Morgunblaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 21
NÝJASTA leiksýning Vesturports,
Hamskiptin eftir Franz Kafka, var
frumsýnd á miðvikudagskvöldið í
Lyric Theatre í Hammersmith-
hverfinu í London. Eins og kom
fram í frétt sem birtist í Morgun-
blaðinu á föstudag var gagnrýnandi
hins virta dagblaðs The Guardian,
Michael Billington, stórhrifinn af
sýningunni og gefur henni fimm
stjörnur af fimm mögulegum sem
kvað vera afar sjaldgæft. Við sama
tón kveður hjá Patrick Marmion,
leiklistargagnrýnanda The Daily
Mail, en þar segir meðal annars að
sýningin sé sú „heitasta“ í bænum.
Tónlistina á geisladisk
Í gagnrýni Billingtons, sem birt-
ist á fimmtudaginn, segir að sigur
sýningarinnar felist í hugvitssam-
legri notkun á líkamanum til að ná
fram hinum sorglega kjarna (ham-
skiptunum) sögunnar. Gísli Örn
Garðarsson fari á kostum í alls kyns
klifri og loftfimleikum sem keyri þó
aldrei úr hófi fram og grafi þar með
ekki undan sálarstríði aðalpersón-
unnar, Gregors Samsa.
Aðrir sem fá hrós hjá Billington
eru Nína Dögg Filippusdóttir sem
leikur systur Gregors en gagnrýn-
andi segir að henni takist stórvel að
miðla til áhorfandans þeim um-
breytingum sem verða á persón-
unni eftir því sem á líður – frá
hjálpsamri systur Samsa til kvalara
hans. Þá fá þeir Nick Cave og Warr-
en Ellis mikið lof fyrir tónlistina
sem honum þykir smellpassa við
verkið.
Patrick Marmion hjá The Daily
Mail er á svipuðum nótum og hrós-
ar sérstaklega leikgerðinni sem er
eftir David Farr, listrænan stjórn-
anda Lyric-leikhússins, og Gísla
Örn Garðarsson. Verkið sé rétti-
lega sett á svið sem fjölskylduharm-
leikur og að þeim takist vel upp við
að staðsetja hinn sálfræðilega sárs-
auka sem liggi harmleiknum til
grundvallar. Að lokum hrósar hann
fyrrnefndum Nick Cave fyrir tón-
listina og segist vona að hann láti
það ekki bíða lengi að gefa tónlist-
ina út á geisladiski.
Hamskiptin sem æfingadýna
En Adam var ekki lengi í paradís,
eins og máltækið segir, og í gagn-
rýni Rohda Koenig, sem birtist í
The Independent á föstudaginn,
kveður við annan tón. Dómurinn
hefst á þessum orðum: „Listrænn
stjórnandi Lyric, David Farr, hefur
sagt frá því að hann og Gísli Örn
hafi komist að því fyrir ári þegar
þeir sátu við skál eitt kvöldið, að
uppáhaldsbókmenntaverk þeirra
beggja væri Hamskipti Kafka. Í
kjölfarið ákváðu þeir að setja verk-
ið á svið og á miðvikudaginn gat að
sjá afrakstur þeirrar vinnu – en nú
verð ég að spyrja: getur verið að
það hafi ekki runnið af þeim félög-
um síðan?“
Koenig er ekki mikið um tónlist
þeirra Ellis og Cave gefið og heldur
því fram að rödd þess síðarnefnda
sé aðeins eitt af því sem aflaga fer í
sýningunni. Gísli Örn leggi allt of
mikla áherslu á líkamlega þáttinn í
stað hins andlega sem hljóti að
fylgja því að vera fastur í líkama
sem lætur ekki að stjórn. Og áfram
heldur Koenig: „Foreldrar Gregors
eru eldra fólk í upphaflegri útgáfu
Kafka en hér eru þeir ungir og lið-
ugir, fimleikafólk sem stekkur upp
á og yfir borð. […] En verst af öllu
er,“ segir Koenig, „að þeir David
Farr og Gísli Örn hafa þurrkað út
leigjendurna þrjá og skapað þess í
staðinn annan, hinn stjórnsama
Herr Fischer sem öskrar að fjöl-
skyldunni: „Sá tími mun koma þeg-
ar okkur tekst að hrekja meindýrið
burt úr samfélagi okkar, og þið er-
uð þar með talin!“ Þessi augljósa
vísun gerir fjölskylduna að fórn-
arlömbum félagslegra aðstæðna í
stað andlegra kvalara.“ Koenig
hrósar að vísu Ingvari E. Sigurðs-
syni og Nínu Dögg fyrir frammi-
stöðu sína en segir að hæfileikum
þeirra sé sóað af höfundum verks-
ins sem noti Hamskipti Kafka sem
æfingadýnu.
Fullt hús öðlast
aðra merkingu
Ólíkar umsagnir um sýningu Vestur-
ports á Hamskiptum Kafka í London
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
18
0
8
7
EKKI VERA ÞINN
VERSTI ÓVINUR
Allir hafa hæfileika. Finndu þína og ræktaðu.
Ekki gefast upp. Leitaðu hjálpar ef þú þarft.