Morgunblaðið - 12.08.2006, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2006 45
DAGBÓK
ÁST – áhugahópur samkynhneigðra umtrúarlíf, Samtökin ’78 og Hinsegin dag-ar standa í ágúst og september fyrir röðviðburða þar sem viðfangsefnið er
trúarlíf samkynhneigðra. Yfirskrift dagskrár-
innar er „Undir regnboganum – trú og lífsskoðun
í Regnbogasal“ en dagskráin fer fram í Regn-
bogasal Samtakanna ’78 á Laugavegi 3.
Hrafnkell Tjörvi Stefánsson er framkvæmda-
stjóri Samtakanna ’78: „Dagskrá Hinsegin daga
lýkur á sunnudag kl. 16 með Regnbogamessu í
Hallgrímskirkju þar sem Pat Bumgardner frá
söfnuði Metropolitan Community Church í New
York mun prédika. Þótti okkur tilvalið í framhaldi
af komu hennar hingað til lands að efna til dag-
skrár um trúarlíf og lífsskoðanir samkyn-
hneigðra,“ segir Hrafnkell.
Dagskráin hefst næstkomandi mánudag, 14.
ágúst, en þá munu Haukur Guðmundsson og Ey-
rún Jónsdóttir kynna Soaka Gakkai International,
friðar- og menningarsamtök búddista, fjalla um
trú búddista og og viðhorf þeirra gagnvart fjöl-
breytileika mannlífsins og samkynhneigð.
Hinn 20. ágúst mun Hilmar Örn Hilmarsson
allsherjargoði segja frá Ásatrúarfélaginu, og trú
og lífsviðhorfum ásatrúarmanna, meðal annars til
samkynhneigðar.
Sigurður Hólm Gunnarson, varaformaður Sið-
menntar – félags siðrænna húmanista á Íslandi,
mun heimsækja Regnbogasalinn 28. ágúst, kynna
félagið, lífsskoðanir húmanista og viðhorf til kyn-
hneigðar fólks.
Loks mun Grétar Einarsson, sem er í forsvari
fyrir Áhugafélag samkynhneigðra um trúarlíf,
kynna félagið og starfsemi þess, mánudaginn 4.
september. Hefjast viðburðirnir allir kl. 21 og eru
öllum opnir.
Fyrr á árinu tóku gildi lög sem færðu samkyn-
hneigðum sömu réttarstöðu og gagnkynhneigðum
gagnvart ríkisvaldinu. Athygli vakti að ekki náðist
samstaða um hvort leyfa ætti trúfélögum að vígja
saman samkynhneigð pör: „Mörgum þótti gleym-
ast í þeirri umræðu sem spratt upp í kjölfarið að
málið varðar ekki aðeins afstöðu Þjóðkirkjunnar
til hjónavígslu samkynhneigða. Aðrir söfnuðir,
eins og Fríkirkjan í Reykjavík og Hafnarfirði, og
önnur trúarbrögð en kristin, t.d. Ásatrúarfélagið,
vilja gjarna geta gefið samkynhneigða saman,“
segir Hrafnkell. „Nú hafa hin veraldlegu lög verið
lagfærð og í raun kirkjan ein eftir. Það er því
tímabært að efna til umræðu um þessi mál.“
Sem fyrr segir lýkur dagskrá Hinsegin daga
með Regnbogamessu í Hallgrímskirkju á morgun,
sunnudag, þar sem Pat Bumgardner prédikar.
Metropolitcan Community Church er söfnuður
frjálslyndra mótmælenda, stofnaður seint á 7.
áratugnum af sr. Troy Perry. Út frá söfnuðinum
hafasprottið kirkjudeildir víða um heim. Fyrir alt-
ari á Regnbogamessunni þjóna Birgir Ásgeirsson,
Ása Björk Ólafsdóttir, Kristín Þórunn Tóm-
asdóttir, Óskar Óskarsson, Sigfinnur Þorleifsson
og Sjöfn Þór. Blandaður kór syngur undir stjórn
Árna Heimis Ingólfssonar en organisti er Lára
Bryndís Eggertsdóttir.
Trúmál | Dagskrárröð í Regnbogasal Samtakanna ’78, „Undir regnboganum“, hefst á mánudag
Trúarlíf samkynhneigðra
Hrafnkell Tjörvi Stef-
ánsson fæddist 29. jan-
úar 1975 og ólst upp í
Garðabæ. Hann lauk
BA-prófi í stjórn-
málafræði frá Háskóla
Íslands árið 2000 og
MA-prófi í stjórn-
málafræði frá Universi-
teit van Amsterdam ár-
ið 2003. Hrafnkell
hefur starfað sem
framkvæmdastjóri Samtakanna ’78 frá júní
2003 og situr í stjórn Mannréttindaskrifstofu
Íslands. Maki Hrafnkels er Davíð Jóhannsson,
hópstjóri hjá Símanum.
Lengi von á einum.
Norður
♠D9
♥KDG2
♦D7
♣K7654
Vestur Austur
♠10754 ♠G82
♥105 ♥763
♦983 ♦G10642
♣ÁD93 ♣G8
Suður
♠ÁK63
♥Á984
♦ÁK5
♣102
Suður spilar sex grönd og fær út
tígul. Er einhver leið að ná í tólf
slagi?
Sex hjörtu er viðunandi slemma,
sem vinnst í legunni (laufás réttur og
hjartað 3-2), en sex grönd virðist vera
vonlaust spil.
Eða hvað? Egyptinn Walid Elah-
mady var í sæti sagnhafa í Live Mast-
ers tvímenningnum í Chicago, og
hann sá vonarglætu á tólf slögum ef
vestur ætti fjórlit í báðum svörtu lit-
unum – og auðvitað laufásinn líka.
Elahmady tók einfaldlega alla slag-
ina á rauðu litina:
Norður
♠D9
♥–
♦–
♣K7654
Vestur Austur
♠10754 ♠G82
♥– ♥–
♦– ♦G10
♣ÁD9 ♣G8
Suður
♠ÁK63
♥–
♦K
♣102
Hverju á vestur að henda í tíg-
ulkónginn? Skásta tilraunin sé
kannski að fórna laufásnum, en sagn-
hafi getur eftir sem áður fríspilað
laufið án þess að austur komist inn.
Eina vörn vesturs er að kasta fyrst
laufdrottningu og svo laufás í síðasta
tígulinn!
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Framtíðarsýn að rætast
FYRIR nokkur hundruð dögum
þegar þú, hr. Árni Johnsen, sast
fyrir framan alþjóð og laugst
hægri vinstri um athæfi sem ekki
sæmir alþingismanni varð maður
kjaftstopp. Maður hugsaði: er
maðurinn orðinn vitlaus eða hvað?
Það hlýtur bara að vera, reynir
að ljúga sig út úr ósómanum. En
hann sá nú að sér og viðurkenndi
það sem á hann var borið. Hafði
ég á orði þá að svona einfalt væri
þetta ekki þegar pólitíkin væri
annars vegar. Mín skoðun er sú að
við þig, Árni, hafi maður eða menn
haft á orði að nú væri komið nóg
og úr því sem komið væri best fyr-
ir alla að þú færir í grjótið.
Þú gerðir það sem sannur
flokksbróðir gerir, það er að hlýða.
Það er nefnilega eitt sem við vitum
báðir að landinn er svo fjandi fljót-
ur að gleyma, ekki satt? Ég skal
ekki trúa því að við Íslendingar
séum svo siðblindir og úti á þekju
að við förum að kjósa þig aftur á
þing vitandi að á þig er ekki og
verður ekki hægt að treysta, aldr-
ei. Hvað er að ykkur Sunnlend-
ingum sem ætlið og eruð að setja
nafn ykkar á undirskriftalista hon-
um til handa?
Hann Árni er svo voða duglegur
fyrir okkur, segið þið. Það veit ég
að er rétt en maðurinn er dæmdur
sakamaður og hefur ekkert inn á
þing að gera. Ef svo illa verður
komið fyrir ykkur Sunnlendingum
að þið hafið ekkert annað en
dæmdan sakamann til að setja á
lista ykkar veit ég að til er fjöldi
góðra manna sem allt vilja fyrir
ykkur Sunnlendinga gera. En þeir
dvelja um þessar mundir á Hótel
Litla-Hrauni.
Kveðja til Suðurlands,
Ómar F. Dabney.
Gleraugu fundust
í Stafafelli í Lóni
KARLMANNSGLERAUGU í
hulstri fundust í Stafafelli í Lóni
síðastliðinn mánudag. Einnig
fannst í Þvottárskriðum stutt frá
Almannaskarði grill og matarpakki
sem hafði greinilega dottið af bíl.
Þeir sem hafa tapað þessu geta
haft samband í síma 892-4536.
Motorola GSM-sími týndist
GRÁBLÁR Motorola-sími týndist
á Sauðárkróki miðvikudaginn 2.
ágúst. Síminn er rafmagnslaus
með mörgum límmiðum og bláum
rennilás bundnum við. Finnandi
vinsamlegast hafi samband við
Bryndísi Lilju í síma í síma 453-
6714 eða skili til lögreglunnar á
Sauðárkróki.
Velvakandi
Svarað í síma 569 1100 frá kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
85 ára afmæli. Jóhanna Bóel Sig-urðardóttir verður 85 ára 15.
ágúst. Hún tekur á móti gestum
sunnudaginn 13. ágúst, milli kl. 15 og
17, á heimili nöfnu sinnar að Dofra-
bergi 11, Hafnarfirði.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Dagskrá í tilefni
menningarnætur 19. ágúst hefst kl. 11.
Handverkssýning, Sound Spell, hádeg-
ismatur seldur (skráning í s.
411 2700). Ingibjörg Aldís og Stefán
Helgi syngja við undirleik Ólafs B.
Ólafssonar. Dagskránni lýkur með
gönguferð að Sjóminjasafninu, leið-
sögn hefur Helgi M. Sigurðsson.
Dalbraut 18–20 | Bridge mánudaga
kl. 14, félagsvist þriðjudag kl. 14. Bónus
miðvikud. kl. 14. Skráning hafin í nám-
skeið og hópa, skráningu lýkur mánu-
dag 4. sept. Opnunarhátíð 8. sept. kl.
14. Notendaráðs- og starfsmanna-
fundur 6. sept. kl. 13. S. 588 9533.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans-
leikur 13. ágúst kl. 20, Klassík leikur.
Nokkur sæti laus í 4 daga ferð, Flat-
eyjardalur-Fjörður 19.–22. ágúst uppl.
og skráning s. 588 2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Krumma-
kaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10.
Furugerði 1, félagsstarf | Norðurbrún
1, Furugerði 1 og Hæðargarður 31. Farið
á Safnasvæðið á Akranesi 15. ágúst.
Kaffiveitingar í Garðakaffi. Farið frá
Norðurbrún 1, kl. 12.30. Skráning í í s.
568 6960, í Furugerði í s. 553 6040
og í Hæðargarði í s. 568 3132.
Hæðargarður 31 | Listasmiðjan opin.
Félagsvist mánud. kl. 13.30, frjáls spil
miðvikudag kl. 13.30. Guðnýjarganga
kl. 10 þriðjudag og fimmtudag. Gönu-
hlaup föstudag kl. 9.30. Út í bláinn
laugardag kl. 10. Sumarferð 15. ágúst.
Nánari uppl. 568 3132.
Hæðargarður 31 | Félagsvist mánud.
kl. 13.30, frjáls spil miðvikud. kl. 13.30.
Guðnýjarganga kl. 10. þriðjud. og
fimmtud. Gangan Gönuhlaup alla fös-
tud. kl. 9.30, gangan Út í bláinn alla
laugard. kl. 10. Stefánsganga kl. 9. Aft-
urganga þegar þurfa þykir. Skráning
hafin fyrir veturinn. Uppl. 568 3132.
Vesturgata 7 | Síðsumarsferð 22.
ágúst kl. 12.30 M/Hannesi. Ekið um
uppsveitir Árnessýslu, Skeið og
Hreppa. Hrepphólakirkja, Gullfoss og
Geysir, Laugarvatn, Þingvellir. Lyng-
dalsheiðin ekin. Starfsemin hjá Flúða-
sveppum skoðuð. Kaffihlaðborð á hót-
el Geysi. Leiðsögum. Anna Þrúður
Þorkelsd. Skráning í síma 535 2740.
Kirkjustarf
Áskirkja | Sumarferð Safnaðarfélags
farin 13. ágúst. Ekið til Grundarfjarðar,
hlaðborð í Krákunni. Komið við í
Bjarnahöfn, helgistund í kirkjunni,
safnið skoðað. Uppl. í s. 588 8870.
Íþróttahúsið Digranes | Landsmót
Votta Jehóva 11.–13. ágúst. Aðalræða
mótsins flutt á sunnudag kl. 13.30.
Árnaðheilla
ritstjorn@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynn-
ingar um afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesendum sínum
að kostnaðarlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með tveggja daga
fyrirvara virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir sunnudags-
og mánudagsblað. Samþykki af-
mælisbarns þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og símanúmer.
Fólk getur hringt í síma 569 1100
eða sent á netfangið ritstjorn-
@mbl.is. Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
Hvaðan komu
landnámsmenn?
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Hef flutt læknastofu mína
í Skipholt 50b
Tímapantanir í síma 511 8050
Baldur Tumi Baldursson
húðsjúkdómalæknir
Falleg efri sérhæð á þessum vinsæla og friðsæla
stað miðsvæðis í Hafnarfirði. Hæðin er 146,8 fm
auk bílskúrs sem er 24,7 fm. Skipting eignarinnar:
Forstofa, hol, 3 svefnh., eldhús með borðkrók,
stofa, sjónvarpshol, þvottah., svalir og bílskúr.
Gólfefni eru að mestu parket og korkur. Eigninni
hefur verið vel við haldið s.s. skipt um gler að
mestu. Þetta er sérlega falleg eign sem vert er að
skoða. Verð 33,7 millj. Eignin er laus fljótlega.
Opið hús í dag milli kl. 14.00 og 15.00.
Sölumaður Hraunhamars verður á staðnum.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Smyrlahraun 10 - Hf. - Opið hús