Morgunblaðið - 07.10.2006, Síða 30
Íhundrað ára gömlu húsi viðSuðurgötuna búa sviðs-listamennirnir Katrín Hall,sem er listrænn stjórnandi Ís-
lenska dansflokksins, og Guðjón
Pedersen, leikhússtjóri Borgarleik-
hússins, ásamt dansandi unglings-
syni og sex ára prinsessu. Húsið hef-
ur tilheyrt fjölskyldu Guðjóns
nánast frá upphafi en segja má að
fyrstu skrefin að „endurreisn“ þess
hafi verið tekin fyrir tíu árum þegar
þau hjón fluttu þar inn.
„Þetta er algert eilífðarverkefni,“
segir Katrín sem hefur tekið sér hlé
frá annasömum undirbúningi októ-
bersýningar dansflokksins til að
taka á móti ljósmyndara og blaða-
manni. „Við tókum við húsinu árið
1996 en þá var þessi hæð skrifstofu-
húsnæði sem við þurftum að koma í
íbúðarhæft ástand. Til dæmis var
ekkert eldhús í húsinu og við byrj-
uðum því á að ganga herbergi úr
herbergi til að ákveða hvar það ætti
að vera. Þar sem við erum mikið eld-
húsfólk völdum við einfaldlega
stærsta herbergið sem er með
stórum gluggum og mikilli birtu.“
Stórir gluggar eru reyndar eitt af
því fyrsta sem gestir taka eftir þeg-
ar komið er inn, sem og hversu hátt
er til lofts, en Katrín upplýsir að
lofthæðin sé 3,30 metrar. Aldur
hússins leynir sér heldur ekki á
byggingarstílnum og val þeirra
hjóna á húsgögnum og munum und-
irstrikar einkenni hússins enn frek-
ar. „Ég hef mjög gaman af því að
halda í þetta gamla og blanda því
svolítið saman við það sem nýrra
er,“ segir hún.
Allt frá A til Ö
Eftir því sem gengið er í gegnum
húsið segir Katrín sögur af gripum
sem við blasa; kristallsljósakrónu
sem tekin var með í handfarangri frá
Köln, blöndunartækjum sem keypt
voru í Frakklandi fyrir u.þ.b. 12 ár-
um, veggfóðri sem pantað var frá
Bandaríkjunum, litháískum íkona
sem á sér mörg hundruð ára sögu og
svo mætti lengi telja. „Við eigum það
til að sanka að okkur alls kyns hlut-
um og geyma þar til þeir allt í einu
finna sér sinn stað,“ segir Katrín.
„En svo eru líka húsgögn og munir
hérna sem fylgdu húsinu eða við höf-
um erft frá ættingjum okkar sem
okkur þykir afar vænt um.“
Gömlum húsum fylgir mikil vinna
enda segir Katrín stöðugt ein-
hverjar framkvæmdir fyrir dyrum.
„Við erum búin að vera að síðan við
fluttum hingað inn enda þurfti að
taka allt í gegn frá A til Ö. Til að
mynda er búið að endurnýja bæði
rafmagn og pípulagnir. Það þurfti að
grafa fyrir dreni hringinn í kringum
húsið og fyrir nokkrum árum gerð-
um við sólpall sem var mjög góð við-
bót við húsið.“ Þá er búið að klæða
tvær hliðar hússins og taka hluta
glugganna í gegn, auk allrar þeirrar
vinnu sem unnin hefur verið innan-
dyra. Má þar nefna svefnherbergi
þeirra hjóna sem áður gegndi hlut-
verki kolageymslu og baðherbergið
Hús með ríka sögu
Katrín Hall og maður
hennar hafa staðið í
ströngu undanfarin ár við
að gera upp húsið sem
þau fluttu í fyrir tíu ár-
um. Hún sýndi Bergþóru
Njálu Guðmundsdóttur
„eilífðarverkefnið“ svo-
kallaða og alls kyns dýr-
gripi sem gengið hafa í
gegnum hin undarleg-
ustu ævintýr.
Morgunblaðið/Eyþór
Miðpunkturinn „Okkur langaði að halda í stíl hússins í stað þess að fá nútímainnréttingu,“ segir Katrín um eldhúsið sem er staður allrar fjölskyldunnar.
Dyngja heimasætunnar Ábreiðan og himnasængin urðu á vegi
mæðgnanna í verslun í Frakklandi síðastliðið sumar.
Borðstofan Gylltu rósetturnar kostuðu þau hjón mikla handavinnu og
töluverðan hálsríg. Ljósakrónan var tekin með í handfarangri frá Köln.
Gamli stíllinn Amma Guðjóns átti klukk-
una en stjakann gaf hann Katrínu í jólagjöf.
lifun
30 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ