Morgunblaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Í FRUMVARPI til fjáraukalaga, sem fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi, er farið fram á að fjárheimildir ríkissjóðs á þessu ári verði auknar um 14,3 milljarða. Í frumvarpinu kemur einnig fram að gert sé ráð fyrir því að heildar- tekjur ríkissjóðs á árinu aukist um 40 milljarða króna frá fjárlagaáætl- un og nemi því 375 milljörðum króna. Meginskýringin er auknar skatttekjur ríkissjóðs. Fyrsta um- ræða um fjáraukalagafrumvarpið fer fram á Alþingi eftir helgi. Í skýringum með frumvarpinu kemur fram að sótt er um 5,5 millj- arða aukna heimild til fjármála- ráðuneytisins. Þar af eru 3 millj- arðar vegna gjaldfærslu afskrifaðra skattkrafna og 2,5 milljarðar vegna launa- og verðlagsmála, einkum vegna hækkunar á launum ófag- lærðra og áhrifa af breytingum á gengi krónunnar á árinu. Einnig er í frumvarpinu farið fram á rúma 2,2 milljarða til heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneyt- isins. Þar af eru 1,9 milljarðar vegna lífeyristrygginga í kjölfar samkomulags við Landssamband eldri borgara. Ennfremur er farið fram á 1,8 milljarða til samgöngu- ráðuneytisins. Þar af er einn millj- arður vegna bætts öryggis á vegum úr höfuðborginni. Jafnframt er farið fram á að fjár- heimildir til dóms- og kirkjumála- ráðuneytisins hækki um 1,2 millj- arða. Þar af eru 500 milljónir til eflingar þyrlusveit Landhelgisgæsl- unnar og 500 milljónir til smíði á nýju varðskipi. Aukinheldur er far- ið fram á að fjárheimild til mennta- málaráðuneytisins aukist um 865 milljónir króna. Þar af eru 240 milljónir vegna fjölgunar nemenda í framhaldsskólum. Þá er lagt til að fjárheimildir landbúnaðarráðuneytisins verði auknar um rúmlega 740 milljónir. Þar af fara tæplega 330 milljónir til að styrkja byggingu reiðhalla. Að lokum má nefna beiðni um að utan- ríkisráðuneytið fái 640 milljónir í aukna heimild. Þar af eru 540 millj- ónir vegna aukinna útgjalda Kefla- víkurflugvallar og vegna öryggis- gæslu í kjölfar brotthvarfs varnarliðsins. Heimildir aukist um 14,3 milljarða Morgunblaðið/Eyþór Þingstörf Annir eru iðulega miklar á þinginu fyrstu dagana. Meðal annars er tekist á um fjárlög og fjáraukalög. Í HNOTSKURN » Í fjáraukalagafrumvarp-inu er m.a. lagt til að veitt verði 31 milljón króna viðbót- arfjárheimild til eflingar lög- gæslu vegna framkvæmdanna á Austfjörðum. Í frumvarpinu kemur fram að lögreglan hafi þurft að viðhafa sólarhrings- vakt við vinnusvæði virkjana- og álversframkvæmda á Aust- fjörðum í sumar. » Gerð er tillaga um aðframlag til Ábyrgðarsjóðs launa lækki um 125 milljónir króna þar sem allt bendir til að útgjöld sjóðsins verði nokk- uð lægri en gert er ráð fyrir í fjárlögum. Fyrstu sjö mánuði ársins voru útgjöld sjóðsins um 300 milljónir. Fyrsta þingvikan gefur væntanlegatóninn að því sem koma skal á þessukosningaþingi. Í umræðum semfram hafa farið á Alþingi í vikunni hafa stjórnarliðar m.a. talað um að mikill efna- hagslegur árangur hafi náðst á kjörtímabilinu; þeir leggja m.a. áherslu á að staða ríkissjóðs sé sterk, að kaupmáttur hafi aukist og störfum hafi fjölgað, svo dæmi séu nefnd. Stjórnarand- stæðingar hafa á hinn bóginn m.a. talað um vaxandi misskiptingu og um leið gagnrýnt rík- isstjórnina fyrir óstöðugleika í efnahags- málum, viðskiptahallann, vaxtahækkanir og verðbólgu. Þetta eru sennilega setningar sem kjósendur eiga eftir að heyra aftur og aftur á kosningavetri. Ljóst er þó að fleiri mál eiga eftir að setja svip sinn á veturinn, eins og t.d. umhverfismál og stóriðjumál. Stjórnarandstæðingar mættu til leiks í upp- hafi þings með því að boða til sérstaks blaða- mannafundar þar sem þeir vildu leggja áherslu á samstöðu sína gegn núverandi rík- isstjórn. Forystumenn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna fylgdu þessu eftir í ræðum sínum, í kjölfar stefnuræðu forsætisráðherra, í byrjum vikunnar og sögðu að markmið stjórnarandstöðunnar væri að koma rík- isstjórnarflokkunum frá völdum í komandi kosningum. Í vikunni hafa síðan litið dagsins ljós nokkur þingmál, sem lögð eru fram sam- eiginlega, af fulltrúum allra stjórnarand- stöðuflokkanna. Þessi yfirlýsing stjórnarandstöðunnar, um að standa saman, hefur þó gefið stjórnarliðum tilefni til þess að hnýta í hana þegar færi gefst. Til að mynda gerði Björn Bjarnason dómsmálaráðherra það að umtalsefni, í um- ræðum um varnarmál í vikunni, að stjórn- arandstaðan væri ekki samstiga í öryggis- og varnarmálum. Vinstri grænir vilja úr NATO, Frjálslyndir vilja vera í NATO og formaður Samfylkingarinnar orðaði það þannig að hún vildi að 7. gr. varnarsamningsins yrði virkjuð og að við færum með varnarmálin inn á vett- vang NATO. Stjórnarandstæðingar hafa þó líka lagt sig fram um að greina ósamstöðu milli ríkisstjórn- arflokkanna og sagði Þórunn Sveinbjarn- ardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, m.a. í umræðunum um varnarmálin að ekki hefði verið samhljómur í ræðum forsætisráðherra og utanríkisráðherra. Sá fyrrnefndi hefði talað í vestur, þ.e. í átt til traustara sambands við Bandaríkin, en sú síðarnefnda, Valgerður Sverrisdóttir, hefði talað í austur, þ.e. í átt til nánara samstarfs við Evrópusambandið. Stjórnarliðar hafa þó af og til í gegnum árin talið ástæðu til að árétta í ræðum sínum traustið í stjórnarsamstarfinu. Jón Sigurðs- son, formaður Framsóknarflokksins, gerði það einnig í ræðu sinni á Alþingi í vikunni er hann sagði: „Samstarfið í ríkisstjórninni og milli stjórnarflokkanna er gott, málefnalegt og farsælt. Það skilar þjóðinni miklu.“ Þingmenn; hvort sem þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu, eru þó ekki alltaf sjálfkrafa ósammála. Þannig var lagafrumvarp eitt af- greitt með hraði og mikilli samstöðu þing- manna á miðvikudagskvöld. Með samþykkt frumvarpsins fær nefnd forsætisráðherra, sem annast á skoðun gagna sem snerta örygg- ismál Íslands á árunum 1945 til 1991, frjálsan aðgang að öllum gögnum í vörslu stjórnvalda sem snerta þessi öryggismál. Mælt var fyrir frumvarpinu kl. 18.04 og það var afgreitt með 36 samhljóða atkvæðum sem lög frá Alþingi kl. 18.33. Gæti verið met! Tónninn sleginn í fyrstu vikunni arna@mbl.is BRÉF FRÁ ALÞINGI Eftir Örnu Schram JÓHANN Páll Símonarson sjó- maður gefur kost á sér í 6. sæti í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík vegna kosninganna næsta vor. Jóhann starf- aði sem sjómaður í mörg ár, lengst af hjá Eimskipafélagi Íslands. Hann hefur tekið þátt í félagsmál- um og var um árabil virkur félagi í Sjómannafélagi Reykjavíkur og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörf- um. Þá hefur hann látið sig öryggis- mál sjómanna varða. Jóhann Páll hefur auk þess ritað blaðagreinar um öryggismál sjómanna og látið til sín taka á þeim vettvangi. Jóhann Páll hefur um langt ára- bil verið virkur í kosningastarfi Sjálfstæðisflokksins í alþingis- og sveitarstjórnarkosningum. Hann hefur einnig stundað nám við stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokks- ins. Gefur kost á sér í 6. sætið Jóhann Páll Símonarson VERNHARÐ Guðnason, for- maður Lands- sambands slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna (LSS), sækist eftir 6. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík 27. og 28. október vegna þingkosninganna í vor. Vernharð er 44 ára, kvæntur og þriggja barna faðir. Samhliða starfi sínu sem for- maður LSS starfar hann sem slökkviliðsmaður og bráðatæknir hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðis- ins (SHS). „Ég tel að reynsla mín af því að vera í forystu fyrir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn í landinu og gæta hagsmuna þeirra í víðum skiln- ingi, ekki síst í kjarabaráttu, muni nýtast mér vel í stjórnmálastarfi. Ég tel einnig brýnt fyrir Sjálfstæðis- flokkinn að fólk með reynslu af fé- lags- og kjaramálum sé í framvarða- sveit flokksins. Löng reynsla mín af því að starfa í þágu almennings sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamað- ur veitir mér einnig sýn á mannlífið og þekkingu á högum fólks, sem er dýrmætt veganesti inn í stjórnmál- in,“ segir í fréttatilkynningu frá Vernharð. Sækist eftir sjötta sæti Vernharð Guðnason ♦♦♦ ÞINGBRÉF BJARNI Harðar- son, fyrrverandi ritstjóri Sunn- lenska frétta- blaðsins og vænt- anlegur bóksali á Selfossi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti á lista Framsókn- arflokksins í Suð- urkjördæmi. Bjarni tilkynnti ákvörðun sína á opnum fundi með forustumönnum Framsóknarflokks- ins á Hótel Selfossi. Bjarni hefur verið skráður í Framsóknarflokkinn í hartnær tvo áratugi en ekki fyrr beitt sér á vettvangi stjórnmálanna að neinu ráði. Hann hefur aldrei ver- ið á lista flokksins; hvorki vegna kosninga til Alþingis né sveitar- stjórnar. Framsóknarmenn í Suðurkjör- dæmi hafa ekki ákveðið hvernig vali á væntanlegum frambjóðendum verður háttað, en margir framsókn- armenn á Suðurlandi vilja viðhafa prófkjör við val á listann. Gefur kost á sér í 2. sæti Bjarni Harðarson RAGNHEIÐUR Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri og oddviti sjálfstæð- ismanna í Mos- fellsbæ, hefur tekið ákvörðun um bjóða sig fram í prófkjöri sjálf- stæðismanna í Suðvesturkjör- dæmi fyrir kom- andi alþingiskosningar sem fram fer 11. nóvember. Ragnheiður sækist eftir 3. sæti listans. Ragnheiður er íslenskufræðingur með uppeldis- og kennsluréttindi frá HÍ og framhaldsnám í menntunar- fræðum með áherslu á stjórnun frá KHÍ. Hún starfaði sem kennari og skólastjóri í yfir 20 ár. Ragnheiður hefur verið oddviti sjálfstæðismanna í bæjarstjórn og bæjarstjóri í Mos- fellsbæ frá 2002 og hefur setið í stjórn Sambands íslenskra sveitarfé- laga frá 2002 og í nefndum á vegum þess. Ragnheiður var tilnefnd af dómsmálaráðherra í verkefnastjórn um nýskipan lögreglumála og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Ragnheiður er kunn fyrir brenn- andi áhuga og þekkingu á mennta- og íþróttamálum og hefur fylgt eftir af krafti úrbótum í samgöngumálum. Ragnheiður er gift Daða Runólfssyni og þau eiga tvö börn og þrjú barna- börn. Sækist eftir 3. sætinu Ragnheiður Ríkharðsdóttir ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.