Morgunblaðið - 12.08.2006, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Þorgrímur Eyj-ólfsson fæddist í
Skipagerði á Stokks-
eyri 27. ágúst 1923.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urlands á Selfossi
31. júlí síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Eyjólfur Bjarnason,
f. 6. janúar 1869, d.
5. maí 1959, og síð-
ari kona hans Þuríð-
ur Grímsdóttir, f. 12.
ágúst 1887, d. 5.
ágúst 1970. Hálf-
systkini Þorgríms voru Þórdís,
Gjaflaug, Bjarni og Laufey. Al-
systkini hans voru Guðný, Mar-
grét, Eiríkur, Sigríður, Pálmar
Þórarinn, Eyjólfur Óskar og Þóra.
Á lífi eru Pálmar Þórarinn og
Þóra.
Hinn 12. desember 1959 kvænt-
ist Þorgrímur Guðrúnu Elíasdóttir
frá Hólshúsum í Gaulverjabæjar-
hreppi, f. 29. apríl 1923, d. 1. júní
1990. Foreldrar hennar voru hjón-
in Elías Árnason og Guðrún Þórð-
ardóttir. Stjúpsonur Þorgríms,
sonur Guðrúnar, er Gunnar Ellert
Þórðarson, f. 15. maí 1943, kona
hans er Elísabet Zóphóníasdóttir,
f. 16. apríl 1948, þau
eiga 8 börn og 14
barnabörn. Þor-
grímur og Guðrún
bjuggu allan sinn bú-
skap á Stokkseyri,
fyrst í Skipagerði og
síðan í Fagurgerði,
og þar bjó Þorgrím-
ur til dauðadags.
Hann gekk í Barna-
skólann á Stokks-
eyri. Hann var ung-
ur þegar farið var að
senda hann í sveit á
sumrin, eins og tíðk-
aðist í þá daga. Fljótlega eftir
fermingu fór Þorgrímur á vertíð
til Vestmannaeyja, og lengstan
hluta ævi sinnar var hann sjómað-
ur. Hann stundaði sjómennsku í
rúm 40 ár, reri frá Vestmannaeyj-
um, Þorlákshöfn og Stokkseyri,
sem háseti, stýrimaður og nokkrar
vertíðir sem skipstjóri. Einnig var
hann í 5 ár á togaranum Röðli frá
Hafnarfirði. Hann útskrifaðist úr
Stýrimannaskólanum árið 1963.
Eftir að hann hætti til sjós vann
hann í nokkur ár á netaverkstæði.
Útför Þorgríms verður gerð frá
Stokkseyrarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Minningin er mild og góð,
man ég alúð þína,
stundum getur lítið ljóð,
látið sorgir dvína.
Drottinn sem að lífið léði,
líka hinstu hvílu bjó,
dýrð sé yfir dánarbeði,
dreymi þig í friði og ró.
( Bjarni Kristins. frá Hofi.)
Ég vil með þessu litla ljóði,
minnast tengdaföður míns, Þor-
gríms Eyjólfssonar eða Gimma,
eins og hann var yfirleitt kallaður.
Ég minnist hans með þakklæti fyr-
ir hlýju og góðvild í minn garð.
Það verður tómlegt um jólin og
áramótin, þegar sætið hans verður
autt. Ég á eftir að sakna skemmti-
legu tilsvaranna hans og glettn-
innar sem fylgdi honum fram á
það síðasta. Blessuð sé minning
hans.
Elísabet (Ellý).
Nú er hann Gimmi afi okkar
fallinn frá.
Og hugsanir sem koma í huga
manns á þeim tímamótum eru
margar. Við minnumst hans og
ömmu okkar, hennar Rúnu, sem
féll frá fyrir 16 árum. Við vorum
svo heppin systkinin að eiga þau
út af fyrir okkur þar sem pabbi er
einbirni.
Við minnumst þeirra sem sam-
rýndra hjóna sem lifðu rólegu lífi í
litla húsinu sínu Fagurgerði á
Stokkseyri. Við minnumst tíðra
heimsókna þeirra til okkar í Hóls-
hús á uppvaxtarárum okkar þar
sem við fengum alltaf koss og
faðmlag frá þeim. Og erum þakk-
lát fyrir góðar minningar sem við
munum geyma í brjósti okkar um
ókomna tíð.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margt að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Blessuð sé minning þeirra,
Ævar, Guðrún Elísa,
Bjarney Ólöf, Jósef
Geir, Þórunn, Sjöfn,
Brynja og Linda Mjöll
Gunnarsbörn.
ÞORGRÍMUR
EYJÓLFSSON
✝ Jón ValbergJúlíusson fædd-
ist í Hítarnesi 18.
ágúst 1918. Hann
lést á heimili sínu
hinn 27. júlí síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Júlíus
Jónsson, f. 23. júlí
1885, d. 16. ágúst
1975, og Kristín
Stefánsdóttir, f. 29.
maí 1891, d. 30.
desember 1958.
Systkini Jóns eru:
Þorvarður, f. 30.
júlí 1913, d. 20. nóvember 1991;
Lovísa, f. 12. september 1914, d.
29. desember 2004; Stefán Hall-
dór, f. 20. september 1915, d. 9.
desember 1980; Jón, f. 8. apríl
1917, d. 11. maí 1917; Halldóra, f.
mars 1976. Börn Jóns og Áslaug-
ar eru: 1) Júlíus, f. 9. júní 1949,
sambýliskona Inga Kolfinna Ing-
ólfsdóttir, f. 14. apríl 1960. Dæt-
ur hans frá fyrra hjónabandi eru:
Áslaug, Ásthildur Kristín og
Halldóra Ríkey. 2) Garðar
Sveinn, f. 5. maí 1953, sambýlis-
kona Ingeborg Breitfeld, f. 27.
desember 1957. Börn hans frá
fyrra hjónabandi eru: Þorgrímur
Jón, Ása Dóra og Sveina Kristín.
3) Ólafur Þór, f. 2. febrúar 1958.
Synir hans og Þóru Kristínar
Stefánsdóttur, f. 11.5. 1956, eru:
Stefán Valberg og Guðmundur
Þór. 4) Ásberg, f. 13. ágúst 1964,
kvæntur Sigríði Jónu Sigurðar-
dóttur, f. 3. maí 1965. Synir
þeirra eru; Sigurður Jón, Axel
Örn og Bjarki Þór, 5) Hrefna
Bryndís, f. 13. ágúst 1964, gift
Þorvaldi T. Jónssyni, f. 14. apríl
1963. Dætur þeirra eru: Sigríður,
Steinunn og Áslaug.
Útför Jóns var gerð frá Borg-
arneskirkju fimmtudaginn 3.
ágúst.
29. maí 1920, d. 23.
október 2004; Val-
týr, f. 15. mars
1923, d. 26. apríl
2003; Laufey, f. 8.
maí 1925; Unnur, f.
25. apríl 1928; Að-
alsteinn, f. 2. sept-
ember 1931, d. 8.
febrúar 1959; og
Páll, f. 20. desember
1934, d. 9. desember
1987.
Hinn 14. júní 1947
kvæntist Jón eftir-
lifandi eiginkonu
sinni, Áslaugu Sveinsdóttur, f.
30. apríl 1923. Foreldrar hennar
voru Sveinn Skarphéðinsson, f. 1.
ágúst 1883, d. 28. september
1955, og Sigríður Kristjánsdótt-
ir, f. 14. október 1893, d. 12.
Afi var góður maður. Nú er hann
farinn frá okkur og minningarnar
sem við eigum eru margar. Það var
alltaf gott að koma á Borgarbraut-
ina þegar afi var búinn að baka
pönnukökur, okkur finnst pönnu-
kökurnar hans afa þær bestu í
heimi. Afi spurði okkur oft frétta
frá Akureyri og Keflavík, en hann
hafði því miður ekki tækifæri til að
heimsækja okkur. Hann ferðaðist
ekki mikið í seinni tíð og hefur allt-
af verið heimakær.
Við dáðumst alltaf að því hvað
hann afi var góður við ömmu, okk-
ur fannst amma og afi vera alveg
sköpuð hvort fyrir annað. Afi og
amma eru góð sönnun fyrir því að
til séu sálufélagar.
Elsku afi. Við áttum ekki von á
að pabbi mundi hringja með þær
fréttir að þú værir farinn. Halldóra
og Ásta nýbúnar að vera í heim-
sókn á Borgarbrautinni þar sem þú
varst svo hress og lékst þér við
Júlíus Svein í bílaleik.
Áslaug hitti þig í júní og þið
Jóna Ríkey náðuð svo vel saman,
hún svona hrifin af langafa sínum
sem var mjög ánægjulegt þar sem
þið hittust nú ekki svo oft.Við
minnumst þess að þegar við vorum
litlar þá sast þú oft við skrifborðið
þitt og last Morgunblaðið. Við feng-
um oft að lesa með þér eða skoða
bækurnar ykkar ömmu.
Það var alltaf gott að koma til
ykkar ömmu í heimsókn og það
verður skrítið að þú verður ekki
þar næst þegar við komum.
Elsku afi, guð geymi þig. Við
hugsum til þín með söknuði og
varðveitum allar þær góðu minn-
ingar sem við eigum.
Við þökkum þér alla ástúð
á umliðnu tímans safni.
Við kveðjum með klökkum huga,
við kveðjum í drottins nafni.
(H. H.)
Áslaug, Ásthildur og
Halldóra Júlíusdætur.
Sunnudagurinn 23. júlí sl. var
sólríkur og hlýr. Ég átti leið um
Borgarnes og kom við hjá Jóni
frænda mínum og Áslaugu konu
hans. Hjá þeim ríkti sama hlýjan,
samvinnan og gestrisnin og ávallt
áður.
Ég var ekki gömul þegar ég kom
til þeirra fyrst, á leið minni í sveit-
ina og alltaf hef ég fengið sömu
góðu móttökurnar. Þegar ég var
barn í Hítarnesi var alltaf tilhlökk-
un þegar Jón kom: ýmist með olíu-
na, til að klippa heimilismenn eða
með fjölskylduna í heimsókn, þetta
voru allt hátíðarstundir.
Kæri frændi, þakka þér og þinni
frábæru konu fyrir að vera þessi
góða fyrirmynd.
Elsku Áslaug (Ása), Guð verndi
þig og fjölskyldu þína.
Kveðja.
Guðrún Magnúsdóttir.
Kær vinur og nágranni er horf-
inn á braut. Hinsta kallið kom
óvænt og skyndilega. Það eru nú 60
ár síðan ég kynntist Jóni, þá var
hann trúlofaður frænku minni
henni Ásu Sveins. Þau voru ætíð
góðir gestir á heimili foreldra
minna og alltaf tilbúin að rétta
hjálparhönd. Þá minnist Sigrún
gönguferðanna á sunnudögum þeg-
ar hún fór með afa í heimsókn á
Borgarbrautina. Og þegar ég flutti
úr foreldrahúsum settist ég að í
túninu hjá Ásu og Jóni. Þau voru
góðir nágrannar. Enn styrktust
böndin þegar Ólöf, Hrefna og Ás-
berg fæddust sama sumarið.
Kæri vinur, hjartans þakkir fyrir
alla þá hlýju og vináttu sem þú
sýndir foreldrum mínum, dætrum
og allri fjölskyldu minni.
Ásu frænku og fjölskyldu send-
um við innilegar samúðarkveðjur,
og biðjum góðan guð að styrkja þau
á sorgarstund. Blessuð sé minning
um góðan vin.
Ása, Sigrún og Ólöf.
JÓN VALBERG
JÚLÍUSSON
Pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.350 kr. á mann.
Perlan
ERFIDRYKKJUR
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Innilegar þakkir sendum við öllum sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ást-
kærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
KARÓLÍNU AÐALSTEINSDÓTTUR,
Eiðistorgi 1,
Seltjarnarnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 7A Land-
spítalanum Fossvogi.
Sveinbjörn Sædal Gíslason,
Helgi Sveinbjörnsson,
Ragna Sveinbjörnsdóttir,
Edda Sveinbjörnsdóttir, Guðni Þ. Sigurmundarson,
Valur Sveinbjörnsson, Benchamat Susi,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts okkar ástkæru
mömmu, ömmu, langömmu og langalangömmu,
AÐALHEIÐAR ÞORLEIFSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir fær frábært starfsfólk hjúkrunar-
heimilisins Skjaldarvíkur fyrir umönnun og ljúft
viðmót.
Guð blessi ykkur.
Pétur Eggertsson, Sylvía Hrólfsdóttir,
Eggert Eggertsson, Anna P. Baldursdóttir,
Ingibjörg Eggertsdóttir,
Sveinn Eggertsson, Ólína Leonharðsdóttir,
Brynja Eggertsdóttir, Bjarni Kr. Grímsson,
Ásta Eggertsdóttir, Hannes Óskarsson
og ömmubörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SVÖVU JÚLÍUSDÓTTUR,
Hrauntúni 1,
Breiðdalsvík,
áður til heimilis að Núpi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Fjórðungs-
sjúkrahússins í Neskaupstað.
Gunnar Einarsson, börn og fjölskyldur.