Morgunblaðið - 12.08.2006, Side 24
Daglegtlíf
ágúst
FIMMTA hver tegund af sólvarnarkremi, sem seld er í
Noregi, dugar ekki til að verja húðina fyrir skaðlegum
geislum sólar.
Þetta er niðurstaða norskrar stofnunar sem hefur
annast ýmsar rannsóknir á sólvarnarkremum að beiðni
norska matvælaeftirlitsins frá því um miðjan síðasta
áratug.
„Mikið hefur gerst á þessu sviði síðustu árin og rann-
sóknir okkar sýna núna að flest kremanna bera tilætl-
aðan árangur,“ hafði norski vefurinn forskning.no eftir
Milica Moksnes, talsmanni eftirlitsstofnunarinnar.
„Samt falla enn nokkur krem á prófinu. Í vor rannsök-
uðum við fimmtán sólvarnarkrem með tilliti til varnar
gegn útfjólubláum geislum. Niðurstaðan var að þrjár af
vörunum fimmtán stóðust ekki tilmæli Evrópusam-
bandsins um lágmarksvörn gegn útfjólubláum
geislum.“
Rannsóknir hafa bent til þess að útfjólubláu geislarnir
geti stuðlað að ákveðnum tegundum húðkrabbameins.
„Við vitum núna um skaðlegar afleiðingar of mikilla
sólbaða,“ sagði Moksnes. „Á markaðnum eru mörg
mjög góð krem en fólk þarf að bera þau á sig mörgum
sinnum á dag, og þykkt lag. Og í suðrænum löndum er
ráðlegt að halda sig frá sólinni um miðjan daginn eins
og heimamennirnir gera.“
HEILSA
Um 20% sólvarnarkrema duga ekki
Morgunblaðið/Ómar
Á markaðnum eru mörg mjög góð krem en fólk þarf
að bera á sig þykkt lag og mörgum sinnum á dag.
Hún Tonna er svolítiðglæpaleg. Hún hefurþennan svip sem minnirá persónur í kvikmynd-
um sem verða fyrir einhverju glæp-
samlegu. Hún er með galopin augu,
full af undrun og hálfopinn munn
eins og hún sé að fara að hrópa,“
segir Hólmfríður Hilmisdóttir um
heilögu dúkkuna Tonnu sem er kom-
in á sjötugsaldur. „Hún mamma
fékk þessa dúkku frá pabba sínum,
honum afa mínum, árið 1942 þegar
hún var tíu ára. Fyrir fjórtán árum,
rétt áður en mamma dó, þá boðaði
hún mig til sín og hún gaf mér þessa
dúkku með þeim orðum að hún hefði
alltaf ætlað sér að elsta dóttir henn-
ar tæki við henni. Og þar sem ég á
enga dóttur þá verð ég að láta hana
ganga til sonardóttur minnar þegar
sá tími kemur. Ég hef nú þegar
ánafnað Kristínu Sif, elstu son-
ardóttur minni demantshring sem
verður erfðagripur, þannig að þeirri
næstu í röðinni, henni Snæfríði Rós,
mun að öllum líkindum hlotnast sá
heiður að verða eigandi Tonnu í fyll-
ingu tímans.“
Barnabörnin eru hrædd við hana
Hólmfríður segir að Tonna hafi
verið nokkuð illa farin þegar hún
fékk hana frá móður sinni en hún lét
gera við hana. „Ég þurfti að láta laga
bæði hendur og fætur og vinkona
mín, sem er handavinnukennari, tók
að sér að gera við stórt gat á höfðinu
á henni sem var eiginlega krafta-
verkagjörningur. Nú er Tonna alveg
heilög hjá mér og hún er á háum
virðingarstalli hér á heimilinu. Það
fær enginn að leika sér að henni eða
dröslast með hana. Sem betur fer
eru barnabörnin mín frekar hrædd
við hana og sækjast því ekkert eftir
því að leika sér með hana. Sólmund-
ur sonarsonur minn bað mig meira
að segja einu sinni um að loka dyr-
unum svo að hann þyrfti ekki að sjá
hana. Og öðrum sonarsyni mínum,
honum Svavari, finnst hún barasta
ljót.“
Við kepptumst
við að eyðileggja hana
Hólmfríður á fimm systkini og
hún segir að þau hafi öll leikið sér
mikið með Tonnu þegar þau voru
krakkar. „Einmitt þess vegna var
hún svona illa farin, við kepptumst
við að eyðileggja hana og vorum allt-
af að togast á um hana. En við mátt-
um alls ekki ýta á augun í henni og
þess vegna eru þau í lagi og hún hef-
ur alltaf getað opnað og lokað þeim.
Ég hef reynt að bæta henni upp illa
meðferð okkar systkinanna og
keypti handa henni forláta barna-
vagn í Fríðu frænku, sem mér finnst
hæfa henni vel og þar keypti ég líka
handa henni fallegan vöggukjól. Nú
er Tonna blúndum hlaðin og kann
vel við sig þar sem hún situr í vagn-
inum sínum inni í svefnherbergi hjá
mér. Mér finnst hún alveg æðisleg
og mikill heiður að mamma skuli
hafa gefið mér hana. Ég hef sér-
staklega gaman að því að hafa hana
hjá mér.“
HLUTUR MEÐ SÖGU | Tonna er heilög brúða og á háum stalli hjá Hólmfríði Hilmisdóttur
Glæpabrúða í blúndukjól
Morgunblaðið/Eggert
Miklir kærleikar hafa tekist með Hólmfríði og Tonnu.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Bibione og Feneyjar 26
ÞEIR sem hafa óbilandi áhuga á mat, mat-
reiðslu, veitingahúsum og öllu sem við-
kemur magans lystisemdum geta glaðst yf-
ir nýjum matreiðsluvef sem hefur verið
stofnaður. Slóðin er www.matseld.is.
Vefur þessi er fullkomlega gagnvirkur
enda er markmið hans að skapa vettvang
þar sem notendur geta deilt uppskriftum
og skipst á skoðunum um mat, matreiðslu,
hráefni, veitingahús og fleira. Þeir sem
vilja deila uppskriftum sínum með öðrum
geta skráð þær og birt mynd af hverjum
rétti ef þeir vilja. Notendur geta líka skrif-
að stuttar eða langar viðhorfsgreinar og
myndskreytt þær að vild. Einnig geta not-
endur brugðist við uppskriftum og grein-
um hver annars, ýmist með umsögn og
einkunnagjöf eða með umræðum á spjall-
svæði.
Væntanlegur er veitingahúsavefur þar
sem veitingamenn munu geta skráð ít-
arlegar upplýsingar um veitingahús sín,
birt fréttir af því sem er í vændum, birt
matseðla, tekið við pöntunum o.s.frv. Gest-
ir munu að sama skapi geta skráð gagn-
rýni sína um veitingahúsin.
Ýmislegt fleira er nú þegar á vefnum og
enn fleira væntanlegt.
Tekið skal fram að vefurinn er og verð-
ur gjaldfrjáls. Vefurinn hampar engri
ákveðinni vöru, fyrirtæki eða þjónustu.
Umsjónarmaður vefsins er Jens Krist-
jánsson.
Nýr matreiðsluvefur
Morgunblaðið/Brynjar Gauti www.matseld.is
19.800
Vika í Danmörku
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
15
83
03
/2
00
6
Bíll úr flokki A
50 50 600 • www.hertz.is
*
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
*Verð miðað við gengi 1. mars 2006.frá