Morgunblaðið - 12.08.2006, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2006 9
FRÉTTIR
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680
Laugavegi 40, s. 561 1690
Útsala
Síðustu
dagar
útsölunnar
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Verðhrun
Útsölulok
Nýjar vörur í Bæjarlind
Dúndur-útsala í Eddufelli
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-15
...eftir þínu höfði
Lyngháls 4 – s: 517 7727 – www.nora.is
Frumlegur
vínkælir
Póstsendum
Laugavegi 82, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
20% afsl. af
heimakjólum
Ný búð á nýjum stað
Ný
sending
Laugavegi 63 • S: 551 4422
ÚTSÖLULOK
VERÐHRUN
MARK WEBBER, Formúlu 1-öku-
maður, var staddur hér á landi í gær
á vegum Baugs Group til að færa
börnum á Barnaspítala Hringsins
leikföng frá Hagkaupum og svo til að
afhenda verðlaun í „Pit Stop“-keppni
sem haldin var í Smáralindinni í gær.
Blaðamaður Morgunblaðsins hitti
Webber að máli yfir kaffibolla í
Smáralindinni, áður en atvinnuöku-
maðurinn fór aftur úr landi til að
hefja undirbúning fyrir næstu
keppni í Formúlu 1 sem verður hald-
in í Tyrklandi 26.–27 ágúst næstkom-
andi.
Mark sagði að dagurinn hefði ver-
ið góður, það væri gott að sjá börnin
gleðjast. „Þessi börn eiga erfiðan veg
framundan. Maður fær alltaf sam-
viskubit þegar maður þarf að fara en
það er mikilvægt bæði fyrir foreldra
og börn að gleyma stund og stað þótt
ekki sé nema í stuttan tíma.“ Börnin
fengu gjafir afhentar sem þau höfðu
sérstaklega óskað eftir en Mark tók
einnig þátt í Playstation keppni fyrr
um daginn þar sem hann keppti við
fimm heppna þátttakendur í leiknum
Formula One 2007.
Er til í 24 stunda kappakstur
að vetri til á Íslandi
Mark Webber hefur ekki bara
keppt í Formúlu 1 heldur einnig
keppt í 24 tíma kappakstri á Le
Mans og með það í huga viðraði
blaðamaður þá hugmynd við hann að
keppa í slíkum kappakstri á Íslandi
en þá væri keyrt t.d. um sumartím-
ann í björtu í heilan sólahring, „Það
væri frábært, eða bara á hinn veginn,
24 tíma í myrkri. Ég hef keppt í 24
tíma kappakstri áður á kappakst-
ursbílum, körtum og á fjallahjólum
og það er mjög langur tími en þetta
er líka mjög heillandi. Ég nýt þess
eiginlega meira að fá að keppa í
myrkri. Það er svo allt öðruvísi, mað-
ur sér öll ljósin og skilningarvitin
skerpast öll – maður finnur jafnvel
ilminn af grilluðum mat í nágrenninu
og maður hefur miklu meiri einbeit-
ingu og því tekur maður eftir ýmsu
sem maður myndi ekki taka eftir í
kappakstri í dagsbirtu.“
Akstursþjálfun mikilvægust
umferðaröryggi
Verandi atvinnuökumaður hefur
Mark Webber mikla reynslu í akstri
ýmiskonar ökutækja en líka skoðanir
á því hvað skiptir máli þegar rætt er
um umferðaröryggi. „Góð aksturs-
þjálfun er eitt það mikilvægasta hvað
umferðaröryggi varðar. Flestir öku-
menn gera sér enga grein fyrir því
hvað bílar geta verið hættulegir ef
ekki er farið rétt með þá. Bílar eru
orðnir svo góðir að fólk setur bara á
sig beltið og finnur til mikillar örygg-
istilfinningar, það upplifir sig alveg
öruggt en það getur samt stórslasast
í óhappi. Fyrir 30–40 árum fannstu
miklu meira fyrir bílnum, það var
meira vindgnauð, mjórri dekk og
slíkt og fólk var meira meðvitað um
hve bílar geta verið hættulegir. T.d.
ef þú ekur á blæjubíl eða sportbíl
finnur þú meira fyrir umhverfinu og
fyrir bílstjóra snýst þetta um að vera
meðvitaður um umhverfið. Það ger-
ist t.d. oft í Ástralíu að fólk hreinlega
keyrir beint út af vegum og á tré án
þess að bremsa, það hreinlega sofnar
við stýrið á breiðum og beinum vegi
því það er ekkert að gerast.
Það er auðvelt að segjast vilja
lækka hámarkshraða og það er líka
alveg í lagi en þróunin er öll á skjön.
Bílar, dekk og bremsur verða sífellt
betri en hraðatakmarkanir eru samt
á niðurleið. Áður voru engar hraða-
takmarkanir og bílarnir voru eins og
skókassar hvað öryggi varðar.
Fólk er farið að hafa það svo þægi-
legt og flestir vilja hafa sem minnst
fyrir hlutunum. Í gamla daga gat
hver sem er bakkað bíl með aftaní-
vagni t.d. en í dag leggur fólk bara í
þrjú stæði í staðinn svo það þurfi
ekki að bakka. En svona er heim-
urinn í dag.“
Vill bíla sem geta
bremsað og beygt
Mark sagðist yfirleitt vera rólegur
ökumaður en hann á sér þó sína
uppáhaldsbíla og jafnvel uppáhalds-
vegarspotta. „Ég vil bíl sem er létt-
ur, t.d. Subaru WRX, Mitsubishi
Lancer Evolution, Porsche bíla t.d.
911, ég vil bíl sem getur bremsað og
beygt ekki stóra hlunka. Mátulegt
afl en léttur bíll, góðar bremsur og
góðir aksturseiginleikar er það sem
ég vil.“ Spurður um hans uppáhalds-
veg segir Mark að Alparnir séu
skemmtilegastir í keyrslu og hann
myndi velja sér einhvern af áð-
urnefndum bílum til að takast á við
beygjurnar þar en kannski blæjubíl
ef veður væri gott.
Hlakkar til að fara
til Red Bull Racing
Á næsta ári mun Mark keppa fyrir
Red Bull Racing Formúlu 1-liðið við
hlið Davids Coulthard en hann sagði
núverandi keppnisár ekki hafa geng-
ið vel með Williams. „Mér finnst ég
hafa staðið mig vel en ég hef ekki
fengið tækifæri til að klára keppni og
ef ég ætti að halda þessu áfram
myndi ég sennilega missa hvatn-
inguna og það er ekki gott fyrir mig
eða þá sem ég er að vinna fyrir.
Þannig að þetta fæ ég fyrir næsta
sumar og ég er bara tilbúinn í það.“
Spurður um hvort hann sé ágeng-
ur í akstri sínum svaraði Mark; „Já,
fólk segir þetta um mig en þegar ég
sit í bílnum finnst mér það ekki. Auð-
vitað strýkur maður öðrum öku-
mönnum stundum öfugt og maður er
alltaf í þeirri stöðu að vera að berjast
við aðra ökumenn sem stundum eru
á hraðskreiðari bílum. Ég hef slegist
einna mest við Kimi [Raikkonen] og
fyrir stuttu tók ég slag við Michael
[Schumacher]. Nokkra góða slagi
hef ég líka tekið við Fernando
Alonso. Svo fer maður bara heim
strax eftir keppni til að ná sér niður.
Venjulega förum við strax eftir
keppni og maður vill sofa í rútunni
eða í fluginu en maður getur það ekki
því maður er ennþá fullhlaðinn af
orku. Mér finnst fínt að komast
heim, hitta hundana mína, fá mér
ristað brauð og horfa á sjónvarpið,
það virkar best til að slappa af eftir
keppni.
Reiknar með að
koma aftur til Íslands
Mark segist ekki hafa mikinn tíma
til að skoða landið í þetta skiptið en
hann vildi þó gjarnan fá tækifæri
seinna meir til að fá nokkra ástralska
vini sína hingað í heimsókn. „Ástralía
er eiginlega eins langt frá Íslandi og
hægt er, ég talaði við vin minn í
morgun og sagði honum að ég væri á
Íslandi og hann hváði bara.“ Þó gaf
hann sér tíma í hjólreiðatúr á fjalla-
hjólum þegar hann kom til landsins í
fyrra en hann er mikill hjólamaður
og hefur áður sagt að ef hann væri
ekki í Formúlu 1 þá myndi hann
keppa á reiðhjólum. Hann gæti vel
hugsað sér að taka annan slíkan hjól-
reiðatúr á landinu næst þegar hann
kemur.
Þegar viðtalinu var lokið missti
blaðamaður út úr sér að hann hefði
áform um að fara aftur í heimsókn á
Nordschleife-brautina við Nurburg-
ring og þá sagði Mark; „Hmm, þar
hefur þú það – það er reyndar alveg
örugglega besti vegarspotti í heimi.
Alveg ótrúleg braut. Ég er búinn að
koma þangað oft. Það eru líklega
ekki fleiri en 6–7 manneskjur í heim-
inum sem þekkja þessa braut mjög
vel og mig minnir að þetta séu um
140 beygjur. Ótrúlegur staður.“ seg-
ir Mark Webber að lokum áður en
hann hverfur á braut til að afhenda
verðlaun til sigurvegaranna í „Pit
Stop“-keppninni sem fram fór á
sama tíma í Smáralindinni. Þar fer
jarðbundinn og viðkunnanlegur
maður sem augljóslega er með bar-
áttuþrekið í lagi.
Mark Webber, Formúlu 1-ökumaður, í heimsókn á Íslandi
Vill keppa í
myrkri á Íslandi
Morgunblaðið/Eyþór
Ökumaðurinn Mark Webber í Smáralindinni.
Eftir Ingvar Örn Ingvarsson
ingvarorn@mbl.is