Morgunblaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ GAMLA, góða rokkbandið Gasolin skipar sérstakan sess í brjósti margra. Ekki aðeins Dana (sem hvorki fyrr né síðar hafa tekið jafnmiklu ástfóstri við nokkra popphljómsveit, að undanskilinni Shu-Bi-Dua) heldur á löngu liðin hljómsveitin trygga aðdáendur hér sem annars staðar á Norð- urlöndum. Ástæðan er auðheyrð, þeir Franz Beckerlee, Sören Ber- lev, Wili Jonson og síðast en ekki síst Kim Larsen voru og eru frá- bærir lagasmiðir með ósvikna sviðsframkomu rokkstjarna. Tón- listin þeirra að mestum hluta gríp- andi, melódískt rokk sem eldist ekki. Þeir voru rokkarar af guðs náð og við það að kitla alheims- frægðina þegar best gekk en tungumálið hjálpaði ekki. Við upplifum þetta allt í Gasol- in, vafningslausri og þræl- skemmtilegri heimildarmyndinni hans Anders Östergård. Hann ræðir við kappana í dag og gaman að bera þá saman við ungu og spræku töffarana, nakta í mitt- isstað á sjöunda áratugnum. Þeir eru fyndnir og hafa frá mörgu að segja um sjálfa sig, hvora aðra og endalausar uppákomurnar, æv- intýrin. Mikið er til af myndefni sem er fléttað inn í samtölin og gömlu perlurnar fljóta að sjálf- sögðu með; „Lille Henry“, „Lang- ebro“, „Pas på svinget i Solröd …“ Ómissandi fjölmörgum aðdáend- um bandsins, ekki síst þeim sár- svekktu áhangendum Kims Lar- sen, sem stóðu tómhentir framan við NASA á vordögum. Gleðigjafarnir Gasolin Sæbjörn Valdimarsson KVIKMYNDIR RIFF 2006: Háskólabíó Heimildarmynd. Leikstjóri: Anders Östergård. Með hljómsveitarmeðlimum Gasolin: 92 mín. Danmörk 2006. Gasolin  TÁNINGSÁRIN með tilheyrandi vaxtarverkjum, uppreisnaranda, löngunum, ekki síst eftir nánum samskiptum við hitt kynið, eru áþekk hvar sem borið er niður. Lím fjallar um þrjá unglinga á heitu sumri í Patagóníu, hinum meg- in á hnettinum, sunnarlega í Argent- ínu. Þremenningarnir, sem allir búa hjá einstæðum mæðrum, eru vin- irnir Luca (Biscayart) og Nacho (Viale) og stúlkan Andrea (Efron). Þau halda hópinn í smábæ úti í sveit þar sem lífið gengur sinn gang af gömlum vana. Strákarnir eru saman öllum stundum, eru byrjaðir að fikta við reykingar og sjálfa sig, sniffa lím, æfa saman í hljómsveit og löng- unin að tapa sveindómnum ágerist með hverjum deginum. Andrea leyf- ir þeim að stíga fyrstu skrefin í átt að settu marki. Það er allt í þann mund að bresta á í Lími, sem er fyrsta langa mynd hins liðlega þrítugua Dos Santos, breskmenntaðs kvikmyndagerð- armanns sem er fæddur og uppalinn á sögusóðum í Argentínu. Lím end- urspeglar vafalaust eigin reynslu og það skilar sér í einfaldri en einlægri upprifjun á dýrðlegum en oft býsna erfiðum tímamótum þegar unglingar eru að taka út kynþroskann. Undir- aldan er sterk undir ekkert sérlega nýstárlegu yfirborði í dauflegum bæ, og ungu leikararnir standa sig trú- verðuglega og eiga ríkan þátt í að gera Lím áhugaverða sem þroska- sögu. Þá notar hann pönktónlist með kraftmiklum árangri, en hún er snar þáttur og flóttameðal í lífi piltanna. Patagónískt veggjakrot Sæbjörn Valdimarsson KVIKMYNDIR RIFF 2006: Tjarnarbíó Leikstjóri: Alexis Dos Santos. Aðalleik- arar: Nahuel Perez Biscayart, Nahuel Viale, Ines Efron, Veronica Llinas. 110 mín. Argentína/England 2005. Lím – Glue – historia adolescente en medio de la nada  RÚMLEGA þrjátíu milljónir Kúrda eru dreifðir yfir landsvæði sem þeir sjálfir kalla Kúrdistan og nær til Írans, Írak, Sýrlands, Tyrk- lands og Armeníu. Þrátt fyrir mörg hundruð ára baráttu þjóðflokksins fyrir fullveldi hefur kröfum þeirra ávallt verið hafnað og það stundum á öfgakenndan hátt eins og sann- aðist í stjórnartíð Saddams Huss- ein. Tími drukknu hestanna er fyrsta myndin sem kúrdíski leikstjórinn Bahman Ghobadi gerði í fullri lengd og fyrsta myndin sem var að öllu leyti leikin á kúrdísku. Hún fjallar um barnafjölskyldu við landamæri Íraks og Írans sem neyðist til að bjarga sér upp á eig- in spýtur, eftir að faðir þeirra læt- ur lífið af völdum jarðsprengju. Þegar þeim er svo tilkynnt að hreyfihamlaður bróðir þeirra þurfi að gangast undir kostnaðarsaman uppskurð til að halda lífi neyðast systkinin til að taka erfiðar ákvarð- anir. Tími drukknu hestanna er átak- anleg svo ekki sé dýpra í árinni tekið og svo raunveruleg er hún, bæði í leik og leikstjórn að áhorf- andinn á bágt með að trúa því að hér sé um leikna mynd að ræða. Sé myndin jafnsannsögul og textinn í upphafi segir til um, gefur hún áhrifamikla innsýn í líf Kúrda við landamæri Írans og Íraks. Stórþjóðin landlausa Höskuldur Ólafsson KVIKMYNDIR RIFF 2006: Háskólabíó Leikstjórn: Bahman Ghobadi. 98 mín. Íran, 1999 Tími drukknu hestanna -  Fréttir í tölvupósti Fréttir á SMS Í kvöld kl. 22 kynnir Sixties nýútkomna plötu „Hvað er, hvað verður“ (lög eftir Jóhann G. Jóhannsson). Hefðbundinn dansleikur á eftir. Fjölbreyttur sérréttaseðill og tilboðsmatseðill á leikhúskvöldum www.leikfelag.is 4 600 200 Kortasala enn í fullum gangi! Karíus og Baktus - Sýnt í Rýminu Sun 8. okt kl. 17 UPPSELT - 5. kortasýn Lau 14. okt kl. 14 Aukasýning - Örfá sæti laus Lau 14. okt kl. 15 Aukasýning - í sölu núna! Sun 15. okt kl. 14 UPPSELT Sun 15. okt kl. 15 UPPSELT Sun 15 okt kl. 16 UPPSELT Sun 22. okt kl. 14 UPPSELT Sun 22. okt kl. 15 UPPSELT Sun 22. okt kl. 16 Næstu sýn: 29/10, 5/11, 12/11, Mike Attack - Gestasýning sýnd í Rýminu Fim 12. okt kl. 20 5. kortasýn Fös 13. okt kl. 20 6. kortasýn RONJA RÆNINGJADÓTTIR Sun 8/10 kl. 14 Sun 15/10 kl. 14 Sun 22/10 kl. 14 Sun 29/10 kl. 14 VILTU FINNA MILLJÓN? Fös 13/10 kl. 20 Sun 15/10 kl. 20 Fös 20/10 kl. 20 Sun 29/10 kl. 20 FOOTLOOSE Í kvöld kl. 20 UPPS. Sun 8/10 kl. 20 UPPS. Fim 12/10 kl.20 Lau 14/10 kl. 20 HVÍT KANÍNA Nemendaleikhúsið sýnir nýtt verk eftir hópinn. Í kvöld kl. 20 Sun 8/10 kl. 20 Fim 12/10 kl. 20 Fös 13/10 kl. 20 Bannað innan 16 ára. Síðustu sýningar BRILLJANT SKILNAÐUR Fim 26/10 kl. 20 Fim 2/11 kl. 20 Fim 9/11 kl. 20 Fim 16/11 kl. 20 Aðeins þessar sýningar. MANNTAFL Sun 29/10 kl. 20 Fös 3/11 kl. 20 Fös 10/11 kl. 20 Sun 19/11 kl. 20 Aðeins þessar sýningar. MEIN KAMPF Í kvöld kl. 20 Sun 8/10 kl. 20 Lau 14/10 kl. 20 Lau 21/10 kl. 20 Fös 27/10 kl. 20 Lau 28/10 kl. 20 LEIKHÚSSPJALL Leikhúsumræður á Borgarbókasafninu í Kringlunni. Rætt veður um leikverkið Mein Kampf. Fim 12/10 kl. 20 Allir velkomnir. AMADEUS Lau 21/10 kl. 20 frums. UPPS. Bleik kort. Fim 26/10 kl. 20 2.sýning Gul kort. Lau 4/11 kl. 20 3.sýning Rauð kort. Sun 12/11 kl. 20 4.sýning Græn kort Lau 18/11 kl. 20 5.sýning Blá kort Sun 19/11 kl. 20 6.sýning VIÐ ERUM KOMIN-Íd Októbersýning Íd, 2 ný verk: Við erum komin e. Ólöfu Ingólfsdóttur og Hver um sig e.Vaðal. Fim 12/10 kl. 20 frumsýning UPPS. Fös 13/10 kl. 20 Sun 15/10 kl. 20 Fim 19/10 kl. 20 Fös 20/10 kl. 20 Mr. Skallagrímsson - leiksýning Landnámssetri í Borgarnesi TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM frá kl. 10 til 16 mánudaga - fimmtudaga í síma 437 1600. Staðfesta þarf miða með greiðslu viku fyrir sýningardag Upppantað á allar sýningar í október Óstaðfestir miðar seldir viku fyrir sýningu. Eftir Benedikt Erlingsson Sýningar í september og október Sala hafin á sýningar í apríl 2007 Fimmtudagur 12. apríl kl. 20 Föstudagur 13. apríl kl. 20 Laugardagur 14. apríl kl. 20 Sunnudagur 15. apríl kl. 16 Fimmtudagur 19. apríl kl. 20 (sumardagurinn fyrsti) Föstudagur 20. apríl kl. 20 Laugardagur 21. apríl kl. 20 Sunnudagur 22. apríl kl. 16 Fimmtudagur 26. apríl kl. 20 Föstudagur 27. apríl kl. 20 Laugardagur 28. apríl kl. 20 Sunnudagur 29. apríl kl. 16 MIÐAPANTANIR: GSM: 694 8900 / midasala@einleikhusid.is Sýnt í Reiðhöll Gusts, Álalind 3, Kópavogi Frumsýning 8. okt. kl. 20 - UPPSELT Mið. 11. okt. kl. 20 - Nokkur sæti laus, Fim. 12. okt. kl. 20 Fim. 19. okt. kl. 20, Fös. 20. okt. kl. 20. ATH. hlaðborð fyrir hópa í veislusal hússins Nánari upplýsingar á: einleikhusid.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.