Morgunblaðið - 09.09.2006, Side 68
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í
gær tillögu menntamálaráðherra
um að hækka afnotagjöld Ríkis-
útvarpsins um 8% frá og með
næstu mánaðamótum. Verður
mánaðargjaldið þá 2.921 króna
með virðisaukaskatti.
Afnotagjöldin hækkuðu síðast
í maí 2004, og segir Páll Magn-
ússon útvarpsstjóri að sé miðað
við verðlagsþróun á þeim rúm-
lega tveimur árum sem liðin eru
síðan þá hefðu afnotagjöldin
þurft að hækka um 16% til að
framlög til stofnunarinnar
drægjust ekki saman.
Var því sótt um leyfi til að
hækka afnotagjöld um 16%, en
leyfi fékkst einungis fyrir 8%
hækkun.
Hallarekstur hefur verið á
Ríkisútvarpinu undanfarin ár, á
síðasta ári var hallinn um 200
milljónir króna. Páll segir að ekki
sé búið að gera milliuppgjör
RÚV opinbert, en ljóst sé að
vandinn hafi verið svo mikill á
undanförnum árum að eigið fé
stofnunarinnar sé uppurið.
„Þessi 8% eru um það bil helm-
ingur af þeim verðlagshækkun-
um sem orðið hafa síðan síðasta
hækkun fékkst, svo þetta er ekki
nema helmingur upp í það. En
þetta er betra en ekkert,“ segir
Páll. Hann segir ljóst að það hafi
ekki verið hægðarleikur fyrir
stjórnvöld að hækka afnotagjöld-
in um 16% á þenslutímum, en
þetta verði að duga til að vega
upp á móti þeim hækkunum sem
orðið hafi í samfélaginu.
Páll segir ljóst að hagur RÚV
hafi versnað sem nemi mismun-
inum á hækkuninni nú og verð-
lagsþróun frá síðustu hækkun.
„Það verður að taka á því með
öðrum hætti. En eins og málum
er háttað núna, með óbreyttum
rekstri og rekstrarfyrirkomu-
lagi, má segja að það er nánast
innbyggt tap í reksturinn og hef-
ur verið mjög lengi.“
Áform um breytt rekstrarform
RÚV gætu bætt reksturinn mik-
ið með því að gera stjórnendum
kleift að gera reksturinn skil-
virkari og komast út úr langvar-
andi taprekstri, segir Páll. Hann
segir að áform um nefskatt í stað
afnotagjalda geri þessa hækkun
ekki tilgangslitla, reiknað sé með
að tekjur RÚV haldist óbreyttar
þegar því verði breytt úr stofnun
í hlutafélag.
Afnotagjöld hækka um 8%
»Afnotagjöld Rík-isútvarpsins hækka um
8% frá og með 1. október,
upp í 2.921 krónu á mánuði.
» Síðast hækkuðu þau um7% frá 1. maí 2004, upp í
2.705 krónur á mánuði.
»Þar áður hækkuðu af-notagjöldin um 5% 1.
janúar 2004, og voru eftir
það 2.528 krónur á mánuði.
Í HNOTSKURN
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 252. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Á hádegi í dag
er spáð suðvestan
5-10 m/s og víða
verða skúrir.
Bjartviðri á Austurlandi.
Hlýjast verður eystra.» 8
Heitast Kaldast
15°C 8°C
og skoðaði sig um á Bessastöðum. Er þetta
væntanlega einn af fjörugri hópunum sem
þar hafa litið inn í heimsókn undanfarið.
HÓPUR grænlenskra barna sem dvelja hér á
landi við sundæfingar þáði í gær heimboð
Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands,
Börnin, sem eru á 12. ári, eru frá þorpum á
austurströnd Grænlands. Þau ætla að að iðka
hér sund, skák og kynnast landi og þjóð.
Morgunblaðið/ÞÖK
Sundnemar sóttu Bessastaði heim
VALGERÐUR Sverrisdóttir utan-
ríkisráðherra segir starfsemi ratsjár-
stöðva Ratsjárstofnunar mjög þýð-
ingarmikla og mikilvægt sé að þær
starfi áfram.
,,Hún er mikilvæg fyrir borgara-
legt flug. Hún er það líka vegna
varna Íslands og ekki er síður ástæða
til að nefna að [ratsjárstöðvarnar]
gegna mikilvægu hlutverki í sam-
bandi við öryggi á norðurhöfum. Það
er því augljóst að við teljum mikil-
vægt að þær starfi áfram,“ segir Val-
gerður.
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að varnarliðið hætti að fylgjast með
merkjum frá Ratsjárstofnun í lok
maí og ekkert eftirlit hefur því verið
með ómerktum flugvélum í lofthelgi
Íslands frá þeim tíma.
Upplýsingar sem Ratsjárstofnun
aflar um flugumferð yfir Íslandi og
umhverfis landið sem hafa verið nýtt-
ar af varnarliðinu eru síðan fram-
sendar til Flugmálastjórnar Íslands.
Skv. upplýsingum Flugmálastjórnar
sem fengust í gær fær flugumferð-
arstjórnin áfram upplýsingar frá rat-
sjárstöðvunum eins og verið hefur.
Loftvarnakerfið er einnig hluti af
heildarloftvarnakerfi Atlantshafs-
bandalagsins. Mannvirkjasjóður
NATO greiddi allan kostnað við
mannvirki og búnað kerfisins, sem er
því í eigu NATO en bandaríski flug-
herinn hefur greitt rekstrarkostnað
Ratsjárstofnunar, sem er áætlaður
rúmlega 1,2 milljarðar á þessu ári.
Valgerður Sverrisdóttir segir ljóst
að þó nokkur kostnaður fylgi rekstri
ratsjárstöðvanna. ,,Það er óljóst á
þessari stundu hvernig farið yrði með
þann kostnað, til framtíðar litið,“ seg-
ir hún.
Mikilvægt að ratsjár-
stöðvarnar starfi áfram
Óljóst hvernig farið yrði með kostnað sem er á annan milljarð
1,2 milljarðar | 10
FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ sendi
frá sér tilkynningu í gær þar sem
fram kemur að ákveðið hafi verið
að viðræðum Íslands og Bandaríkj-
anna um varnarmál verði haldið
áfram fimmtudaginn 14. september
nk. í Washington.
Framtíð ratsjárstöðvanna er
meðal þess sem er til umfjöllunar í
yfirstandandi viðræðum Íslands og
Bandaríkjanna um varnarmálin.
,,Við gerum okkur vonir um að
það náist verulegur áfangi á næsta
fundi,“ sagði Valgerður Sverr-
isdóttir utanríkisráðherra, spurð
um viðræðurnar í gær.
Væntir verulegs
áfanga á
næsta fundi
LÍKLEGA hafa fáir verið heit-
bundnir jafn lengi og „kær-
ustuparið“ Hrafnhildur Eiríks-
dóttir og Kolbeinn Lárus Petersen,
a.m.k. hlutfallslega. Í stuttu máli
hafa þau „verið saman“ alla ævi og
reyndar níu mánuðum betur. Mæð-
ur þeirra störfuðu nefnilega mjög
náið saman alla meðgönguna þar
sem þær léku saman í Eldhúsi eftir
máli á Smíðaverkstæðinu í Þjóð-
leikhúsinu í vor.
Aino Freyja Järvelä og Þórunn
Lárusdóttir eru þó ekki einar leik-
kvenna í sýningunni um frjósemi
meðan á sýningum stendur því nú
hefur María Pálsdóttir leikkona
bæst í þeirra hóp en hún á von á
sér í janúar. „Við vorum endalaust
að tilkynna um óléttur,“ segir hún
og játar að kannski hafi þungun
starfsystra hennar haft áhrif á að
hún ákvað að slá til. „Þegar þær
voru báðar komnar með bumb-
urnar fóru eggjastokkarnir að
hringla á fullu og þar sem tíminn
hentaði mér vel var ekki eftir
neinu að bíða.“
Þar sem leiksýningin fer aftur á
fjalirnar á morgun þurfa þær Aino
Freyja og Þórunn að undirbúa sig
með öðrum hætti en í vor enda bíða
litlir þurftafrekir einstaklingar
þess að tjaldið falli. „Nú er maður
bara byrjaður að mjólka og búinn
að koma sér upp lager inni í
frysti,“ segir Aino Freyja en Þór-
unn hyggst gefa syninum sopann
sinn rétt fyrir sýningu. „Svo vona
ég bara að minnið og textinn hverfi
ekki í brjóstagjafaþokunni!“ | 28
Frjósemi á fjölunum
Morgunblaðið/Ásdís
Á og í maga Þórunn Lárusdóttir,
Kolbeinn Lárus Petersen, María
Pálsdóttir, Aino Freyja Järvelä og
Hrafnhildur Eiríksdóttir.
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
SKÚLI Helgason hefur fetað í
spor föður síns, Helga Skúla-
sonar, og tekið að sér hlutverk
sögumannsins í barnaleikritinu
Karíusi og Baktusi sem Leik-
félag Akureyrar frumsýnir
fljótlega. Brá Skúli sér í hljóð-
ver í gær til að taka upp, en Ást-
rós Gunnarsdóttir leikstýrir
verkinu.
Faðir Skúla leikstýrði eftirminnilegri sjónvarps-
mynd um sykursjúku félagana Karíus og Baktus
árið 1970 og fór þá með hlutverk sögumannsins. Og
í sjónvarpsmyndinni lék Skúli hvorki meira né
minna en sjálfan Jens, drenginn sem borðaði of
mikið sælgæti og fékk tannpínu. Skúli var þá fimm
ára. Hann man enn hvað hann fékk í laun fyrir hlut-
verkið. „Ég fékk fimm hundruð kall á verðlagi árs-
ins 1970 sem var mikill peningur í augum fimm ára
drengs á þeim tíma og svo fékk ég sleikibrjóstsykur
eins og ég gat í mig látið … ég hugsaði um það
seinna að það hefði ef til vill verið sérkennilegt að
borga drengnum með sleikibrjóstsykri – svona mið-
að við boðskapinn í myndinni.“ | 24
Fékk sleikjó fyrir
að leika Jens
LEIKSTJÓRAR heim-
ildamyndarinnar Zidane:
Portrett 21. aldarinnar,
myndlistarmennirnir
Douglas Gordon og Phil-
ippe Parreno, hafa verið
tilnefndir til Gucci verð-
launanna, en framleiðandi
myndarinnar er Sigurjón
Sighvatsson.
Gucci-verðlaunin eru
samstarfsverkefni Fen-
eyjatvíæringsins, Kvik-
myndahátíðarinnar í Fen-
eyjum og Gucci-fyrirtækisins þar í borg, og eru
veitt í fyrsta sinn í ár. Þau eru veitt listamönnum úr
öðrum listgreinum sem þykja hafa lagt merkan
skerf til kvikmyndalistarinnar. Gordon og Parreno
eru báðir vel þekktir myndlistarmenn, og verk
þeirra prýða meðal annars Pompidou-safnið í París
og Guggenheim í New York.
Myndin um Zidane fær lofsamlega dóma víða um
heim, en hérlendis verður hún frumsýnd á Kvik-
myndahátíðinni í Reykjavík í lok mánaðarins. | 21
Zidane skorar
í Feneyjum
♦♦♦