Morgunblaðið - 24.09.2006, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 63
Kynning á NordForsk
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands,
Laugavegi 13, 101 Reykjavík,
www.rannis.is
Kynning á styrkjaáætlunum NordForsk, Hvammi, Grand Hóteli,
þriðjudaginn 26. september klukkan 8:15 til 10:00.
NordForsk er sjálfstæð stofnun með það hlutverk að efla norræna samvinnu
í rannsóknum og rannsóknarnámi. NordForsk auglýsir nú eftir umsóknum um styrki úr
tveimur nýjum áætlunum um norræn öndvegisnet. Önnur er á sviði velferðarrannsókna og
hin á sviði rannsókna á matvælum, næringu og heilsu.
Á fundinum verða áætlanirnar kynntar og starfsemi NordForsk almennt.
Umsóknarfrestur
Velferðarrannsóknir 16. október
Matvæli, næring og heilsa 23. október
Dagskrá
● 8:15 Setning
Hans Kr. Guðmundsson, forstöðumaður Rannís.
● 8:20 Hlutverk NordForsk
Hafliði Pétur Gíslason prófessor, fulltrúi Íslands í stjórn NordForsk.
● 8:35 Norræn öndvegisnet
Eiríkur Smári Sigurðarson, Rannís.
● 8:50 Matvæli, næring og heilsa
Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins.
● 9:20 Velferð
Tryggvi Þór Herbertsson prófessor, forstöðumaður hagfræðistofnunar Háskóla Íslands.
● 9:50 Aðrir rannsóknastyrkir hjá NordForsk
Eiríkur Smári Sigurðarson, Rannís.
Fundurinn hefst klukkan 8:15 og honum lýkur klukkan 10:00. Boðið verður upp á léttan
morgunverð. Fundurinn er öllum opinn en þátttakendur skrái sig með tölvupósti til
rannis@rannis.is
SKREF UPP á við (Step Up) er til-
brigði við kunnuglegt stef sem birtist
í rómantískum dansmyndum allt frá
Footloose til Save the Last Dance, en
hún fjallar um samband ungrar
stúlku af efri stétt við strák úr einu af
óæðri hverfum bæjarins. Bæði eru
dansarar af guðs náð þótt þau hafi
skólast á ólíkan hátt. Nora (Jenna
Dewan) er á lokaári í fínum listaskóla
og er að æfa útskriftarverkefni sitt
sem hún vonast til að muni fleyta sér
inn í hinn harða heim nútímadansins.
Tyler (Channing Tatum) er alinn upp
í fátækrahverfi borgarinnar þar sem
aðallega búa blökkumenn, en sjálfur
er hann hvítur. Hann er besti dans-
arinn í kjallarapartíum í hverfinu, en
virðist stefna á glapstigu með líf sitt.
Leiðir þeirra Noru og Tylers liggja
saman þegar hann neyðist til að vinna
fyrir skólann sem hún sækir til að
bæta fyrir skemmdarverk og Tyler
býðst til þess að leysa af slasaðan
mótdansara Noru á æfingum fyrir
lokaprófið. Smám saman fellur Nora
fyrir Tyler sem færir henni nýja sýn
á dansinn og lífið – og öfugt. Skref
upp á við er ágætlega gerð rómantísk
dansmynd, þar eru dansatriðin vel út-
færð og vel til þess fallin að bera
myndina uppi. Þó svo að dálítið ein-
feldningslegur tónn einkenni þetta
viðsnúna nútímaöskubuskuævintýri
er hún ágæt skemmtun fyrir þá sem
hafa gaman af dansi og unglingaróm-
antík.
Dans og
unglingarómantík
KVIKMYND
Sambíóin
Leikstjórn: Anne Fletcher. Aðalhlutverk:
Channing Tatum, Jenna Dewan, Mario,
Drew Sidora og Rachel Griffiths. Banda-
ríkin, 98 mín.
Skref upp á við (Step Up) Heiða Jóhannsdóttir
Dansfimi Dansatriðin í Step up eru vel útfærð og bera myndina uppi.