Morgunblaðið - 24.09.2006, Page 10

Morgunblaðið - 24.09.2006, Page 10
10 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Drjúgum hluta barnæskunnarer varið í skólanum og Ingi-björg Rafnar, umboðs- maður barna, og Eyjólfur Magn- ússon Scheving, grunnskólakennari, eru sammála um að hlutverk skól- ans í uppeldi barna hafi sjaldan ver- ið stærra. En eru íslenskir skólar starfi sínu vaxnir? Ingibjörg upplýsir að hún hafi bent á það í sambandi við endur- skoðun grunnskólalaganna sem nú er nýhafin að það sé afar mikilvægt að grunnskólalögin skilgreini betur ábyrgð hvers aðila, þ.e. sveitarfé- lagsins sem rekur skólann, skólans sjálfs, foreldranna og nemendanna. „Samstarf foreldra og skóla hefur aukist mikið á liðnum misserum en eigi að síður er hægt að gera betur í því efni. Það er til dæmis áberandi að eina skyldan sem grunn- skólalögin setja á herðar foreldrum er sú að þeir innriti börnin sín í skóla og sjái til þess að þau sæki skólann. Um margt er auðvitað um sameiginlegt hlutverk foreldra og skóla að ræða en annað stendur bara upp á foreldrana eins og t.d. að sjá til þess að börnin séu mót- tækileg fyrir fræðslunni, að þau mæti í skólann, að þau mæti á rétt- um tíma, að þau hafi borðað, séu rétt klædd og útsofin. Auðvitað eru þetta sjálfsagðir hlutir en það getur vel verið að í einhverjum tilvikum þurfi að segja það við fólk.“ Ingibjörg kveðst hafa rekist á það í bæklingi sem Reykjavíkur- borg gefur út fyrir útlendinga að þar séu svona atriði skilgreind. „En ég hef hvergi séð þetta sett fram gagnvart íslenskum foreldrum. Ef réttaröryggi foreldra og barna þeirra er tryggt er hægt að gera strangari kröfur varðandi aga. Skól- anum yrði stoð í því.“ Miðstýring hefur aukist Eyjólfur er eldri en tvævetur í kennslu. Hann hefur kennt sleitu- laust í grunnskólum frá því á önd- verðum sjöunda áratugnum, bæði á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi. Eyjólfur var skólastjóri á Hvamms- tanga um sex ára skeið. Þar að auki hefur hann alla tíð verið virkur í fé- lagsstarfi barna og unglinga, þjálf- un og héraðsstarfi, svo fátt eitt sé nefnt. Auk kennararéttinda hefur Eyjólfur próf í atferlisfræði frá Noregi. Hann segir að fleira starfsfólk sé í skólum í dag en þegar hann hóf kennslu. Það sé ekki endilega af hinu góða. „Miðstýring í kennslu hefur aukist mikið á síðustu árum. Ég hélt að þetta myndi breytast þegar sveitarfélögin tóku við grunn- skólanum en það er öðru nær. Mið- stýringin hefur aldrei verið meiri. Skólastjórar eru háðir fjárveit- ingum frá sveitarfélaginu og eru fyrir vikið bundnir á klafa. Geta sig hvergi hrært. Skólinn er alltaf að spara. Ég hélt að návígi væri kostur Ekki nóg að greina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.