Morgunblaðið - 24.09.2006, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 24.09.2006, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN HEILBRIGÐ- ISMÁL hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu, einkum í tengslum við málefni Landspítala –háskóla- sjúkrahúss. Lækna- stéttin hefur í þessu máli gengið hart fram og flíkað því ákaft hve ábyrgð þeirra gagn- vart sjúklingum sé mikil. Eins og málum er háttað, sé hætta á að hagsmunum þeirra verði kastað fyrir róða. Nú er það svo að þegar minnst er á ábyrgð lækna, þá rótar það upp hjá þeim einstaklingum sem telja sig hafa farið illa út úr lífinu, beinlínis vegna læknamistaka. Undirritaður er í þessum hópi og hann telur sig ekki hafa orðið varan við þessa miklu ábyrgð læknanna. Meint mistök sem áttu sér stað við geislameðferð á höfuðæxli í veik- indum dóttur minnar á því virta sjúkrahúsi Karólínska í Svíþjóð í lok febrúar 1982, hafa aldrei verið við- urkennd, en þarna áttu í hlut bæði ís- lenskir og sænskir læknar. Nefndin sem starfar hér á landi og tekur fyrir meint læknamistök hefur tekið þetta mál tvívegis fyrir og komist að sömu niðurstöðu, að skammturinn hafi ekki verið of stór, en samt liggur það ljóst fyrir að geislinn fór dýpra en hann átti að fara, skemmdi fremsta hluta heilans með þeim afleiðingum, að dóttir mín er mjög fötluð, ósjálf- bjarga að flestu leyti og vart líður á löngu þar til hún verður bundin hjóla- stól vegna hreyfihömlunar, afleið- ingar heilaskemmdanna. Einhver hlýtur að bera þarna ábyrgð, hvort sem það eru íslenskir eða sænskir, og barnið var sent út frá íslensku sjúkrahúsi, Landspít- alanum. Eins og gefur að skilja þá hefur þetta mál legið á mér lengi og nú er svo komið að ég verð að segja þessa sögu, sem er miður skemmtileg. Það var 15. desember 1979 sem okkur Hólmfríði Hjaltadóttur fædd- ist yndisleg dóttur, Ólöf Arna. Allt virtist í lagi í fyrstu, en þegar hún var um tveggja ára aldurinn í ársbyrjun 1982 tókum við eftir því að vinstra augað var að færast fram og varð þetta áberandi á skömmum tíma. Við fórum með hana til læknis á Sauð- árkróki, þar sem við bjuggum, og vorum þá spurð að því hvort barnið hefði rekið sig á. Nei, við höfðum ekki orðið vör við það. Við fórum með barnið milli lækna á staðnum og í maímánuði sendi Birgir Guðjónsson okkur með Ólöfu Örnu til sérfræð- ings á Akureyri, Magn- úsar Stefánssonar. Magnús hafði ekki skoð- að barnið lengi þegar hann ákvað að senda okkur með hana taf- arlaust suður, þar sem hún var lögð inn á Land- spítalann. Við gerðum okkur strax grein fyrir því að þarna var mikil alvara á ferðum og í hönd fór rannsókn á æxli í höfði og frumu- breytingasjúkdómi. Við tóku tvær erfiðar vikur þar sem beðið var eftir greiningu á því hversu alvarlegs eðlis sjúkdómurinn væri. Í hönd fór lyfjameðferð og þegar hún dugði ekki var ákveðið að við færum með Ólöfu Örnu á Karólínska í Svíþjóð í lok febrúar 1983. Okkur skildist að geislameðferðin sem þar átti að gera, væri tiltölulega hættu- laus, enda tæki þar sem hægt væri að stilla dýpt geislans vel, en slík tæki voru þá ekki til hér á landi. Með geislameðferðinni var hægt að koma böndum á sjúkdóminn, en æxlið hjaðnaði samt ekki eins og von- ast var til og það var síðan fjarlægt með skurðaðgerð á Borgarspít- alanum árið eftir að mig minnir, 1984. Við vorum að vona að þar með væri beina brautin framundan eða svo gott sem, en svo var aldeilis ekki. Í ljós kom að Ólöf Arna var mikið á eftir sínum jafnöldum og kom það í sjálfu sér ekki á óvart, en þessi mismunur jókst. Hún þurfti að fara í sérskóla og það sem verra var að Ólöf fór að missa mál og var orðin algjörlega mállaus um 12 ára aldur. Á þessu tímabili fengum við ýmsar greiningar frá læknum, m.a. eina þar sem talið var að hún væri með heila- rýrnunarsjúkdóm sem sennilega væri í tengslum við krabbameins- sjúkdóminn sem hún var með áður og okkur skildist að þetta myndi smám saman draga hana til dauða. Þetta var hræðileg greining, en sem betur fer var vonin alltaf sterkari en allt annað og í rauninni vorum við á þess- um tímapunkti orðin sannfærð um að „Læknamafían“ viðurkenndi aldrei mistökin Þórhallur Ásmundsson fjallar um málefni dóttur sinnar og meint læknamistök Þórhallur Ásmundsson Opið hús á Klapparstíg 14 sunnudaginn 24. sept. milli kl. 15:30 og 16:30 Glæsilegar 3ja herbergja íbúðir á jarðhæð og 2. hæð í nýju lyftuhúsi steinsnar frá Skugga- hverfinu á mótum Klapparstígs og Lindargötu. Íbúðirnar skiptast í stórt opið rými, stofu, borðstofu og eldhús, tvö rúmgóð svefnherbergi og fallegt baðherbergi. Í íbúðinni á 2. hæð eru góðar svalir en suðurverönd með sérafnotarétti á jarðhæðinni. Mjög vandaður frágangur einkennir íbúðirnar þar sem hvergi hefur verið til sparað. Hurðir íbúðanna, fataskápar ásamt bað- og eldhúsinnréttingum eru úr eik. Eldhústæki eru einnig vönduð og með stáláferð en blástursofn, gufugleypir og keramikhelluborð fylgja. Það er innfelld halogenlýsing í stofu, eldhúsi og gangi og gólfhiti er í öllum herbergjum, hvert með sérhitastilli. Íbúðirnar eru afhentar tilbúnar án gólfefna. Albert Björn Lúðvígsson sölumaður, s. 840 4048 Guðrún Árnadóttir lögg. fasteignasali Sýnum í dag tvö glæsileg um 100 fm hús á mjög góðum útsýnisstað í Skorradalum. Húsin, sem eru á um 4.000 fm eignarlóðum, skilast fullbúin að utan með stórri verönd og rúmlega fokheld að innan. Um er að ræða mjög vönduð hús. Verð 22 millj. Áhvílandi 15 millj. kr. sumarhúsalán og seljandi getur útvegað frekari fjármögnun. Sölumaður Þórhallur sími 896 8232, Hlynur sími 616 9199. SÖLUSÝNING Í DAG KL. 13-15 INDRIÐASTAÐIR - SKORRADAL HRÍSÁS 19 OG 21 Í AÐDRAGANDA að kosningu nýrrar stjórnar Heimdalls gerðu framboðin allt til að næla í fleiri at- kvæði. Eitt af því var að láta unglinga, und- ir lögaldri, skrá sig í Sjálfstæðisflokkinn gegnt því að þeir fengju bjór og fleiri veigar í partíi sem framboðin héldu. Auk þess fengu þau bíó- miða og fleira ef þau kusu. Þetta viðgekkst líka fyrir borgarstjórn- arkosningarnar í vor og prófkjörin þar áður og var mest áberandi hjá Sjálfstæðisflokknum, þó eitthvað hafi einnig verið um það hjá öðr- um flokkum. Finnst öllum í lagi að stjórn- málaflokkar þessa lands, þeir sem semja lögin, brjóti þau og gefi unglingum undir lögaldri áfengi? Svo ekki sé talað um „múturnar“, nammi, matur og drykkur, svo þau kjósi, þótt að sjálfsögðu sé það þeirra lokaákvörðum hvort og hvern þeir kjósi. Einnig veit ég þess dæmi að fyrir próf- kjör innan Sjálfstæðisflokksins hafi verið hringt í nemendur Verslunarskólans og þeir beðnir um að ganga í flokkinn til að kjósa þennan eða hinn. Ef þeir neituðu eða sögðust ekkert vita um stjórn- mál var gengið á þá, jafnvel hringt oft í þá, og sagt „gefðu mér bara kennitöluna þína, er hún ekki 010101-0101? Sko ég skrái þig bara og þú getur alltaf skráð þig Kosningabarátta Heimdallar Brynhildur Bolla- dóttir fjallar um stjórnarkjör í Heim- dalli og aðferðir við prófkjör Brynhildur Bolladóttir ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.