Morgunblaðið - 07.10.2006, Side 51

Morgunblaðið - 07.10.2006, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 51 menning KURT Elling hefur verið kjörinn djasssöngvari ársins sl. þrjú ár af gagnrýnendum bandaríska tónlist- artímaritsins Down beat. Það segir ekki mikið því þar hafa stórsnill- ingar djassins oft átt erfitt upp- dráttar – fyrrum væru þeir svartir en nú ef þeir eru ekki bandarískir. Ég hef aldrei verið jafnhrifin af söngvurum og söngkonum. Það eru ekki margir karlar sem búið hafa yfir hinni hreinu djassrödd, hafi þeir ekki verið virtúósar á hljóðfæri eins og Louis Armstrong, Jack Teagar- den eða Chet Baker. Ekki má þó gleyma Jimmy Rushing og Joe Williams, sem er magnaðasti djass- bariton allra tíma, svo og eina söngv- aranum núlifandi sem ég held upp á að gagni; Jon Hendricks. Skattið hans og textarnir við sólóa djass- meistaranna eru gulls ígildi. Af hon- um hafa menn á borð við Mark Murphy og Kurt Elling lært hvað mest en saxófónsólóarnir blómstra ekki jafnt í raddböndum þeirra. Það sýndi best flutningur Ellings í Aust- urbæjarbíói á útgáfu Dexters Gord- ons á „Body And Soul“. Skemmti- lega gert og tæknilega vel útfært en bliknaði þegar maður setti fyr- irmyndina á fóninn. Hendricks hefur oft þolað slíkan samanburð, en varla fleiri. Aftur á móti hafði ég mjög gaman af trylltu skatti Ellings í ópusi vinar Dexters, „Wardell Gray: The Squirrels“. Þar lék Hobegoode makalausan píanósóló með tærum línum þótt boppið ólgaði undir og gamli góði Múlaflygillinn stóð sig með prýði. Skattið í „April in Paris“ var aftur á móti ekki jafngott og mér fannst Elling ekki heillandi í klass- ískum söngdönsunum einsog „My Foolish Heart“. Það skal viðurkennt að Elling er teknískur söngvari sem kann sitt fag til hins ýtrasta og aðdá- endur á hann nóga – við mér ýtti hann bara ekki þó að Jamie Cullum geti meira að segja gert það á stund- um. Þegar kemur að mannsröddinni er smekkurinn öllu sterkari. Sem betur fer skemmtu flestir áheyr- endur sér konunglega í Austurbæ og átti meistaratrommarinn Villi þriðji sinn þátt í því þó greinilega sé hann nýliði í hópnum, en hinn trausti en fyrirferðarlitli bassaleikari Amster studdi hann dyggilega. Blendnar tilfinningar til söngstjörnu TÓNLIST Jazzhátíð Reykjavíkur: Austurbær Kurt Elling söngur, Laurence Hobgoode píanó, Rob Amster bassa og Willie Jones III trommur. Laugardagskvöldið 30.9. kl. 20:30. Kurt Elling og tríó Laurence Hobgoode Vernharður Linnet Vinsæll „Elling er teknískur söngv- ari sem kann sitt fag til hins ýtrasta og aðdáendur á hann nóga.“ TAKTU eitt skref áfram, íhugaðu hvað það var langt. Taktu þá annað helmingi styttra og gerðu eins. Í þriðja skiptið tekurðu skref sem er fjórðungur þess venjulega. Þetta er kannski ekki ákjósanlegasta skref- stærð til göngutúra, en gæti þó verið skemmtileg tilbreyting. Það eru einmitt fjórðungsskrefin sem einkenna músíkina á tónleikum Kammersveitar Reykjavíkur í Lista- safni Íslands annað kvöld. Rut Ing- ólfsdóttir, konsertmeistari og for- svarsmaður sveitarinnar, segir að rauði þráðurinn í verkunum fjórum sem þar verða leikin sé kvarttónar, – tónbil sem eru fjórðungur af venju- legu heiltónsbili. Kvarttónar eru al- gengir í tónlist ýmissa annarra menningarsvæða, til dæmis á Ind- landi, en voru fátíðir í vestrænni tón- list þar til á tuttugustu öld. Rut segir að stjórnandi tónleik- anna, Jan Söderblom, sé einstaklega góður. Hann er virtur fiðluleikari, en lagði einnig fyrir sig hljómsveitar- stjórn. Kennarar hans í þeirri grein eru ekki ómerkari snillingar en Leif Segerstam og Jorma Panula, sem kennt hefur öllum kunnustu hljóm- sveitarstjórum Finna síðustu árin. Einleikarar á tónleikunum eru Einar Jóhannesson klarinettuleikari og Mikko Luoma, sem þykir einn flin- kasti harmónikkuleikari á Norður- löndunum í dag. Íslenska verkið verður Arma Vir- umque Cano eftir Gunnar Andreas Kristinsson, en Kammersveitin flutti verkið fyrst á Myrkum músikdögum árið 2005. Hlaut það mikið lof og seg- ir Rut það ánægjuefni að það skyldi vera valið til flutnings á hátíðinni nú. Einar Jóhannesson leikur einleik í verki Karin Rehnqvist frá Svíþjóð, en það ber heitið Á framandi strönd. Harmónikkusnillingurinn Mikko Luoma leikur verk landa síns Jukka Tiensuu, Spiriti. Langsam und Schmächtent heitir verk norska tón- skáldsins Eivinds Buene, en hann er nemandi norska Norðurlandaverð- launatónskáldsins Olavs Antons Thommessens, en þann flokk skipar einnig landa þeirra Karin Rehqvist. Kammersveitin er þekkt sem einn af máttarstólpum íslensks tónlistar- lífs. Þótt verkefnaval hennar sé fjöl- breytt hefur hún sérhæft sig í flutn- ingi íslenskrar samtímatónlistar. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Kvarttónar Sameiginlegur þráður í Norrænu verkunum fjórum sem leikin verða á tónleikunum, eru kvarttónar. Kammersveitin í Listasafninu Finnskur harmónikkusnillingur leikur einleik Upplifðu enska boltann á mbl.is! Vertu með á nótunum og fylgstu með enska boltanum á Meðal efnis á vefnum er: • Daglegar fréttir af enska boltanum • Getraunaleikurinn „Skjóttu á úrslitin“ með veglegum vinningum • Staðan í deildinni og úrslit leikja • Boltablogg • Yfirlit yfir næstu leiki • Tenglar á vefsíður stuðningsmannaklúbba Taktu þátt í getraunaleiknum „Skjóttu á úrslitin“ og þú gætir verið á leiðinni á leik í Ensku úrvalsdeildinni í boði Iceland Express H ví ta h ú si ð / S ÍA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.