Morgunblaðið - 24.09.2006, Page 17
reynslu úr störfum utan þings.
Þessu fólki eru ýmsar leiðir opnar.“
Gat ekki losnað
Svanfríður Jónasdóttir sat á þingi
frá 1995 til 2003, en áður hafði hún
m.a. átt sæti í bæjarstjórn Dalvíkur
um árabil, en hún var jafnframt
kennari þar í bæ. Hún ákvað að leita
ekki eftir endurkjöri á þing vorið
2003 og er sátt við lífið eftir þing.
„Satt best að segja kom mér á óvart
hve margir höfðu orð á að þeir sökn-
uðu mín af þingi, en kannski var fólk
bara svona útbært á söknuð sinn af
því að ég var hvort eð er hætt!“ segir
Svanfríður. „Og kannski saknaði
fólk mín vegna þess að konur hafa
alltaf verið svo fáar á þingi. Mér
fannst flóknara að snúa baki við
stjórnmálunum en ég átti von á. Ég
var allt í einu ekki lengur alþing-
ismaður, en það fylgdi alltaf sögunni
að ég væri fyrrverandi alþing-
ismaður. Mér hefur ekki tekist að
losna við þann titil.“
Svanfríði fannst skemmtilegt og
áhugavert að vera á þingi, en segir
að lífsgæði snúist líka um val og fjöl-
breytileika. „Svo leitar það á mann,
kannski sérstaklega á vissum aldri,
hvort maður ætli ekki að gera fleira í
lífinu. Kannski á það líka við um
Möggu og Sólveigu, mér finnst það
ekki ólíklegt.“
Svanfríður hélt að hún gæti alveg
snúið baki við stjórnmálunum.
„Reyndar ætlaði ég mér alltaf að
vinna eitthvað fyrir Samfylkinguna
og tók þátt í starfi Framtíðarhóps
hennar. En ég fór líka í nám í stjórn-
un. Svo kom að því að skrifa meist-
araritgerðina og hún varð auðvitað
þrælpólitísk. Ég ætlaði mér kannski
að færa mig yfir í akademíuna og
gefa mér tíma til að hugsa og skrifa,
en einhvern veginn var ég föst í
stjórnmálunum og komst ekkert frá
þeim.“
Svanfríður er löngu komin á bóla-
kaf í pólitíkina aftur, að þessu sinni
heima í héraði. Hún er bæjarstjóri
Dalvíkur. Og fyrrverandi alþing-
ismaður.
Sýni titlinum þolinmæði
Bryndís Hlöðversdóttir sat á
þingi 1995-2005 og er því líka fyrr-
verandi alþingismaður. Hún segist
hafa sýnt notkun þess titils ákveðna
þolinmæði, enda fylgi hann því að
hafa verið í kastljósi sem stjórn-
málamaður um árabil. Núna er hún
hins vegar aðstoðarrektor Háskól-
ans á Bifröst og forseti lagadeildar
skólans. „Núna er fólk yfirleitt ekki
alla sína starfsævi í sama starfinu,“
segir hún. „Mér finnst gott að fólk sé
tilbúið til að taka þátt í stjórnmálum
um tíma, en afli sér líka reynslu utan
þeirra. Endurnýjun á þingi á ekki að
snúast um aldur þingmanna, heldur
reynslu þeirra og hvað þeir hafa til
málanna að leggja. Ég finn að ég bý
að gríðarlegri reynslu eftir áratug á
þingi og ég nýt þess líka núna að
hafa betri tök á vinnutíma og frí-
tíma. Í stjórnmálunum vill oft
brenna við að miklar tarnir skella á,
oft án fyrirvara, og það er erfitt að
samræma slíkt fjölskyldulífi og tóm-
stundum. Það gat líka verið lýjandi
að vera opinber persóna.“
Bryndís kveðst reikna með að tit-
illinn fyrrverandi alþingismaður
hverfi smám saman. „Það kemur
áreiðanlega að því að ég verð bara
titluð forseti lagadeildar, án þess að
hitt fylgi. Og einhvern tímann verð
ég kannski fyrrverandi forseti laga-
deildar!“Svanfríður Jónasdóttir Bryndís Hlöðversdóttir
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 17
arlega fjölbreytni, samruna menn-
ingarheima og breytingar. Ein bóka
hennar „Speglar borgarinnar“ fjallar
um los conversos, gyðinga sem taka
upp katólska trú til að sleppa undan
spænska rannsóknarréttinum. Önn-
ur saga, „Flóamarkaðurinn“ segir
frá algjörri uppgjöf íbúa í fjölbýlis-
húsi í Istanbúl. Shafak ritaði þá bók á
ensku, 2004, og uppskar reiði í sinn
garð af hálfu íhaldsmanna og þjóð-
ernissinna í Tyrklandi.
Rótleysi er eins konar leiðarstef í
bókum hennar og kemur vart á
óvart. Sjálf segist hún eiga sér rætur
en þær séu ekki staðbundnar. „Ég er
tengd margvíslegri menningu og sú
er, tel ég, ein helsta ástæða þess að
ég er þeirrar skoðunar að menn geti
tilheyrt mörgum menningarsvæðum,
mörgum trúarbrögðum og mörgum
tungumálum.“
Þessi lýsing á vísast ágætlega við
hana. Hún fæddist í Strasbourg í
Frakklandi árið 1971 en bjó sem
barn og unglingur í Madríd á Spáni
hvar móðir hennar vann við sendiráð
Tyrklands. Síðar fluttist hún til Jórd-
aníu en nú býr hún ýmist í Tyrklandi
eða í Arizona í Bandaríkjunum þar
sem hún starfar sem háskólakennari.
Sjálf hefur hún lýst dvöl sinni þar
sem „sjálfskipaðri útlegð“.
Forsætisráðherra Tyrklands hef-
ur fagnað því að Shafak skuli hafa
verið sýknuð af ákærunni og hið
sama hafa talsmenn Evrópusam-
bandsins gert. Evrópusambandið
hefur þrýst á Tyrki um að fella 301.
grein hegningarlaganna niður og
tryggja að tjáningarfrelsi ríki í land-
inu. Að sögn talsmanna samtaka út-
gefenda í Tyrklandi eru nú rekin mál
gegn rúmlega 40 höfundum sem sak-
aðir eru um margvíslegar móðganir í
garð þjóðarinnar, ríkisins og Kemals
Ataturks, föður Tyrklands nútímans.
Vera kann því að niðurstaðan í máli
Elif Shafak teljist söguleg þegar
fram líða stundir.
Í HNOTSKURN
»„Það er liðin tíð í þessuþjóðfélagi að stjórn-
málastörf, þingmennska til
dæmis, verði ævistarf nokkurs
manns.“
Sólveig Pétursdóttir.
» „Einhvern veginn var égföst í stjórnmálunum og
komst ekkert frá þeim.“
Svanfríður Jónasdóttir.
» „Það kemur áreiðanlegaað því að ég verð bara titl-
uð forseti lagadeildar, án þess
að hitt fylgi.“
Bryndís Hlöðversdóttir.