Morgunblaðið - 24.09.2006, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 24.09.2006, Blaðsíða 44
44 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN NÚ ER herinn farinn og varn- arsamningurinn við Bandaríkin er í endurskoðun. Verulegar breytingar eru að verða á stöðu Keflavík- urflugvallar. Af breytt- um aðstæðum leiðir að yfirstjórn Keflavík- urflugvallar getur ekki lengur sætt einhverri sérstöðu. Flugvöll- urinn er ekki lengur hernaðarmannvirki. Hann er og verður eitt af veigamestu sam- göngumannvirkjum landsins. Og vægi hans í samgöngum landsins fer vaxandi. Ekkert mælir lengur með því að utanrík- isráðuneytið fari áfram með málefni Keflavíkurflugvallar þótt greinilegur vilji sé til þess þar á bæ. Meðan her- inn var hér, fór utanríkisráðuneytið með öll málefni á Keflavíkurflugvelli vegna óskar Bandaríkjamanna um að þessi háttur yrði hafður á í sam- skiptum við þá. En nú er tími varn- arsamningsins liðinn. Löggæsla og tollgæsla hlýtur því að fara í eðlilegt horf, og að því er þegar unnið. Einn- ig símamál, heilbrigðismál og önnur þau mál, sem tengdust veru hins er- lenda varnarliðs í landinu. Stjórn flugumferðar og rekstur flugvall- arins hlýtur að gera það einnig. Það ófremdarástand hefur ríkt, að stjórnun flugmála hefur verið tví- skipt vegna veru hersins hér. Við það verður tæpast unað lengur. Á Íslandi er stjórnsýslan með þeim hætti að samgönguráðuneyti fer með stjórnun samgöngumála, þar með flugmála. Það er mikilvægt að stjórnkerfi samgöngumála sé einfalt og skilvirkt. Boðleiðir í flugörygg- ismálum þurfa að vera sérstaklega skýrar og án milliliða. Flugstöðin er mikið gullegg, sem vafalaust margir vildu eiga í sínu hreiðri. Stjórnendur flugstöðv- arinnar hafa lýst þeirri skoðun, að eðlilegt væri að færa flugvöllinn und- ir rekstur flugstöðvarinnar og nýta tekjur af henni til reksturs flugvall- arins. Þessi hugmynd er ekki al- slæm. Eðlilegt er að nýta tekjur af flugtengdri starfsemi til reksturs samgöngumannvirkisins, enda er þetta meginreglan víðast um heim. En í þeirri mynd, sem hugmyndin hefur verið kynnt af stjórnendum flugstöðv- arinnar hefði hún í för með sér áframhald tví- skiptingarinnar í stjórn flugmála sem er með öllu órökrétt. Er kannski einhverjum að detta í hug að löggæsl- an, tollgæslan og dóm- gæsla innan flugvall- arins verði áfram í höndum utanríkisráðu- neytisins? Íslenska ut- anríkisráðuneytið nyti þá sérstöðu um víða veröld. Það er mín skoðun og jafnframt skoðun þeirra sem starfa með mér í flugráði, að með öllu sé óásættanlegt að viðhalda tvískiptingu í stjórn flug- mála. Það er kostnaðarsamt. Það stuðlar ekki að flugöryggi. Það dreg- ur úr skilvirkni. Það gerir okkur erf- itt fyrir í alþjóðlegu samstarfi. Það dregur úr samkeppnishæfi okkar Ís- lendinga til að stjórna flugumferð á norðurhveli jarðar. Eðlilegast væri því að samgöngu- ráðuneytið tæki við rekstri allra þessara samgöngumannvirkja. Rekstur starfseminnar í flugstöðinni yrði síðan boðinn út. Þeir tímar eru auðvitað löngu liðnir að ríkið eigi að vera að selja súkkulaði og næl- onsokka. Þegar unnið var að samningu þeirra frumvarpa um breytingar á stjórn flugmála á landinu er voru ákvarðaðar í lögum sl. vor, var ítrek- að um þessi mál fjallað í flugráði. Þá var ekki vitað að herinn væri á för- um. Engu að síður var lögð á það áhersla í ráðinu, að nauðsynlega þyrfti að leggja af tvískiptingu í stjórnkerfi flugmála. Ályktanir þess efnis voru sendar stjórnvöldum. Þrátt fyrir gullið tækifæri til þess að koma þessum málum í rétt horf þeg- ar Alþingi samþykkti breytingar á skipan flugmála s.l. vor, var það ekki gert. Losaragangur var í ríkisstjórn- inni og óvænt uppákoma um nánast fyrirvaralausa brottför hersins trufl- aði. Pólitískur grundvöllur var ekki skýr. Þess vegna var gripið til bráða- birgðalausnar með stofnun rík- isstofnunar til að annast rekstur Keflavíkurflugvallar. Þáverandi ut- anríkisráðherra, sem nú er forsætis- ráðherra, sagði það skoðun sína í umræðum um frumvörpin á Alþingi, að stjórn flugvallarins yrði í fyllingu tímans færð til samgönguráðuneyt- isins. Það kann því að vera ótíma- bært að óttast að niðurstaðan verði á annan veg. Um næstu áramót taka gildi þær breytingar, sem gerðar hafa verið á stjórnun flugmála. Skipan mála verður þá að öllu leyti í samræmi við það, sem alþjóða flugsamfélagið ger- ir kröfur um, að öðru leyti en því, að Keflavíkurflugvöllur er undanskil- inn. Á sama tíma heyrast raddir hagsmunaaðila í fjölmiðlun um að viðhalda eigi þeirri skipan mála, sem allir rekstraraðilar í flugi hafa talið óviðunandi, þ.e. tvískiptingunni og að flugstöðin eigi að verða einhvers konar eyland í stjórnkerfinu. Gripið er til þess ráðs að flíka sjónarmiðum um atvinnuuppbyggingu á Suð- urnesjum þessu til framdráttar. Slík rök eiga ekkert erindi í þessa um- ræðu. Það er ástæðulaust að draga ákvörðun í þessu máli eða drepa því á dreif. Enn er tími til að koma á heildstæðri breytingu á stjórnun flugmála um næstu áramót. Þjóðin á rétt á því að rekstur flug- samgöngukerfisins sé með þeim hætti, að hann sé eins skilvirkur og hann getur verið, eins öruggur og hann getur verið og eins ódýr og hann getur verið. Tvískipting í stjórnun flugmála óásættanleg Gísli Baldur Garðarsson fjallar um Keflavíkurflugvöll og rekst- ur flugsamgöngukerfisins »Eðlilegast væri þvíað samgöngu- ráðuneytið tæki við rekstri allra þessara samgöngumannvirkja. Rekstur starfseminnar í flugstöðinni yrði síðan boðinn út. Gísli Baldur Garðarsson Höfundur er formaður flugráðs. FASTEIGNASALA STÓRHÖFÐA 27 Sími 594 5000 Halla Unnur Helgadóttir löggiltur fasteignasali. Vesturberg Mjög fallegt 197,4 fm raðhús á 2 hæðum, þar af 32 fm bílskúr. 4-5 svefnherbergi. Nýlegt eldhús. 32 fm stór svalaverönd (mögul. á að byggja yfir). 2 baðherbergi. Frábært útsýni yfir borgina. VERÐ 37,9 millj. María og Jón Ægir bjóða þig og þína velkomna, sími 557 2430. Opið hús í dag milli kl. 18:00 og 19:00 Til leigu í Vesturbænum Nýtt 184 m² verslunarhúsnæði í Vesturbænum til leigu og afhendingar strax. Húsnæð- ið snýr að umferð við Ánanaust og stendur við hlið Domino's. Bílastæði eru beint fyrir framan inngang og getur húsnæðið hentað hvers kyns hverfaverslunum eða undir veitingastað sem það var upprunalega hannað fyrir með bakinngangi og vörumóttöku að aftanverðu og lagnaleið fyrir loftræstingu upp á þak. Nýr dúkur á gólfum, niðurtek- in loft með innfelldri lýsingu. Snyrtingar að mestu uppkomnar í bakrými. Sjón er sögu ríkari. Mánaðarleiga kr. 295.000. Sími 511 2900 Áhugasamir hafið sambandi við skrifstofu Leigulistans eða Guðlaug í s. 896 0747. Guðrún Árnadóttir, lögg. fasteignasali Góð 3ja til 4ra herbergja 131 fm íbúð með sérinngangi á 1. hæð í fallegu fjölbýlishúsi í Vesturbænum. Íbúðinni fylgir 25 fm bílskúr með hita og rafmagni. Mjög stórar svalir og sérgarður. Frábær staðsetning í hjarta vesturbæjarins með útsýni af svölum út á KR völlinn. Stutt í skóla, leikskóla og aðra þjónustu. Falleg og gróin lóð með leiktækjum fyrir börnin. Flyðrugrandi 20 verður til sýnis í dag á milli kl. 16 og 18. Upplýsingar gefur Gunnar Tryggvason sölumaður í síma 895 6554 FLYÐRUGRANDI 20 Sérinngangur, bílskúr og stórar svalir SÖLUSÝNING Í DAG Á MILLI KL. 16 OG 18 FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13 SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali. OPIÐ HÚS KLEIFARSEL 3 - EINBÝLI Fallegt og mikið endurnýjað 171 fm einbýlishús á tveimur hæðum auk 33 fm bílskúrs (samtals 204 fm). Á neðri hæð er anddyri, stór og björt stofa með útg. á stóra timburverönd (suðvestur), stórt eldhús, gestasalerni og þvottahús. Á efri hæð er stórt fjölskyldu- rými með útg. á svalir, baðherbergi og þrjú stór herbergi. Bílskúr fullbúinn. FALLEG EIGN Á GÓÐUM STAÐ. Valgerður og Sigurður sýna eignina í dag, sunnudag, frá kl. 14-16. Verð 45 millj. www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.