Morgunblaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HERÞOTURNAR FARNAR Engin orrustuþota er nú eftir á Keflavíkurflugvelli, en þrjár þotur af gerðinni F15 flugu vestur um haf í gærmorgun. Þotur á vegum varn- arliðsins hafa verið hér á landi allt frá árinu 1953. Tvær björgunar- þyrlur liðsins verða áfram á Íslandi fram í næsta mánuð. Ályktun um vopnahlé Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gærkvöldi ályktun um tafarlaust vopnahlé í Líbanon. Mun alþjóðlegt friðargæslulið aðstoða Líbanonsher við að taka völdin af Hizbollah í S-Líbanon og Ísraelar hafa sig á brott. Búnaður burt af hnjúkunum Undirbúningur er hafinn hjá verktakafyrirtækjum vegna brott- flutnings búnaðar af virkjunarsvæð- inu við Kárahnjúka, þar sem ýmsum verkþáttum er lokið eða er að ljúka. Fyrirséð er að einn risaboranna ljúki verki sínu í lok ágúst og verður þá byrjað að taka hann í sundur. Rannsókn hófst fyrir ári Yfirvöld í Bretlandi og Pakistan yfirheyrðu í þær um 30 manns sem grunaðir eru um aðild að hryðju- verki sem átti að skipuleggja gegn bandarískum farþegaflugvélum. Rannsóknin á meintum hryðju- verkahóp hefur staðið yfir í um ár. Hugleikur hjá Penguin Gengið hefur verið frá sam- komulagi við Penguin-forlagið um útgáfu á bók bók Hugleiks Dags- sonar, Forðist okkur. Bókin verður gefin út á ensku í Bretlandi í haust, og síðar í Bandaríkjunum, Suður- Afríku, Ástralíu og Nýja-Sjálandi, og mun Penguin sjá um markaðs- setningu bókarinnar. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Bréf 32 Viðskipti 14 Minningar 35/39 Erlent 20/22 Kirkjustarf 39/40 Minn staður 20 Myndasögur 44 Landið 21 Dagbók 44/47 Suðurnes 22 Víkverji 44 Akureyri 22/23 Velvakandi 45 Árborg 23 Staður og stund 46 Daglegt líf 24/26 Bíó 58/61 Menning 27, 48/53 Ljósvakamiðlar 54 Forystugrein 28 Staksteinar 55 Umræðan 30/34 Veður 55 * * * Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó- hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns- dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                   ! " # $ %        &         '() * +,,,                        ÖRYRKJABANDALAG Íslands (ÖBÍ) hefur farið fram á það við stjórnir lífeyrissjóðanna að fallið verði frá ákvörðun um að skerða eða fella niður líf- eyrisgreiðslur öryrkja í síð- asta lagi fimmtudaginn 17. ágúst, eða að öðrum kosti verði fram- kvæmdinni frestað ótíma- bundið til að eðlilegur tími gefist til að skoða álitamál sem upp eru kom- in. Sigursteinn Másson, formaður ÖBÍ, segir að á fundi með forsvars- mönnum Greiðslustofu lífeyrissjóð- anna í gær hafi komið fram að hvorki Greiðslustofan né Lands- samband lífeyrissjóða hafi umboð til að semja við ÖBÍ vegna málsins. Því hafi verið farin sú leið að senda erindi til stjórna þeirra 14 lífeyr- issjóða sem málið varði. Meirihluti með undir 125 þúsund á mánuði „Þetta á að bresta á eftir tvo og hálfan mánuð og er – miðað við það sem við höfum fengið að sjá – allt að þriðjungs skerðing á heildartekjum fólks,“ segir Sigursteinn. Hann seg- ir að einkum sé um að ræða fólk sem hafði fremur lágar tekjur áður en það var metið til örorku, gjarnan verkamenn, fiskvinnslufólk og sjó- menn. Greiðslur frá lífeyrissjóðunum til um 2.300 öryrkja falla niður eða skerðast frá og með 1. nóvember nk., verði lífeyrissjóðirnir ekki við beiðni ÖBÍ um að breyta ákvörðun sinni, eða fresta framkvæmd henn- ar. Meirihluti þeirra, samtals 1.761 einstaklingur, var með undir 1,5 milljónir króna í heildartekjur á síð- asta ári, eða undir 125 þúsund krón- ur á mánuði. Þá falla að fullu niður greiðslur til 745 öryrkja sem höfðu undir 1 milljón króna í heildar- tekjur á síðasta ári. „Það er fjöldinn allur af fólki sem leitar til okkar og hefur samband við okkur sem er örvæntingarfullt. Örvænting er farin að grípa um sig meðal fólks. Við höfum sagt að þetta geti ekki orðið niðurstaðan, vegna þess að þetta er ekki bara sennilega ólöglegt, heldur líka full- komlega óréttlátt,“ segir Sigur- steinn. ÖBÍ vill að lífeyrissjóðir hætti við skerðingu eða fresti henni Örvænting farin að grípa um sig vegna skerðingar Sigursteinn Másson Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is ROGER Hodgson, ein helsta driffjöður hljóm- sveitarinnar Supertramp, hélt tónleika á Broad- way í gærkvöldi en þar lék hann eigin lög, bæði af sólóplötum sínum en einnig lögin sem hann gerði ódauðleg með Supertramp. Tónleik- arnir voru vel sóttir og góð stemning ríkti með- al tónleikagesta. Áður en Hodgson steig á sviðið á Broadway lék tónlistarmaðurinn KK fyrir gesti. Morgunblaðið/Eggert Roger Hodgson heillaði gesti á Broadway EFTIRSPURN eftir plássum á frí- stundaheimilum grunnskólabarna í Reykjavík hefur aukist frá því í fyrra og nemur aukningin um 300 til 400 plássum. Til þess að bregðast við aukinni eftirspurn hefur Reykjavík- urborg að undanförnu auglýst eftir fólki til hlutastarfa á frístundaheim- ilunum en illa hefur gengið að ráða í stöðurnar. Einungis er búið að manna 80 stöður og þarf Reykjavík- urborg að manna 142 stöður til við- bótar ef reka á öll frístundaheimili borgarinnar með góðu móti. Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs, segir að vanda frí- stundaheimilanna svipi til þess vanda sem flestar umönnunarstofn- anir þurfi að glíma við. Atvinnuleysi sé í algjöru lágmarki og þar sem um hlutastörf er að ræða, sem aðallega eru sótt af ungu fólki, sé borgin í samkeppni við verslanir og þjónustu- fyrirtæki um starfsfólk. Björn segir ennfremur að vandamál við mönnun heimilanna komi upp á hverju hausti og Reykjavík sé ekki eina sveitarfé- lagið sem glími við það. „Vandamálið er árvisst en við vonumst til að skrið- ur komist á ráðningarnar þegar mennta- og háskólanemar hafa feng- ið stundaskrár í hendur og geta ráð- stafað tíma sínum,“ segir Björn. Reynt að fá mannskap úr röðum stúdenta og aldraðra Björn telur ekki nægilegt að taka upp kjarasamninga eins og nýlega hafi verið gert heldur verði jafnframt að leita nýrra leiða til að manna stöð- urnar. „Við teljum að það sé mikill mannauður í röðum stúdenta í borg- inni og það sama gildir um eldri borgara,“ segir Björn og kveður borgaryfirvöld hafa hug á því að ræða við hagsmunafulltrúa skóla- fólks og eldri borgara um stöðu- gildin. „Við erum að reyna að fá borgarbúa til að ganga til liðs við okkur þar sem um mikilvæga sam- félagsþjónustu er að ræða sem fljótt kemur niður á samfélaginu sé hún skert,“ segir Björn og bendir á að fái börn ekki vistun á frístundaheimil- um geti það haft þær afleiðingar að fjarvistum foreldra þeirra frá vinnu fjölgi í kjölfarið. Vantar fólk á frístundaheimili Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is BIRKIR J. Jónsson tilkynnti í gær að hann myndi sækjast eftir emb- ætti ritara Framsóknarflokksins en kosið verður til stjórnar á flokks- þingi 18.–19. ágúst næstkomandi. Birkir Jón var kosinn á þing fyrir Framsóknarflokkinn í norðaustur- kjördæmi í kosningum 2003. Í tilkynningu frá honum segir: „Á komandi flokksþingi verður kosið um nýja forystu Framsóknarflokks- ins. Mikilvægt er að sú forysta hafi breiða skírskotun til aldurs, búsetu og kynjasjónarmiða. Á undanförn- um vikum hafa fjölmargir flokks- menn hvatt mig til að gefa kost á mér til embættis ritara Framsókn- arflokksins og hef ég nú ákveðið að verða við þeirri áskorun félaga minna.“ Haukur Logi Karlsson, fyrrver- andi formaður Sambands ungra framsóknarmanna, hefur einnig gefið kost á sér í embætti ritara og því er ljóst að kosið verður í öll æðstu embætti Framsóknarflokks- ins á flokksþinginu. Í framboði til ritara Fram- sóknarflokks
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.