Morgunblaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 35 HELGI I. Jónsson dómstjóri svarar grein minni um Héraðsdóm og Barnahús hinn 30. september sl., með grein sem í þetta skipti er málefnaleg og ég þakka fyrir. Þótt ef til vill sé borið í bakka- fullan lækinn að halda þessari ritdeilu áfram, tel ég að málefnið verð- skuldi ítarlega umfjöll- un. Dómstjórinn bend- ir réttilega á að ég hafi ekki svarað nokkrum atriðum í málflutningi hans, sem sjálfsagt er að bæta úr. Ég á mér það til málsbóta að Hæstiréttur hefur áð- ur úrskurðað í þessum álitaefnum. Engu að síður skal farið nokkrum orðum um þau atriði sem hann telur skorta svör við. Dómstjórinn kveður mig ekki svara þeirri gagnrýni að „Barnahús á sér ekki lagastoð … til að fram- kvæma þar dómsathafnir“. Í 7. gr. laga um meðferð opinberra mála er ekki gerð fortakslaus krafa um að dómþing skuli haldin í dómhúsum. Í dæmaskyni er nefnt að dómþing geti líka verið haldin í fangelsum, á sjúkrahúsum eða heimilum „ef þörf er á“. Fyrir liggur að Hæstiréttur, svo og Dómstólaráð, hafa komist að þeirri niðurstöðu að skýrslutaka í Barnahúsi rúmist vel innan þessarar lagaheimildar og hafa aðrir dóm- stólar en í Reykjavík fylgt því. Þá má geta þess að Barnahús er rekið á grundvelli 6. mgr. 7. gr. barnavernd- arlaga nr. 80/2002. Þá segir dómstjórinn: „Rann- sóknir sakamála geta ekki, eðli máls samkvæmt, verið í verkahring barnaverndarstarfsmanna.“ Þetta er hárrétt enda koma starfsmenn Barnahúss aldrei að rannsókn saka- málsins á annan hátt en sem kunn- áttumenn til fulltingis dómara við skýrslutöku af börnum, sbr. heimild 59. gr. fyrrnefndra laga. Hefur Hæstiréttur staðfest þennan skiln- ing. Raunar eru dæmi þess að Hér- aðsdómur Reykjavíkur hafi sjálfur leitað til starfsmanna barnavernd- aryfirvalda til að annast skýrslutöku af börnum í dómhúsinu. Ennfremur segir dómstjórinn: „Hlutverk starfsmanna barnavernd- aryfirvalda er að gæta að hags- munum og velferð barna og því geta þeir ekki, út frá almennum réttarör- yggissjónarmiðum, talist hlutlausir rannsóknaraðilar í sakamáli.“ Það skal enn ítrekað að starfs- menn barnaverndaryf- irvalda sinna ekki rannsóknum í saka- málum sem er verkefni lögreglu, sem átti aðild að stofnun Barnahúss. Á hitt er jafnframt að líta að starfsmenn barnaverndaryfirvalda fara að ákvæðum stjórnsýslulaga, m.a. jafnræðisreglunni og rannsóknarreglunni við meðferð allra barnaverndarmála. Þeim skyldum væru þeir að bregð- ast ef þeir drægju taum barna ein- hliða á kostnað sakbornings sem kann að vera hafður fyrir rangri sök. Þá er vandséð hvernig hagsmunir barna geta falist í óvandaðri máls- meðferð sem hugsanlega leiddi til að saklaus maður hlyti dóm. Þá segir dómarinn að starfsmenn Barnahúss hafi með höndum könn- unarviðtal sem fari fram áður en kæra sé lögð fram og að slíkt kunni ekki góðri lukku að stýra. Hér er um misskilning að ræða. Markmið laga- ákvæða um skýrslutökur af börnum er að barnið þurfi aðeins einu sinni að segja sögu sína. Þess vegna eru strangar kröfur í Barnahúsi um að máli sé vísað beint til lögreglu án könnunarviðtals ef þess er frekast kostur. Því er það algjör undantekn- ing að könnunarviðtal eigi sér stað í Barnahúsi áður en skýrslutaka fer fram fyrir dómi. Þá telur dómstjórinn að það sam- ræmist illa réttaröryggissjón- armiðum að starfsmenn Barnahúss sinni meðferð barns eftir að skýrslu- töku sé lokið. Ef barn verður fyrir kynferðisofbeldi er mikilvægt að tryggja barninu nauðsynlega aðstoð og meðferð sem fyrst og æskilegt að það gerist á stað sem barnið hefur kynnst. Eins og áður sagði er mark- miðið að einungis þurfi að taka eina skýrslu af barni og því eðlilegt að barn fái meðferð að skýrslutöku lok- inni. Til að herða enn á aðgreiningu rannsóknarhlutverks Barnahúss annars vegar og stuðningshlutverks þess við barn hins vegar, er aldrei sami sérfræðingurinn sem tekur skýrslu af barni fyrir dómi og veitir því meðferð í Barnahúsi. Loks nefnir dómstjórinn að ég víki í engu að þeirri „almennu ánægju“ sem ríki með þessa fram- kvæmd mála í Héraðsdómnum. Hann ætti að þekkja ítrekaðar beiðnir foreldra og réttargæslu- manna barna um að skýrslutaka fari fram í Barnahúsi. Meginástæða þess að talsmenn Barnahúss leggja áherslu á sameig- inlega skýrslugjöf barns í sakamál- inu annars vegar og barnavernd- armálinu hins vegar er þessi: Barnaverndaryfirvöld hafa, eins og réttarvörslukerfið, ríkar skyldur til að rannsaka mál og afla sem gleggstra upplýsinga um öll máls- atvik. Um þetta er fjallað í 21. og 22. gr. barnaverndarlaga og eru ákvæði um víðtækar rannsóknarheimildir í VIII. kafla sömu laga. Þessum laga- skyldum geta barnaverndaryfirvöld ekki sinnt sómasamlega nema að fá skýra frásögn barnsins. Raunar gildir það sama um lækna og með- ferðaraðila ef þeir eiga að vinna störf sín af fagmennsku. Það verður að gera þá kröfu til dómara að þeir beri virðingu fyrir hlutverkum ann- arra opinberra samfélagsstofnana og jafnframt að framkvæmdin sé í samræmi við Barnasáttmála SÞ sem Ísland hefur fullgilt. Margoft hefur verið sýnt fram á það að börn – og rannsóknarhagmunir – skaðist á endurtekinni frásögn barns við ólíka viðmælendur á mörgum stöðum, sem er útkoman ef dómstóllinn setur sér einhliða kröfur um framkvæmd- ina eins og gert hefur verið í Reykja- vík fram að þessu. Börn og góðir dómarar Bragi Guðbrandsson svarar grein Helga I. Jónssonar » Þá er vandséð hvern-ig hagsmunir barna geta falist í óvandaðri málsmeðferð sem hugs- anlega leiddi til að sak- laus maður hlyti dóm. Bragi Guðbrandsson Höfundur er forstjóri Barnaverndarstofu. Fréttir á SMS HLUTHAFAFUNDUR 16. OKTÓBER 2006 Stjórn Kaupflings banka hf. Hluthafafundur í Kaupflingi banka hf. ver›ur haldinn á Nordica hotel, Su›urlandsbraut 2, Reykjavík, mánudaginn 16. október næstkomandi og hefst klukkan 18.00. Eftirfarandi mál eru á dagskrá fundarins: Tillaga stjórnar Kaupflings banka hf. um ar›grei›slu: „Bankinn grei›ir hluthöfum sínum í ar› 830.691.316 hluti í Exista hf. Hluthafar munu fá 1,25 hluti í Exista fyrir hvern hlut í Kaupflingi banka (1,25:1). 16. október 2006 er ar›leysisdagur (e. ex-date), fla› er sá dagur sem vi›skipti hefjast án réttinda til ar›s. Ar›sréttindadagur (e. record date) á Íslandi er a› morgni 16. október 2006 og í Svífljó› flann 18. október 2006. Ar›grei›slan mun fara fram flann 26. október 2006.“ 1 Önnur mál löglega upp borin.2 Fundarstörf fara fram á ensku. Atkvæ›ase›lar og önnur fundargögn ver›a afhent vi› inn- ganginn vi› upphaf fundarins. KAUPfiING BANKI HF. MEÐ undrun og trega horfir maður á vinnubrögð Þjóðleik- húss og Umhverfisstofnunar í tengslum við löngu tímabært viðhald á ytra byrði leikhússins. Fyrst eftir að uppsláttur hófst vegna viðgerða á miðju sumri tóku menn að svipast um eftir silfurbergi og hrafntinnu til múrhúðunar, en hvort tveggja eru fágætar steindir. Morg- unblaðið upplýsti 20. september sl. að ákveðið væri að nema silf- urberg í Breiðdal, hátt í fjalli innan hinnar fornu Breiðdals- eldstöðvar og í dag, 6. október, er forsíðufrétt í sama blaði um að búið sé að skrapa saman með leyfi Umhverfisstofnunar 50 tonnum af hrafntinnu á friðlýstu svæði skammt frá fjölfarinni gönguleið í Hrafntinnuskeri. „Umhverfisstofnun telur best að byrja að tína á því svæði sem liggur næst skála FÍ á Hrafn- tinnuskeri og í átt að brún þess til norðurs. Leyfisveitingin er út gefin 22. september sl. og feng- urinn færður til byggða af Flug- björgunarsveit sem verktaka í tveimur áföngum á 10 dögum. Flest er með ólíkindum við þennan gjörning. Vörsluaðili Friðlands að Fjallabaki heimilar umrætt efnisnám um leið og hann bendir góðfúslega á „… að hrafntinna í hæsta gæðaflokki er fágæt bæði á landsvísu og heimsvísu og náttúruvernd- argildi hennar hátt af þeim sök- um. Hvorki Þjóðleikhús né Um- hverfisstofnun gerðu opinberlega grein fyrir því hvað væri í bígerð og Umhverf- isstofnun steinþagði um um- rædda leyfisveitingu. Því er bor- ið við að Þjóðleikhúsið sé mikilvægur hluti af menningar- arfi þjóðar. Ekki verður um það deilt, en hvað um steindir, fá- gætar á heimsvísu? Maður drúp- ir höfði af skömm yfir slíku framferði í skjóli myrkurs. Skyldi einhverjum detta í huga að flóðlýsa leikhús þjóðarinnar að verki loknu til að minna á þennan harmleik? Hjörleifur Guttormsson Harmleikur utan sviðs í Þjóðleikhúsi Höfundur er fyrrverandi ráðherra og alþingismaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.