Morgunblaðið - 09.07.2006, Qupperneq 52
52 SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
eeee
V.J.V, Topp5.is
HVERNIG
ÁTTU AÐ HALDA
Í ÞANN SEM
ÞÚ HEFUR
ALDREI HITT.
FERSK, HUGLJÚF OG RÓMANTÍSK ÞAR SEM STÓRSTJÖRNURNAR KEANU REEVES OG
SANDRA BULLOCK FARA Á KOSTUM.EKKI MISSA AF ÞESSARI PERLU. ALGJÖRT AUGNAKONFEKT.
FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY" OG "PERFECT STORM"
HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA.
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA
KVIKMYNDIR.IS
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
„THE INCREDIBLES“ & „LEITIN AÐ NEMO“
VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON
TAKTU AFSTÖÐU.
THE BREAK UP kl. 5:45 - 8 - 10:10
THE CLICK kl. 1 - 3:15 - 8 B.I. 10
FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 5:45 - 10:10 B.I. 12
BÍLAR M/- ÍSL TAL. kl. 1 - 3:15
THE BREAK UP kl. 6 - 8:15 - 10:30
THE LAKE HOUSE kl. 6 - 8:15 - 10:30
CARS M/- ENSKU TALI kl. 6 - 8:30 - 10:50
BÍLAR M/- ÍSL TALI kl. 6 - 8:30
KEEPING MUM kl. 6 - 8:20 - 10:30 B.I. 12.ÁRA.
THE POSEIDON ADVENTURE kl. 10:50 B.I. 14.ÁRA.
GRÁTBROSLEGASTA GAMANMYND
SUMARSINS ÞAR SEM JENNIFER ANISTON OG
VINCE VAUGHN FARA HREINLEGA Á KOSTUM.
VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON
GRÁTBROSLEGASTA GAMANMYND
SUMARSINS ÞAR SEM JENNIFER ANISTON OG
VINCE VAUGHN FARA HREINLEGA Á KOSTUM.
TAKTU AFSTÖÐU.
THE BREAK UP kl. 8 - 10:10
BÍLAR M/- ÍSL TALkl. 2 - 5
CARS M/- ENSKU TAL. kl. 2 - 5
LAKEHOUSE kl. 8 - 10.10
TÓNLISTARHÁTÍÐIN Eistnaflug fer fram
um næstu helgi í Neskaupstað, nánar til-
tekið í Egilsbúð laugardaginn 15. júlí. Hátíð-
in var haldin í fyrsta skipti í fyrra og er í
fersku minni þeirra sem hana sóttu sökum
frábærrar tónlistar og gríðarlegrar stemn-
ingar, eins og Stefán Magnússon, primus
motor hátíðarinnar kemst að orði.
„Þetta gekk rosalega vel í fyrr en það
vantaði kannski aðeins upp á að fólk hér
fyrir austan kveikti á því hvers konar við-
burð var um að ræða.“
Og Stefán segir að Eistnaflugið í ár verð-
ur enn veglegra en í fyrra en þó með aðeins
öðruvísi áherslum. „Það verður aðeins
meira rokk og pönk og svo fær smá rjómi að
fljóta með, Dr. Gunni og Fræbbblarnir.“
Eins og í fyrra fara rútur frá Reykjavík
en að sögn Stefáns sýnist honum sem enn
fleiri ætli að koma á einkabílum.
„Allir þeir sem spiluðu í fyrra vilja koma
aftur í ár og ég er enn að fá pósta frá hljóm-
sveitum að biðja um að fá spila. Hátíðin
hefst á hádegi og henni lýkur á miðnætti og
svo verður bara klárað úr skápunum. Það er
ekkert aldurstakmark þannig að um daginn
verður bara pizza og gos en svo á ég von að
það færist fjör í leikinn hjá hljómsveitunum
um kvöldið.“
Stefán segir að tilgangurinn með þessari
hátíð sé einnig að koma austfirskum hljóm-
sveitum á framfæri og í ár troði nokkrar
unglingahljómsveitir úr sveitinni upp.
„Ég hlakka sérstaklega til að sjá þær
spila og vonandi sjá sem flestir sér fært að
mæta – bæði þeir sem hér búa og aðrir
landsmenn.“
Gisting er í tjöldum og tjaldstæðið er frítt.
Miðinn kostar 1000 kr, aldurstakmark er
ekkert og allir eru velkomnir.
Hljómsveitirnar:
Hostile, Atrum, Nevolution, Dr. Gunni,
Innvortis, Morðingjarnir, Concrete, Denver,
Changer, Momentum, Sólstafir, Fræbb-
blarnir, Darkness Crows, Þögnin, Severed
Crotch, Without the Balls.
Tónlist | Metal-hátíðin Eistnaflug verður haldin um næstu helgi í Neskaupstað
Klárað úr skápunum
www.myspace.com/eistnaflug
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Dr. Gunni er einn þeirra sem koma fram á
Metal-hátíðinni Eistnaflugi.
FYRSTA breiðskífa Snorra Snorrasonar, sig-
urvegara síðustu Idol-stjörnuleitar, er ný-
komin út og heitir hún Allt sem ég á. Athygli
vekur að Snorri stýrði sjálfur upptökum á
skífunni ásamt Vigni Snæ Vigfússyni og
samdi hann einnig þrjú lög á henni, þar á
meðal lagið „Farinn burt“ sem nýlega var
sent í spilun á útvarpsstöðvar landsins en
Snorri samdi einnig textann við lagið. „Þetta
er ástartexti. Lagið fjallar um strák sem er
ástfanginn af stelpu en hann fær hana ekki,“
segir Snorri og tekur það fram að textinn sé
ekki byggður á persónulegri reynslu.
Innblásturinn kemur bara
Snorri segist einnig hafa samið nokkra
texta á ensku sem Stefán Hilmarsson hafi síð-
ar þýtt yfir á íslensku, en fleiri komu að
textasmíðum á plötunni, þ.á m. Andrea Gylfa-
dóttir. „Ég hef nú verið minnst í því að semja
texta, það er kannski veikasta hliðin hjá mér,“
segir Snorri sem samið hefur fjölda laga í
gegnum tíðina. „Það má segja að lögin sem ég
hef samið hafi aðallega verið í poppstílnum,
en það er reyndar svolítið erfitt að segja í
hvernig stíl lag er fyrr en búið er að útsetja
það.“
En hvaðan fær hann innblásturinn? „Hann
kemur í raun bara hvenær sem er, maður
finnur það svolítið hvort maður er skapandi
eða ekki. Það kemur bara eitthvað inn í haus-
inn á manni og maður fer þá bara og pikkar
það upp.“ Varðandi upptökur á plötunni segir
Snorri að hann hafi verið mjög virkur í öllu
ferlinu en hann kom að útsetningum og
stjórnaði þessu öllu ásamt Vigni Snæ Vigfús-
syni gítarleikara „frá a til ö“ eins og hann
orðar það. Snorri hefur mikla reynslu af
plötuupptökum en hann sá m.a. um upptökur
á nýjustu Jet Black Joe plötunni sem kom út
fyrr á árinu.
Á plötunni eru hvort tveggja frumsamin lög
og tökulög. Snorri segist hafa fengið að ráða
mjög miklu varðandi lagavalið. „Ég fíla flest
af þessum lögum. Það er til dæmis lag þarna
með Abba, „Chiquita“ en því er breytt tölu-
vert svo það passi betur fyrir mig. Það er
núna í svona popp/rokk fíling eins og platan í
heild er. Þetta er til dæmis bara flott lag,
þannig að þetta er einfaldlega spurning um
útsetningar,“ segir Snorri. Eftir á að skipu-
leggja útgáfutónleika fyrir plötuna en þeir
verða að öllum líkindum í ágúst. Að sögn
Snorra er ekki komið á hreint hvar þeir verða
en hann segir að þetta verði stórir tónleikar.
Idol-stimpillinn
„Það er auðvitað alltaf einhver stimpill á
þeim sem fara í Idol, að þeir séu karókí-
söngvarar, séu bara frægir í skamma stund
eða eitthvað slíkt. Ég held að þetta sé ein-
faldlega bara spurning um það hvað menn
geta. Það á bara eftir að koma í ljós hvað
gerist í framtíðinni,“ segir Snorri sem
greinilega hefur velt framtíðarferlinum eitt-
hvað fyrir sér. „Ég er ekki karókí-söngvari.
Maður er að semja tónlist, búa til tónlist og
útsetja fyrir aðra. Maður spilar á hljóðfæri
og svona. Það er bara vonandi að það rætist
úr þessu. Ég geri örugglega öðruvísi plötu
næst, sem verður með meira af frumsömdu
efni í öðruvísi fíling. Ég hef alltaf verið hrif-
inn af einfaldleika, þar sem ekki er mikið
um flóknar og miklar útsetningar.“
Tónlist | Snorri Snorrason, sigurvegari Idol-stjörnuleitar, gefur út sína fyrstu plötu
„Ég er ekki
karókí-söngvari“
Snorri stýrði sjálfur upptökum á plötunni
ásamt Vigni Snæ Vigfússyni og samdi einn-
ig þrjú lög sem finna má á henni.
Eftir Jón Gunnar Ólafsson
jongunnar@mbl.is