Morgunblaðið - 24.09.2006, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.09.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 19 Öflugasta fjarstýringin á Íslandi stendur öllum þeim til boða sem eru með ADSL þjónustu hjá Símanum!* Með henni færðu Skjáinn þar sem þér býðst yfir 60 skemmtilegar erlendar sjónvarpsstöðvar í gæðum sem eiga engan sinn líka á Íslandi. Að auki færðu aðgang að SkjáBíói þar sem þú leigir bíómyndir heima í stofu, þegar þér hentar. Til að fá Skjáinn og bestu myndgæðin ásamt SkjáBíó ferðu á sölustaði Símans eða hringir í 800 7000. Til að fá Stöð 2 og Sýn í bestu myndgæðum á Skjánum hringir þú í þjónustuver 365 í síma 5156100. * Ef tæknilega er mögulegt Nú nærðuStöð2 og Sýnlíka í bestumyndgæðunum Íboði á Skjánum ogbíóheima í stofu Síminn færir þér bestumyndgæðin E N N E M M / S ÍA / N M 2 3 2 7 7 Í hugum margra er fótbolti ástríða og slær allt annað út. Uppáhaldsliðinu er fylgt við hvert fótmál og tilfinningalíf hins sanna stuðningsmanns sveiflast í takt við velgengni og mót- læti liðsins. Það liggur í hlutarins eðli að aðeins örfá lið hampa titlum hvað eftir annað. Áhangendur flestra liða verða að sætta sig við jafnt og þétt mótlæti, en þá verða sigurstundirnar vitaskuld þeim mun sætari. En hvað kostar það að láta mót- lætið yfir sig ganga svo árum og jafnvel áratugum skiptir? Á því hef- ur ekki verið gerð úttekt á Íslandi svo vitað sé, en nýverið birtist greinargerð frá Virgin Money um það hvað breskur knattspyrnuáh- angandi, sem sækir leiki heima og að heiman, kostar til á ævinni. Nið- urstaðan er tæpar fjórtán milljónir króna og er þá miðað við 52 ár. Þá er gert ráð fyrir að viðkomandi kaupi ársmiða á heimaleiki fyrir 20 þúsund pund (2,7 milljónir króna), sæki úti- og bikarleiki reglulega fyr- ir 11.600 pund (1,5 milljónir króna), greiði 40 þúsund pund í ferðakostn- að (5,4 milljónir króna) og 25.900 pund (3,5 milljónir króna) fyrir ým- iss konar aukahluti á borð við trefla og treyjur. Dugir fyrir tveggja vikna kaupi Coles eða 31 síðu úr penna Rooneys Þessar niðurstöður hafa vakið nokkra athygli og orðið pistlahöf- undum efni í nokkra dálksentí- metra. Giles Smith skrifar dálk í Lundúnablaðið The Times þar sem hann gerir frekar lítið út upphæð- inni og segir að hún myndi til dæm- is aðeins rétt duga til að kaupa sparkkunnáttu knattspyrnumanns- ins Ashley Cole í tvær vikur. Hann veltir málinu einnig fyrir sér frá bókmenntahliðinni: „Sennilegar heimildir gefa til kynna að Wayne Rooney muni fá fimm milljónir punda (676 milljónir króna) fyrir fimm binda meistaraverk, sem hann hyggst ljúka við á ferli sínum. Fyrsta bindið kom nýlega út og telst vera 311 síður með atriðisorða- skrá. Ef framleiðsla hans helst stöð- ug á samningstímanum mun Roo- ney fá greidd 3.215,43 pund (435 þúsund krónur) á síðu. Ætlar ein- hver að segja mér að 52 ára tryggð við knattspyrnufélag með öllum þeim sögum og mannlegu dramatík sem fylgir sé ekki meira virði en 31 síða með prósa eftir Rooney?“ Simon Hattenstone hjá dag- blaðinu The Guardian lítur svo á að 14 milljónirnar séu borgaðar fyrir ævilöng vonbrigði. Honum kemur mest á óvart að meðaltalið skuli ekki vera hærra: „Vinur minn var að punga út 1.700 pundum (230 þús- und krónum) fyrir ársmiða á leiki Arsenal. Á því verði myndi hann ná 14 milljónum án þess að komast á útileik. Því má bæta við að hann slapp vel – dýrustu ársmiðarnir hjá Arsenal kosta 4.400 pund (595 þús- und krónur) á „klúbbsvæðinu“.“ Hvernig hefði Karl Marx brugðist við? Hattenstone blandar Karli Marx inn í málið þegar hann veltir fyrir sér hvernig knattspyrnufélögin fara með almenning: „Ef Karl Marx væri á lífi í dag er líklegt að hann myndi a) styðja AFC Wimbledon eða Real Man United [svo] og b) verja mestöllum tíma sínum í aðal- bókasafninu í Manchester við rann- sóknir á kenningu, sem kallaðist „knattspyrna: örheimur félagslegs ranglætis í kapítalísku samfélagi“. Arðrán hinna vinnandi stétta kemur hvergi betur fram en á knatt- spyrnumarkaðnum. Hvernig eiga venjulegir áhangendur að hafa efni á því að fara á leiki? Þeir hafa það ekki, en margir sleppa nauðsynjum til þess að sanna tryggð sína við málstaðinn. Eins og Marx myndi segja: „Boltinn er ópíum fólksins“.“ Hattenstone tekur spænska liðið Barcelona sem dæmi um það að hægt sé að ná árangri án þess að kreista hverja krónu út úr áhang- endunum. Þar kostar dýrasti ár- smiðinn 300 pundum minna en ódýrasti ársmiðinn hjá Arsenal. Síð- an bendir hann á að til séu áhang- endur, sem vilji láta féfletta sig og tekur dæmi um einn, sem hafi eytt 375 milljónum punda (50 milljörðum króna) í að fylgjast með knatt- spyrnuliðinu Chelsea leika heima og að heiman og hafi í þokkabót aðeins stutt liðið í þrjú ár. Reuters Dýr ástríða Ódýrasti ársmiðinn á heimaleiki Arsenal er 40 þúsund krónum dýrari en dýrasti ársmiðinn á heimaleiki Barcelona. Thierry Henry tekur horn á nýjum velli Arsenal í London. ÍÞRÓTTIR»Eftir Karl Blöndal kbl@mbl.is „Boltinn er ópíum fólksins“ Knattspyrnuáhuginn getur kostað skilding- inn þegar stórlið eru annars vegar. Nú hefur verið reiknað út hvað breskir knattspyrnu- áhugamenn borga að meðaltali á ævi sinni fyrir að fylgja áhugamálinu eftir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.