Morgunblaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 19
EKKI er mögulegt að finna hér við
land steingervinga á borð við þá sem
norskir steingervingafræðingar hafa
fundið við Svalbarða og eru um 150
milljóna ára gamlir.
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að fundist hefðu steingerðar leifar
risastórra skriðdýra sem lifðu í haf-
inu þegar risaeðlurnar reikuðu um
jörðina. Um er að ræða leifar
tveggja útdauðra tegunda lagar-
skriðdýra sem nefnast svaneðlur og
hvaleðlur og hefur steingerving-
unum verið lýst sem „grameðlum
hafsins“.
Norsku vísindamennirnir lýstu
steingervingunum sem „gullnámu“
og undruðust að svo mikið magn
steingerðra leifa skyldi finnast á ein-
um stað. Ein beinagrindanna sem
fundust er svo stór að vísindamenn-
irnir kalla hana „sæskrímslið“.
Arnþór Garðarsson, prófessor í
dýrafræði við Háskóla Íslands, segir
að leifarnar sem fundust við Sval-
barða séu frá miðlífsöld. Berg á Ís-
landi sé innan við 20 milljóna ára
gamalt og því séu engar líkur á því
að finna leifar sem eru eldri en það.
Margt fundist á Svalbarða
frá fyrri jarðlífsöldum
Um fund norsku vísindamann-
anna segir Arnþór að hann hafi ekki
kynnt sér hann til hlítar. Þó sé ekki
óviðbúið að slíkar leifar finnist á
Svalbarða en þar hafi fundist „mjög
margt frá fyrri jarðlífsöldum.
Meginlöndin hefur rekið norður, en
ekki bara í austur og vestur, og
þennan útkjálka hefur rekið frá hita-
beltinu og norðurúr,“ segir Arnþór.
Sennilega sé hið mikla magn hinna
steingerðu leifa sem vísindamenn-
irnir fundu það merkilegasta við
fundinn. Arnþór segir jafnframt að
miklir fundarstaðir steingervinga
séu einnig á Norðaustur-Grænlandi.
Arnþór segir að mjög mikið sé til
af íslenskum steingervingum, þótt
ekki séu þeir 150 milljóna ára gaml-
ir. Þeir séu frá ýmsum tímum, en þó
allir frá því eftir ísöld.
„Hér voru stórir skógar á tertíer-
tímanum [fyrir ísöld],“ segir hann.
Eitthvað af steingervingum hefur
fundist úr þeim segir hann og bendir
á surtarbrandslög og millilög úr
hraunum sem þá runnu. Fundist hafi
steingervingar skordýra og eins
spendýrs, sem þótt hafi merkilegur
fundur.
Reuters
„Gullnáma“ Jørn Harald Hurum, einn norsku vísindamannanna, við hlið
eins steingervinganna sem fundist hafa á Svalbarða.
Grameðlur hafsins Þessi tölvugerða mynd sýnir hvernig lagareðlurnar
litu út þegar þær lifðu í hafinu fyrir um það bil 150 milljónum ára.
Engar leifar
„sæskrímsla“
við Ísland
’„Hér voru stórir skóg-ar á tertíertímanum
[fyrir ísöld].“ ‘
Lúxemborg. AP. | Bandaríska alríkis-
lögreglan, FBI, og fleiri bandarískar
löggæslustofnanir fá aðgang að per-
sónuupplýsingum um farþega, sem
koma með flugi frá Evrópusam-
bandslöndum til Bandaríkjanna,
samkvæmt samkomulagi sem náðist
í gær eftir níu klukkustunda samn-
ingafund. Samkomulagið kemur í
stað samnings frá 2004 sem evrópsk-
ur dómstóll ógilti á lögformlegum
forsendum.
Nýja samkomulagið gildir til júlí á
næsta ári og stefnt er að því að var-
anlegur samningur liggi þá fyrir.
Samkvæmt samkomulaginu hefur
heimavarnaráðuneyti Bandaríkj-
anna ekki sjálfgefinn rétt til að
sækja upplýsingar í tölvukerfi evr-
ópskra flugfélaga, heldur verður að
biðja um gögnin. Bandaríska toll-
gæslan hefur einungis heimild til að
deila upplýsingum um farþega með
öðrum löggæslustofnunum sem
tryggja gagnavernd með sambæri-
legum hætti.
Flugfélögin eiga að senda upplýs-
ingar um 34 atriði um hvern farþega,
þ.á m. nöfn, heimilisföng, sætisnúm-
er, krítarkort og ferðaáætlun þeirra,
til bandarískra yfirvalda í síðasta
lagi 15 mínútum eftir flugtak.
FBI fær gögn um
evrópska farþega
London. AFP, AP. | Jack Straw, fyrr-
verandi utanríkisráðherra Bret-
lands, sagði í gær að hann hefði
áhyggjur af því
að íslamskar höf-
uðslæður væru
„sýnileg yfirlýs-
ing um aðskiln-
að“ frá breska
samfélaginu eftir
að hann hafði
sætt gagnrýni
fyrir að biðja ísl-
amskar konur að
taka af sér slæð-
urnar þegar þær kæmu á skrifstofu
hans.
Straw, sem er nú leiðtogi bresku
stjórnarinnar í neðri deild þingsins,
sagði í reglulegum dálki sem hann
skrifar í blaðið Lancashire Evening
Telegraph að sér þætti óþægilegt að
tala við fólk sem hann sæi ekki.
Hann bæði því múslímakonur sem
kæmu á skrifstofu hans í kjördæmi
hans í Blackburn að taka slæðurnar
af sér.
Virðingarleysi?
Straw útskýrði orð sín í viðtali við
BBC í gær og sagði að með því að
nota slæðurnar væru konurnar að
lýsa því yfir að þær væru ekki hluti
af breska samfélaginu.
Viðbrögðin við ummælum Straws
voru blendin. Nokkrar hreyfingar
breskra múslíma sögðu þau til
marks um virðingarleysi fyrir músl-
ímum. Talsmenn annarra múslíma-
hreyfinga sögðust hins vegar skilja
afstöðu Straws og bentu á að kon-
urnar gætu sjálfar valið hvort þær
notuðu höfuðslæðurnar; það væri
engin skylda.
Vill ekki
slæðurnar
Blendin viðbrögð
við orðum Straws
Jack Straw
www.sigridurandersen.is
Sigríður Andersen
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík
27. og 28. október.
Skemmtileg stund
við Austurvöll
Í dag, laugardaginn 7. október, kl. 15.00
opna stuðningsmenn Sigríðar Andersen
kosningaskrifstofu í Landssímahúsinu
við Austurvöll.
• Tónafljóðin taka lagið
• Barnahorn og hoppukastali
• Heitar vöfflur með rjóma
Allir velkomnir
Stuðningsmenn Sigríðar Andersen
STÓRVIRKI!
SAGA BISKUPS-
STÓLANNA
Fátt er jafngróið íslenskri sögu og
biskupsstólarnir báðir. Saga þeirra
er þjóðarsaga Íslendinga í nærfellt
þúsund ár. Þeir voru höfuðstaðir
trúarlífs landsmanna framan af
öldum en einnig menningar og
mennta og voru umsvifamiklir at-
vinnurekendur til sjávar og sveita.
Má segja að landinu hafi verið
stjórnað þaðan um margra alda
skeið og þar komu við sögu svip-
miklir biskupar og aðrir kirkjuhöfð-
ingjar.
SAGA BISKUPSSTÓLANNA - bók
sem allir Íslendingar verða að
lesa!