Morgunblaðið - 12.08.2006, Síða 48
48 LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Alþjóðlegt
orgelsumar í
Hallgrímskirkju
12. ágúst kl. 12.00:
Eyþór Ingi Jónsson, orgel
13. ágúst kl. 20.00:
Eyþór Ingi Jónsson, organisti
frá Akureyri, leikur verk m.a. eftir
Bach, Clérambault, Muffat, Vierne
og Duruflé.
Sixties
í kvöld
Stór og fjölbreyttur sérréttaseðill öll kvöld vikunnar.
www.kringlukrain.is Sími 568 0878
Mr. Skallagrímsson
- leiksýning Landnámssetri í Borgarnesi
Höfundur/leikari: Benedikt Erlingsson
Leikstjóri: Peter Engkvist
KVÖLDVERÐARTILBOÐ
Tvíréttaður matur og
leikhúsmiði kr. 4.300 - 4.800
Lau. 19. ágúst kl. 20 uppselt
Sun. 20. ágúst kl. 15 örfá sæti
Sun. 20 ágúst kl. 20 örfá sæti
Fös. 25. ágúst kl. 20 örfá sæti
Lau. 26. ágúst kl. 15 uppselt
Lau. 26. ágúst kl. 20 uppselt
Lau. 2. sept. kl. 20
Sun. 3. sept. kl. 15
Sun. 3. sept. kl. 20
PANTIÐ MIÐA TÍMANLEGA
Í SÍMA 437 1600
Staðfesta þarf miða með greiðslu
viku fyrir sýningard.
MÁLVERKASÝNINGU Óla G. Jó-
hannssonar í Turpentine gallery er
fylgt eftir með veglegri bók með
fjölda litprentaðra mynda af akríl-
málverkum sem hann hefur málað á
undanförnum fimm árum ásamt
texta eftir Aðalstein Ingólfsson list-
fræðing. Verkin á sýningunni eru
„náttúrutengd spunaverk“ flest af-
strakt með einhvers konar fígúratíf-
um leifum sem birtast helst sem
primitífar höfuðfætlur, myndtákn
eða letur.
Stíllinn er síbreytilegur og kvikur
en alltaf mjög fyrirsjáanlegur og
kunnuglegur og koma mörg nöfn
annarra listamanna upp í hugann við
skoðun á þeim. Aðalsteinn tengir list
Óla réttilega við áhrifavalda hans,
Svavar Guðnason, Cobra-hreyf-
inguna og bandaríska spunamálara á
borð við De Kooning og Pollock. Að-
alsteinn segist „örugglega ekki hafa
verið einn um þá skoðun að tími nátt-
úrutengdra spunaverka á Íslandi
væri liðinn“ og væri þar listmálurum
um að kenna að vissu leyti. „Allt of
margir þeirra hafa látið tælast til yf-
irborðslegra skyndilausna, til
áreynslulausra leikja með liti og lín-
ur, í stað þess að gera til sjálfra sín
ítrustu kröfur“.
Í þessu umhverfi hafi Óli G. Jó-
hannsson komið fram á sjónarsviðið
kring um aldamótin sem öflugur list-
málari á óhlutbundnum væng ís-
lenskrar málaralistar. Aðalsteinn lýs-
ir myndlist Óla sem kraftmiklu
spunakenndu samspili eða innbyrðis
átökum línu og litar þar sem hann
brjóti til mergjar hið séða og skapi úr
því „alþekjandi“ málverk þar sem
myndflöturinn iðar af lífi jaðranna á
milli. Orðræðan er mjög rómantísk
þar sem hugtök á borð við „sannar
tilfinningar“, „sköpunarkraftur“,
„sannfæring“, „náttúrukraftar“ og
„eðlisávísun“ koma mjög við sögu.
Nú get ég ekki verið sammála Að-
alsteini um kraft, líf eða gæði þessara
verka um leið og ómögulegt er að
væna listamanninn um yfirborðs-
mennsku eða óheiðarleika hvað varð-
ar „sannar tilfinningar“ og þá full-
vissu um að ef listamaðurinn sé
tilfinningum sínum trúr þá komist
þær óhjákvæmilega til skila í verkum
hans. Annaðhvort stenst kenningin
ekki eða hún er flóknari en virðist í
fyrstu.
R. G. Collingwood skrifar 1938 um
mun á góðri og vondri list: Listamað-
urinn leitast við að tjá tilfinningar
sínar, og það að tjá þær og tjá þær vel
er sami hluturinn, en að tjá þær illa
dugar ekki til og er dæmt til að mis-
takast. Allir listamenn berjist á þess-
um mörkum, þeir viti hvað þeir vilji
tjá og átta sig á því þegar það tekst
ekki. Það sé munur á misheppnaðri
tjáningu í list og „falskri list“ svokall-
aðri sem er ekki tilraun til tjáningar
heldur tilraun til að gera eitthvað
annað hvort sem það tekst eða ekki.
Collingwood segir að tjá tilfinn-
ingar sé það sama og að verða með-
vitaður um þær en þegar það tekst
ekki án þess að listamaðurinn átti sig
á því þá sé um að ræða „brenglaða
meðvitund“. Brengluð meðvitund
snýst annaðhvort um það að lista-
maðurinn dulbýr eina tilfinningu sem
aðra eða er að tjá tilfinningar ann-
arra (sem hann gerir að sínum). Coll-
ingwood er að tala hér af sömu alvöru
og innan sömu orðræðu listarinnar
og Aðalsteinn sækir til, orðræðu sem
hefur þótt svolítið gamaldags en er að
bruma á ný.
Mörg verka Óla eru sæmileg og
ekki síðri en margra annarra sem
vinna í þessari hefð. Ljóðrænir og oft
langir titlar gefa stundum bendingar
um þær tilfinningar sem verkinu var
ætlað að tjá og þegar best lætur þá
finnur áhorfandinn einhverja sam-
svörun þar á milli eða tekur viljann
fyrir verkið.
Litir og línur,
bland í poka
MYNDLIST
Turpentine Gallery, Ingólfsstræti
Óli G. Jóhannsson. Sýningin stendur til
15. ágúst.
Opið þriðjudaga til föstudaga kl. 12–18
og laugardaga 12–16.
Viðkomustaðir
Þóra Þórisdóttir
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Óli G. Jóhannsson myndlistarmaður á Akureyri á vinnustofu sinni en með
honum á myndinni er hundur hans Sólón Íslandus. SÓLIN skein loks glatt úr út-
norðri þegar Christoph Schoener
hóf dagskrá sína í Hallgríms-
kirkju á Forleik og fúgu Op. 35,1
eftir Felix Mendelssohn-
Bartholdy. Hinn 53 ára gamli
Mikjálskirkjukantor frá Ham-
borg með 7 orgeldiska að baki ku
góðu hljóðfæri vanur á heima-
slóðum – 85 radda Steinmeyer-
orgeli frá 1962 – en lét sig þó
ekki muna um að benda klappi að
Klaisnum við leikslok, líkt og
hljómsveitarstjóri að þjálli sin-
fóníuhljómsveit.
Var því ekki annað að sjá en að
honum hafi líkað vel þetta önd-
vegishljóðfæri íslenzkra kirkju-
orgela, og kom það svosem ekki á
óvart. Hitt var óvæntara hvað
Schoener virtist framan af seinn
að átta sig á þörf þess að leika
hratt tónferli hæfilega tónstutt
við langan ómtíma Hallgríms-
kirkju er deyr út á þriggja þrepa
hnigi. Að vísu eru eflaust til
kirkjur með líflengri óm, en eftir
ýmsu að dæma segir það varla
allt um hvernig bezt ber að haga
áslætti. Alltjent hefði síherpull
ritháttur Mendelssohns í Prelúdí-
unni, ásamt fleiri þáttum síðar
meir, örugglega grætt á „þurr-
ari“ spilamennsku. En það virtist
þó lagast er á leið, einkum eftir
hlé. Og ekki varð organistanum
skotaskuld úr að nýta litadýrð
Hallgrímsorgels í hástert, því
registrun hans var með þeim
skemmtilegri sem maður hefur
heyrt hér hjá erlendum gestaspil-
ara.
Schoener lék alla dagskrána
niðri við gólfborðið án aðstoð-
arraddveljara. Eftir rómantískt
verk Mendelssohns og ljúfa um-
ritun Karg-Elerts á „Air célèbre“
Bachs („G-strengs“ aríunni úr 3.
hljómsveitarsvítu) kom að frægu
Weimarverki Bachs í a-moll BWV
543 þar sem dansfúgan í 6/8 er
byggð á sömu grunnhugmynd og
prelúdían í 4/4. Fótspilið var
raddskerpt við hæfi og skartaði
hér sem einatt öruggri fótatækni,
en hinn pólýfóníski himnavals
fúgunnar hefði líklega sveiflazt
meir og skýrar með auknu stak-
katói þó annars væri vel leikinn.
Viðamikil Fantaisie Mozarts í f
K608 – furðukröfuhart verk þótt
frumsamið væri fyrir spilakassa –
naut sín vel á orgel með m.a. fal-
legum flauturöddum. Notalegu
stykkin eftir Schumann Op. 56,5
og 58,3 í ABA formi báru sterkan
keim af píanórithætti, og pólýf-
ónían, ef einhver var, virtist vel
falin í frekar þykkum rithætti.
Hins vegar var heilmikið púður í
síðustu verkunum eftir Franz
Liszt. Der heilige Franziskus von
Paula auf den Wogen schreitend
tefldi í vel heppnaðri umritun W.
Sebastians Meyers fram höf-
uðskepnum með allt upp í ólgandi
stórsjó á móti dulúðugri andakt
og var spennandi áheyrnar. Fant-
asíukennd Prelúdían og fúgan um
B-A-C-H tjaldaði öllum tiltækum
klútum sem n.k. stórskotahylling
til Fimmta guðpjallamannsins,
uppbrotnum af guðspekilegri
íhugun, og var bráðskemmtilegt
að heyra litríka dúndurtúlkun
Schoeners sem hér var greinilega
á heimavelli.
Stór-
skota-
hylling
til Bachs
TÓNLIST
Hallgrímskirkja
Verk eftir Mendelssohn, Karg-Elert, J. S.
Bach, Mozart, R. Schumann og Liszt.
Christoph Schoener orgel. Sunnudaginn
6. ágúst kl. 20.
Alþjóðlegt orgelsumar
Ríkarður Ö. Pálsson
„SÖGUR neðan jarðar“ er heiti
sýningar sem listamennirnir Pétur
Már Gunnarsson, Johann Maheut
frá Frakklandi og Toshinaro Sato
frá Japan standa saman að og verð-
ur opnuð í Nýlistasafninu í dag.
„Fyrir fjórum árum sýndi ég í Lúx-
emborg og kynntist þar honum Jo-
hann. Hann fékk þá hugmynd eftir
að hafa kynnst mér og Íslandi að
búa til eitthvað hér á landi, þannig
að hann lagði hausinn í bleyti og
þessi sýning er núna orðin að veru-
leika. Við tveir sýnum hér ásamt
Toshinaro sem hann kynntist í Par-
ís. Það var einhver tenging á milli
okkar,“ segir Pétur Már sem var að
búa sig undir það að setja sýn-
inguna upp þegar Morgunblaðið
náði tali af honum.
Mörk og kofinn
„Við unnum upprunalega út frá
hugmyndunum um mörk ýmiss
konar. Í sambandi við pólitík, landa-
fræði og líka sálfræðileg mörk sem
maður setur sér eða manni eru sett.
Einnig höfum við verið að vinna út
frá hugmyndum um þau mörk sem
eru á milli sýningarsalar og þess
sem er fyrir utan hann og einnig
mörkin sem listasagan, eða lista-
hefðin, setur manni. Við höfum ver-
ið að velta fyrir okkur hugmyndinni
um kofann sem ákveðið rými og
umhverfi. Ef einhver fer að búa í
kofa úti í skógi, hvernig kemur
hann sér fyrir og stillir hlutum upp?
Við erum með þetta á bakvið eyrað
á meðan við erum að setja upp sýn-
inguna,“ segir Pétur Már og nefnir
að upprunalegu viðfangsefnin séu
enn þau sömu, en að þau hafi eitt-
hvað þróast áfram í vinnuferlinu.
Þegar farið sé að vinna með efnið
sjálft en ekki eingöngu hugmyndir
á blaði verði alltaf einhverjar breyt-
ingar.
Framhald á næsta ári
Pétur Már segir að verkin séu af
ýmsum toga, innsetning ein og sér,
stór skúlptúr, ljósmyndir, teikn-
ingar og myndir í öðrum miðlum.
„Þannig að þetta er mjög fjölbreytt.
Við köstuðum á milli hugmyndum á
meðan við unnum að sýningunni í
gegnum fjarskiptatæknina og nú
þegar við erum mættir á staðinn er-
um við tilbúnir að breyta ýmsu. Ef
ég myndi reyna að lýsa sýningunni í
heild þá er eiginlega best að segja
að það sé smáfeluleikur í gangi,“
segir Pétur Már. Áætlað er að ann-
ar hluti sýningarinnar fari fram í
Frakklandi 2007. „Það er á algjöru
undirbúningsstigi. Þetta verðum við
þrír og einhverjir fleiri íslenskir
listamenn.“
Í dag verður einnig opnuð sýning
Bandaríkjamannsins Bruce Conkle,
„Landslag og launmorð“, í safninu.
Í tilkynningu segir að Conkle sé af
mörgum talinn einn áhugaverðasti
listamaður sinnar kynslóðar á vest-
urströnd Bandaríkjanna. Notkun
hans á algengum táknmyndum
bandarísks hversdagslífs sem hann
sýni í nýju ljósi í verkum sínum sé
bæði pólitísk og fyndin. Á sýning-
unni má sjá ýmsar teikningar eftir
Conkle.
Myndlist | Tvær sýningar opnaðar í Nýlistasafninu í dag
„Smáfeluleikur í gangi“
Eftir Jón Gunnar Ólafsson
jongunnar@mbl.is
Sýningarnar opna báðar kl. 16 í
dag og standa þær til 3. septem-
ber. Nýlistasafnið er opið frá kl.
13–17 miðvikudaga til sunnudaga.
LISTAMAÐURINN Eggert Pét-
ursson mun fjalla um margrómuð
málverk sín af íslenskri flóru á
listamannaspjalli í Listasafni
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu á
morgun klukkan 15. Hann er með-
al listamanna sem eiga verk á sýn-
ingunni Carnegie Art Award 2006
sem stendur yfir í Hafnarhúsinu
til 20. ágúst. Eggert er annar Ís-
lendingurinn til að hljóta verðlaun
frá Carnegie Art Award sjóðnum
en hann hafnaði í öðru sæti en
Carnegie-verðlaunin eru ein
stærstu myndlistarverðlaun sem
veitt eru.
Á sýningunni Carnegie Art Aw-
ard 2006 getur að líta 49 verk eft-
ir 21 listamann en þeir voru valdir
til þátttöku úr hópi 115 tilnefndra
norrænna listamanna. Auk Egg-
erts eiga íslensku listamennirnir
Finnbogi Pétursson, Jón Óskar og
Steingrímur Eyfjörð verk á sýn-
ingunni.
Listamanna-
spjall í Hafn-
arhúsinu
Morgunblaðið/Eyþór
Pétur Már Gunnarsson og Johann Maheut frá Frakklandi, en þeir ásamt
Toshinaro Sato frá Japan – sem hafði brugðið sér frá er ljósmyndara bar
að garði – opna sýningu í Nýlistasafninu í dag.