Morgunblaðið - 24.09.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 259. TBL. 94. ÁRG. SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
LÍF EFTIR PÓLITÍK
EKKI LENGUR TILTÖKUMÁL AÐ ALÞINGIS-
MENN SÖÐLI ALVEG UM >> VIKUSPEGILL
BERSERKUR
CLIFF BURTON MINNTI
Á HEKLU Í HAM
RAUÐA VINDMYLLAN >> 32
BEIN danskrar móður síðasta keisara
Rússlands voru flutt áleiðis til Sankti Pét-
ursborgar í gær, laugardag, 140 árum eftir
að hún fór fyrst til Rússlands.
Maria Feodorovna hafði óskað eftir því
að verða grafin við hlið eiginmanns síns, Al-
exanders III keisara.
Dagmar Danaprinsessa fæddist árið
1847, breytti nafni sínu og gekk í rússnesku
rétttrúnaðarkirkjuna þegar hún giftist
keisaranum. Þau eignuðust sex börn, þeirra
á meðal síðasta keisara Rússlands, Nikulás
II, sem var tekinn af lífi ásamt fjölskyldu
sinni í byltingu bolsévíka 1917.
Minningarathöfn fór fram í gær í dóm-
kirkjunni í Hróarskeldu þar sem líkkista
keisaraynjunnar hefur verið frá því að hún
lést árið 1928. Við athöfnina voru Margrét
Danadrottning, afkomendur keisaraynj-
unnar og danskir og rússneskir embætt-
ismenn.
Kista keisaraynjunnar var flutt til Kaup-
mannahafnar um borð í skip sem á að flytja
hana til Sankti Pétursborgar þar sem hún
verður grafin á fimmtudaginn kemur.
AP
Keisaraynju minnst Patríarkinn Alexí II
við minningarathöfn um Feodorovnu.
Bein
keisara-
ynju flutt
Maria Feodorovna grafin
í Sankti Pétursborg
ÞINGVALLANEFND hefur
ákveðið að kynna þjóðinni tillögu
sem fram er komin að nýrri brú yf-
ir Öxará. Björn Bjarnason, dóms-
og kirkjumálaráðherra og formað-
ur nefndarinnar, segir að kynning-
in muni fara fram á vefsíðu nefnd-
arinnar, thingvellir.is, og leggur
áherslu á að ný brú verði ekki lögð
yfir ána komi fram veruleg and-
staða við þá hugmynd.
Að sögn Björns Bjarnasonar er
von nefndarmanna sú að almenn-
ingur tjái sig um tillöguna á vefsíð-
unni. Tillagan að brúnni er eftir
Manfreð Vilhjálmsson arkitekt
sem vann hana í samvinnu við
verkfræðistofuna Línuhönnun.
Vísað til gliðnunar
Manfreð segir hugmyndina þá
að tveir armar gangi frá bökkum
árinnar, þó þannig að þeir nái ekki
saman. Með þessu verði vísað til
gliðnunar landsins á Þingvöllum.
Bilið á milli armanna verður úr
gleri og mun því fólk geta horft af
brúnni niður í Öxará. Glerið verður
á hinn bóginn ekki breiðara en svo
að menn munu auðveldlega geta
klofað yfir það. Brúin verður fyrst
og fremst göngubrú en þó verður
unnt að aka yfir hana.
Hugmynd Manfreðs er sú að
dekk brúarinnar verði klætt harð-
viði, trúlega hnotu. Kveðst Man-
freð með þessu leitast við að fella
efnið að umhverfinu. Hið sama
mun gilda um arma brúarinnar
sem verða úr ryðlitu stáli sem vísar
til frumlita náttúrunnar og fellur
því að umhverfinu. „Með þessu efn-
isvali yrði brúin spengileg og von-
andi ekki krefjandi fyrir augað.
Mín ætlan er sú að hún verði hófleg
og falli vel að staðháttum,“ segir
Manfreð Vilhjálmsson.
Björn Bjarnason leggur í viðtali
við Morgunblaðið í dag áherslu á
að varlega þurfi að fara í breyting-
um og uppbyggingu á Þingvöllum
enda sé staðurinn helgur í huga
þjóðarinnar.
Kynna þjóðinni tillögu
að nýrri brú yfir Öxará
Samþykki Ný brú verður ekki lögð yfir ána komi fram veruleg andstaða við þá hugmynd.
Vilja að almenningur tjái sig um brúna á vefsíðu Þingvallanefndar
Verndun Þingvalla | 6
SAMFYLKINGIN kynnti í gær
tillögur sínar sem stefna að því að
lækka matarreikning heimilanna
að meðaltali um 200.000 krónur eða
um rúmlega fjórðung. Í tilkynn-
ingu frá Samfylkingunni segir að
flokkurinn hafi einn flokka barist
fyrir lækkun matvælaverðs á und-
anförnum árum en ríkisstjórnar-
flokkarnir hafi staðið gegn slíkum
breytingum.
„Við leggjum til að lækka mat-
vælareikning fjölskyldnanna um
allt að 200.000 krónur á ári og það
gerum við með því að fara í þær til-
lögur sem Hallgrímur Snorrason
hagstofustjóri gerði í skýrslu um
matarverð. Við viljum fella niður
vörugjöld, lækka tolla strax um
helming og síðan er það tillaga
okkar, sem við höfum margflutt,
um að virðisaukaskattur á íslensk
matvæli verði lækkaður,“ sagði
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylkingarinnar, í sam-
tali við Morgunblaðið. Þetta væri
einhver besta lífskjarabót sem völ
væri á fyrir íslenskan almenning.
Ingibjörg Sólrún minnti einnig á
að þegar ríkisstjórnin hefði lagt til
lækkun á tekjuskattshlutfallinu
hefði Samfylkingin alltaf lagt
áherslu á að í staðinn yrðu álögur á
matvæli lækkaðar enda myndi það
nýtast öllum almenningi mun bet-
ur.
Er hún var spurð um áhrif á ís-
lenskan landbúnað sagði hún að
ræða yrði við bændur hvernig stað-
ið yrði að málum. Horfast yrði í
augu við að það væri ekki spurning
um hvort heldur hvenær farið yrði
út í slíkar aðgerðir því almenning-
ur sætti sig ekki lengur við að
borga allt að 50% meira fyrir mat-
væli en nágrannaþjóðirnar.
Matarreikningur heimila
lækki um 200.000 krónur
Samfylkingin leggur til aðgerðir
til lækkunar á matvælaverði
Í HNOTSKURN
» Vörugjöld af matvælumverði felld niður.
» Innflutningstollar á mat-væli verði felldir niður í
áföngum þannig að 1. júlí nk.
verði helmingur felldur niður
en afgangurinn ári síðar.
» Virðisaukaskattur á mat-væli lækkaður um 50%.
» Teknar verði upp tíma-bundnar greiðslur til
bænda og umhverfisstyrkir.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
París. AFP. | Franskt
dagblað birti í gær
skýrslu frá leyniþjón-
ustu Frakklands þar
sem skýrt er frá því að
yfirvöld í Sádi-Arabíu
séu sannfærð um að
Osama bin Laden hafi
dáið úr taugaveiki í Pak-
istan fyrr í mánuðinum.
Varnarmálaráðuneyti
Frakklands sagði að ekki væri hægt að
staðfesta fréttina og varnarmálaráðherr-
ann fyrirskipaði rannsókn á því hver hefði
„lekið upplýsingunum“ í franska dagblaðið
L’Est Républicain.
Blaðið segir að í skýrslu leyniþjónust-
unnar frá 21. september komi fram að bin
Laden hafi veikst alvarlega af taugaveiki
23. ágúst. Vegna einangrunar hans við
landamæri Pakistans og Afganistans hafi
læknar ekki komist til hans og sádi-arab-
íska leyniþjónustan hafi fengið upplýsingar
um andlát hans 4. september.
Segir bin
Laden látinn
Osama bin Laden
♦♦♦
ÞINGVALLANEFND hafa borist ábendingar um að iðkaðar séu gróf-
ar aðferðir við urriðaveiði í Þingvallavatni og segir Björn Bjarnason
upplýsingar þessar valda verulegum áhyggjum. Hann segir nú liggja
fyrir að menn fari um Þingvallavatn á bátum með nákvæm fiskileit-
artæki og leiti uppi stóra urriða. „Þeir egna síðan fyrir hann með
groddalegum beitum, sem minna munu einna helst á útlendar geddu-
beitur með mörgum þríkrækjum og húkka hann jafnvel upp úr vatn-
inu. Þetta er ekki forsvaranlegur veiðiskapur. Aðferðir sem þessar
geta fljótt gengið nærri urriðanum og eyðilagt það vel heppnaða upp-
byggingarstarf sem við erum að vinna,“ segir Björn í samtali sem
Morgunblaðið birtir í dag.
Groddalegar veiðiaðferðir