Morgunblaðið - 12.08.2006, Page 6

Morgunblaðið - 12.08.2006, Page 6
6 LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft- ir fanga sem vistaður var á Litla- Hrauni en strauk síðastliðinn þriðju- dag. Maðurinn heitir Hilmar Ragnarsson og er 43 ára, dökk- hærður og grann- vaxinn. Hann var klæddur í dökka úlpu, dökkar bux- ur og ljósa skó. Að sögn lög- reglu var Hilmar hjá lækni í Reykjavík í fylgd gæslumanna frá Litla-Hrauni, og fékk að fara á salernið. Þar komst hann út um glugga án þess að gæslu- mennirnir yrðu þess varir. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Hilmars eru beðnir um hafa sam- band við Lögregluna í Reykjavík í síma 444-1102. Annar fangi af flúði á þriðjudag- inn, en sá hafði verið vistaður í hegn- ingarhúsinu við Skólavörðustíg. Hann lét sig hverfa í heimsókn til tannlæknis, en var handsamaður á Akranesi samdægurs. Strokufangi gengur laus Hilmar Ragnarsson ÞAÐ rauk heldur bet- ur upp úr pottum Dal- víkinga í gærkvöldi, en þá tóku þeir for- skot á sælu Fiskidags- ins mikla, buðu gest- um og gangandi heim í rjúkandi heita fiski- súpu. Bærinn var fullur af fólki, tjaldstæðið löngu orðið fullt og búið að koma fyrir tjöldum, vögnum og fellihýsum hvar sem auðan blett var að finna, túnið kringum kirkjuna var að fyllast í gærkvöld, við lá að fólk kæmi sér fyrir í kirkjugarðinum og undir miðnætti var enn stríður straumur fólks á leið til Dalvíkur. 40 heimili opin fyrir gesti Ómögulegt er að segja hversu margt fólk var á Dalvík, „hef ekki hugmynd,“ sagði Felix Jósafatsson, varðstjóri lögreglunnar, „veit bara að það er miklu meira af fólki hér nú en var í fyrra.“ Þar sem voru tveir logandi kyndl- ar fyrir framan hús mátti bóka að í boði væri fiskisúpa og alls stóðu um 40 heimili gestum opin í gærkvöldi. Á sumum heimilum hefur und- irbúningur staðið yfir lengi, fólk hef- ur verið að viða að sér stórum pott- um, afla hráefnis í súpuna, prófa sig áfram með uppskriftina og breyta og bæta fram á síðustu stundu. Mikil vinna var svo lögð í skreytingar, ljósaseríur lýstu upp kvöldrökkrið, en þær voru við nánast hvert hús, sumir höfðu að auki útbúið „sjóara“ og komið fyrir við hús sín, þeir vöktu yfirleitt mikla athygli. Og í gær- kvöldi var allt til reiðu, kveikt á serí- um og súpan klár. Heimilisfólk hafði ekki við að ausa súpu í skálar, „það hafa farið 7 svona pottar,“ sagði ein við Bárugötuna, „það eru líklega um 120 lítrar.“ Heyra mátti harmonikku hljóma Víða var setið úti í garði, heyra mátti harmonikku hljóma, fjölda- söng, hlátrasköll, „þetta er alveg einsök stemning, hreint magnað“ mátti heyra í garðinum við Vega- mót. Þar litu forsetahjónin við og líka skipverjar af færeyska kútt- ernum Jóhönnu sem verður á Dalvík í dag. Þeir sungu og trölluðu af lífs og sálar kröftum og hrifu aðra súpu- gesti með. Fjölmargir tóku forskot á sælu Fiskidagsins mikla og brögðuðu súpu á Dalvík í gær. Garðurinn í Vegamótum var yfirfullur af fólki sem skemmti sér konunglega . Mikið fjölmenni á fiskisúpukvöldi á Dalvík Súpupottarnir voru engin smásmíði. Hreint mögn- uð stemning Dalvíkingar lögðu mikið upp úr að skreyta hjá sér. Gott er að gæða sér á heitri súpu. Morgunblaðið/Margrét Þóra Ungir sem aldnir gæddu sér á súpu á Dalvík í gærkvöldi. UPP komst um tilraun til smygls á fíkniefnum til landsins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á miðvikudag og voru nokkrir farþegar handteknir. Fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík vinnur að rannsókn og vildi Ásgeir Karlsson aðstoðaryfir- lögregluþjónn ekki gefa frekari upplýsingar um málið í gær þar sem það væri á afar viðkvæmu stigi. Smygltilraun til rannsóknar ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.