Morgunblaðið - 24.09.2006, Síða 39

Morgunblaðið - 24.09.2006, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 39 trúarhreyfing kristinna manna var ekki tengd eina stórveldi jarðar í hugum múslíma. Með dómgreindarlausri tilvitnun sinni hættir Benedikt páfi nú á það að þessi vandlega skilgreindi greinarmunur verði óljós og þurrkist jafnvel út. Ali Khameini erkiklerkur, æðsti leiðtogi Írans, sem hefur nokkur áhrif meðal þeirra 230 milljóna sjíta- múslíma, sem eru í heiminum, greip ummæli páfa á lofti. Hann hélt því fram að þau væru nýjasta skref- ið í „krossferðinni gegn íslam“, sem Bush hefði hrundið af stað. Slíkar ásakanir munu því miður virðast allt of trúverðugar í hugum margra múslíma vegna ferils páfa. Annars vegar er hann ákafur talsmaður þeirr- ar skoðunar að Evrópa sé að upplagi í grundvall- aratriðum kristin. Árið 2004, á meðan hann var enn kardináli, lýsti hann yfir því að ekki ætti að hleypa Tyrklandi í Evrópusambandið. Hins vegar hefur hann eftir að hann varð páfi ítrekað gefið til kynna að hann hafnaði skilyrðislausum samræðum [trúar- bragðanna], sem forveri hans var hlynntur.“ Í vikuritinu Der Spiegel er því haldið fram að Benedikt páfi hafi aldrei verið sáttur við afstöðu forvera síns til íslams. „Benedikt XVI. fordæmdi jihad og sagði guðlaust og sennilega hefur hann þess vegna aldrei tekið undir samræðuvilja forvera síns af heilum hug. Jóhannes Páll II. átti ekki í vandræðum með að stíga inn í mosku. Í fyrstu Afríkuferð sinni talaði Jóhannes Páll II. í Naíróbí um „sameiginleg gildi“ katólsku og íslams. Hvor tveggja trúarbrögðin tilbæðu „lifandi, náð- ugan og almáttugan skapara himins og jarðar“, bænir, gjafir, ölmusa og fasta gegndu lykilhlutverki í hvorum tveggja. Fyrir nokkurn veginn 20 árum, í október 1986, bauð Karol Vojtyla fulltrúum trúarbragða heimsins til fundar í Assisí. Þangað komu síkar, rabbínar og zaraþústratrúarmenn, sem sátu við heilagan eld, Dalai Lama kom ásamt súnnítum og sjítum og baháíum og meira að segja erkibiskupinn og bók- stafstrúarmaðurinn Marcel Lefebvre sást dreifa flugritum. Þarna var samankominn hópur 200 trúarleiðtoga, sem áttu að „vera saman og biðja“ fyrir friði í heiminum að ósk þáverandi páfa. Í hugum bókstafstrúarmannanna í Páfagarði var þessi „andi frá Assisí“ upphafið að endinum, innreið afstæðishyggju, sem öllu sýndi skilning, í „una sancta et catholica“ [hið heilaga og katólska]. „Þetta getur ekki verið fyrirmynd,“ sagði Joseph Ratzinger kardináli þá.“ Lítið hefur farið fyrir anda samræðunnar í sam- skiptum íslams og kristni í aldanna rás. Upphaf trúarbragðanna má raunar rekja að sama brunni og það sama á við um gyðingdóm. Útþensla íslams hófst á sjöundu öld og náði út fyrir Arabíuskagann eftir að Múhameð spámaður dó árið 632. Sókn múslíma inn í Evrópu var ekki stöðvuð fyrr en þeir voru komnir að Tours og Poitiers. Þegar komið var fram á miðja áttundu öld náði íslam frá Pakistan til norðurhluta Spánar. Í veldi íslams blómstruðu listir og vísindi og var lagður grunnur að stærðfræði, stjörnufræði og efnafræði. Rekin voru opinber sjúkrahús og skólar. Blómaskeið íslams er talið ná frá 11. til 13. aldar. Áhersla var lögð á landvinninga, en innan veldisins var boðað umburðarlyndi í garð gyðinga og kristinna manna, þótt tilvera þeirra væri háð ýmsum skilyrðum og máttu þeir til dæmis hvorki bera vopn né ríða hestum. Áhrifamáttur orðsins Í lok 11. aldar sker Úrban páfi II. upp herör gegn múslímum og hvetur til þess að helgustu stöðum kristindóms verði náð úr höndum múslíma. Kross- ferðirnar hefjast og standa fram á 15. öld. Krossför- unum er heitið stríðsgóssi og aflausn synda. Talið er að gróflega áætlað hafi fimm milljónir múslíma, gyðinga og kristinna manna fallið á meðan kross- ferðirnar stóðu sem hæst á milli 1096 og 1291. Í hugum vestrænna manna eru krossferðirnar sagnfræði, en meðal múslíma vekur blóðbað kross- ferðanna enn heitar tilfinningar. „Þær hurfu aldrei úr sögulegu minni múslíma,“ segir í fréttaskýringu Der Spiegel. „Í hugum margra er þar að finna ræt- ur hins heilaga stríðs gegn vestrinu, íslamistar tala nú líka um krossfara, sem að nýju vilji leggja undir sig Austurlönd nær og að bandamenn þeirra, síon- istarnir, hafi hernumið helga staði. Þessi heimshluti átti aldrei eftir að jafna sig af lostinu eftir þetta blóðbað ofbeldis. Allir árekstrar milli tilfinninga- lega bældra múslíma og Vesturlandabúa, sem sér- staklega eftir lok kalda stríðsins líta á sig sem sig- urvegara mannkynssögunnar, verða því æ líklegri til að nálgast allsherjarátök. Páfinn hefði átt að vita betur.“ Ástæðan fyrir því að tilvitnunin, sem hann not- aði, er svo eldfim er að hún er dæmigerð fyrir það hvernig kristnir menn hafa talað um íslam og músl- ímar um kristindóm. Hún færir mönnum heim sanninn um það að ekkert hafi í raun breyst. Sagn- fræðingurinn Andrew Wheatcroft hefur skrifað bókina „Heiðingjar“ (Infidels) þar sem hann rekur sögu átaka kristindóms og íslams. Í formála bók- arinnar veltir hann fyrir sér áhrifamætti orðanna. „Þegar Úrban II. páfi stóð fyrir utan dómkirkjuna í Clermont árið 1095 og skoraði á kristna menn að bjarga Jerúsalem, hafði hann ekki „krossferðirnar“ í huga,“ skrifar hann. „Hann varpaði fram hug- mynd og treysti á guðlega forsjá. En Úrban hafði enga stjórn á áhrifum orða sinna. Þau bergmáluðu og endurvörpuðust í margar aldir, löngu eftir að hann var allur.“ Rauður þráður í bók Wheatcrofts er hið illa um- tal kristinna manna og múslíma hvorra í garð ann- arra. Þar hafi kristnir menn haft forskot, en nú sé dæmið að snúast við og í þeim efnum snúist allt um tímasetningu. „Á 21. öldinni deila vestur og austur mörgum af sömu vörunum og gæðunum, sérstak- lega útvarpi, sjónvarpi, bíómyndum og Netinu, sem og bókum, tímaritum og dagblöðum,“ skrifar hann. „En notkun þeirra hófst ekki á sama tíma. það var munur á, sem var í því fólginn að í vestrinu þróuð- ust nýjar leiðir samskipta og í austrinu voru þær teknar upp síðar. Fjórar aldir liðu áður en ímyndir og hið prentaða orð varð jafn algengt í hinu músl- ímskra austri og í vestrinu. Þegar kvikmyndir, út- varp og sjónvarp komu til sögunnar liðu nokkrir áratugir á milli, en aðeins munaði fimm árum þegar Netið hóf göngu sína. Hin langa töf, sem varð á því að prentbyltingin yrði viðurkennd hafði miklar af- leiðingar,“ skrifar hann og bætir við síðar: „Í þess- ari bók eru færð rök að því að bæði kristnir heið- ingjar og íslamskir heiðingjar hafi verið fullir tortryggni hvorir í garð annarra í aldanna rás. Þeir hafa bölvað og skammast hvorir út í aðra eins og búast mátti við. Hið illa umtal hefur hins vegar ekki verið af alveg sama toga. Eftir að prentverkið var fundið upp og notkun mynda varð útbreidd hefur hið illa umtal í vestrinu verið áhrifaríkara og út- breiddara. En nú hefur austrið lært sína lexíu. „Ísl- am“ notar nú prentverkið og sjónræna og elektrón- íska fjölmiðla af sömu hæfni og fágun og vestrið og hefur einnig áttað sig á því hvernig hin nýja tækni getur borið illt umtal austursins lengra og með meiri árangri en penni skrifarans.“ Wheatcroft hefur mikið til síns máls og próf- steinninn á það hvert framhaldið verður er hvernig þeir, sem ráða yfir þeim miðlum, að því leyti sem hægt er að tala um yfirráð, fara með vald sitt. Munu þeir beita fjölmiðlunum til þess að ala á sundrungu og tortryggni eða til þess að ýta undir samræður, skilning og nálgun kristinna manna og múslíma. Í raun má segja að með því að vitna aðeins í hin klaufalegu ummæli Benedikts páfa án þess að setja þau í samhengi hafi allir fjölmiðlar – og þar er ekki hægt að undanskilja þá vestrænu – dottið í þá gryfju að ala á tortryggni á röngum forsendum. Orð geta haft tilætluð áhrif og þau geta haft þveröfug áhrif á við það, sem ætlað var. Klerkurinn Omar al-Bakri í Líbanon er einn af fylgismönnum Osama bin Ladens. Í Der Spiegel er sagt frá prédikun hans í Trípolí um ummæli páfa. Al-Bakri sagði að páfi hefði haft bæði rétt og rangt fyrir sér. Rangt sé það sem páfi hafi sagt um spá- manninn, „hvort sem um hafi verið að ræða tilvitnun eða hans meiningu eða hvaðeina“. Rétt sé hins vegar að í trúmálum sé engin kvöð. „Múslímar ganga ekki fram eins og trúboðar kristninnar, sem segja takið okk- ar trú eða við drepum þig!“ Í Kóraninum sé ekki fjallað um það af ástríðu, einu gildi hvort heiðingjarnir vilji vera áfram trúlaus- ir og fara til heljar. Enginn ágreiningur sé hins vegar um það um hvað jihad snúist og þar sé um að ræða kvöð: „Kvöðin er sú að knýja fram að íslam verði pólitísk skipan með þeim hætti sem herir íslams lögðu undir sig hluta rómverska og persneska ríkisins,“ sagði hann og bætti við að því markmiði yrði náð með sverðinu, en ekki huganum. Hann sagði að páfinn hefði einn- ig rétt fyrir sér um annað, kannski óafvit- andi. Benedikt XVI. hefði látið í ljósi fyr- irvara sína á samræðunni milli trúarbragða: „Það gerum við líka: Við for- dæmum þessa samræðu ... Okkur þykir lít- ið til þessarar samræðu koma vegna þess að eins og við vitum eru kristindómur okk- ar tíma og gyðingdómur okkar tíma ekkert annað en brenglaðar myndir hins eilífa, guðdómlega sannleika.“ Hér er á ferð málsvari öfganna og orð hans endurspegla vissulega ekki skoðanir milljóna múslíma fremur en orð kristinna bókstafstrúarmanna eru dæmigerð fyrir viðhorf kristinna manna. Það sást hins veg- ar í fárinu, sem varð vegna dönsku skop- myndanna að þegar fárviðrið hefst er hætt við því að raddir hófsemi hljóðni og verði þaggaðar niður á meðan málsvarar öfg- anna leggja undir sig sviðið. Þar liggur hættan. »Hér er á ferð málsvari öfganna og orð hans endurspeglavissulega ekki skoðanir milljóna múslíma fremur en orð kristinna bókstafstrúarmanna eru dæmigerð fyrir viðhorf krist- inna manna. Það sást hins vegar í fárinu, sem varð vegna dönsku skopmyndanna, að þegar fárviðrið hefst er hætt við því að raddir hófsemi hljóðni og verði þaggaðar niður á meðan mál- svarar öfganna leggja undir sig sviðið. Þar liggur hættan. rbréf Reuters Mótmæli Palestínskir múslímar söfnuðust saman á föstudag eftir bænastund í Al Aqsa í Jerúsalem og mótmæltu ummælum Benedikts páfa. Á blaðinu stendur: „Það sem þú sagðir er ekki fyrir víst.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.