Morgunblaðið - 24.09.2006, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 24.09.2006, Blaðsíða 76
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 267. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: auglysingar@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Austan og norð- austan 3–8 m/s og skýjað með köfl- um, en þokuloft á Austurlandi. Sums staðar næturfrost. » 8 Heitast Kaldast 13°C 7°C Eftir Andra Karl andri@mbl.is EF HUGMYNDIR fasteignafélags- ins Klasa um landfyllingu við sunn- anvert Seltjarnarnes ná fram að ganga yrði gríðarleg breyting á svipmóti bæjarins og íbúafjöldi gæti nánast tvöfaldast. Félagið hefur fengið arkitektastofu til að vinna til- lögu að íbúða- og þjónustubyggð og verður málið tekið fyrir á fundi skipulags- og mannvirkjanefndar í október. Ingimar Sigurðsson, formaður skipulags- og mannvirkjanefndar Seltjarnarnesbæjar, segir að verið sé að tala um gríðarlega mikla byggð sem eigi að hýsa um 4.500 manns. „Þarna eiga að vera raðhús, einbýlishús, fjölbýlishús, skóli, leik- skóli og verslunarmiðstöð svo eitt- hvað sé nefnt,“ segir Ingimar en tekur fram að hugmyndin sé enn á byrjunarstigi. „Ég er búinn að fara á einn fund með þeim, þar sem þeir kynntu hugmyndir sínar og átti að gera grein fyrir þeim á síðasta fundi í nefndinni. Því var frestað sökum tímaskorts og verður málið tekið fyrir á fundi í október.“ Bæjarstjórn fékk erindið sent í ágúst og samþykkti að vísa því til skipulags- og mannvirkjanefndar. Þar sem tillagan hefur ekki verið tekin fyrir, hvorki í skipulagsnefnd né bæjarstjórn, segir Ingimar ótímabært að geta sér til um hvort hún verði að veruleika. Fleiri huga að landfyllingu Klasi er ekki eina fyrirtækið sem stefnir að landfyllingu við Seltjarn- arnes því Þyrping hf., sem er þróun- arfélag í eigu fasteignafélagsins Stoða hf., er með tillögu sína um 22 þúsund fermetra landfyllingu norð- austan við gatnamót Norðurstrand- ar, Suðurstrandar og Eiðsgranda. Gert er ráð fyrir verslunarhúsnæði fyrir Hagkaup og Bónus auk útivist- arstíga og opinna svæða á fylling- unni. „Það er búið að taka þetta fyr- ir einu sinni í nefndinni þar sem samþykkt var að Þyrping héldi kynningarfund fyrir bæjarstjórn, sem hefur verið gert, og kynnti hug- myndina fyrir bæjarbúum áður en við tökum málið aftur til efnislegrar meðferðar,“ segir Ingimar. Kynn- ingin mun standa fram til loka mán- aðarins en í framhaldi mun skipu- lagsnefnd taka málið fyrir að nýju. 4.500 manna byggð rísi á landfyllingu  Íbúafjöldi Seltjarnarness myndi tvöfaldast verði tillaga fasteignafélagsins Klasa að veruleika  „Þarna eiga að vera raðhús, einbýlishús, fjölbýlishús, skóli, leikskóli og verslunarmiðstöð“ Morgunblaðið/Ásdís Landfylling Mikil breyting yrði á svipmóti Seltjarnarness fái hugmynd Klasa hljómgrunn hjá íbúum. Tillagan er hjá skipulags- og mannvirkjanefnd. LJÓSMYNDARINN Mary Ellen Mark hefur fylgst með fötluðum krökkum í Safamýrarskóla, á Lyngási og í Öskjuhlíðarskóla í heilan mánuð og myndað þá fyrir ljósmyndasýningu á Þjóðminjasafni Íslands sem opnuð verður í septem- ber á næsta ári. Þá er eiginmaður hennar Martin Bell að vinna að heimildarmynd um líf Alexanders Pálssonar í Öskjuhlíðarskóla. Mary Ellen segir markið sett hátt á þessum stöðum og þykir ástúðin þar svipuð og á líknarstofnun móð- ur Theresu í Kalkútta. „Ég finn líka sterkt að starfsmenn og aðstand- endur blygðast sín ekki fyrir börnin eins og maður hefur fundið sums staðar, heldur njóta þess að vera með þeim og kynnast persónuleika þeirra.“ | 34–36. Morgunblaðið/RAX Vinir Ljósmyndarinn Mary Ellen Mark á Lyngási með vinum sínum Halla og Pétri. Stoltið leynir sér ekki „EFNAHAGSLEGAR aðstæður hér á landi eru með því besta sem gerist í heiminum. Í því tilliti hafa íslensk börn aldrei haft það betra,“ segir Ingibjörg Rafnar, umboðsmaður barna, í samtali við Morgunblaðið í dag, þar sem leit- að er svara við spurningunni: Er Ísland barn- vænt samfélag? Ingibjörg segir að við búum við góða leik- skóla og öflugt grunnskólakerfi. Heilsugæsla sé óvíða betri í heiminum og ungbarnadauði hvergi minni. Þjónusta við börn sé á mjög háu stigi. „Að því leyti er Ísland án efa barnvænt samfélag. Það væri vanþakklæti að halda öðru fram.“ Þegar kemur að tilfinningalegu atlæti telur Ingibjörg að við gætum gert betur. „Við Ís- lendingar erum óhemju duglegt fólk. Við vær- um ekki hérna annars, þrjú hundruð þúsund hræður, á hjara veraldar. Vilja aga, öryggi og skjól Við vinnum mikið og höfum fyrir vikið kannski ekki alltaf nægan tíma fyrir börnin okkar. Samkvæmt upplýsingum Hagstofu Ís- lands dvelur 71% barna átta klukkustundir eða lengur á leikskóla á degi hverjum en það er lengri tími að meðaltali en hjá starfsfólk- inu. Heilt á litið held ég að við gætum bætt okkur hvað þetta varðar, sýnt börnum meiri virðingu og tillitssemi. Gefið þeim meiri tíma.“ Í könnun sem Gallup gerði fyrr á þessu ári kom í ljós að 36,5% starfandi fólks á aldrinum 25–65 ára á höfuðborgarsvæðinu kveðast oft hafa takmarkaðan tíma fyrir fjölskylduna eða aðra mikilvæga aðila í sínu lífi vegna vinnu. 28,5% svöruðu sömu spurningu játandi árið 2000 og er aukningin marktæk. Eyjólfur Magnússon Scheving grunnskóla- kennari segir þetta áhyggjuefni. „Íslensk börn hafa ekkert breyst í áranna rás. Þau vilja hafa aga, öryggi og skjól. Nálgunin nú til dags er hins vegar önnur. Stóra vandamálið í sam- félaginu sem við búum í er hraðinn. Það eru allir að flýta sér, fullorðnir og börn. Foreldrar vinna mikið og eru fyrir vikið alltaf á síðasta snúningi, allt þarf að gerast í gær. Af þessum sökum eru börn upp til hópa rótlaus í dag. Það eru alltof mikil læti í kringum þau og alltof mikið framboð af afþreyingu. Börnin vita ekki í hvorn fótinn þau eiga að stíga.“ Þjónusta við börn er á háu stigi á Íslandi en samvera er af skornum skammti Hraðinn stóra vanda- málið í samfélaginu Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is  Börn síns tíma | 10–14 BRÚNNI yfir Jökulsá á Dal var lokað í gær og verður almenningi ekki kleift að komast á milli bakka á svæðinu við Kára- hnjúka fyrr en umferð verður hleypt yfir stífluna á næsta ári. Fyrirhugað er að taka allt lauslegt af brúnni en burðarvirkið mun að mestu standa eftir og hverfa í lónið. Brúin var sett upp á árinu 2002 og var upphaflega hugsuð sem vinnubrú til að nota yfir byggingartímann. Hún er rétt fyrir utan hættusvæði Kárahnjúkavirkjun- ar þannig að almenningur naut góðs af brúnni. Ekki verður hægt að komast yfir bakka á svæðinu nema hafa heimild til að fara yfir Kárahnjúkastíflu en vegurinn þar yfir verður opnaður almenningi næsta sumar. Brúnni yfir Jöklu lokað Morgunblaðið/RAX FIMMTÍU og einn ökumaður var á föstu- dag kærður fyrir of hraðan akstur á götum í grennd við Glerárskóla og Brekkuskóla á Akureyri en hámarkshraði þar er 30 km/ klst. Lögreglan var með sérstakt eftirlit við skólana. Skv. upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri hefur athugun lögreglu leitt í ljós að stór hópur ökumanna virði ekki há- markshraða í íbúðahverfum þar sem há- markshraði er 30 km/klst. Um 50% aki yfir leyfilegum mörkum og 30% yfir þeim mörk- um sem reglugerð um sektir við umferð- arlagabrotum nær til, þ.e. á 44 km hraða eða meira. Það sem af er árinu hefur lög- reglan á Akureyri haft afskipti af 1.650 öku- mönnum sem ekki fylgdu reglum um há- markshraða en á sama tíma í fyrra var fjöldinn 1.250. Nú hafa rúmlega 32.000 manns undirrit- að yfirlýsingu undir slagorðinu „Nú segjum við stopp“ á heimasíðunni stopp.is. Síðan var sett á laggirnar vegna átaks gegn bana- slysum. Hraðakstur við barnaskóla ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.