Morgunblaðið - 07.10.2006, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
Yf i r l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Veður 8 Umræðan 34/39
Staksteinar 8 Bréf 35
Viðskipti 16 Minningar 40/44
Úr verinu 17 Skák 44
Erlent 18/19 Kirkjustarf 45/46
Menning 20/21, 50/56 Myndasögur 56
Akureyri 22 Dagbók 57/61
Árborg 22 Staður og stund 58
Suðurnes 23 Víkverji 60
Landið 23 Velvakandi 60
Daglegt líf 24/31 Stjörnuspá 61
Forystugrein 32 Ljósvakamiðlar 62
* * *
Innlent
Finnur Ingólfsson, fyrrverandi
forstjóri VÍS, fer fyrir hópi fjárfesta
sem hyggst kaupa tæp 30% í Ice-
landair Group fyrir um 8 milljarða
króna. Þá fer Bjarni Benediktsson
fyrir fjárfestingarfélagi sem hyggst
kaupa 10–11% hlut. Helstu stjórn-
endur Icelandair ku einnig vera í
viðræðum við Glitni um kaup á innan
við 10% í félaginu, samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins. » Forsíða
Borgarráð Reykjavíkur hefur
samþykkt að semja við Eir og
Hrafnistu um byggingu og rekstur
160–200 þjónustuíbúða og tveggja
þjónustumiðstöðva fyrir aldraða. »
Baksíða
Yfir 60% þeirra sem tóku þátt í
launa- og kjarakönnun Starfsgreina-
sambandsins töldu fjárhagslega
stöðu sína betri nú en fyrir þremur
árum. » Baksíða
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að
kannað verði að flytja Tilraunastöð
HÍ á Keldum í Vatnsmýrina. Talið
er að 2,5–3 milljarðar fáist fyrir
Keldnalandið. » 4
Erlent
Allt að 4.000 íraskir lög-
regluþjónar hafa týnt lífi og 8.000
særst í árásum síðan í september
2004. Þetta kom fram í yfirlýsingu
frá Joseph Peterson herforingja í
Bagdad í gær.
Viðskipti
Fyrirtækin MEST og Súperbygg
hafa sameinast undir merkjum
MEST. Ársvelta sameinaðs fyr-
irtækis verður um 6 milljarðar
króna. Forstjóri MEST segir að með
sameiningunni náist fram hagræð-
ing í rekstri og gríðarleg aukning í
vöruúrvali sem efla muni þjónustu
við viðskiptavini til muna. » 16
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
STÆRÐFRÆÐI hefur undanfarin ár verið
fléttað inn í leik barna á leikskólanum Nóa-
borg en í gær heimsóttu skólann sænskir
leikskólakennarar frá Stokkhólmi til þess að
kynna sér stærðfræðinámið þar.
Anna Margrét Ólafsdóttir, leikskólastjóri á
Nóaborg, segir að stærðfræði hafi verið hluti
af námskrá skólans frá því 1999. Markmiðið
með því að kynna börnum hana sé að „örva
formskynjun, talna- og hugtakaskilning og
rökhugsun barnanna“.
Anna Margrét segir að búið sé að vinna tvö
þróunarverkefni í stærðfræði á leikskólanum
og gefa út skýrslur um það. „Í kjölfar þeirrar
vinnu hef ég verið með námskeið og fyr-
irlestra um allt land,“ segir Anna Margrét.
Spurð um hvað hafi orðið til þess að farið
var að vinna með stærðfræði í leikskólanum
segir Anna Margrét að fyrir nokkrum árum
hafi hún í fyrsta sinn farið að vinna með elsta
árganginum í leikskólanum. „Ég fór að spá í
hvað ég ætti að gera með þeim. Þá datt ég
inn á þetta og prófaði mig áfram.“ Hún segir
að mikið af því efni sem notað er við stærð-
fræðivinnuna í Nóaborg sé heimatilbúið.
„Meðal annars hafði ég einn langan starfs-
mannafund þar sem starfsfólkið fékk tíma til
að búa til efni.“
Öll stærðfræðivinnan á leikskólanum fari
fram í gegnum leik. „Elstu börnin búa til
talnagrind sem eru pípuhreinsarar og seríós-
hringir. Síðan fá þau blað með myndum af
mismörgum hlutum,“ segir hún. Börnin noti
svo talnagrindina til að telja hvað þetta er
mikið og skrái svo hvert með sínum hætti.
Sum noti tölustafi, önnur geri strik eða
hringi. „Þau finna sína leið sjálf og eru alveg
ótrúlega flink,“ segir Anna Margrét.
Stærðfræði fléttað inn
í leik barnanna
Morgunblaðið/Ásdís
Stærðfræði Börnin á Nóaborg skoðuðu í gær litrík form meðan sænskir gestir fylgdust með.
ÍSLENSK erfðagreining hefur gert
hlé á prófunum meðal bandarískra
hjartasjúklinga á tilraunalyfi við
hjartasjúkdómum, sem fyrirtækið
hefur verið að þróa, meðan unnið er
að bættu framleiðsluferli þess. Gengi
hlutabréfa fyrirtækisins lækkaði
talsvert við opnun markaða í gær-
morgun vegna þessara fregna.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu kem-
ur fram að ákveðið hafi verið að gera
hlé prófunum á lyfinu DG031 (velifla-
pon) meðal hjartasjúklinga í Banda-
ríkjunum, þar sem komið hafi í ljós
við reglubundnar leysnimælingar að
sá tími sem það tekur að lyfið losni úr
töflunum hafi lengst. Ekkert bendi
þó til þess að þetta hafi áhrif á upp-
töku lyfsins hjá þátttakendum né á
öryggi lyfsins en stjórnendur rann-
sóknarinnar hafi þó talið mögulegt
að þetta gæti að óbreyttu leitt til
þess að lyfið losnaði of hægt úr töfl-
unum til þess að full virkni kæmi
fram í prófununum.
„Hagsmunir okkar og hjartasjúkl-
inga fara saman í því að tryggja að
framkvæmd þessara prófana verði
eins og best verður á kosið og við
verðum því að fresta frekari prófun-
um meðan við leysum þetta vanda-
mál. Við erum brautryðjendur í þró-
un lyfja sem hafa áhrif á mikilvægan
áhættuþátt hjartaáfalla. Við munum
áfram vinna af krafti að þróun grein-
ingarprófs og annars lyfs sem beinist
að þessum áhættuþætti, meðan við
endurbætum framleiðsluferlið og
framleiðum nýjar töflur fyrir áfram-
haldandi prófanir á DG031,“ segir
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar, í tilkynningunni.
Dregur úr myndun bólguvaka
Fram kemur að breytileiki í tveim-
ur erfðavísum, sem vísindamenn fyr-
irtækisins hafi fundið, auki hættuna
á hjartaáföllum vegna myndunar
bólguvaka og ofangreindu tilrauna-
lyfi og lyfinu DG051, sem séu í þróun
hjá fyrirtækinu, sé ætlað að draga úr
myndun þessa bólguvaka og minnka
þannig hættuna á hjartaáföllum.
Fram kemur einnig að málið hafi
verið kynnt Bandaríska matvæla- og
lyfjaeftirlitinu og að unnið sé að end-
urbótum á framleiðsluferli tafln-
anna. Á símafundi í gær vegna þessa
kom fram að töfin nemi nokkrum
mánuðum og sennilega minna en ári
og að hægt verði að halda áfram þar
sem frá var horfið þegar prófanir
hefjist á ný.
DG031 var upphaflega þróað af
þýska lyfjafyrirtækinu Bayer við
astma, en Íslensk erfðagreining
keypti það haustið 2003 eftir að nið-
urstöður erfðarannsókna fyrirtækis-
ins leiddu í ljós að það kynni að
gagnast til varnar hjartaáföllum.
Síðan hafa ýtarlegar prófanir farið
fram á lyfinu m.a. hér á landi, en
prófanir þess á hjartasjúklingum í
Bandaríkjunum hófust í vor.
Gengi hlutabréfa fyrirtækisins féll
við opnun markaða í gærmorgun um
16% og var þá 4,90 Bandaríkjadalir.
Það hækkaði svo aftur er á daginn
leið í 5,25 dali, sem er 10% lægra en
gengið á fyrirtækinu í fyrradag.
Frestar prófunum á lyfi
við hjartasjúkdómum
Í HNOTSKURN
» Kári Stefánsson, forstjóriÍE, skýrði frá því í mars,
að móðurfélagið, deCode
genetics, væri með átta lyf í
prófunum.
» Eitt þessara lyfja varhjartalyfið, sem þá var við
það að fara í fasa 3-prófanir
en tölfræðin sýndi, að lyf, sem
næðu svo langt, hefðu 67% lík-
ur á að komast á markað.
Í HNOTSKURN
»Á Nóaborg hefur verið unnið meðstærðfræði allt frá árinu 1999.
» Fyrstu árin var stærðfræðin aðeinshluti af námi elsta árgangsins en frá
árinu 2002 er stærðfræði samofin leik
allra barna á leikskólanum.
» Í Svíþjóð er stærðfræði hluti afnámskrá allra leikskóla, en svo er
ekki hér á landi.
ÓVENJUHLÝTT hefur verið í
veðri það sem af er hausti og hefur
sólin verið dugleg að láta sjá sig
síðustu dagana. Þó að álit manna á
árstíðinni sé misjafnt, og haustið
ekki uppáhaldstími allra, er óhætt
að segja að litir haustlaufanna fái
notið sín í veðurblíðunni.
Eflaust reyna margir að njóta
sólarinnar þegar hún lætur sjá sig
og í gær mátti sjá fjölda fólks úti
við enda um að gera að nota hverja
sólarglætu þar sem aldrei er að vita
hvenær Vetur konungur gengur í
garð.
Viðrar vel til haustgöngu
Morgunblaðið/Ásdís