Morgunblaðið - 09.07.2006, Page 38
38 SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Helluhrauni 10, 220 Hf.,
sími 565 2566,
www.englasteinar.is
Englasteinar
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ANNA SIGRÍÐUR INGÓLFSDÓTTIR,
Gullsmára 9,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð sunnudaginn
25. júní síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að hennar ósk.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild D1 í Sunnuhlíð fyrir góða umönnun
og hlýju.
Hjörleifur Guðnason,
Margrét Hjörleifsdóttir, Eiríkur Ólafsson,
Elín Hjörleifsdóttir, Sumarliði Aðalsteinsson,
Guðni Hjörleifsson, Sigríður Margrét Vigfúsdóttir,
Ingólfur Hjörleifsson, Steinunn Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
ÖRN JÓHANN ÁRNASON,
Hólmgarði 29,
Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
miðvikudaginn 5. júlí.
Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
mánudaginn 10. júlí kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á F.A.S.,
sími 898 5819.
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir,
Erla Arnardóttir,
Reynir Strandberg Arnarson,
Selma Margrét Arnardóttir, Gylfi Pétursson,
Linda Borg Arnardóttir,
Gunnlaugur Gíslason, Þórdís Sigurðardóttir,
Ingibjörg Eggertsdóttir
og barnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
STEINGRÍMUR KOLBEINSSON,
Miðstræti 22,
Neskaupstað,
lést miðvikudaginn 5. júlí á Fjórðungssjúkra-
húsinu í Neskaupstað.
Hjördís Arnfinnsdóttir,
Kristín Steingrímsdóttir, Mikael Hansen,
Andrés Kolbeinn Steingrímsson, Hulda Óladóttir,
Sigurður Þór Steingrímsson,
Rúnar Þröstur Steingrímsson,
Arnfinnur Ægir Steingrímsson, Hjørdis Nielsen
og barnabörn.
Elsku móðir, tendamóðir og amma,
SIGRÚN HJÖRDÍS EIRÍKSDÓTTIR,
andaðist föstudaginn 7. júlí á hjúkrunarheimilinu
Víðinesi.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Haraldur Gunnarsson, Lilja Hólm Ólafsdóttir,
Eiríkur Haraldsson,
Ólafur Aron Haraldsson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
FRIÐRIK HALLDÓR VALGEIRSSON,
Suðurgötu 72,
Hafnarfirði,
lést þriðjudaginn 4. júlí á krabbameinsdeild
Landspítalans við Hringbraut.
Hann verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 12. júlí kl. 13.00.
Hólmfríður Ragnheiður Jónsdóttir,
Jón Valgeir Halldórsson,
Ingþór Halldórsson,
María Dögg Halldórsdóttir, Ævar Örn Magnússon
og barnabörn.
✝ Hafþór Guð-mundsson fædd-
ist á Hrafnhóli í
Hjaltadal 6. janúar
1918. Hann lést á
Hjúkrunarheimilinu
Grund við Hring-
braut 8. júní síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Guð-
mundur Benjamíns-
son, bóndi í Smiðs-
gerði og Sviðningi í
Kolbeinsdal í
Skagafirði, f. á
Ingveldarstöðum í
Hjaltadal í Skagafirði 5. mars
1883, d. 30.desember 1961, og
kona hans Anna Jónsdóttir hús-
freyja, f. á Syðri-Bægisá í Öxnadal
í Eyjafirði 18. júní 1877, d. 6. júlí
1969. Hafþór átti einn bróður,
Árna Guðmundsson múrarameist-
ara í Reykjavík, f. í Viðvík í Viðvík-
Kristín Ragnheiður, f. 15. júlí
1965, búsett erlendis, og 3) Sigurð-
ur Kolbeinn, f. 1. nóvember 1969,
rekur fyrirtæki í Mosfellsbæ. Dótt-
ir Sigurðar er Solveig Rut nemi í
Menntaskólanum við Sund, f. 28.
júní 1988.
Hafþór ólst upp í Smiðsgerði í
Kolbeinsdal í Skagafirði. Hann var
stúdent frá Menntaskólanum á Ak-
ureyri 1941, cand. juris frá Há-
skóla Íslands 1946, fór haustið
1946 til framhaldsnáms í stjórnar-
farsrétti og þjóðarétti, fyrst til
Danmerkur, 1946–1947, og síðan
til Frakklands, 1947–1949. Hann
lauk prófi í þjóðarétti frá Lög-
fræðideild Parísarháskóla og
varði þar doktorsritgerð 1. desem-
ber 1951, var tímabundið bæjar-
fógeti í Neskaupstað og á Siglu-
firði, hæstaréttarlögmaður 5.
febrúar 1952. Ásamt því að reka
innflutningsfyrirtæki í Reykjavík
rak hann lögfræðiskrifstofu í
Reykjavík frá 1952 til 1973, er
hann gerðist fulltrúi borgarfóg-
etaembættisins til starfsloka.
Útför Hafþórs var gerð í kyrr-
þey, að ósk hins látna.
urhreppi í Skaga-
firði, 18. júlí 1919, d.
13. febrúar 1991.
Hafþór kvæntist Sol-
veigu Kolbeinsdótt-
ur, magister í ís-
lensku og íslenskum
fræðum frá Háskóla
Íslands, f. á Skriðu-
landi í Kolbeinsdal í
Skagafirði 23. mars
1927, d. 5. ágúst
1984. Hún starfaði
lengst af sem kennari
við Kvennaskólann í
Reykjavík, og starf-
aði síðar á Handritadeild Lands-
bókasafns. Hún var dóttir Kol-
beins Kristinssonar fræðimanns
og Kristínar Guðmundsdóttur,
húsfreyju á Skriðulandi. Hafþór
og Solveig eignuðust þrjú börn,
þau eru: 1) Anna Benedikta, f. 31.
maí 1964, d. 6. janúar 1986, 2)
Elsku afi minn, það er sárt að missa
þig strax, þó svo að þú hafir verið orð-
inn gamall þá bjóst ég alls ekki við því
að þú myndir fara strax. Þú varst orð-
inn 70 ára gamall þegar ég fæddist.
Þú varst fróðasti maður sem ég þekki
og kenndir mér mikið, þú talaðir m.a.
þýskuna reiprennanndi af því að þú
bjóst úti um allan heim. Ég man alltaf
eftir því þegar að ég fékk þýska bók
um álfa frá þér í jólagjöf og þú last
hana fyrir mig á þýsku og breyttir svo
í íslensku svo ég skildi nú aðeins bet-
ur um hvað sagan var. Alltaf þegar ég
heimsótti þig spurðirðu út í hvernig
mér gengi í skólanum og sagðir að ef
eitthvað gengi illa hjá mér gæti ég
alltaf beðið þig um hjálp, en annars
vissirðu nú að allt gengi mjög vel.
Þegar mig vantaði upplýsingar í sam-
bandi við nám spurði ég þig og treysti
á það sem þú sagðir. Fyrir mennta-
skólann þurfti ég að velja auka tungu-
mál til að læra, og þú sagðir mér auð-
vitað að velja þýsku. Og þó svo að mér
finnist þýskan alveg hræðilega leið-
inleg þá mun ég ekki hætta að læra
hana af því að þú sagðir mér að velja
þýsku og ég treysti því að hún muni
koma sér vel einn daginn.
Mér hefur alltaf fundist gaman að
ferðast og ég held að þú eigir ein-
hvern þátt í því, af því að þú hefur
ferðast út um allan heim og sagt mér
frá nokkrum af þeim ferðum sem mér
fannst mjög aðlaðandi. Þegar ég
sagði þér að mig langaði að fara eitt-
hvað út að læra spænsku þá varðstu
mjög ánægður og þér leist alveg voða-
lega vel á það. Sagðir að það væri
mjög þroskandi að fara ein út í nám
og að sjálfsögðu gott að læra nýtt
tungumál, og þú sannfærðir foreldra
mína um að leyfa mér að fara út, því
fyrir þau var erfitt að senda litlu
stelpuna sína eina út í heiminn. En ég
ákvað að skella mér til Dóminíska lýð-
veldisins í eitt ár og þér leist vel á það,
þú vissir alveg þónokkuð um það land,
en ekki margir þekkja það land hérna
á Íslandi. Þú varaðir mig þó líka við,
það væri erfitt að vera ein úti í landi
þar sem ég skildi ekki neitt, án fjöl-
skyldu og vina, en ég þyrfti bara að
vera jákvæð og horfa á björtu hlið-
arnar, en ef eitthvað kæmi upp á þá
ætti ég bara að hringja í þig eða
pabba og þið mynduð senda mig heim
strax.
Ég fór í ágúst 2005 og var mjög
spennt, en sagði við mömmu að eina
ástæðan fyrir því að ég myndi koma
fyrr heim yrði sú að ef eitthvað skyldi
koma fyrir þig, elsku afi. Og það gerð-
ist, þú fékkst heilablóðfall í endaðan
maí og lamaðist að hluta svo ég ákvað
samdægurs að ég kæmi heim til að
vera hjá þér. Ég kom svo heim um
morguninn 2. júní og kom til þín eftir
hádegi og sýndi þér myndir að utan.
Þó svo að þú hafir ekki getað tjáð þig
þá veit ég að þú varst mjög ánægður
að sjá mig og þér fannst gaman að sjá
myndirnar. Þú starðir á mig allan
tímann og þegar pabbi talaði við þig
þá horfðirðu samt á mig. Þú varst
mjög hress þennan dag og pabbi og
mamma voru hissa á því hvað þú hefð-
ir hresst mikið á fáum dögum, og við
héldum að þér myndi nú batna. En
daginn eftir fór þér að hraka aftur og
þú lést svo 8. júní, það var gott fyrir
þig að þú fékkst að fara, af því að sein-
ustu dagarnir þínir voru mjög erfiðir.
Nú veit ég að þú ert á betri stað og
þér líður vel, með Solveigu ömmu og
Önnu Bennu, stelpunni þinni.
Þín er sárt saknað, elsku afi, og ég
mun aldrei gleyma þér, þú kenndir
mér mjög mikið og ég met mikils allt
sem þú hefur gert fyrir mig.
Ég elska þig, elsku afi,
þín
Solveig Rut.
Elsku besti Hafþór minn, ég kveð
þig með söknuði.
Við vorum góðir vinir og ég mun
alla tíð muna vináttu okkar.
Þú kenndir mér margt sem ég mun
kenna börnunum mínum og vona að
börnin mín þrjú munu kenna sínum
börnum.
Við áttum sérstaklega góða tíma
saman og minnisstæðast er að þegar
þú varst orðinn slappur á Skarphéð-
insgötunni og ég kom og nuddaði á
þér bakið og hendurnar og þér fannst
það svo þægilegt.
Svo gastu ekki hugsað um þig sjálf-
ur og þú samþykktir að fara á dval-
arheimilið Fell.
Þegar þú varðst fyrir því að detta á
Felli og lærbrotnaðir og sendur á
Kumbaravog í sjúkraþjálfun héldum
við að þú kæmir aftur á Fell, en það
var ekki auðvelt að láta flytja þig til
baka. Það tók okkur Sigga 2 og ½ ár
að berjast fyrir því að fá þig aftur til
Reykjavíkur og voru það skelfilega
erfiðir tímar fyrir okkur því við gát-
um ekki hugsað vel um þig vegna fjar-
lægðar.
Loksins fékkstu pláss á Grund og
þakka ég guði fyrir það.
Þú yngdist um mörg ár og varst
farinn að sitja og ganga og spila ólsen
ólsen við starfsfólkið þar.
Þú varst alsæll á Grund og starfs-
fólkið þar á heiður skilið því þau voru
þér svo góð.
Það birti svo alltaf yfir þér í desem-
ber þegar þú vissir að þú værir að
fara í jólaboð hjá foreldrum mínum á
jóladag og þú kallaðir foreldra mína
höfðingja, ég gleymi því aldrei hvað
þú varst alltaf glaður þegar þú komst
til þeirra. Svo varstu hrifinn af Hörpu
Karen og Bjarna Marel og þau köll-
uðu þig afa.
Elsku besti vinur minn, ég á eftir
að sakna þín mikið en ég veit að þú ert
á góðum stað og ert í faðmi Solveigar
konu þinnar og Önnu Bennu dóttur
þinnar.
Koss og knús til þín, þín vinkona,
Ásta.
HAFÞÓR
GUÐMUNDSSON
Elsku afi.
Afi minn. Mig langar svo
að fá þig. Elsku afi minn,
viltu vera hjá mér alla dag-
ana? Ég elska þig.
Kveðja,
Harpa Karen.
Elsku afi minn, ég vildi að
þú værir ennþá hér. Ég man
sko alltaf eftir bláa súkku-
laðiboxinu þínu með rús-
ínusúkkulaðinu.
Kveðja,
Bjarni Marel.
HINSTA KVEÐJA