Morgunblaðið - 22.09.2006, Side 31
rannsókn
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 31
RANNSÓKN á drukknum ávaxta-
flugum hefur leitt í ljós hver ein
af orsökunum er fyrir því að bjór
hefur meiri áhrif á fólk í hita en
kulda. Frá þessu er sagt á vefn-
um forskning.no.
Það borgar sig að vera í dálítið
köldu umhverfi ef fólk vill komast
hjá því að verða of drukkið. Fyrir
utan þá augljósu staðreynd að
það hjálpar líka að drekka minna.
Sama mólekúl-virkni og stjórn-
ar viðbrögðum líkamans við hita-
stigi hefur áhrif á áfengisþol.
Drukknar
ávaxtaflugur
Á nákvæmlega sama hátt og
manneskjur verða ávaxtaflugur
drukknar þegar þær fá í sig of
mikið áfengismagn. Þegar flug-
urnar hafa slokrað í sig áfengi
fer það út í líkamann í gegnum
frumuhimnurnar. Þegar áfengið
kemur að frumuhimnun heilans
hefur það áhrif á sveigjanleika
þeirra. Þetta truflar frumuvirkn-
ina og þar af leiðandi verður fólk
ölvað.
Fleira hefur áhrif á frumu-
himnur en áfengi og má þar m.a.
nefna hitastig. Lágt hitastig gerir
það að verkum að frumuhimn-
urnar verða lítið eitt stífari og til
að koma í veg fyrir að þær stífni
alveg auka frumurnar framleiðslu
sína á fitusýrum sem troða sér
inn í himnurnar og mýkja þær lít-
ið eitt. Sömu prótein stýra þess-
um fitusýrum og stýra losun
áfengis. Þetta varð til þess að
prófessor við Brown-háskólann
bandaríska, Kristi Montooth, fór
að velta fyrir sér tengingunni
þarna á milli.
Heitar og
kaldar flugur
Montooth grundvallaði rann-
sóknir sínar á spurningunni um
hvort próteinin sem verða virk í
köldu veðri gerðu ávaxtaflug-
urnar betur í stakk búnar til að
þola áfengi. Í félagi við sam-
starfsfólk sitt prófaði hún tilgát-
una á tveimur tegundum ávaxta-
flugna. Önnur tegundin er frá
hitabelti Norður-Ástralíu, þar
sem hitastig er að jafnaði um
26°C, hin tegundin er frá Tas-
maníu en þar er hitastigið 15°C.
Þegar hitastigið var hækkað
upp í 26°C hjá tasmanísku flug-
unum minnkaði áfengisþolið úr
13,2% í 8,8%. Þegar áströlsku
flugurnar voru settar í umhverfi
þar sem hitastigið var undir 15°C
jókst áfengisþol þeirra úr 12,3% í
15,2%.
Áfengisþol og sveigjanleiki
frumuhimnanna
Rannsóknarhópurinn fann eig-
inlega út að áströlsku flugurnar
tvöfölduðu framleiðsluna á gen-
um sem hafa áhrif á fitusýrur
þegar þær voru fluttar í kaldara
loftslag. Eitt þessara gena hefur
áhrif á ensímið acetyl-CoA
synthetase, sem stýrir mik-
ilvægum samruna fitusýra og hef-
ur áhrif á losun áfengis úr lík-
amanum. Annað gen sem varð
virkt hefur áhrif á ensímið posp-
holipase D, sem losar áfengi úr
himnum.
Það eru því sömu þættir sem
auka sveigjanleika frumuhimn-
anna og auka áfengisþol.
Morgunblaðið/Golli
Bjór Ný rannsókn sýnir að það borgar sig að vera í dálítið köldu umhverfi ef fólk vill komast hjá því að verða of drukkið.
Minna viðnám gegn áfengi í hita
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
! " #$%& ' (!$ " ) *
"% " +!) ,) +! + "- . ) /01 *&
2 $ . + $ $$ ! ) . 3" 3(% - %
4 $$ 5$ & % $, - $, "+$ $ (% % 6$ % +
( (%& 7$ !% "$, (% + $ - 89 '91/)
2% $, - 89 '911 % :! & &
Fjölskylduhátíð í Listasafni Reykjavíkur 22. september
VÍSINDINVIÐ
STEFNUMÓT
VÍSINDAVAKA 2006
Allir velkomni
r!
Félagsvísindadeild HÍ ● Gagnasetur HR ● Gervigreindarsetur HR ● Hafrannsóknarstofnunin ● Hjartavernd
Háskólinn á Akureyri, auðlindasvið ● Háskólinn á Akureyri, viðskipta- og raunvísindadeild ● Hreinherbergi HÍ ● Hugvísindadeild HÍ
Jarðvísindastofnun HÍ ● Landbúnaðarháskóli Íslands ● Landspítali háskólasjúkrahús ● Laxfiskar ehf ● Líffræðistofnun HÍ ● Líf-Hlaup ehf ● Línuhönnun hf
Lyfjaþróun hf ● Marel ● Náttúrufræðistofnun Íslands ● NimbleGen Systems Inc. ● ORF Líftækni hf ● Orkusetur Orkustofnunar ● RANNÍS
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins ● ReykjavíkurAkademían ● Stjörnu-Oddi hf ● Stofnun Árna Magnússonar ● Undirbúningshópur fyrir Tilraunahús
Ungir vísindamenn HÍ ● Veðurstofa Íslands ● Verkfræðideild HÍ ● Vísindamiðlun HÍ ● Vísindavefur HÍ ● Össur hf
Og sérstaklega fyrir káta krakka: Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn - Vísindaveröldin
Þátttakendur á Vísindavöku
Í DAG
KL. 18:00 - 21:0
0