Morgunblaðið - 07.10.2006, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 11
FRÉTTIR
yfirlögregluþjónn umferð-
ardeildar, Friðrik Smári Björg-
vinsson yfirlögregluþjónn rann-
sóknardeildar, Egill Stephensen
saksóknari og yfirmaður ákæru-
deildar, Halldór Halldórsson
framkvæmdastjóri og Sigríður
Hrefna Jónsdóttir starfs-
mannastjóri. Ónákvæmni gætti í
frétt Morgunblaðsins í gær um
deild Egils Bjarnasonar yfirlög-
regluþjóns auk þess sem láðist að
geta Friðriks Smára Björgvins-
sonar. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
GERT er ráð fyrir að staðfesta
formlega nýtt skipurit lög-
reglustjórans á höfuðborgarsvæð-
inu í desember nk. Ný yfirstjórn
lögreglustjóraembættisins lýtur
stjórn Stefáns Eiríkssonar lög-
reglustjóra og eru undirmenn
með áralanga reynslu í lögregl-
unni. Samkvæmt nýju skipuriti
gegna þessir menn eftirtöldum
störfum: Hörður Jóhannesson og
Ingimundur Einarsson aðstoð-
arlögreglustjórar, Geir Jón Þór-
isson yfirlögregluþjónn almennr-
ar deildar, Egill Bjarnason
Yfirstjórn lögreglustjóra
höfuðborgarsvæðisins
Morgunblaðið/Júlíus
GUÐMUNDUR
Steingrímsson,
blaðamaður og
tónlistarmaður,
gefur kost á sér í
prófkjöri Sam-
fylkingarinnar í
Suðvesturkjör-
dæmi. Í fram-
boði sínu mun
Guðmundur leit-
ast við að vera
öflugur talsmaður umhverfismála,
fjölbreyttari atvinnustefnu, aukins
jafnaðar, menntunar, menningar og
lýðræðislegra vinnubragða í stjórn-
málum. Guðmundur óskar eftir
fjórða sætinu, sem er þingsæti.
Guðmundur er BA í íslensku og
heimspeki frá Háskóla Íslands og
með meistaragráður í heimspeki frá
Uppsölum í Svíþjóð og Oxford á
Englandi. Hann var formaður stúd-
entaráðs Háskóla Íslands 1995–96
og sat í háskólaráði í tvö ár. Fimm-
tán ára að aldri varð hann blaða-
maður á Tímanum og hefur starfað
við blaðamennsku með hléum alla
tíð síðan, síðast á Fréttablaðinu.
Hann hefur undanfarin ár látið
skoðanir sínar á hinum ýmsu mál-
efnum í ljós á baksíðu Fréttablaðs-
ins.
Guðmundur hefur starfað við
auglýsingagerð sem hugmynda- og
textasmiður, og í útvarpi og sjón-
varpi sem dagskrárgerðarmaður og
þáttastjórnandi.
Gefur kost á
sér í 4. sætið
Guðmundur
Steingrímsson
JÓNÍNA Bjartmarz umhverfisráð-
herra segir að það hljóti að vera
umhugsunarefni hvort halda eigi
áfram að sækja
hrafntinnu til
viðgerða á Þjóð-
leikhúsinu þegar
næst þurfi að
gera við klæðn-
inguna á því.
Nýlega voru sótt
um 50 tonn af
hrafntinnu inn í
Hrafntinnusker
sem er á frið-
lýstu svæði. Umhverfisstofnun
veitti leyfi til að taka hrafntinnu á
svæðinu.
Jónína sagði aðspurð að sér
hefði ekki verið kunnugt um að
Umhverfisstofnun hefði veitt leyfi
fyrir þessari efnistöku, en stofn-
uninni væri heimilt að veita slíka
undanþágu frá reglum um friðlýs-
ingu friðlands að Fjallabaki. For-
sætisráðuneytið hefði einnig komið
að málinu þar sem friðlandið væri
þjóðlenda og því færi ráðuneytið
með málið sem eigandi landsins.
Forsætisráðuneytið hefði gefið
leyfi til að taka hrafntinnuna.
„Það sem mér finnst umhugs-
unarvert við þetta mál er spurn-
ingin um hvað við eigum að gera
eftir 50 ár þegar aftur þarf að gera
við Þjóðleikhúsið. Það er ekki
endalaust hægt að sækja efni til
viðgerða á húsinu,“ sagði Jónína.
Jónína sagði að á árum áður
hefðu menn notað hrafntinnu eða
önnur fágæt efni á hús hér á landi
og nauðsynlegt væri að ræða hvort
við ættum að leyfa efnistöku til
viðgerða á þeim í framtíðinni.
Umhverfisráðherra benti á að
það væri hægt að framleiða hrafn-
tinnu, en sá kostur hefði ekki verið
tekinn að þessu sinni, en það væri
eðlilegt að skoða þann kost betur.
Hrafntinna fágæt á heimsvísu
Í leyfi Umhverfisstofnunar frá
22. september sl. kemur fram að
hrafntinna í hæsta gæðaflokki sé
fágæt bæði á landsvísu og á heims-
vísu og náttúruverndargildi henn-
ar sé hátt af þeim sökum. Stofn-
unin telur því ekki hægt að gera
ráð fyrir því að hægt verði að taka
hrafntinnu úr Hrafntinnuskeri í
framtíðinni. Stofnunin bendir á að
þessi sérstaka bergtegund hafi
mikið sjónrænt gildi sökum hins
svarta gljáandi litar síns.
Hrafntinnan var tínd með hönd-
um og flutt á sexhjólum úr Hrafn-
tinnuskeri. Rakað var yfir öll hjól-
för á svæðinu.
Ráðherra vissi ekki
um efnistökuna
Hvernig á að gera við Þjóðleikhúsið í framtíðinni?
Jónína Bjartmarz
Morgunblaðið/Golli
FÁAR stofnanir hafa sýnt áhuga á
þátttöku í sameiginlegu útboði á
fjarskiptaþjónustu hins opinbera, en
samgönguráðuneytið hefur frá því í
febrúar unnið að því að fá stofnanir
ríkisins til þess að taka þátt í slíku
útboði. Málið var rætt á ríkisstjórn-
arfundi í gær, en í minnisblaði sem
samgönguráðherra lagði fram á
fundinum segir að í þingsályktun um
stefnu í fjarskiptamálum fyrir árin
2005–2010 sé meðal annars kveðið á
um að unnið verði að því að allar
helstu stofnanir verði tengdar öflugu
háhraðaneti.
Segir í minnisblaðinu að sam-
gönguráðuneytið hafi átt frumkvæði
að hinu sameiginlega útboði en fljót-
lega hafi fjármálaráðuneytið einnig
tekið þátt í því. Ákveðið var í vor að
Vegagerðin leiddi vinnuna.
Hingað til hafi hins vegar aðeins
menntamálaráðuneytið og Heil-
brigðisstofnunin á Hólmavík sýnt
áhuga á þátttöku í útboðinu. Var rík-
isstjórnin á fundinum í gær hvött til
þess að ráðuneytin legðu ríka
áherslu á sameiginlegt útboð á fjar-
skiptaþjónustu hins opinbera.
Lítill áhugi
á útboði á
fjarskipta-
þjónustu
:
Skóverslun - Kringlunni
Sími 553 2888
Teg. 75231
Stærð 36-42
Litur Svart, brúnt
og Camel
Verð 12.900,-
Teg. 75365
Stærð 36-42
Litur Svart, brúnt
og grábrúnt
Verð 13.995,-
Teg. 75280
Stærð 36-42
Litur Svart og brúnt
Verð 14.950,-
Teg. 75330
Stærð 36-42
Litur Svart, brúnt og
svargrænt
Verð 14.900,-
Teg. 75053
Stærð 35-42
Litur Svart/grænbrúnt
Verð 15.995,-
Teg. 75049
Stærð 35-42
Litur vart/brúngrænt
Verð 16.995,-
Haustlínan
komin
Mikið úrval
Einnig Hispanitas
leðurtöskur