Morgunblaðið - 24.09.2006, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 24.09.2006, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2006 47 ÉG OG fjöl- skylda mín flutt- um í Bisk- upstungur vorið 1983. Þá státuðu Tungnamenn af því að vera mikl- ir söngmenn. Þrátt fyrir það var tónlistarlíf í sveitinni mjög bágborið, kóra- starf lítið sem ekkert og söng- menntun barna engin. Grunnskól- inn hafði engan tónlistarkennara og nemendur nutu ekki tónlistar- menntunar. Hilmar Örn Agnarsson var ráð- inn í starf organista Skálholts- kirkju, Torfastaðakirkju, Bræðra- tungukirkju og Haukadalskirkju fyrir 16 árum. Ráðning hans olli straumhvörfum. Tónlistarnám barnanna okkar hófst og varð öfl- ugt. Safnaðarmeðlimir nutu þess að hlusta á börnin í helgiathöfnum í Skálholti. Barnakór Biskupstungna var stofnaður og þjónaði kirkj- unum, skólanum og samfélaginu öllu auk þess sem kórinn hélt tón- leika víða. Barnakórinn hefur alla tíð verið uppeldisstöð barna í tón- list og kristilegu hugarfari og Hilm- ar Örn á mesta heiðurinn af því starfi. Stofnun Barnakórsins varð til þess að Skálholt naut fljótlega heimsókna annarra barnakóra. Ég minnist m.a. Barnakórs Kárs- nesskóla auk margra annarra kóra. Þórunn stjórnandi hans kom oft með börnin sín í Skálholt. Reynsla hennar af kóra- og sönguppeldi barna var, og er enn, einstök, og kom að góðum notum. Okkar börn nutu þess að kynnast nýjum fé- lögum, æfa með þeim söng og halda sameiginlega tónleika. Hilmar Örn lét börnin þátt í tónleikum vítt og breitt um landið, og börnin í Bisk- upstungum fengu mikið tónlist- arlegt og kirkjulegt uppeldi hjá honum, auk þess sem félagsþroski þeirra efldist mjög. Starf hans með börnunum er ómetanlegt og verður aldrei að fullu þakkað. Það fyrnist fljótt yfir fortíðina en það eru aðeins 15 ár síðan að engin tónlistariðkun var hér í Bisk- upstungunum, hvorki í skóla né í kirkjunum. Fagur tónlistarflutn- ingur barnanna eykur svo sann- arlega kirkjusókn. Við höfum reynslu af því. Þegar ég kom í Biskupstung- urnar, var Skálholt í mjög litlum tengslum við samfélagið. Skálholts- staður var einangraður frá þeim sem bjuggu í sveitinni og menn sáu ekki leiðir til að breyta því. Ráðn- ing organistans og mannsins Hilm- ars Arnar olli straumhvörfum. Tengsl íbúa við Skálholt hafa eflst mjög vegna hins mikla kórastarfs sem á sér stað í Skálholti. Samband Skálholts við okkur íbúana í upp- sveitunum hefur orðið einlægara og nánara, og nú bera allir hag Skál- holts fyrir brjósti, þökk sé því starfi sem Hilmar Örn hefur leitt. En hefði ekki hver sem er gert það sem Hilmar hefur gert? Ef til vill, en Hilmar Örn er einstakur maður og við sem þekkjum til starfa hans og nærveru óskum eftir að fá að njóta hans áfram. Við sjáum enga ástæðu til að segja Hilmari upp starfi sínu, starfi sem hann hefur sinnt af mikilli elju, áhuga, einlægni og glaðværð. Ég vona að kristileg sjónarmið og velvild í garð Hilmars, sam- starfsfólks hans, samfélagsins og Skálholts verði til þess að upp- sögnin verði dregin til baka. Sam- hygð og sátt þarf að ríkja um Skál- holt og nágrenni þess. Látum boðskap Guðs um kærleika, sátt og samlyndi vera leiðarljós okkar allra. DRÍFA KRISTJÁNSDÓTTIR, Torfastöðum. Hilmar Örn áfram í Skálholti! Frá Drífu Kristjánsdóttur: Drífa Kristjándóttir Einstaklega falleg og vel viðhaldin efri sérhæð í tvíbýlishúsi. Aðkoma að húsinu er eins og að einbýlishúsi, aðkoman er mjög góð og fallegur garður með skjólveggjum, fánastöng og töluverðum gróðri, góð verönd, hellulagt bílaplan og göngu- stígur að húsi, bæði með hitalögn undir. Hæðin er á tveimur hæðum og er skipting hennar samkv. FMR, efri hæð 137,7 fm, neðri hæð 45,9 fm og bílskúr 28,0 fm, samtals 211,6 fm. Að auki er 28 fm rými undir bílskúrnum sem ekki er inni í fermetra- tölu hússins. Góð lán áhvílandi. V. 41,2 m. 7415 SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG STAÐARSEL 4 - OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 13-14 Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 – Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali hamraborg 10 | 200 kópavogur | sími: 414 6600 | fax: 414 6601 reynir erlingsson lögg. fasteignasali | nytt@nytt.is 414 6600 hús Snyrtilegt hús við Hörpugötu 7 í Skerjafirði. Opið hús í dag milli 15:00 og 16:00 Sjarmerandi og snyrtilegt hús á stórri eignalóð í „Litla Skerjafirði”. Kjallari, hæð og ris, andyri, 3 svefnherb. 2 stofur, opið eldhús. Í kjallara er sér 2ja herb. íbúð og þvottahús í sameign. Eignarlóð er 717,5 fm og gefur möguleika á stækkun/viðbyggingu sem og bílskúr. Sjón er sögu ríkari. Reynir tekur á móti gestum á milli þrjú og fjögur í dag opið Hörpugata 7 - frá þrjú til fjögur ytt heimilin w w w . n y t t . i s  hús Snyrtileg endaíbúð við Berjarima 9 í Grafarvogi. Opið hús í dag milli 15:00 og 16:00 Falleg 101,9 fm 3ja herbergja endaíbúð ásamt stæði í lokaðri bílgeymslu við Berjarima 9 í Grafarvogi. Rúmgott eldhús og bað, tvö svefnherbergi, parket og flísar á gólfum og stórar hornsvalir. Sjón er sögu ríkari Leifur og Sigrún taka á móti gestum á milli þrjú og fjögur í dag opið Berjarimi 9 - frá þrjú til fjögur ® Séríbúð í kjallara - útleigumöguleikar FASTEIGNASALA STÓRHÖFÐA 27 Sími 594 5000 Halla Unnur Helgadóttir löggiltur fasteignasali. Stórglæsilegt einbýli á 2 hæðum með innb. bílskúr, samtals 232,6 fm auk 35-40 fm óskráðs/ósamþ. rýmis. Fjögur rúmgóð svefnherbergi, tvö fullbúin baðherbergi, borðstofa með hlöðnum arni, útgengi á flísalagðan ca 35 fm pall með hitalögn og tröppum niður að potti. Stofa með útsýni yfir á golfvöllinn. Upptekið loft og opið eldhús. Jura-marmari, parket og flísar á gólfum. Allar innréttingar eru fyrsta flokks, gegnheilar eikarhurðir milli notaeininga og á skápum. Innbyggð uppþvottavél, ísskápur og frystiskápur í eldhúsinnréttingu. Halogen-lýsing. Hiti á lóð í aðkomu. Viðhaldslétt lóð. Arkitekt: Vífill Magnússon. TIL SÖLU EÐA LEIGU. ÁSETT VERÐ 65,0 millj. Nánari upplýsingar veita Viggó eða Anna Lilja, sölufulltrúar Akkurat, í síma 824 5066 eða 899 0708. TIL SÖLU EÐA LEIGU ÓLAFSGEISLI - 113 RVÍK SOGSBAKKI - GRÍMSNESI Glæsilegt lúxus heilsárshús við Sogsbakka í Grímsnesi. Húsið skilast fullbúið að utan og innan á afar vandaðan máta. Eikar innréttingar, parket og flísar á gólfum. Um 100 fm verönd er við húsið með heitum potti. Þetta er afar vandað hús á frábærum stað þar sem stutt er í einn besta golfvöll landsins. VERÐ KR. 35 MILLJ. Halldór Jensson halldor@domus.is S. 440 6014/840 2100 Laugavegi 97, Reykjavík, sími 440 6000 Sölusýning í dag á milli kl. 15-16 Fréttir á SMS vaxtaauki! 10%
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.