Morgunblaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 40
HJALLAKIRKJA. Sameiginleg guðsþjón- usta Digranes-, Linda- og Hjallasóknar í Digraneskirkju kl. 11. KÓPAVOGSKIRKJA. Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Karl V. Matthíasson predikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Kópa- vogskirkju syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Boðið verður upp á hressingu að lokinni guðs- þjónustu. LINDAKIRKJA í Kópavogi. Sameiginleg guðsþjónusta Digranes-, Linda- og Hjalla- sóknar í Digraneskirkju kl. 11. SELJAKIRKJA. Sunnudagskvöldið 13. ágúst kl. 20 guðsþjónusta með alt- arisgöngu. Þá mun sr. Bolli Pétur Bolla- son predika og kór kirkjunnar leiðir söng- inn undir stjórn Jóns Bjarnasonar organista. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN. Samkoma kl. 20. með mikilli lofgjörð og fyr- irbænum. Ágúst Valgarð Ólafsson predik- ar. Þáttur kirkjunnar „Um trúna og til- veruna“ sýndur á Ómega kl.14. Og laugardaginn 19. ágúst samkoma kl. 20 með mikilli lofgjörð og fyrirbænum. Ólaf- ur H. Knútsson predikar. Þáttur kirkj- unnar „Um trúna og tilveruna“ sýndur á Ómega kl.14. BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmára 9, Kóp. Samkomur alla laugardaga kl. 11. Bæna- stund alla miðvikudaga kl. 20. Biblíu- fræðsla allan sólarhringinn á Útvarp Boð- un FM 105,5. Allir alltaf velkomnir. HJÁLPRÆÐISHERINN. Samkoma sunnu- daginn kl. 20. Elín Kjaran og Ólafur Jó- hannsson flytja ávarp. Umsjón Harold Reinholdtsen. Opið hús daglega kl. 16– 18 í ágúst (nema mánudaga). FRÍKIRKJAN KEFAS, Fagraþingi 2a. Sunnudaginn 13. ágúst er vitnisburða- samkoma kl. 20 í umsjá Bjargar R. Páls- dóttur. Lofgjörð og vitnisburðir Drottni Jesú til dýrðar. Kaffi og samfélag eftir samkomu. FÍLADELFÍA. Sunnudagur 13. ágúst al- menn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Garðar Ragnarsson. Lofgjörðarhópur Samhjálpar leiðir söng. Fyrirbænir í lok samkomu. Allir eru hjartanlega velkomn- ir. ,Athugið barnakirkjan hefst 27. ágúst. KROSSINN. Almenn samkoma að Hlíða- smára 5 kl. 16.30. BETANÍA, Lynghálsi 3. Samkoma kl. 11 sunnudaga. Einnig samkomur kl. 19.30 á föstudögum. KIRKJA JESÚ KRISTS Hinna síðari daga heilögu, Mormónar, Ásabraut 2, Garða- bæ. Guðsþjónusta sunnudag kl. 9 árdeg- is á ensku og kl. 12 á hádegi á íslensku. KAÞÓLSKA KIRKJAN. Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dómkirkja og basilíka. Sunnudaga. Messa kl. 10.30 Messa á ensku kl. 18. Alla virka daga. Messa kl. 18. Reykjavík, Maríukirkja við Raufarsel. Sunnudaga. Messa kl. 11. Laugardaga. Messa á ensku kl. 18.30 Virka daga. Messa kl. 18.30 Riftún í Ölfusi. Sunnudaga. Messa kl. 16. Miðvikudaga kl. 20. Hafn- arfjörður, Jósefskirkja. Sunnudaga. Messa kl. 10.30 alla virka daga. Messa kl. 18.30 Karmelklaustur. Sunnudaga. Messa kl. 08.30 Virka daga. Messa kl. 8. Keflavík, Barbörukapella. Skólavegi 38. Sunnudaga. Messa kl. 14. Stykk- ishólmur, Austurgötu 7. Alla virka daga messa kl. 18.30. Sunnudaga messa kl. 10. Ísafjörður. Sunnudaga messa kl. 11. Flateyri, laugardaga messa kl. 18. Bol- ungarvík. Sunnudaga kl. 16. Suðureyri. Sunnudaga messa kl. 19. Akureyri, laugardaga. Messa kl. 18. Sunnudaga. Messa kl. 11. KIRKJA SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA. Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19, Reykja- vík. Biblíufræðsla kl. 10. Guðþjónusta kl. 11. Ræðumaður Eric Guðmundsson. Loftsalurinn Hólshrauni 3, Hafnarfirði. Guðþjónusta/Biblíufræðsla kl. 11. Ræðumaður. Gavin Anthony. Safn- aðarheimili aðventista Gagnheiði 40, Selfossi. Biblíufræðsla kl. 10. Guðþjón- usta kl. 11. Ræðumaður Osi Carvalho. Safnaðarheimili aðventista Blikabraut 2, Keflavík. Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðþjónusta kl. 11. Ræðumaður. Guðný Kristjánsdóttir. Aðventkirkjan Brekastíg 17, Vestmannaeyjum. Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Maxwell Ditta. LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum. Sunnudagur 13. ágúst. Kl. 11. Messa með altarisgöngu, lofgjörð og miklum söng. Guðspjall dagsins er undir fyr- irsögninni „Gjör reikningsskil“ og í pistl- inum úr Orðskviðum Salómons er „Spek- inni sungið lof“. Þess verður minnst sérstaklega að 950 ár eru frá stofnun Skálholtsstóls og 9 ár frá stofnun Hóla- stóls. Kór Landakirkju syngur undir stjórn Guðmundar H. Guðjónssonar org- anista. Eftir messu er kaffisopi og spjall í Safnaðarheimilinu. Sr. Kristján Björns- son, sóknarprestur. ÞINGVALLAKIRKJA. Messa kl. 14. 13. ágúst. Sólveig Anna Bóasdóttir, dr.theol. predikar. Sóknarprestur þjónar fyrir alt- ari. Organisti Guðmundur Vilhjálmsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA. Morg- unsöngur kl. 10.30. Ath. tímann. Prest- ur. Sr. Gunnþór Þ. Ingason. Organisti. Antonía Hevesi. Félagar úr kór kirkjunnar leiða söng. GARÐAKIRKJA.Göngumessa kl. 11. Safnast verður saman í kirkjunni. Síðan verða skoðaðar framkvæmdir þær sem nýlega hlutu viðurkenningu Garðabæjar. Farið um kirkjugarð með viðkomu í duft- reit, gamla garði, vinnuaðstöðu og víðar. Endað í Króki. Þar verður kirkjukaffi í boði Garðabæjar. Ganga sem flestir ráða við. Kórfélagar leiða söng undir stjórn Jó- hanns Baldvinssonar. Sr. Friðrik J. Hjart- ar þjónar.Rúta fer frá Vídalínskirkju kl. 10.30 og frá Hleinum litlu síðar. ÞORLÁKSKIRKJA. Messa kl. 11. Prestur Baldur Kristjánsson, organisti Jón Bjarnason. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA. Guðsþjón- usta sunnudaginn 13. ágúst kl. 11. Barn borið til skírnar. Meðhjálpari Ástríður Helga Sigurðardóttir. Kór kirkjunnar syng- ur undir stjórn Natalíu Chow Hewett. KEFLAVÍKURKIRKJA. Sunnudaginn 13. ágúst guðsþjónusta kl. 11 sem verður útvarpað og einnig guðsþjónusta kl. 20, í þeirri messu verður altarisganga. Org- anisti Hákon Leifsson og kór Keflavík- urkirkju, prestur sr. Skúli S. Ólafsson. HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri. Bæn kl. 19.30 og almenn samkoma kl. 20. Dögg Harðardóttir talar. Allir velkomnir. EGILSSTAÐAKIRKJA. Messa að kvöldi dags kl. 20 í umsjá sr. Láru G. Odds- dóttur. Organisti Kristján Gissurarson. Mánudaginn 14. ágúst kyrrðarstund kl. 18. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA. Messa verður sunnudag 13. ágúst kl. 11. SELFOSSKIRKJA. Messa kl. 11,. Sókn- arprestur predikar og þjónar fyrir altari. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu eftir athöfnina. STRANDARKIRKJA. Messa kl. 14. Prest- ur Baldur Kristjánsson, organisti Jón Bjarnason. HAUKDALSKIRKJA. Guðsþjónusta verð- ur sunnudag 13. ágúst kl. 14. HVERAGERÐISKIRKJA. Orgelstund kl. 20. Organisti Jurg Sondermann. Prestur Baldur Kristjánsson Ljósmynd/Gísli Sigurðsson Landakirkja í Vestmannaeyjum. 40 LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ MESSUR Fermingarstörfin hefjast í Fríkirkjunni í Reykjavík Guðsþjónusta kl. 14, fermingarbörn og fjölskyldur þeirra eru hvött til að koma og taka virkan þátt. Guðs- þjónustan markar upphaf ferming- arstarfanna og vikan fram undan verður helguð fermingarfræðslu og samveru í kirkjunni. Í lok guðsþjón- ustu verður stuttur fundur með for- eldrum þar sem vetrarstarfið verð- ur rætt og undirbúið. Tónlistina mun þau Anna Sigríður Helgadóttir og Carl Möller leiða. Fríkirkju- prestarnir Hjörtur Magni Jóhanns- son og Ása Björk Ólafsdóttir munu þjóna saman fyrir altari. Hjörtur Magni predikar. Allir hjartanlega velkomnir. Upphaf fermingar- námskeiðs í Bústaðakirkju Fermingarbörn vorsins 2007 og for- eldrar þeirra eru beðin um að koma til messu kl. 11. Gögn vegna ferm- ingarnámskeiðs verða afhent. Org- anisti Guðmundur Sigurðsson. Kaffisopi eftir messu. Kvöldmessa kl. 20 í tilefni 30 ára tímamóta Free- portklúbbsins. Inger Anna Aikman predikar og Freeportfélagar, Mar- inó Þorsteinsson og Gunnar Örn Ólafsson, annast ritningarlestra. Freeportklúbburinn hefur komið saman til funda í Bústaðakirkju og verið þannig samferða í vexti og framgangi kirkjunnar frá fyrstu tíð. Guðmundur Sigurðsson organisti og félagar úr Kór Bústaðakirkju annast tónlistarflutning. Eftir mess- una verður afmæliskaffi í safn- aðarheimilinu. Fermingarnámskeið Neskirkju hefst um helgina Árlegt sumarnámskeið ferming- arbarna hefst með sameiginlegum fundi fermingarbarna og foreldra þeirra eða forsjármanna í Nes- kirkju sunnudaginn 13. ágúst kl. 20. Kennsla hefst síðan daginn eftir, mánudaginn 15. ágúst kl. 10 og stendur til kl. 16 alla daga fram á föstudag. Fræðslan fer fram í safn- aðarheimilinu og kirkjunni. Nám- skeiðinu lýkur með messu sunnu- daginn 20. ágúst kl. 11 en þá ganga fermingarbörnin til altaris í fyrsta sinn í fylgd foreldra sinna. Á námskeiðinu munu starfa margir fræðarar með ólíkan bak- grunn og reynslu. Kennt verður í litlum hópum, innan kirkju og utan, farið í vettvangsferðir og fengnar heimsóknir. Þau börn sem sækja námskeiðið þurfa ekki að ákveða hvort þau ætla að fermast fyrr en að loknu nám- skeiðinu og í reynd ekki fyrr en á vori komanda. Á námskeiðinu verð- ur lögð áhersla á hefðbundna fræðslu, leik og upplifun. Kennt verður um grundvallaratriði krist- innar trúar og menningararfinn sem íslensk þjóð hefur haldið í heiðri í þúsund ár og rætt um al- gengar tilvistarspurningar. Stuðst verður við Biblíuna, nýja verkefnabók sem Neskirkja gefur nú út í fyrsta sinn og kvikmynd um ævi Jesú. Leyst verða ýmis verk- efni, farið verður í svonefnt ljós- myndarallí og fleira. Fermingarskráning og Vatnaskógarferðir Hafnarfjarðarkirkju Skráning stendur enn yfir til ferm- ingarfræðslu Hafnarfjarðarkirkju fyrir fermingar á komandi ári 2007. Að þessu sinni er líkt og tvö síð- ustu ár boðið upp á tvenns konar fermingarfræðslu á vegum Hafn- arfjarðarkirkju og hægt að velja þar á milli eins og gefist hefur afar vel. Hópur a) er sumarhópur. Sá hóp- ur er nú brátt að fara í þriggja daga fermingarnámskeið í Vatnaskóg áð- ur en skólinn byrjar. Börnum úr Setbergs- og Öldutúnsskóla býðst að fara í Vatnaskóg þriðjud. 15. ágúst – fimmtud. 17. ágúst. Börnum úr Hvaleyrar- og Lækjarskóla býðst að fara í Vatnaskóg föstud.18. ágúst – sunnud. 20. ágúst. Kostar ferðin 5.500 kr. Síðan verður engin reglubundin kennsla fyrir sumarhópinn fyrr en í byrjun nóvember nk., en ferming- arbörnunum gefst kostur á að taka þátt í starfi kirkjunnar, t.d. æsku- lýðsstarfi, sem kynnt verður nánar jafnframt því sem þau sækja guðs- þjónustur með sínu fólki. Hópur b) er hausthópur. Sá hópur mun sækja fræðslu að jafnaði tvisv- ar í mánuði, tvo tíma í senn á laug- ardagsmorgnum frá september til nóvember og taka þátt í öðru starfi og sérverkefnum sem kynnt verður nánar, en í nóvember nk. sameinast sumar- og hausthópur og nemendur úr sömu skólum verða þá saman í fermingarfræðslutímum annan hvern laugardag, einn tíma í senn. Þeim býðst að fara í Vatnaskóg í septembermánuði í hálfan annan sólarhring. Kostar ferðin 3.000 kr. Haustnámskeið fermingarfræðslu í Árbæjarkirkju Mánudaginn 14. ágúst kl. 9 árdegis hefst haust-fermingarnámskeið Ár- bæjarsafnaðar. Fræðslan hefst með vikunámskeiði áður en skólinn byrj- ar, þ.e.a.s. mánudaginn 14. ágúst – föstudagsins 18. ágúst frá 9–13. Síð- an er gert ráð fyrir mánaðarlegum samverustundum í kirkjunni fram að fermingum vorið 2007. Sunnu- daginn 20. ágúst verður foreldra- fundur að lokinni guðsþjónustu sem börnin munu að mestu sjá um. Þau börn sem ekki geta notfært sér þetta tilboð koma til skráningar mánudaginn 4. september eftir að skóla lýkur þann daginn. Fá þau í hendur tilhögun um nám vetrarins. Æðruleysismessa á Akranesi Á morgun, sunnudaginn 13. ágúst kl. 20, verður haldin æðruleys- ismessa í Akraneskirkju. Fluttir verða fallegir sálmar, stutt hugleið- ing, lesin ritningarorð og reynslu- saga sögð. Félagar í AA-samtök- unum á Akranesi aðstoða í guðsþjónustunni. Hinn þjóðkunni dægurlaga- og gospelsöngvari, Þor- valdur Halldórsson, leiðir sönginn. Kirkjukaffi verður á eftir. Æðruleysismessur hafa verið haldnar í Akraneskirkju einu sinni til tvisvar á ári frá því á aldamótaári 2000. Hafa þær mælst mjög vel fyr- ir. Helgistund á Biskupssþúfu Ráðgert er að halda helgistund á Biskupsþúfu á Holtamannaafrétti, austan Þjórsár ofarlega sunnnudag- inn 13. ágúst kl. 16 í tengslum við dagsferð Ferðafélags Íslands. Til helgistundarinnar eru allir boðnir velkomnir. Allajafna hefur það þótt skemmsta leið úr Sunnlend- ingafjórðungi til Austfjarða um há- sumar að ríða upp úr Hreppum og yfir Þjórsá á Sóleyjarhöfðavaði. Rétt fyrir innan þann höfða, aust- anvert við ána, er Þúfuver; dregur það nafn af hól nokkrum, sem geng- ur fram í verið niður af Sprengi- sandi og heitir Biskupsþúfa; hafði þar til forna verið áfangastaður Skálholtsbiskupa, þegar þeir fóru vísitasíuferðir norður í Múlasýslur. Hægt er að ganga að staðnum frá Kvíslarveituvegi. Þarna er mein- ingin að safnast saman til helgrar tíðar. Fermingarbörn vorsins 2007 í Dómkirkjunni Fermingarfræðsla Dómkirkjunnar hefst þriðjudaginn 15. ágúst. Vænt- anleg fermingarbörn komi í kirkj- una kl. 9.30 að morgni. Fræðslan verður alla daga vikunnar og síðan í vetur samkvæmt áætlun sem gefin verður út í haust. Á námskeiðinu 15. – 18. ágúst verður farið yfir kjarna- atriði kristinnar trúar, fjallað um lífsvanda unglinga og það sem mæt- ir ungu fólki í dag. Viðfangsefnin verða hefðbundin fræðsla, leikur og upplifun. Við leggjum upp úr því að fræðslan nú og í vetur veki áhuga á fermingunni, trúnni og tilverunni – og bjóðum fermingarbörn okkar hjartanlega velkomin. Ferming- ardagar Dómkirkjunnar 2007 verða: Pálmasunnudagur, 1. apríl kl. 11.00; skírdagur, 5. apríl kl. 11.00 og hvítasunnudagur, 27. maí kl. 11.00 Göngumessa í Garðakirkju Svokölluð göngumessa verður í Garðakirkju á sunnudag kl. 11.00. Eftir að safnast hefur verið saman í kirkjunni verður nágrenni hennar skoðað nánar. Miklar breytingar hafa orðið á aðkomunni að kirkj- unni og hefur hún að tillögu um- hverfisnefndar hlotið sérstaka við- urkenningu Garðabæjar fyrir snyrtilegt umhverfi. Garðakirkjugarður er bæj- arprýði. Gamli kirkjugarðurinn ilm- ar af sögu. Hann er vel afmarkaður af hlöðnum grjótvegg sem nýlega hefur verið endurnýjaður. Um- hverfis hann hefur verið skipulögð gróðurvin með góðum stígum milli grafarstæðanna, bekkjum til að hvíla lúin bein, auk sérstaks reits fyrir duftker. Farið verður um garðinn og m.a. litið á aðstöðu starfsfólksins. Gangan endar í Króki á Garða- holti, en þar verður kirkjukaffi í boði Garðabæjar. Þetta er létt ganga sem flestir ráða við. Kór- félagar leiða söng undir stjórn Jó- hanns Baldvinssonar, organista safnaðarins. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Rúta fer frá Vídalínskirkju kl. 10.30 og frá Hleinum litlu síðar. Á www.gardur.is má sjá kort af garðinum og fletta upp í leg- staðaskrá. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Þingvallakirkja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.