Morgunblaðið - 24.09.2006, Síða 12

Morgunblaðið - 24.09.2006, Síða 12
12 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ F á máltæki eru íslensku þjóðinni tamari en „heima er best“ og „vinnan göfgar mann- inn“. Þau eru í eðli sínu mótsögn. „Heima er best“ vísar til þess að flesta dreymir um fjöl- skyldulíf og fallegt heimili. „Vinnan göfgar manninn“ er aftur á móti stað- festing á dugnaði og sjálfsbjarg- arviðleitni þjóðar sem um aldir hefur boðið höfuðskepnunum byrginn. Sjaldan eða aldrei hefur tog- streitan milli þessara tveggja póla, vinnu og heimilis, verið meiri á Ís- landi. Það er gömul saga og ný að heimilisfeður vinni myrkranna á milli. Þeir voru um langt skeið yfirleitt eina fyrirvinnan og tekjuöflunin hvíldi á þeirra herðum. Hlutverk heim- ilismóðurinnar hefur aftur á móti tek- ið miklum breytingum á umliðnum áratugum. Fram eftir síðustu öld voru þær upp til hópa heimavinnandi en í dag er atvinnuþátttaka íslenskra kvenna með því mesta sem um getur í heiminum og í langflestum nútíma- fjölskyldum eru báðir foreldrar virkir á vinnumarkaði. Það má heldur ekki gleyma því að hlutfall barna sem alast upp hjá ein- stæðu foreldri hefur hækkað á und- anförnum áratugum. Samkvæmt tölum frá 2004 er at- vinnuþátttaka karla á höfuðborg- arsvæðinu 84% og kvenna 77%. Vinnutíminn er líka langur í al- þjóðlegu ljósi, 46 tímar á viku hjá körlum og 36 tímar hjá konum. Önnur breyting er sú að dregið hefur úr mikilvægi þess að eignast af- kvæmi. Um langt skeið hefur það ver- ið svo að hér á landi fæðast fleiri börn á hverja konu en í nágrannalönd- unum, auk þess sem íslenskar mæður eru að jafnaði yngri þegar þær eiga sín börn. Á undanförnum árum hefur á hinn bóginn dregið saman með Ís- landi og samanburðarlöndunum. Barneignartíðni hefur lækkað ört og meðalaldur mæðra sem eru að eiga sitt fyrsta barn hefur hækkað. Enginn til að sjóða ýsuna Leiða má að því líkur að þessi þró- un sé m.a. afleiðing af aukinni þátt- töku kvenna á vinnumarkaði. Þær eru ekki lengur heima til að hlúa að börnum og búi og þar af leiðandi eru forsendur fyrir barneignum breyttar. Af þeim sökum eignast hjón að með- altali færri börn en áður. Foreldrar hafa líka minni tíma fyr- ir börn sín og heimili. Þegar báðir að- ilar snúa heim eftir langan og strang- an vinnudag getur heimilishald á köflum virkað íþyngjandi. Getur ver- ið að síðustu kraftarnir séu oftar en ekki nýttir til að elda matinn og taka til frekar en að verja tíma með börn- unum? Það er af sem áður var. Íslensk börn hafa raunar vanist því gegnum áratugina að sjá lítið af feðrum sínum vegna vinnu en aðgengi þeirra að mömmu og e.t.v. ömmu var löngum gott. Tekið var á móti þeim með soð- inni ýsu eða nýsteiktum kleinum þeg- ar þau komu heim úr skólanum. Í dag halda börn ýmist rakleitt í dagvistun eða þau koma að tómu heimili. Hug- takið „lyklabarn“ hefur fyrir margt löngu rutt sér til rúms. Hvað taka þau þá til bragðs? Leita líklega til vina og kunningja ellegar láta sjónvarpið eða tölvuna stytta sér stundir. Á móti þessari skerðingu á sam- verustundum fjölskyldunnar kemur að veraldlegt ríkidæmi hefur ekki í annan tíma verið meira, gildir þá einu hvort horft er til heimilanna eða sam- félagsins í heild. Höfum það mjög gott Við þá staðreynd staldrar umboðs- maður barna, Ingibjörg Rafnar. „Efnahagslegar aðstæður hér á landi eru með því besta sem gerist í heim- inum. Í því tilliti hafa íslensk börn aldrei haft það betra,“ segir hún. „Við búum við góða leikskóla og öflugt grunnskólakerfi. Heilsugæsla er óvíða betri í heiminum og ung- barnadauði hvergi minni. Þjónusta við börn er á mjög háu stigi. Að því leyti er Ísland án efa barnvænt sam- félag. Það væri vanþakklæti að halda öðru fram.“ Ingibjörg segir velmegunina blasa við. „Það var hérna fundur umboðs- manna barna á Norðurlöndunum í sumar og kollegar mínir höfðu orð á því hvað velmegunin virtist mikil. Það kom þeim á óvart hvað við höfum það gott.“ Ingibjörg telur eigi að síður brýnt að efnishyggjan fari ekki úr böndum. „Menn vilja eignast allt og það helst í gær. Ég ætla svo sem ekki að setja mig á háan hest, ég hef tekið þátt í þessari efnishyggju eins og aðrir. Ég er samt ekki frá því að kynslóðin sem nú er að koma út á vinnumarkaðinn sé meira efnishyggjufólk en mín kyn- slóð. En hver ber ábyrgð á því? Við. Þannig að við þurfum að líta í eigin barm, hvert og eitt.“ Meiri virðing og tillitssemi Efnahagslegar aðstæður íslenskra barna eru almennt ákjósanlegar en þegar kemur að tilfinningalegu atlæti telur Ingibjörg að við gætum gert betur. „Við Íslendingar erum óhemju duglegt fólk. Við værum ekki hérna annars, þrjú hundruð þúsund hræð- ur, á hjara veraldar. Við vinnum mik- ið og höfum fyrir vikið kannski ekki alltaf nægan tíma fyrir börnin okkar. Samkvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands dvelur 71% barna átta klukkustundir eða lengur á leikskóla á degi hverjum en það er lengri tími að meðaltali en hjá starfsfólkinu. Heilt á litið held ég að við gætum bætt okkur hvað þetta varðar, sýnt börnum meiri virðingu og tillitssemi. Gefið þeim meiri tíma. Þá er ég ekki bara að tala um foreldra barnanna, heldur samfélagið allt. Fjölskyldan er auðvitað grunneining samfélagsins og því eðlilegt að þessi naflaskoðun hefjist þar. Atvinnulífið og hið op- inbera má samt sem áður ekki skor- ast undan sinni ábyrgð og þá er ég ekki bara að tala um fjárframlög. Þetta er líka spurning um viðhorf og tillitssemi.“ Ingibjörg hvetur foreldra til að verja meiri tíma með börnum sínum, tala við þau og fræða. Þá megi for- eldrar ekki gleyma hlutverki sínu sem fyrirmynd barnsins. „Við erum fyrirmynd og það er ekki nóg að fræða börnin um hvað er vont og óhollt ef við förum ekki eftir því sjálf. Börn eru einstaklega næm á það og atferli þeirra, viðhorf og afstaða mót- ast af þeim sem standa þeim næst.“ Hraðinn er stóra vandamálið Það getur verið þrautin þyngri að sameina erilsamt starf og heim- ilishald. Margir foreldrar eru fyrir vikið í stöðugu kapphlaupi við tímann. Samfélagið fer ekki varhluta af þessu. Hraðinn hefur að líkindum aldrei ver- ið meiri. Eyjólfur Magnússon Scheving grunnskólakennari segir þetta áhyggjuefni. „Íslensk börn hafa ekk- ert breyst í áranna rás. Þau vilja hafa aga, öryggi og skjól. Nálgunin nú til dags er hins vegar önnur. Stóra vandamálið í samfélaginu sem við bú- um í er hraðinn. Það eru allir að flýta sér, fullorðnir og börn. Foreldrar vinna mikið og eru fyrir vikið alltaf á síðasta snúningi, allt þarf að gerast í gær. Af þessum sökum eru börn upp til hópa rótlaus í dag. Það eru alltof mikil læti í kringum þau og alltof mik- ið framboð af afþreyingu. Börnin vita ekki í hvorn fótinn þau eiga að stíga.“ Góðir hlutir gerast hægt og Eyjólf- ur segir að fólk verði að gefa sér tíma til að staldra við, hlúa að sjálfu sér og því dýrmætasta sem við eigum – börnunum. „Ég er alls ekki að skella skuldinni á heimilin. Foreldrar reyna að sjálf- sögðu að gera sitt besta. Ég er meira að segja sannfærður um að ungt fólk hugsar að mörgu leyti betur um börn- in sín í dag en fyrir fjörutíu eða fimm- tíu árum. Fólk vann líka mikið þá. Feður sinna börnum sínum t.d. meira í dag. Það er þjóðfélagið sem leggur þessar kvaðir á herðar fólki. Það krefst þess að allir séu á útopnu. Það er ekki nóg fyrir barn að leggja bara stund á íþróttir með námi, það verður líka að vera í tónlistarnámi, skátunum og helst einhverju fleiru. Svo er það » Og sunnudags- steikin? Veit ungt fólk um hvað ég er að tala? Morgunblaðið/Golli Umboðsmaðurinn „Við eigum að ala börnin okkar upp í kærleiksríkum aga. Það kemur þeim best í lífinu,“ segir Ingibjörg Rafnar umboðsmaður barna. Íkönnun sem Gallup gerði fyrr á þessu árikom í ljós að 36,5% starfandi fólks áaldrinum 25-65 ára á höfuðborgarsvæð- inu kveðast oft hafa takmarkaðan tíma fyrir fjölskylduna eða aðra mikilvæga aðila í sínu lífi vegna vinnu. 28,5% svöruðu sömu spurn- ingu játandi árið 2000 og er aukningin mark- tæk. Tómas Bjarnason sérfræðingur hjá Capa- cent, sem látið hefur þessi mál sig varða, segir að margir þættir hafi áhrif á jafnvægi vinnu og einkalífs. „Hið opinbera, fyrirtækin og svo auðvitað einstaklingarnir sjálfir geta haft áhrif á þetta jafnvægi til góðs og ills,“ segir Tómas. „Þátttaka hins opinbera í umönnun barna er t.d. vaxandi ef miðað er við tölur um hlutfall og fjölda barna á leikskólum. Sum fyr- irtæki hafa einnig brugðist við vaxandi kröf- um um jafnvægi vinnu og einkalífs með ýms- um hætti og ýmislegt bendir til að framsækin fyrirtæki bjóði starfsmönnum í vaxandi mæli lausnir til að samræma vinnu og einkalíf. Ein- staklingarnir sjálfir geta síðan brugðist við með margskonar hætti til að draga úr árekstrum vinnu og einkalífs. Fólk getur t.d. leitað leiða til að geta sinnt ólíkum hlut- verkum „samtímis“ eða flytja skuldbindingar sínar til í tíma og rúmi með því að sveigja vinnutíma sinn að þörfum sínum eða fjöl- skyldunnar, eða fá aðstoð frá öðrum til að sinna skuldbindingum sínum á einum stað til að geta sjálft sinnt skuldbindingum sínum á öðrum stað.“ Þetta kallar Tómas „að kaupa sér tíma“. Fjölmörg önnur úrræði þekkjast við að draga úr árekstrum milli vinnu og einkalífs s.s. að draga úr vinnutíma tímabundið eða var- anlega, eða draga úr starfsábyrgð. Í könnun IMG Gallup sem gerð var í októ- ber 2003 kom fram að 70% starfandi fólks telja vinnuálag sitt vera mjög eða frekar mik- ið og margir (44%) telja að vinnuálag hafi aukist á síðastliðnu ári. Vinnuálag eykst með vinnutíma, sérstaklega verður vart við aukið vinnuálag þegar vinnutími fer yfir 54 tíma á viku. Tæpum þriðjungi finnst vinna og einkalíf frekar eða mjög oft rekast á og árekstrum fjölgar eftir því sem vinnuálag eykst og vinnu- tími lengist. Þó ekki sé munur á tíðni árekstra meðal karla og kvenna, upplifa konur sem eru stjórnendur, atvinnurekendur eða sérfræð- ingar mun meiri árekstra milli vinnu og einkalífs en karlar sem sinna sömu störfum. „Þetta bendir til að aukið starfstengt álag bætist við það álag sem konur búa við á heim- ilinu og í einkalífi en það eigi í minna mæli við um karla,“ segir Tómas. Sveigjanlegur vinnutími Starfandi fólk nýtir ýmis úrræði til að sam- ræma vinnu og einkalíf. Könnunin sem gerð var 2003 sýndi að rúmur helmingur starfandi fólks hafði unnið sveigjanlegan vinnutíma til að koma til móts við þarfir sínar eða fjölskyld- unnar, helmingur hafði unnið heima að vinnu- tengdum verkefnum, tæpur helmingur hafði sinnt einkalífi eða fjölskyldu í vinnutímanum, rúmur þriðjungur hefur nýtt sér aðstoð ætt- ingja eða vina við heimilisstörf eða umönnun barna og 10% hafa keypt aðstoð við hrein- gerningar á heimilinu á tólf mánaða tímabili. Kaup á hreingerningum tengjast einkum starfstengdum þáttum og eru algengust með- al þeirra tekjuhæstu. „Það að sinna fjöl- skyldu/einkalífi í vinnutímanum tengist bæði fjölskylduaðstæðum sem og starfstengdum þáttum. Þeir sem sinna fjölskyldu/einkalífi í vinnutímanum eru frekar karlar, frekar ungt fólk með ung börn, þó er það einnig algengara meðal stjórnenda, atvinnurekenda og sér- fræðinga. Það að vinna sveigjanlegan vinnu- tíma til að koma til móts við eigin þarfir eða fjölskyldunnar tengist bæði fjölskyldu- aðstæðum sem og starfstengdum þáttum. Það er algengara í hópi atvinnurekanda, sérfræð- inga og stjórnenda en í öðrum starfshópum, og algengara meðal ungs fólks og þar sem ung börn eru á heimilinu,“ segir Tómas. Úrræði háð efnum og aðstæðum Heimavinna er algengari í hópi atvinnurek- enda, sérfræðinga og stjórnenda en í öðrum starfshópum, algengari meðal giftra og sam- búðarfólks en einhleypra, algengari meðal tekjuhærri einstaklinga en tekjulægri og hún eykst einnig eftir því sem vinnutími lengist, vinnuálag eykst og árekstrar vinnu og einka- lífs aukast. Þeir sem nýta aðstoð ættingja og vina eru helst ungt fólk og fólk með ung börn. „Þau úrræði sem fólk nýtir eru því bæði háð efnum og ástæðum og mótast bæði af þörfum fólks, fjölskylduaðstæðum sem og að- stæðum í vinnu. Þannig tengjast úrræðin sem fólk nýtir oft fjölskylduábyrgð viðkomandi, svo sem börnum á heimili og aldri þeirra, og einnig starfsaðstæðum, svo sem starfsstétt, vinnuálagi og vinnutíma. Mun algengara er að ýmis þau úrræði sem spurt var um væru nýtt í hópi stjórnenda, sérfræðinga og atvinnurek- enda en í öðrum starfsstéttum og meðal há- skólamenntaðra starfsmanna en meðal starfs- manna með aðra menntun,“ segir Tómas. Álag og kröfur aukast Í könnun sem IMG Gallup gerði fyrr á þessu ári kom fram að þrátt fyrir að sveigj- anleiki fólks hafi aukist frá árinu 2000, virðist sem árekstrar vinnu og einkalífs séu einnig vaxandi. „Ástæðurnar geta verið margvíslegar, svo sem að kröfur fólks um gott jafnvægi hafi aukist,“ segir Tómas. „Álag og kröfur fólks í vinnu kunna einnig að hafa aukist og það myndi þá skýra þessa breytingu. Þriðja mögulega ástæðan er að sveigjanleikinn hafi mótsagnakennd áhrif. Sumir geta og hafa nýtt sveigjanleikann til að koma til móts við þarfir fjölskyldunnar og bætt jafnvægi milli vinnu og einkalífs, en hjá öðrum verður sveigjanleikinn til þess að vinnan „elti“ þá heim. Sveigjanleikinn verður þá til þess að þessir einstaklingar eru aldrei alveg heima og það kemur þá niður á lífsgæðum þeirra og veldur vaxandi ójafnvægi vinnu og einkalífs.“ 36,5% hafa oft takmarkaðan tíma fyrir fjölskylduna Morgunblaðið/Eyþór Úrræði „Einstaklingarnir sjálfir geta brugð- ist við með margskonar hætti til að draga úr árekstrum vinnu og einkalífs,“ segir Tómas Bjarnason sérfræðingur hjá Capacent.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.