Morgunblaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Skynjun hrútsins magnast því him- intunglin beina athyglinni að tilfinningum hans. Þú ert næmari fyrir þyrnóttu fólki, góðum samningi, vonlausum vísbend- ingum og væmninni sem heltekur þig þegar þú átt samskipti við hjartfólginn ástvin. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það er engin ástæða til þess að fela sig eða þykjast, þó að þú finnir hjá þér hvöt til þess. Enginn vill hætta á að gera sig að fífli fyrir framan aðra. Vertu bara viss um að vera öruggur. Þú ert bæði viðunandi og í góðum metum. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Himintunglin mæla með því að tvíburinn bregðist við þverrandi arðsemi. Stundum felst besta sóknin í því að breyta áhersl- unum. Gleymdu vandamálinu. Taktu þér pásu. Þú sérð hlutina skýrt og greinilega í kvöld. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Hjarta þitt er einlægt og þú gefur allt sem þú átt. Léttu andlega álaginu af sjálf- um þér. Auðvitað þarftu að sýna ábyrgð í viðkvæmum og alvarlegum aðstæðum, en það eru takmörk fyrir því sem hægt er að ætlast til af þér. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Spáðu í framfarir þínar. Það er nauðsyn- legt skref í þroskaferlinu. Leggðu þig fram við að nota það sem þú lærðir fyrir löngu, þannig kemst þú hjá áföllum, bæði fjárhagslegum og félagslegum. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Raunsæi meyjunnar hjálpar henni til þess að vera eins og Davíð að sigra Golíat. Að því undanskildu að risinn mikli er ekkert annað en þín eigin reiði. Ef þér tekst að vinna bug á henni með slöngvivaði verður þú sannarlega kóngur eða drottning. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Um leið og þú færð hugmynd skaltu framkvæma hana. (Annars bíður þú bara, efast og gleymir henni á endanum.) Réttu fram höndina ef þú hittir einhvern sem þig langar til að kynnast. Þér verður vel tekið. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Vertu á varðbergi gagnvart orkusugum og hlauptu í burtu ef einhver þeirra verð- ur á vegi þínum. Um þessar mundir er allt of auðvelt að spila með tilfinningarnar. Hvort sem um er að ræða sorg eða gleði finnur þú hana djúpt og innilega. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Er eirðarleysið eitthvað að angra þig? Slakaðu á. Jafnvægi er lykillinn að því að komast áleiðis. Þú ert góður og gegn eins og þú ert. Framfarir verða af sjálfu sér ef þú trúir því að þú eigir heimtingu á alls- nægtum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Hetjudáðir eru í eðli steingeitarinnar. Ef maki þinn stendur ekki við skuldbind- ingar sínar, bjargar þú málunum. Greið- inn verður endurgoldinn síðar, en þó að svo væri ekki, myndir þú endurtaka leik- inn. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Skilin á milli góðs sjálfstrausts og hroka eru ekki svo skörp, þú uppgötvar það núna. Hvernig fer maður að því að virðast sjálfsöruggur án þess að hræða aðra? Þú sýnir ábyggilega af þér of mikla góð- mennsku í þeim tilgangi að falla ekki í áliti. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Fjármálin hvíla á fisknum. Hafðu trú á getu þinni til að skapa. Þú aflar meira fjár ef þú ert staðráðinn í því að gera það. Ekki hafa áhyggjur af því „hvernig“ þú ferð að því í augnablikinu, vertu bara viss um að þú átt það skilið. Stjörnuspá Holiday Mathis Sambönd verða eins og villt safarí-ferð þegar Venus, ást- argyðja með meiru, fer inn í frumskóg ljónsins. Hún verður á þeim slóðum fram til 5. september. Rómantíkin blómstrar þegar hinar frumstæðari kennd- ir fá að njóta sín. Um þessa helgi uppskera þeir sem þora að elska upphátt. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 geðvondur, 8 digurt, 9 tekur, 10 málm- ur, 11 slitni, 13 kjánar, 15 höfuðfats, 18 mannsnafn, 21 gerist oft, 22 bæli, 23 sætta sig við, 24 spjalla saman. Lóðrétt | 2 skræfa, 3 snáði, 4 ljúka, 5 mergð, 6 hæðir, 7 þrjóskur, 12 veiðarfæri, 14 ekki göm- ul, 15 hitti, 16 dragsúg, 17 al, 18 skriðdýr, 19 at- vinnugrein, 20 fuglinn. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 rupla, 4 bugar, 7 móður, 8 rjótt, 9 sút, 11 annt, 13 fita, 14 erfir, 15 bull, 17 ílát, 20 þrá, 22 lofar, 23 bæt- um, 24 rúnir, 25 tjara. Lóðrétt: 1 rimpa, 2 peðin, 3 aurs, 4 bert, 5 glófi, 6 rétta, 10 útför, 12 tel, 13 frí, 15 bólur, 16 lyfin, 18 letja, 19 tomma, 20 þrír, 21 ábót.  Tónlist Ketilhúsið Listagili | Hljómsveitin Fræ með tónleika, opnað kl. 21.30. Sadjei hitar upp. Aðgangseyrir 1.000 kr., öllum opið. Reykholtskirkja | Jón Ólafur Sigurðsson leikur á orgelið og Kristín R. Sigurðardóttir syngur á morgun kl. 17. www.reykholt.is Tékkneski tónlistarhópurinn Musica ad Gaudium heldur tónleika í 15. ágúst kl. 20. Myndlist 101 gallery | Serge Comte – sjö systur – se- ven sisters. Opið fim.-laug. kl. 14-17. Anima gallerí | Múni – Árni Þór Árnason og Maríó Múskat (Halldór Örn Ragnarsson). Opið fim., fös. og lau. kl. 13–17. Art-Iceland Mublan | Samsýning gallerísins Art-Iceland.com. Sýnendur eru: Árni Rúnar Sverrisson, Helga Sigurðardóttir og Álf- heiður Ólafsdóttir. Sýningin er í Versl. Mubl- unni, Nýbýlavegi 18, Kópavogi. Byggðasafn Garðskaga | Reynir Þor- grímsson, Reynomaticmyndir. Björn Björns- son tréskúlptúr. Opið kl. 13–17, alla daga. Café Karólína | Karin Leening sýnir. DaLí gallerí | Joris Rademaker sýnir rým- isverk. Opið virka daga og laugard. kl. 14–18. Eden, Hveragerði | Árni Björn sýnir. Opið kl. 9–22 daglega til 14. ágúst. Energia | Sölusýning á landslagsmyndum eftir Mýrmann. Uppl. á www.myrmann.tk Gallerí BOX | Stella Sigurgeirsdóttir sýnir textaverk inn í BOXinu og skilti í Listagilinu. Opið á fim. og lau. kl. 14–17. Grafíksafn Íslands | „Sýning eða ekki- sýning?“ Óformleg sýning með með teikn- ingum, litógrafíum, skissum og fleiru. Hafnarborg | Yfirskrift sýningarinnar „hin blíðu hraun" beinir sjónum að hrauninu í Hafnarfirði. Tólf listamenn sýna. Hallgrímskirkja | Sumarsýning á verkum Ásgerðar Búadóttur veflistakonu. Handverk og Hönnun | Íslenskur listiðnaður og nútíma hönnun eftir 37 aðila. Opið alla daga kl. 13–17. Kaffi Sólon | Kolbrún Róberts sýnir afstrakt málverk. Stendur til 1. sept. Ketilhúsið Listagili | Hrefna Harðardóttir sýnir. Sýning framlengd til 19. ágúst. Kirkjuhvoll Akranesi | Sýning á verkum eft- ir 12 nýútskrifaða nema frá Listaháskóla Ís- lands. Opið kl. 15–18. Til 13. ágúst. Kling og Bang gallerí | Sýningunni Hugris eftir austurríska myndlistarhópinn Gelitin lýkur 13. ágúst. Opið kl. 14–18. Listasafn ASÍ | Daði Guðbjörnsson, Eiríkur Smith, Hafsteinn Austmann og Kristín Þor- kelsdóttir sýna nýjar vatnslitamyndir. Einnig vatnslitamyndir eftir Svavar Guðnason í eigu Listasafns ASÍ. Opið 13–17. Listasafn Einars Jónssonar | Opið daglega nema mánudaga kl. 14–17. Högg- myndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf op- inn. Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning Lo- uisu Matthíasdóttur. Sýningin rekur allan listamannsferil Louisu í sex áratugi. Listasafn Íslands | Landslagið og þjóðsag- an, sýning á íslenskri landslagslist frá upp- hafi 20. aldar og túlkun þjóðsagna. Verk úr safneign og Safni Ásgríms Jónssonar. Opið daglega kl. 11–17, lokað mánudaga. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Sýning á verkum úr safneign. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýning á listaverkum sem voru valin vegna úthlut- unar listaverka-verðlaunanna Carnegie Art Award árið 2006. Erro – Grafík. Myndirnar eru frá ýmsum tímabilum í list Errós. Eggert Pétursson fjallar um málverk sín 13. ágúst kl. 15. Viðmælandi Eggerts er Halldór Björn Runólfsson listfræðingur. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sýning á verkum úr eigu safnsins. Margir af helstu málurum þjóðarinar eiga verk á sýn- ingunni sem spannar tímabilið frá aldamót- unum 1900 til upphafs 21. aldarinnar. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á völdum skúlptúrum og portettum Sigurjóns Ólafssonar. Opið daglega nema mánudaga kl. 14–17. Tónleikar á þriðjudagskvöldum. Nánar á www.lso.is Norræna húsið | Ljósmyndir frá Austur- Grænlandi eftir danska ljósmyndarann Ole G. Jensen. Out of Office – Innsetning. Listakonurnar Ilmur Stefánsdóttir og Steinunn Knúts- dóttir sýna. Gjörningar alla laugardaga og sunnudaga kl. 15–17. Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina. Saltfisksetur Íslands | Sigrid Österby opn- ar sýningu „Táknmyndir“, í dag kl. 11. Opið alla daga kl. 11–18. Stendur til 4. sept. Suðsuðvestur | Hreinn Friðfinnsson sýnir innsetninguna Sögubrot og myndir. Opið, fimmtud. og föstudaga kl. 16–18, um helgar kl. 14–17. www.sudsudvestur.is Thorvaldsen bar | Arnar Ingi Gylfason opn- ar málverkasýningu í dag kl. 17. Samhliða sýningunni verður heimasíðan www.arn- argylfason.com opnuð. Söfn Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning í til- efni af 70 ára afmæli Laugarnesskóla stendur yfir á Reykjavíkurtorgi, Tryggva- götu 15, 1. hæð. Opin virka daga kl. 11–19 og um helgar kl. 13–17. Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er búinn húsmunum og áhöldum eins og tíðkaðist í kringum aldamótin 1900. Opið kl. 9–18, fimmtud. kl. 9–22. 500 kr. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla daga kl. 9–17. Hljóðleiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og sænsku. Margmiðlunarsýn- ing og gönguleiðir í nágrenninu. Uppl. á www.gljufrasteinn.is og í 586 8066. Iðnaðarsafnið | Á safninu gefur að líta vélar og verkfæri af öllum stærðum og gerðum, framleiðsluvöru o.fl. Opið daglega kl. 13–17 til 15. sept. 400 kr inn, frítt fyrir börn. Kotbýli kuklarans | Sýning á Klúku í Bjarn- arfirði sem er bústaður galdramanns og lit- ið er inn í hugarheim almúgamanns á 17. öld. Opið alla daga kl. 12–18 til 31. ágúst. Landnámssýningin Reykjavík 871±2 | Sýning á rúst af landnámsskála frá 10. öld sem fannst við fornleifauppgröft í Reykjavík 2001. Opið alla daga kl. 10–17. Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn | Sýning í Þjóðarbókhlöðu. Myrkraverk og misindismenn. Reykjavík í íslenskum glæpa- sögum. Ritað í Voðir. Sýning Gerðar Guðmunds- dóttur. Gerður safna bókstöfum úr íslensk- um handritum svo og laufblöðum haustsins, þrykki á síður og bý til handrit og bækur. Sýning á teikningum Halldórs Baldurssonar byggðar á Vetrarborginni eftir Arnald Indr- iðason. Opið mán.-fösd. kl. 9–17, laugard. kl. 10–14. Minjasafnið á Akureyri | Ef þú giftist? Brúðkaupssiðir fyrr og nú fjallar um brúð- kaup og brúðkaupssiði í gegnum tíðina. Op- in alla daga kl. 10 og 17. Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl. 10– 18. ww.sagamuseum.is Veiðisafnið – Stokkseyri | Uppstoppuð veiðidýr ásamt veiðitengdum munum, ísl. og erlend skotvopn o.fl. Opið alla daga kl. 11– 18. Sjá nánar á www.hunting.is Víkin-Sjóminjasafnið | „Togarar í 100 ár“. Sýningunni er ætlað að veita innsýn í sögu togaraútgerðar og draga fram áhrif hennar á samfélagið. Þjóðmenningarhúsið | Íslensk tískuhönnun og Í spegli Íslands, um skrif erlendra manna um Ísland og Íslendinga fyrr á öldum. Helstu handrit þjóðarinnar á handritasýningunni og Fyrirheitna landið. Skemmtanir Kringlukráin | Hljómsveitin Sixties leikur frá kl. 23. www.kringlukrain.is Vélsmiðjan Akureyri | Danshljómsveit Frið- jóns leikur í kvöld, frítt inn til miðnættis. Uppákomur Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.