Morgunblaðið - 24.09.2006, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 65
menning
Alla jafna eru íslenskiráhugamenn um spenn-andi tónlist vel settirhvað varðar tónlist frá
Bandaríkjunum og Bretlandi, en
heldur vandast málið þegar kemur
að tónlist frá frændþjóðum okkar
á hinum Norðurlöndunum. Ekki er
bara að tónlist þaðan sést sjaldan
í íslenskum plötuverslunum heldur
er það hending ef hingað rata
fremstu hljómsveitir Dana, Norð-
manna, Svía eða Finna. Þetta er
bagalegt í ljósi þess að í þessum
nágrannalöndum okkar eru starf-
andi margar af fremstu hljóm-
sveitum og listamönnum Evrópu
nú um stundir og nægir að nefna
dönsku hljómsveitirnar frábæru
Mew og Under byen sem báðar
hafa sent frá sér frábærrar plötur
á árinu, plötur sem eru með því
besta sem komið hefur út af fram-
sæknu rokki og tilraunapoppi.
Frábærar Árósasveitir
Það vill svo skemmtilega til að
báðar eru hljómsveitirnar ættaðar
frá Árósum, en sú fyrrnefnda hef-
ur flutt sig um set og starfar nú í
lastabælinu Kaupmannahöfn. Un-
der byen er aftur á móti enn með
höfuðstöðvar í Árósum. Sú sendi
frá sér plötu fyrir skemmstu,
Samme stof som stof, sem er sem
betur fer fáanleg hér á landi og
fær bestu meðmæli.
Under byen rekur ættir til þess
er stöllurnar Katrine Stochholm
og Henriette Sennenvaldt stofn-
uðu hljómsveit heima í Árósum –
Sennenvaldt samdi texta og söng,
en Stochholm lék á hljómborð og
samdi lögin. Framan af söng Sen-
nenvaldt á ensku en fannst text-
arnir svo lélegir og óekta að hún
tók að semja á dönsku og hefur
gert það síðan. Í viðtali við belg-
ískan vefmiðil lét hún þau orð falla
fyrir nokkrum árum að þó það
hafi verið átak að semja á dönsku
hafi hún snemma áttað sig á því
að fyrir vikið væru textarnir heið-
arlegri.
Ekki létu þær stöllur duga að
hafa bara píanó og rödd, heldur
dreymdi þær um strengi, slagverk
og ýmisleg blásturshljófæri og sjö
skipuðu hana á fyrstu tónleikunum
sem haldnir voru í smábænum
Hinnerup skammt utan við Árósa,
en þar voru þær upp aldar Katr-
ine Stochholm og Henriette Sen-
nenvaldt. Þetta var vorið 1996 og
hljómsveitin nafnlaus. Við svo búið
mátti ekki standa og fyrir valinu
varð heiti eins laganna á tónleika-
dagskránni, Under byen, sem lýsir
að sögn Sennenvaldt einkar vel
inntaki texta hennar, því hvernig
hlutirnir líti út þegar skyggnst er
undir yfirborðið og það grand-
skoðað sem bærist í djúpunum, en
einnig hafa þau vísað í bækur
Svend Åge Madsen um fólkið sem
býr neðanjarðar „de underjor-
diske“.
Dönskuspursmálið
Fyrsta smáskífan, Puma, kom
út skömmu fyrir jól 1997 en í kjöl-
farið urðu smávægilegar manna-
breytingar á sveitinni. Að þeim
loknum hóf sveitin eiginlegt tón-
leikahald í Árósum og víðar og
vakti snemma ekki bara athygli
fyrir hljóðfæraskipan og frum-
legar lagasmíðar, heldur ekki síst
fyrir það að vera með danska
texta, enda tíðkaðist að ekki í hjá
ungsveitum í Danmörku á þeim
árum og tíðkast varla enn. Athygl-
in varð til þess að sveitinni bauðst
plötusamningur vorið 1999 og
fyrsta stóra platan, Kyst, var
hljóðrituð í Stokkhólmi þá um
haustið. Skífan kom út í nóvember
og fékk fína dóma, framúrskarandi
dóma reyndar, í flestum blöðum.
Kyst vakti á sveitinni mikla at-
hygli og kallaði á mikið tónleika-
hald. Katrine Stochholm, sem
stofnaði sveitina með Henriette
Sennenvaldt eins og getið er,
kunni aftur á móti illa við sig á
sviði og hætti á endanum að spila
með sveitinni nema á stöku tón-
leikum heima í Árósum. Hún hélt
þó áfram að semja og taka upp
með henni um hríð. Í hennar stað
kom píanóleikarinn Thorbjørn
Krogshede og með tímanum hefur
hann ekki bara leyst Stochholm af
við hljóðfæraslátt heldur er hann
annar helsti lagasmiður Under
byen nú um stundir.
Fræg í Rolling Stone
Önnur breiðskífa Under byen,
Det er mig der holder træerne
sammen, kom út vorið 2003 og um
sumarið lék sveitin á Spot hátíð-
inni Árósum sem er helsta kynn-
ingarhátíð danskra (og norrænna)
hljómsveita ár hvert. Ég var svo
heppinn að vera frammi í anddyri
á tónleikahöllinni í Árósum þegar
Under byen spilaði, enda fengu
þau ekki inni á aðalsviði hátíð-
arinnar. Hvað sem því leið þá var
frammistaða þeirra slík að aðrar
hljómsveitir gleymdust að mestu í
umfjöllun um hátíðina. Má nefna
að David Fricke, blaðamaður Roll-
ing Stone og Jakobínurínuvinur,
lofaði sveitina í hástert í blaði sínu
og kallaði hana bestu hljómsveit
Danmerkur, ef ekki heims.
Í kjölfar umfjöllunar Frickes
fékk Under byen talsverða athygli
utan Danmerkur sem vonlegt er
og Det er mig der holder træerne
sammen var gefin út víða um
heim. Þegar þessi orð eru skrifuð
er hljómsveitin til að mynda að
undirbúa tónleikaferð um Norður-
Ameríku og fer þaðan í mikla ferð
um Evrópu sem lýkur í Kaup-
mannahöfn í byrjun desember.
Annir vegna skyndilegs áhuga
utan Danmerkur og mannabreyt-
ingar urðu til þess að seinka vinnu
við næstu breiðskífu Under Byen
en hún kom loks út í vor og heitir
því sérkennilega nafni Samme stof
som stof. Tónlistin á plötunni er
heldur harðari en á fyrri skífum
sveitarinnar sem skýrist hugs-
anlega af því að aðrir sjá um laga-
smíðar eftir að Katrine Stochholm
gekk úr skaftinu. Hvað sem því
líður þá sannar Samme stof som
stof að Under byen er ein helsta
hljómsveit Danmerkur nú um
stundir og ekki margar sveitir
sem standa henni á sporði á Norð-
urlöndunum öllum.
Helsta hljóm-
sveit Danmerkur
Afbragð Under byen. Henriette
Sennenvaldt er lengst til vinstri
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíasson
Skógarhlíð 18 – 105 Reykjavík – sími 591 9000
Akureyri – sími 461 1099 • Hafnarfirði – sími 510 9500
www.terranova.is
Terra Nova býður einstakt tækifæri
til að njóta haustsins við góðan að-
búnað í þessari skemmtilegu borg á
frábærum kjörum. Tallinn býður allt
það helsta sem fólk sækist eftir í
borgarferð; fallegar byggingar, ótel-
eljandi veitingastaði, fjörugt nætur-
líf, úrval verslana og mjög gott
verðlag. Gisting á frábærum kjörum
á Hotel Domina Inn Llmarine, ný-
tískulegu og fallegu fjögurra stjörnu
hóteli með góðum aðbúnaði og
þjónustu. Fjölbreytt gisting í boði.
frá Kr.39.990
M.v. 2 í herbergi í 4 nætur á Hotel Domina Inn
Ilmarine **** með morgunverði, 18. október.
Netverð á mann.
Tallinn
18. október
Glæsileg helgarferð
frá kr. 39.990
Hotel Domina Inn Ilmarine ****
- SPENNANDI VALKOSTUR