Morgunblaðið - 12.08.2006, Qupperneq 56
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
JPV ÚTGÁFA hefur gengið frá samkomulagi
við Penguin-forlagið um útgáfu á bók Hugleiks
Dagssonar, Forðist okkur. Penguin mun gefa
bókina út á ensku í Bretlandi í haust og síðar í
Bandaríkjunum, Suður-Afríku, Ástralíu og
Nýja-Sjálandi og mun sjá um markaðssetningu
bókarinnar í þessum löndum. Penguin hefur
einnig keypt útgáfurétt á bókinni fyrir allan
heiminn að Íslandi undanskildu og mun annast
sölu útgáfuréttar til annarra landa.
Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri
JPV útgáfu, segir að aðdragandinn að samn-
ingnum hafi verið ótrúlegur. „Þetta eru stór-
kostleg tíðindi. Fjórum dög-
um eftir að við gáfum bókina
út á ensku kemur tölvu-
póstur frá Penguin. Þeim
áskotnaðist eintak frá Breta
sem hafði komið til Íslands
þegar bókin var gefin hér út.
Hann afhenti Alex Clarke
útgáfustjóra Penguin bókina
og á einum sólarhring ákvað
hann að Penguin yrði að
gefa hana út.“ Að sögn Egils nefndi Clarke að
Forðist okkur væri verk eftir snilling og eitt það
fyndnasta sem hann hefði séð í mörg ár. „Það er
mikil viðurkenning að fá verk sitt gefið út hjá
jafnvirtu og stóru forlagi og Penguin. Möguleik-
arnir sem þetta geta fært Hugleik eru gríðar-
legir. Það verður mikið lagt í kynningu og
markaðssetningu.“ Egill veit ekki til þess að Ís-
lendingur hafi áður skrifað undir hjá Penguin.
E.t.v. muni forlagið gefa út fleiri bækur eftir
Hugleik en það muni ráðast af þessari útgáfu.
Breyttur titill
Hugleikur fær fyrirframgreiðslu frá Penguin
og höfundarrétt í tengslum við sölu bókarinnar.
„Ég veit í raun ekki hverju þetta mun breyta
fyrir mig á þessu stigi málsins og það á eftir að
ákveða margt í sambandi við útgáfuna. Ég lifi
eingöngu á listsköpun í dag en þessi samningur
veitir mér aukið öryggi,“ segir Hugleikur og
nefnir að útgáfan leggist vel í sig og að hann sé
bjartsýnn á framhaldið. „Ég er mjög ánægður
með að þetta sé að koma út erlendis. Það væri
gaman að fá að fara eitthvað út í tengslum við
útgáfuna en það hefur ekkert verið ákveðið end-
anlega með það.“ Á Íslandi hét enska útgáfan
Avoid us en erlendis mun bókin heita Should
you be laughing at this? „Ég er búinn að vera í
miklu sambandi við Alex Clarke útgáfustjóra og
við erum búnir að rökræða ýmislegt. Fyrst leist
mér illa á þennan titil. Ég hugsa mig allavega
svona 20 til 30 sinnum um áður en ég samþykki
eitthvað sem markaðsfræðingar koma með. En
þetta verður titillinn. Þetta er eflaust voða við-
eigandi fyrir breska lesendur. Ég er búinn að
sjá hvernig bókin mun líta út. Þetta er mjög
smekklegt og fallegt. Þetta leggst vel í mig.“
Penguin gefur út bók Hugleiks Dagssonar
Hugleikur Dagsson
Eftir Jón Gunnar Ólafsson
jongunnar@mbl.is
HÓLAHÁTÍÐ var sett í gær í tilefni af 900 ára af-
mæli staðarins. Við upphaf hátíðarinnar fyrir há-
degi í gær var haldið málþing um Auðunarstofu, en
eftir hádegi tóku handverksmenn til starfa og smíð-
uðu bæði úr viði og járni.
Málþingið fyrir hádegi þótti heppnast vel og var
þétt setinn bekkurinn í sal Auðunarstofu. Sigríður
Sigurðardóttir safnvörður sagði að þingið hefði í
raun haft tvíþættan tilgang. Það væri endapunktur
á því samvinnuverkefni Íslendinga og Norðmanna
að reisa Auðunarstofu, en það verkefni hófst fyrir
fimm árum og í samningi var gert ráð fyrir að á af-
mælisári 2006 yrði verki lokið með málþingi um
stofuna, en einnig yrðu námskeið í því handverki
sem notað var við gerð hennar. Hins vegar væri
þetta þing einnig upphaf að samvinnuverkefni, sem
væri í þann mund að hefjast, en að því kæmu
Byggðasafn Skagfirðinga, Hólaskóli og Hólarann-
sóknin og síðast en ekki síst Fjölbrautaskólinn á
Sauðárkróki. | Lesbók
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Hólahátíð var sett í gær
VERÐBÓLGA í ágústmánuði er
8,6% samkvæmt vísitölu neysluverðs
sem Hagstofa Íslands birti í gær.
Verðbólga hefur ekki verið hærri á yf-
irstandandi verðbólguskeiði og hefur
í raun ekki verið hærri síðan í janúar
2002 þegar hún var 9,4%.
Þó eru nú mörg jákvæð teikn á lofti
og ber þar fyrst og fremst að nefna að
fasteignaverð lækkaði á milli mánaða
og bendir fátt til þess að sú þróun
muni breytast á næstunni. Þannig dró
fasteignaverð úr hækkun vísitölu
neysluverðs og er það í fyrsta skipti í
langan tíma sem það gerist eins og
kemur fram í Tilefni greiningardeild-
ar KB banka. | 14
Húsnæðis-
verð hægir
á vísitölunni
VERKTAKAFYRIRTÆKIN Im-
pregilo, Suðurverk og Fosskraft eru
byrjuð að undirbúa brottflutning
búnaðar, þar sem ýmsum verkþátt-
um Kárahnjúkavirkjunar er lokið eða
við það að ljúka.
Svo dæmi sé tekið er Impregilo bú-
ið að taka niður búnað innan lónstæð-
is Hálslóns, svo sem grjótmulnings-
stöð og steypustöð og mun halda
áfram í haust, þó að ekki sé byrjað að
flytja tæki úr landi. TBM 1-borinn
lýkur sínu verki í lok mánaðarins og
verður þá byrjað að rífa hann í sund-
ur til útflutnings, en slíkt tekur um 3
mánuði og TBM 3 á að ljúka sínu í
nóvemberbyrjun. Fosskraft afhendir
sinn verkhluta við stöðvarhúsið í lok
mánaðarins og Suðurverk lýkur
Desjarár- og Sauðárdalsstíflum í
haust.
Lokahnykkur í stífluhönnun
Byrjað verður að safna vatni í
Hálslón í kringum 20. september nk.
og um 70% vinnu við Kárahnjúka-
stíflu er nú lokið.
Alþjóðleg ráðgjafarnefnd um
hönnun stíflumannvirkjanna, sem
hefur fylgst náið með framkvæmd-
inni, kemur saman fyrir austan í
næstu viku í síðasta sinn áður en
Hálslón verður fyllt, til að hitta hönn-
uði og ganga frá allra síðustu hönn-
unarbreytingum og viðbótum sem
settar hafa verið inn á verktímanum.
Á milli 1.500 og 1.600 manns starfa
nú að virkjunarframkvæmdinni og er
um fjórðungur þess mannafla ís-
lenskur.
Meginþunginn í borverki neðanjarðar, Kárahnjúkastíflu og Hraunaveitu í vetur
Verktakar byrjaðir að flytja
búnað af virkjunarsvæðinu
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
68% vinnu við Kárahnjúkastíflu
telst nú lokið. Hún verður ein af tíu
stærstu stíflum heims. Mest eftir | Miðopna
HRAÐAR gengur en menn áttu von
á að gangsetja ker í kerskála 3 í ál-
veri Alcan í Straumsvík. Í gær var
haldið upp á þann áfanga að búið er
að endurgang-
setja helming
þeirra 160 kera
sem í skálanum
eru.
Starfsmenn ál-
versins í
Straumsvík hafa
unnið hörðum
höndum að því að
koma álfram-
leiðslu aftur af stað í kerskálanum en
hætta varð rekstri í júní vegna
straumleysis í skálanum. Hrannar
Pétursson, upplýsingafulltrúi Alcan
á Íslandi, segir að upphaflega hafi
verið ráðgert að búið yrði að gang-
setja öll ker skálans í nóvember en
nú stefni allt í að skálinn verði kom-
inn í almennan rekstur í september.
„Starfsfólkið í kerskálunum hefur
lagst á eitt við að leysa þetta og það
hefur tekist frábærlega. Margir hafa
lagt mikið á sig og án þess gengi
þetta miklu hægar.“
Um fjögur ker á dag
Til að mæta auknu vinnuálagi var
starfsfólki í kerskálunum fjölgað og
segir Hrannar að töluvert af starfs-
fólki annarra deilda álversins hafi
verið reiðubúið að færa sig milli
deilda. Miklu hafi munað að ekki alls
óreynt fólk hafi hafið störf í kerskál-
unum vegna hins aukna álags. Í gær
höfðu 80 ker verið gangsett af þeim
160 kerum sem eru í skála 3 og segir
Hrannar að starfsmenn hafi gætt sér
á köku af því tilefni. „Þetta hefur
kallað á mikla vinnu og okkar fólk á
mikið hrós skilið fyrir það sem það
hefur verið að gera.“
Síðastliðnar vikur hafa u.þ.b. fjög-
ur ker verið gangsett á hverjum degi
og segir Hrannar að mikil vinna fylgi
hverri gangsetningu. Fyrst og
fremst þurfi að vakta kerin eftir að
þau séu gangsett til að jafnvægi
myndist í þeim og rafgreining álsins
geti hafist. Hann segir skemmdirnar
á kerunum sjálfum ekki hafa verið
svo miklar og tækjabúnaður þeirra
sé nokkuð óskaddaður. „Mesta vinn-
an fer í að hreinsa upp úr kerunum
og koma þeim í gang aftur,“ segir
Hrannar. Eftir straumleysið sem
varð í júní þurfti að gera við nokkur
ker en afar lítið hefur verið um að
endurbyggja þyrfti heilu kerin.
Vel gengur
að koma
kerskála 3
í rekstur
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
EKKI er hægt að segja til um
hversu lengi hertar öryggisreglur
um handfarangur farþega flugvéla
til Bandaríkjanna munu gilda.
Vegna ótta í fyrradag um að far-
þegaþotum yrði grandað í flugi frá
Bretlandi til Bandaríkjanna ákvað
ráðherra heimavarna í Banda-
ríkjunum að efla bæri eftirlit með
flugfarþegum sem flygju til Banda-
ríkjanna. Jóhann R. Benediktsson,
sýslumaður á Keflavíkurflugvelli,
segir að þegar atvik verði sem leiða
til hertrar öryggisgæslu hafi það
verið reyndin síðustu ár að slíkar
reglur hafi verið festar varanlega í
sessi. | 4
Hertar reglur
hafa fest í sessi
♦♦♦