Morgunblaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 26
daglegt líf 26 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna. Geymið auglýsinguna. Sími 0045 3297 5530 • Gsm 0045 2848 8905 • www.lavilla.dk Kaupmannahöfn - La Villa R O YA L Nýtt frá Te & Kaffi stundin - bragðið - stemningin Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862 Uppskrift?“ spyr GuðnýFriðþjófsdóttir og hlærstríðnislega. „Það erengin uppskrift að þess- ari súpu, strákar mínir, ég elda aldr- ei sömu súpuna tvisvar.“ Ljóst má vera að Guðný hyggst liggja á gull- inu líkt og ormurinn forðum. Hún upplýsir þó að hún sé aldrei með kartöflur í súpunni. „Það passar ekki.“ Það var á hausthátíðinni „Sveita- rómantík“ í síðasta mánuði að Guðný fór með sigur af hólmi á Ís- landsmótinu í kjötsúpugerð. Dóm- endur voru gestir hátíðarinnar og skiptu þeir tugum ef ekki hundr- uðum sem brögðuðu á súpunni. Sig- ur Guðnýjar mun hafa verið örugg- ur. „Ég held það hafi verið tilkynnt hvað súpan mín sigraði með miklum mun en ég heyrði það ekki þar sem ég hafði í svo mörg horn að líta þennan dag.“ Vann fiskisúpukeppnina í fyrra Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Guðný ber sigur úr býtum í súpu- gerð á „Sveitarómantík“ en í fyrra var humarsúpa hennar, „Íslands- súpan“, leidd til öndvegis í fiski- súpukeppninni. „Ég leyfði liðs- mönnum KF Nörd að bragða á þeirri súpu þegar þeir komu hérna í sumar og einhverjir höfðu á orði að þessi súpa hlyti að hafa unnið heimsmeistaramótið. Þeir eru svo miklir herramenn, blessaðir,“ segir Guðný. Hún útilokar ekki að gera atlögu að þriðja Íslandsmeistaratitlinum að ári. „Kannski ég spreyti mig þá á kleinunum.“ Þá er komið að því að bera súp- una á borð. Blaðamaður og ljós- myndari leggja hatt sinn og staf til hliðar. Eftirvæntingin er að bera þá ofurliði. Og súpan stendur undir væntingum – og vel það. Þvílíkt lost- æti. Morgunblaðsmenn ranghvolfa augunum meðan þeir lofsyngja Guð- nýju hvor í kapp við annan. „Jæja, það er gaman að geta glatt ykkur,“ segir meistarinn þakklátur. „Maðurinn minn, börn og tengda- sonur kvarta a.m.k. ekki þótt þau fái kjötsúpu þrjá daga í röð. Vilja hana miklu frekar en pítsu og hamborg- ara. Er ekki sagt að hjartað liggi í gegnum magann? Það hafa margir matarást á mér! Bæði menn og mál- leysingjar, því hundarnir fá afgang- ana.“ Hálfur lítri af vodka Í því vindur Guttormur Jónsson, umsjónarmaður húsanna á Safna- svæðinu, sér inn úr dyrunum. Hefur væntanlega runnið á lyktina. „Hvað, eruð þið mættir svona snemma?“ ávarpar hann gestina. „Sáuð þið Guðnýju kannski slátra rollunni í morgun?“ Kokkurinn hlær. „Ert þú ekki með einhverja súpu- uppskrift handa þeim, Gutti?“ segir Guðný og snýr vörn í sókn. „Það held ég nú,“ svarar Gutti um hæl. „Ég var einu sinni í ofsaveðri á Kili. Þá dró einn ferðafélaginn tvær pakkasúpur úr pússi sínu og hrærði þeim saman. Ég sá svo um að bæta hálfum lítra af vodka út í. Við gróf- um okkur að því búnu í fönn og vöknuðum stálslegnir. Ég er hand- viss um að súpan hefur bjargað lífi okkar.“ Þar með er hann rokinn. Fer aldrei eftir uppskriftum Ekki er hægt að kveðja Guðnýju án þess að spyrja um galdurinn á bak við góðan mat. „Það eru a.m.k. ekki uppskrift- irnar, því ég fer aldrei eftir þeim,“ svarar hún glettin. „Ekki er það heldur námið, því ég hef aldrei lært matreiðslu. Ætli það sé ekki bara ástríðan. Ef maður hefur gaman af því að elda verður maturinn góður.“ Langi menn að bragða á matnum hennar Guðnýjar skal upplýst að hún sér um veitingahúsið á Safna- svæðinu en opið er daglega frá kl. 13–17 á veturna en frá kl. 10–17 á sumrin. Upphaflega var hún með leirverkstæði á svæðinu en tók við eldhúsinu fyrir rúmu ári. „Ég tók við 17. júní 2005 með hlaðborði og hef haft meira en nóg að gera síðan. Leirinn bíður betri tíma.“ Sú dagsetning er við hæfi. Skaga- menn og nærsveitungar geta þá slegið tvær flugur í einu höggi, fagnað afmæli lýðveldisins og deg- inum þegar meistarakokkurinn hóf störf. Eldar sömu súpuna aldrei tvisvar Morgunblaðið/Eyþór Kjötsúpa Þetta er algjört lostæti enda besta súpa landsins. Í eldhúsinu á Safnasvæð- inu á Akranesi kraumar súpa í potti. Það er engin venjuleg súpa – heldur besta kjötsúpa landsins. Orri Páll Ormarsson stendur agndofa yfir pottinum meðan Guðný Friðþjófsdóttir hrærir í verðlaunaverki sínu af mýkt og næmni hins út- farna fagurkera. Meistari Guðný Friðþjófsdóttir hrærir fagmannlega í bestu kjötsúpu landsins. orri@mbl.is Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali ÞAKRENNUKERFI á öll hús – allsstaðar Smiðjuvegi 74 Sími 515 8700 BLIKKÁS –
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.