Morgunblaðið - 24.09.2006, Page 26
sjónarhólar og sjónarmið ix
26 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Alþjóðleg ferðamarkaðsfræði
„Að geta sýnt fram á lokapróf í Alþjóðlegri ferða-
markaðsfræði frá jafn virtri stofnun sem IATA/UFTAA
er, hlýtur að teljast gulltrygging fyrir atvinnu innan
ferðaþjónustunnar hvar sem er í heiminum.“
Sigurlaug Valdís Jóhannsdóttir,
Allrahanda.
Námsefnið kemur frá IATA/UFTAA og tekin eru próf í mars nk. og
veitir því alþjóðlega viðurkenningu, en kennslan fer fram á íslensku.
Námið hentar öllum þeim, sem áhuga hafa
og vilja auka þekkingu sína á ferðaþjónustu.
www.menntun.is
Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22
A
f sjónarhóli dagsins
verður litið á karisma,
eða náðarvald, sem svo
hefur verið nefnt. Það
er áhugavert skoðunar-
efni og hér er litið bæði á fyrirbærið í
heild, svo og nokkra einstaklinga, er-
lenda og íslenzka, sem taldir eru
búnir þessum sjaldgæfa eiginleika.
Þegar rætt er um stjórnmálafor-
ingja í erlendum blöðum má sjá að
höfundum verður stundum tíðrætt
um „charisma“. Í Ensk-íslenzku
orðabókinni er það skýrt svo:
„Charisma (ka riźma) 1. náð-
arvald, sérstakur hæfileiki (stjórn-
málaleiðtoga eða annarra í opinberu
lífi) til að vekja hrifningu, traust eða
hollustu meðal almennings. 2. per-
sónutöfrar, kyntöfrar; aðdráttarafl.
3. guðleg náðargáfa, t.d. spádóms-
gáfa eða lækningamáttur“.
Þessi eiginleiki hefur eðlilega þótt
eftirsóknarverður, bæði hérlendis og
erlendis. Að sama skapi er hann
sjaldgæfur og verður líklega ekki
tilbúinn með neinskonar þjálfun ef
menn hafa ekki fengið hann í vöggu-
gjöf. Eins og sjá má af skýringu
orðabókarinnar er þetta samsettur
eiginleiki, en segja má að þeir sem
hafa fengið allan pakkann búi yfir
hæfileika til að vekja sérstaka hrifn-
ingu og jafnvel verulega aðdáun. Þeir
eru oftast skemmtilegir menn og
húmoristar, en umfram allt hafa þeir
persónutöfra og sérstaka útgeislun,
sem erfitt er að skýra. Sé þessi
blanda fullkomin fylgja með álitlegir
kyntöfrar. Háar stöður og embætti
virðast vera sá jarðvegur sem allra
helzt lætur náðarvald blómstra og sá
sem hefur það þarf að kunna þá list
að beita hörku með lagni.
Frægir karismakallar
Sá sem hefur náðarvald hefur óút-
skýranlegt vald yfir öðru fólki. Hann
hefur þetta vald jafnvel þótt hann hafi
ekki verið kosinn til neinna valda; það
er þó miklu sjaldgæfara og venjulega
tengist þessi náðargáfa mönnum sem
eru í fararbroddi fyrir þjóðum eða
samtökum á alþjóðavísu, eða þá að
þeir eru frægir íþrótta- eða listamenn.
Náðarvald tengist ekki ákveðnu
útliti, að því er séð verður, og líklega
ekki líkamsstærð heldur. Það sést af
því að frægir einstaklingar úr sög-
unni, sem næstum er víst að höfðu
þetta vald, voru sumir smávaxnir.
Nægir að benda á Alexander mikla,
sem var smávaxinn, en lagði í brjál-
æðislega herleiðangra; háði orrustur
og með klókindum náði hann oft að
sigra þótt útlitið væri svart í byrjun.
Ýmsir nútímamenn, sem hrífast af
hernaðarbrölti, hafa lýst yfir aðdáun
sinni á Alexander mikla. Hann var
frá Makedóníu, næsta bæ við Grikk-
land, en lagði undir sig Persíu á 4. öld
fyrir Krist og mörg fleiri ríki i Mið-
Austurlöndum. Eftir sigursæla her-
för til Egyptalands varð honum ljóst
að hann var Guð en ekki maður og
það var óðar samþykkt. En eins og
fleiri dauðlegir menn dó hann á sótt-
arsæng á bezta aldri.
Náðarvald með
hrikalegar afleiðingar
Við gefum okkur að Alexander
mikli hafi haft þetta eftirsótta náð-
arvald; einnig Cesar, Karlamagnús og
fleiri fornaldarmenn. Varla er vafi á
því að Napóleon mikli hafði það einnig
á sinni tíð. Það hjálpaði honum til að
leggja undir sig lönd og heyja sín
Napóleonsstríð og láta brytja lands-
menn sína og þegna niður í grimmd-
arlegum orrustum. En Napóleon var
ekki annað en smá tittur á velli og víst
er að hann sótti ekki náðarvald sitt í
líkamlegan glæsileik. Sá útsmogni
áróðursráðherra nasista í Þýzkalandi,
Josef Göbbels, sótti heldur ekki styrk
sinn í mikilfenglegt útlit.
Menn með náðarvald í farteskinu
eru oftast vel máli farnir og ræðu-
snillingar. Margir eru sammála um
það nú að Hitler hafi haft ríkulegt
náðarvald og klókindalega tilfinn-
ingu fyrir því að ná tökum á fjölda-
fundum, þar sem hann byrjaði ræður
sínar rólega, en lét þær enda með
öskri. Mörgum finnst allt að því
óskiljanlegt að hægt hafi verið á
fjórða tugi síðustu aldar að ná öðrum
eins tökum á vel menntaðri þjóð eins
og Þjóðverjum og víst er að það var
ekki síður kvenþjóðin sem dáði For-
ingjann en karlarnir. Þar naut Hitler
náðarvaldsins og má af því sjá að
þessu valdi hefur eins oft verið beitt
til ills.
Þó að það liggi ekki eins í augum
uppi er líklegt að þeir Lenín og Stal-
ín hafi haft náðarvald gagnvart lönd-
um sínum og flokksfélögum, en not-
uðu það til að gera úr ættjörð sinni
eitt allsherjar fangelsi og leiða hörm-
ungar yfir heiminn. Varla er það vafa
undirorpið að þau skáld íslenzk sem
ortu þeim dýrðaróð og spurðu hve-
nær Sovét-Ísland, óskalandið, kæmi
hafa upplifað náðarvald hinna miklu
foringja.
Ætla mætti að náðarvald birtist
fyrst og fremst hjá stórgáfuðum
mönnum með brennandi hugsjónir;
mönnum með einstaka útgeislun,
sterka rödd og mikið vald yfir tungu-
málinu. Rétt er að stundum á þetta
við, en ekki alltaf. Var Hitler nokkuð
sérstaklega gáfaður og hvernig var
skopskyn hans? Í bókinni sem Albert
Speer, arkitekt Hitlers og síðar hver-
væðingarráðherra, skrifaði í langri
fangelsisvist sinni eftir stríðið, segir
hann frá löngum samverustundum
með Hitler og lesandinn fær á tilfinn-
inguna að Foringinn hafi verið frekar
leiðinlegur maður, auk þess sem hann
var andlega bilaður.
Þegar litið er yfir nýliðna öld og
skimað eftir leiðtogum með náð-
arvald verður John F. Kennedy
Bandaríkjaforseti ofarlega á blaði. Á
fjölmennum fundi með honum vorið
1962 sá ég hann beita þessu valdi og
sú upplifun var einstök. Þó að Churc-
hill væri stundum óþægilega líkur
bolabít þurfti ekkert minna en mann
með náðarvald til að stappa stálinu í
landa hans og vinna stríðið. Það
dugði honum þó ekki til að vinna sig-
ur í kosningum að stríðinu afloknu.
Og varla fer milli mála að de Gaulle,
sem síðar varð Frakklandsforseti,
gat beitt þessu valdi. Í ljósi þess hve
staða Bandaríkjaforseta er sterk á
heimsvísu, gegnir þó furðu hve náð-
arvald virðist sjaldgæft meðal forset-
anna allt frá því Kennedy hvarf af
sjónarsviðinu, ekki er þó hægt að
ganga framhjá Bill Clinton. Á Kúpu
hefur fólkið látið sér duga að njóta
náðarvalds Castros þótt orðinn sé
aldraður og veikur. Og nýlega var frá
því greint í fréttum að álitlegur hóp-
ur Kínverja hefur komizt að þeirri
niðurstöðu að Maó hafi verið Guð.
Ekki þarf heldur að efast um náð-
arvald þeirra Norður-Kóreufeðga,
en flestallt í því landi er umheiminum
mikil ráðgáta.
Frá því að vera annarsvegar vin-
sæll, farsæll og vel látinn og hins-
vegar því að hafa náðarvald til að
grípa til þegar mikið liggur við er
reginmunur. Yfirleitt fer lítið fyrir
þessum eiginleika hjá framámönnum
Evrópusambandsins, kannski sem
betur fer. Norðurlandaleiðtogar eru
yfirleitt bara góðir og gegnir kratar
og enginn fær í hnén þegar þeir birt-
ast. Af Evrópuleiðtogum kemst Blair
þó næst því að hafa þetta vald á góð-
um degi og þess vegna lafir hann enn
í embætti. Þó bitnar meir og meir á
honum vinátta og tryggð við Bush
Bandaríkjaforseta, sem telja má að
sé gersneyddur náðarvaldi.
En hvað um konur? Eitthvað eru
þær færri sem orðaðar eru við náð-
arvald en karlar, en ég ætla að aðdá-
endur Margrétar Thatcher hafi ekki
verið í vafa. Valdamesta kona heims-
ins um þessar mundir er talin vera
Angela Merkel, kanslari Þýzkalands,
hámenntuð kona en lætur ekki mikið
á sér bera og hefur eftir því sem ég
bezt veit, ekki verið orðuð við náð-
arvald. En hvað um Vigdísi Finn-
bogadóttur, fyrrverandi forseta Ís-
lands og fyrstu konu til að gegna
forsetaembætti í heiminum? Karisma
hennar er hafið yfir vafa; án náðargáf-
unnar hefði hún ekki náð svo langt.
Að hafa landsföðurútlit
er líka áhrifamikið
Í stjórnmálasögu Íslendinga fer
varla milli mála að Jón Sigurðsson,
forseti og foringi Íslendinga í sjálf-
stæðisbaráttunni við Dani, hafði náð-
arvald í ríkum mæli; stórgáfaður
maður og lærður á þess tíma mæli-
kvarða, manna bezt máli farinn, og
ekki þarf annað en að virða fyrir sér
portrettið í Alþingishúsinu til að sjá
að enginn nútíma Íslendingur hefur
slíkt yfirburða landsföðurútlit.
„Lúkkið“ er perfekt, mundu menn
segja nú. Merkilegt er að þeir tveir
sem mér finnst ganga honum næst
eru báðir fæddir á 19. öld; ann-
arsvegar Hannes Hafstein ráðherra
og hinsvegar skáldið Einar Bene-
diktsson. Um Hannes hafa menn
sagt að hann muni líklega vera fal-
legasti maður 20. aldarinnar á landi
hér og svo var hann skáld að auki.
Fyrir mátt og áhrif þessara ein-
staklinga fengum við sjálfstæði okk-
ar fyrr en ella. Ævisöguritarar
Hannesar hafa nefnt hvernig hann
fór á kostum í veizlum danskra
áhrifamanna og Danir áttu þá engan
sem gat jafnast á við Hannes. Það
segir líka sína sögu að helzti keppi-
nautur Hannesar, Valtýr Guðmunds-
son, gat ekki leikið þetta eftir Hann-
esi og hafði ekki karisma til jafns við
Hannes, en var annars hinn gegnasti
maður.
Að geta „fyllt út í salinn“ án
þess að segja orð
Jóhannes Kjarval þurfti ekki að
gera neitt annað en að láta sjá sig til
þess að allt umhverfið færi að snúast
um hann og ég hygg að sama hafi átt
við um Halldór Laxness, að minnsta
kosti eftir að hann fékk Nóbelinn.
Gunnar Gunnarsson dró aldrei að sér
athygli í sama mæli og alls ekki úr-
vals listamenn eins og Einar Jóns-
son, Gunnlaugur Scheving og Ás-
mundur Sveinsson.
Flestöll síðari tíma skáld hafa látið
lítið fyrir sér fara; sumir hafa talið
það dyggð og hreinlega læðst með
veggjum.
Þar er Einar Benediktsson undan-
tekning og náðarvaldi hans hefur
Sigurjón, bóndi og bændahöfðingi í
Raftholti, lýzt eftirminnilega. Ég
kom að Raftholti við annan mann
fyrir margt löngu; Sigurjón skenkti á
staup og af einhverjum ástæðum
barst tal okkar að skáldinu. Þá sagði
Sigurjón frá því þegar hann, ungur
að árum, var á ferð í Reykjavík og
settist inn á Hótel Ísland. Þar var
margt manna. Þá gekk í salinn mað-
ur sem Sigurjón þekkti ekki en vissi
samt um leið að hlaut að vera Einar
Benediktsson. Hann „lagði undir sig
salinn“, sagði Sigurjón, „fyllti hann
Nokkur orð um náðarvald
Hannes
Hafstein
Einar
Benediktsson
Davíð
Oddsson
Jón Baldvin
Hannibalsson
Vigdís
Finnbogadóttir
Margaret
Thatcher
John F.
Kennedy
Bill
Clinton
Adolf
Hitler
Björgólfur
Guðmundsson
Napóleon
Bónaparte
Kári
Stefánsson
Tony
Blair
Winston
Churchill
Páll Óskar
Hjálmtýsson
Bubbi
Morthens
Eftir Gísla Sigurðsson
gislisigurdsson@simnet.is
» Jón Sigurðsson, forseti og foringi
Íslendinga í sjálfstæðisbarátt-
unni við Dani, hafði náðarvald í rík-
um mæli. Einnig Hannes Hafstein
ráðherra og skáldið Einar Bene-
diktsson. Sagt var um Hannes Haf-
stein að hann væri fallegasti maður
20. aldarinnar á landi hér.
Jón
Sigurðsson