stofur með arni, eld- hús með nýjum tækjum, 4 herbergi og baðherbergi. Bílskúr innréttaður sem lítil íbúð. Hús nýlega málað og þak nýlegt. Gróin lóð sem er að hluta endurnýjuð. Mikil veðursæld. Verð 53,0 millj. Nesbali-Seltjarnarnesi Fallegt og vel skipulagt um 290 fm einbh., á einni hæð með um 80 fm tvöf. bíl- skúr á sunnanverðu nesinu. Eldhús með hvítri ALNO innréttingu og vönduðum tækjum, gengið í sólskála úr eldhúsi sem býður upp á mikla möguleika, stofa og borðst., m.miklum glugg- um, 4 svefnherb. auk sjónvarps- rýmis/ skrifstofu og rúmgott baðhb.,auk gestasnyrtingar. Stórt yfirbyggt anddyri og 20 fm herb. undir bílskúr. Parket og flísar. Ræktuð lóð með timburverönd til suðurs. Hellulögð upphituð innkeyrsla. Einstök eign á eftirsóttum stað í grónu og rólegu hverfi. FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali. Njálsgata 38 OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-15 www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Sjarmerandi og vel skipu- lögð 2ja herb. íbúð, sam- byggt 42 fm sérbýli á einni hæð með sérinngangi. Gengið er inn bakatil. Inn- an íbúðar er eitt rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi. Forstofan er dúklögð. Rúmgott eldhús með furuinnréttingu og borðkrók. Stofan til hliðar við forstofu. Baðherbergi með sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél, dúkur á gólfi. Parket á stofu og herbergi. Klæðning í lofti og einangrun í eldhúsi og svefnherbergi var end- urnýjuð á þessu ári. Rafmagnstafla er endurnýjuð. Geymsluris yfir hluta íbúðar og skriðkjallari. Verð 13,8 millj. Þórunn Gréta tekur á móti ykkur í dag frá kl. 14-15. arflokksins, Halldór Ásgrímsson, hafa beinlínis verið holdgervingar stóriðjustefnunnar. Þau hafa keyrt hana áfram af miklu offorsi og beitt til þess af óbilgirni og hörku afli, fjár- munum og valdi ríkisins. Þar varð engin breyting á 2003. Það er ein- hver undarlegasta söguskýring sem ég hef lengi heyrt að með breyt- ingum á raforkulögum og innleiðingu orkutilskipunar Evrópusambandsins í raforkumálum á Íslandi hafi orðið grundvallarbreyting hvað varðar af- stöðu Framsóknarflokksins og Sjálf- stæðisflokksins og framgöngu rík- isstjórnar þeirra í stóriðjumálum. Þess sér hvergi stað. Ef eitthvað er hefur stóriðjustefnan verið keyrð áfram af enn meiri ákefð nú síðustu misserin en áður. Nokkrar stað- reyndir þessu til rökstuðnings: 1. Ríkið á og rekur sérstakt fyr- irtæki, Fjárfestingastofuna, sem hef- ur gagngert það hlutverk að laða hingað erlenda aðila, ekki síst til fjár- festinga í orkufrekum iðnaði. 2. Ríkið var samningsbundinn þátttakandi í undirbúningi, yf- irstandandi framkvæmda og er áfram í undirbúningi verkefna sem ætlunin er að ráðast í á næstu miss- erum. 3. Ríkið á helminginn í Lands- virkjun og fyrirtækið heyrir undir iðnaðarráðherra og hann tilnefnir stjórnarmenn í fyrirtækinu. Ríkið samþykkir ábyrgðir á lánum þegar Landsvirkjun ræðst í stórfjárfest- ingar ásamt með sveitarfélögunum sem eiga fyrirtækið á móti ríkinu. 4. Iðnaðarráðherra, fyrir hönd rík- isstjórnar, hefur undirritað og verið aðili að viljayfirlýsingum um und- irbúning stóriðjuverkefna, eins þeirra sem fyrirhugaðar eru og hinna sem eru í gangi. Síðasta og nærtækasta dæmið er viljayfirlýsing Alcoa, ríkisstjórnarinnar og Húsa- víkurbæjar um álver á Húsavík, sbr. fréttatilkynningu sömu aðila frá 17. maí sl. Sjá t.d. heimasíðu iðn- aðarráðuneytisins. 5. Ríkisstjórnin hefur endurtekið beitt sér fyrir eða a.m.k. reynt að beita sér fyrir lagabreytingum sem haft hafa þann yfirlýsta tilgang að greiða götu stóriðjustefnunnar. 6. Í riti sem finna má á heimasíðu iðnaðarráðuneytisins og kallast Meg- inverkefni og áherslur á sviði iðn- aðar- og viðskipta- mála 2003–2005 seg- ir m.a. á bls. 11 undir fyrirsögninni Stór- iðja: „Undir forystu iðnarðar- og við- skiptaráðherra hef- ur verið unnið öt- ullega að því að breyta ónýttum verðmætum sem fólgin eru í óbeisl- aðri orku fallvatna og jarðvarma í raun- veruleg verðmæti.“ Síðan eru helstu afrek á sviði stóriðjuframkvæmda og fyrirhugaðra stóriðjuverkefna talin upp. Sjá aftur heimasíðu ráðuneytis Jóns Sigurðssonar. Með öðrum orðum; stór- iðjustefnan er virk, hún er miðlæg í áherslum ríkisstjórnarinnar í at- vinnumálum og ráðherrar hæla sér af henni, eða gerðu a.m.k. til skamms tíma. Ómældum opinberum fjár- munum ríkisins og fyrirtækja í op- inberri eigu hefur verið, og er, varið til áróðurs fyrir stóriðjustefnunni. Þeir sem staðið hafa í lappirnar í þágu íslenskrar náttúru og andæft eyðileggingu hennar á altari stór- iðjustefnunnar undanfarin ár sættu, allavega lengi framan af, miklu ámæli einkum og sér í lagi frá áköf- ustu boðendum stóriðjufagnaðar- erindisins. Um það vitum við Vinstri græn allt sem vitað verður. Annað dæmi mjög skylt um æv- intýraleg öfugmæli iðnaðarráðherra, Jóns Sigurðssonar, sem á stuttum ferli hefur náð að koma á óvart fyrir hug- kvæmni í þeim efnum, eru ummæli hans um hina var- færnu nálgun stjórn- arinnar, hinn vandaða um- hverfisundirbúning Kárahnjúkavirkjunar og hvernig ríkisstjórnin hafi umgengist landið af full- kominni virðingu. Sjá Mbl. 12. júní sl. Ekkert er fjær sanni. Kárahnjúkavirkjun er einmitt ljótasta dæmið hingað til um misbeitingu pólitísks valds þar sem hin faglegu sjónarmið í umhverfismálum voru að engu höfð. Það er ekki seinna vænna en að iðnaðarráðherra, Jón Sigurðs- son, og einn af kandidötum til for- mennsku í Framsóknarflokknum átti sig á því að Kárahnjúkavirkjun fékk falleinkunn hjá hinum faglegu um- hverfismatsaðilum. Skipulags- stofnun lagðist gegn framkvæmdinni með þeim rökum að henni fylgdu um- fangsmikil, óafturkræf og neikvæð umhverfisáhrif. Það var hins vegar umhverfisráðherra úr röðum fram- sóknarmanna sem með pólitísku handafli sneri þeim úrskurði við og heimilaði framkvæmdina. Þessu er ekki hægt að lýsa á þann hátt sem Jón Sigurðsson gerir tilraun til á fyrstu dögum sínum í embætti nema fyrir liggi og viðurkennt sé að við- komandi tali jafnan í öfugmælum. ’… stóriðjustefnan ervirk, hún er miðlæg í áherslum ríkisstjórn- arinnar í atvinnumálum og ráðherrar hæla sér af henni, eða gerðu a.m.k. til skamms tíma. ‘ Steingrímur J. Sigfússon Höfundur er formaður Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.