Morgunblaðið - 07.10.2006, Side 44

Morgunblaðið - 07.10.2006, Side 44
44 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR HEIMSMEISTARAEINVÍGI Fide heimsmeistarans Veselin Topa- lovs og ,,klassíska“ heimsmeistarans Vladimir Kramniks átti að sameina skákheiminn um einn heimsmeist- ara. Einvígið er haldið í Elista, höf- uðborg sjálfstjórnarhéraðsins Kalmýkíu í Rússlandi, en forseti FIDE, Kirsan Iljumzhinov, er þar héraðsstjóri. Þegar fjórum skákum var lokið leiddi Rússinn Kramnik einvígið með þrem vinningum gegn einum vinningi Búlgarans Topalovs. Tæpum sólarhring eftir að fjórðu skákinni lauk barst kærunefnd ein- vígisins kvörtun Topalovs og hans manna þar sem rússneski andstæð- ingurinn var sakaður um að hafa óhreint mjöl í pokahorninu, nánar tiltekið, Kramnik á að hafa farið óeðlilega oft á klósettið á milli leikja. Deilan fór í mikinn hnút þar sem báðir keppendur hótuðu að hverfa frá einvíginu en niðurstaða kæru- nefndarinnar varð sú að hamla keppendum að nota þau salerni sem væru í hvíldarherbergjum þeirra. Kramnik taldi þessa ákvörðun ólög og mætti ekki í fimmtu skák einvíg- isins. Kirsan, forseti FIDE, var staddur í Sochi á ráðstefnu héraðs- höfðingja í S-Rússlandi þegar þetta átti sér stað en dreif sig þaðan og kom á vettvang til að forða samein- ingareinvíginu frá glötun. Niður- staðan varð sú að kærunefndin sagði af sér eftir að hafa viðurkennt að hafa úrskurðað rangt en úrslit fimmtu skákarinnar voru látin standa og einvígið skyldi halda áfram. Kramnik féllst nauðbeygður á þessa lausn mála gegn því að hann myndi tefldi undir mótmælum og áskildi sér rétt til að höfða mál gegn FIDE. Skákir þessa miklu kappa hafa fallið í skuggann af þessari deilu. Kramnik hélt jöfnu með svörtu í þrem skákum í röð en hann hafði svart í fjórðu skákinni, sjöttu og sjö- undu. Hinsvegar í þeirri áttundu gerðist þetta: Hvítt: Vladimir Kramnik (2743) Svart: Veselin Topalov (2813) 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 e6 5. e3 Rbd7 6. Bd3 dxc4 7. Bxc4 b5 Topalov hefur sjaldan telft þessa byrjun með svörtu en andstæðingur hans hefur gert það þeim mun oftar. Næsti leikur hvíts er afar rólegur og er það í samræmi við skákstíl Rúss- ans. 8. Be2 Bb7 9. O-O b4 10. Ra4 c5 11. dxc5 Rxc5 12. Bb5+ Rcd7 13. Re5 Dc7 14. Dd4 Hd8 15. Bd2 Allt hefur þetta sést áður en eins og áður lék Topalov upphafsleikjun- um með miklum hraða. Næstu tveir leikir hans leiða í ljós hvað hann hafði í huga. Sjá stöðumynd 1 15... Da5!? 16. Bc6 Be7!? Með þessum leik skapar svartur nokkurn usla og dugði það til að Kramnik færi út af sporinu. 17. Hfc1? Svo virðist sem 17. b3 hafi í senn verið öruggari og rökréttari leikur. Framhaldið gæti þá orðið: 17...O-O 18. Bxd7 Rxd7 19. Rxd7 e5 20. Dxe5 Dxe5 21. Rxe5 Hxd2 og hvítur stendur aðeins betur að vígi. Í fram- haldinu fær svartur tvo létta menn gegn hrók. 17... Bxc6 18. Rxc6 Dxa4 19. Rxd8 Bxd8 20. Dxb4 Dxb4 21. Bxb4 Rd5 22. Bd6 f5! Þessi leikur treystir stöðu svarts á miðborðinu og undirbýr að koma hróknum í spilið með því að leika Ke8-f7. 23. Hc8 R5b6 24. Hc6 Be7 25. Hd1 Kf7 26. Hc7 Ha8 27. Hb7 Ke8 28. Bxe7 Kxe7 29. Hc1 a5 30. Hc6 Rd5 31. h4 h6 32. a4 g5 33. hxg5 hxg5 34. Kf1 g4 35. Ke2 R5f6 36. b3 Re8 37. f3 Á yfirborðinu lítur út fyrir að hvít- um hafi tekist að halda taflinu vel gangandi en í raun og veru stendur svartur vel að vígi. Næsti leikur svarts er sterkur. Sjá stöðumynd 2 37... g3! 38. Hc1 Ref6 39. f4? Nú verður e4-reiturinn óverjan- legur og svörtum tekst að virkja alla menn sína í sókn gegn hvíta kóng- inum. 39...Kd6 40. Kf3 Rd5 41. Kxg3 Rc5 42. Hg7 Hb8 43. Ha7 Hg8+ 44. Kf3 Re4 45. Ha6+ Ke7 46. Hxa5 Hg3+ 47. Ke2 Hxe3+ Sjá stöðumynd 3 Svartur stendur nú auðveldlega til vinnings og lokin urðu þessi: 48. Kf1 Hxb3 49. Ha7+ Kf6 50. Ha8 Rxf4 51. Ha1 Hb2 52. a5 Hf2+ og hvítur gafst upp. Með þessum sigri Topalovs er staðan í einvíginu jöfn, 4-4. Um tólf skáka einvígi er að ræða svo að afar spennandi verður að fylgjast með síðustu skákunum. Allra veðra er von í samskiptum keppenda og mótshaldara svo að óvíst er að ein- vígið verði til lykta leitt. Á hinn bóg- inn á níunda skákin að fara fram í dag, laugardaginn 7. október. Það er hægt að fylgjast með gangi mála í beinni útsendingu á heimasíðu móts- ins, http://www.worldc- hess2006.com/main.asp. Guðmundur varð skákmeistari TR Guðmundur Kjartansson vann nokkuð sannfærandi sigur í A-flokki Haustmóts Taflfélags Reykjavíkur. Stutt jafntefli í lokaumferðinni gegn Torfa Leóssyni tryggði honum sig- urinn. Lokastaða A-flokksins varð annars þessi: 1. Guðmundur Kjartansson (2291) 7 vinn- inga af 9 mögulegum. 2. Lenka Ptácníková (2193) 6½ v. 3. Ingvar Jóhannesson (2289) 6 v. 4. Sigurbjörn Björnsson (2342) 5½ v. 5. Torfi Leósson (2147) 4½ v. 6.–7. Hjörvar Steinn Grétarsson (2139) og Tómas Björnsson (2180) 4 v. 8.–9. Hrannar Baldursson og Stefán Bergs- son (2133) 3½ v. 10. Jóhann H. Ragnarsson (2111) ½v. Í B-flokki urðu Atli Freyr Krist- jánsson (1905) og Vilhjálmur Pálma- son (1805) jafnir og efstir með 6½ vinning en Atli fékk fleiri stig og tryggði sér þar með þátttökurétt í A-flokki að ári. Þórir Benediktsson vann með yfirburðum í C-flokki en hann fékk 8 vinninga af 9 mögu- legum. Nánari upplýsingar um mót- ið er að finna á www.skak.is. Topalov jafnar metin Kramnik og Topalov takast enn í hendur og að þessu sinni fyrir 8. skákina. Stöðumynd 1. Stöðumynd 2. Stöðumynd 3. SKÁK Heimsmeistaraeinvígið Elista, Rússlandi 23. september–10. október 2006 Helgi Áss Grétarsson daggi@internet.is ✝ Guðrún JónaJónsdóttir fæddist á Hvítanesi við Ísafjarðardjúp, 24. mars 1923. Hún lést á Sjúkrahúsi Bolungarvíkur 27. september síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Karól- ína Rósinkransa Karvelsdóttir, f. 5.9.1892, d. 12.6. 1966, og Jón Jóns- son, f. 15.8. 1884, d. 20.10. 1945. Systk- ini Guðrúnar eru Sigurður Jónas Jónsson, f. 6.10. 1926 og Karin Rosin Jónsdóttir D’Arezzo, f. 5.11. 1933. Hinn 8.6. 1963 giftist Guðrún Bjarna Jónssyni, f. 13.1. 1922, d.11.8. 1999. Börn Guð- rúnar eru Rósa Harðardóttir, Jón Gunnar Þórisson, Kristín Margrét Bjarnadóttir og Jón Valdimar Bjarna- son. Barnabörnin eru 6 og lang- ömmubörnin eru 9. Guðrún verður jarðsungin frá Hólskirkju í Bol- ungarvík í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Þegar ég var unglingur varð ég þeirrar gleði aðnjótandi að búa eitt sumar á heimili Gunnu og Bjarna í Bolungarvík. Auðvitað höfðum við hist fyrir þann tíma og ég þekkti al- veg hlýja brosið hennar og smitandi hláturinn en þetta var einhvern veg- inn öðruvísi, um leið og ég kom á heimili hennar umvafði hún mig vin- semd og alúð og ég fann að hún leit á mig eins og einn af fjölskyldunni og þannig leið mér. Stolt og ánægð sýndi hún mér heimili sitt snyrti- legt, smekklegt og látlaust, og svo herbergið sem hún hafði undirbúið fyrir mig til að vera í yfir sumarið, og bar það allt húsmóður sinni gott vitni, því það var Gunna, húsmóðir fram í fingurgóma, og þó að hún hafi verið að vinna í fiskinum eins og aðrar húsmæður í Víkinni sá hún um heimili sitt og fjölskyldu með ánægju og gleði. Þó að langt sé síð- an þetta var bý ég enn að minning- unni um þessar hlýju móttökur og um þetta sumar sem gaf mér svo mikið. Elsku Gunna mín, takk fyrir sum- arið okkar og takk fyrir þitt hlýja bros og hláturinn sem sisona vakti alltaf gleði í hjarta mér. Ó Verundarson! Paradís þín er ást Mín; endurfundirnir við Mig himneskt heimili þitt. Gakk þar inn og tef eigi. Þetta er það, sem þér er fyr- irbúið í konungsríki Voru á hæðum og upphöfnu ríki Voru. (Bahá’u’lláh.) Kær kveðja Sólbjörg. Guðrún Jóna Jónsdóttir FRÉTTIR Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist val- kosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Co- unt). Ekki er unnt að senda lengri grein. Minningargreinar FRÁ ÁRINU 2003 hefur verið boðið upp á sérstaka kennslu fyrir geðsjúka og heilaskaðaða þar sem slíkt hafði ekki verið í boði áður. Í vetur stunda rúmlega 80 manns nám við þetta samstarfsverkefni Fjölmenntar og Geðhjálpar. Áætlað er að kostnaður nemi um 24 milljónum kr. á hverju kennsluári, grundvallað á þörf og byggt á rauntöl- um sem kynntar hafa verið menntamálaráðuneytinu frá upphafi verkefnisins. Ár eftir ár hefur óvissa ríkt um fjármögnun verkefnisins. Í desember árið 2004 var samþykkt á fundi ríkisstjórn- arinnar að tryggja fé til rekstursins og menntamálaráð- herra falið að framfylgja þeirri ákvörðun. Við þetta hefur ekki verið staðið. Öllum kennurum hefur því enn á ný verið sagt upp störfum og ekkert annað blasir við en þessi hópur geðsjúkra og heilaskaðaðra verði sviptur eina möguleika sínum til menntunar við þeirra hæfi. Stjórn Geðhjálpar beinir eftirfarandi áskorun til rík- isstjórnar Íslands: Tafarlaust verði tryggt fjármagn til rekstursins á yfirstandandi skólaári. Teknar verði upp viðræður milli Fjölmenntar og ríkisstjórnar um framtíð- arskipan menntunar fyrir geðsjúka og heilaskaðaða. Stjórnvöld eiga að starfa á grundvelli sáttmála um sam- félag og samhjálp, sem bundinn er í stjórnarskrá lýðveld- isins Íslands. Þar segir m.a.: „Öllum skal tryggður í lög- um réttur til almennrar menntunar og fræðslu við hæfi.“ ( 76. grein). Stjórn Geðhjálpar heitir því að leita allra leiða til að hrinda þessari árás á mannréttindi geðsjúkra. Geðhjálp skorar á ríkisstjórn Íslands Þökkum hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, EGILS HJARTARSONAR leigubifreiðastjóra Skaftahlíð 32. Hjörtur Egilsson, Erna Hannesdóttir, Kristín Egilsdóttir, Þorsteinn Aðalsteinsson, Finnur Egilsson, Guðbjörg Einarsdóttir, Ingunn Egilsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru KRISTÍNAR SVEINSDÓTTUR frá Hríshóli, Reykhólahreppi, Vitateigi 5, Akranesi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki lyflækningadeildar Sjúkrahúss Akraness fyrir alúðlega umönnun í löngu veikindaferli. Garðar Halldórsson, Gígja Garðarsdóttir, Sigurður Guðjónsson, Gunnar Þór Garðarsson, Lilja Ellertsdóttir, Alda Garðarsdóttir, Guðmundur Viggósson, Svavar Garðarsson, Sveinn Vilberg Garðarsson, Elsa Guðlaug Geirsdóttir, Ingimar Garðarsson, Anna Signý Árnadóttir, Halldór Garðarsson, Anna Edda Svansdóttir og ömmubörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.