Morgunblaðið - 12.10.2006, Page 30
arnefndu eru mörg í miðborginni og
má þar nefnda Abbeys Theatre
(www.abbeytheatre.ie) og Gate
Theatre (www.gate-theatre.ie). Í
tónlistarhúsinu National Concert
Hall (www.nch.ie) eru auk ópera
haldnir tónleikar af ýmsu tagi. Í
nokkrum menningarhúsum er einnig
boðið upp á reglulegar danssýning-
ar, en írski steppdansinn ásamt
írskri þjóðlagahefð er órjúfanlegur
og óviðjafnanlegur hluti menningar-
innar á eyjunni. Dublin er auk þess
vinsæll viðkomustaðustaður heims-
frægra söngvara og hljómsveita og á
næstunni verða þar m.a. Tom Jones,
Gypsy Kings, James Brown, Pink og
Christina Aquilera með tónleika.
www.eventguide.ie
Verslunargatan Grafton Street ,
Dublin 2
Aðalverslunargata Dublinar,
Grafton Street minnir á litla þorps-
Þjóðminjasafnið National Museum
of Ireland, Kildare Street, Dublin 2
Áhugavert safn með fjölmörgum
minjum frá forsögulegum tíma á Ír-
landi, steinöld, brons- og járnöld en
þar er einnig farið yfir miðaldirnar
og sögu Kelta og víkinga í landinu.
Safnið er auðvelt yfirferðar og gefur
góða innsýn inn í mannkynssöguna
og Íra. Flestir Íslendingar hafa líka
sérstaklega gaman af því að skoða
svæðið frá víkingatímanum enda
margt þar sem kemur kunnuglega
fyrir sjónir. www.museum.ie
Bjórverksmiðjan Guinness Store-
house , St. Jame’s Gate
Mörgum þykir bjórsopinnn góður
og það á ekkert síður við um Íra en
aðrar þjóðir. Þeir eru virkilega stolt-
ir af sínum dökka Guinness. Innlend-
um jafnt sem erlendum gefst kostur
á að skoða safn og verksmiðju Guin-
ness í Dublin og það er gífurlega vin-
sælt. Á laugardagseftirmiðdegi get-
ur röðin af fólki verið allt að 20–40
metra löng, svo það er betra að koma
í fyrra fallinu!
www.guinness-storehouse.com
Vískiframleiðandinn Old Jameson
Distillery, Bow Street
Írar eru líka frægir fyrir viskíið
sitt, Jameson, og þeirra safn og
verksmiðja er líka vinsæll áfanga-
staður ferðamanna. Í lok skoðunar-
ferðar er að sjálfsögðu boðið upp á
hinar dýrindisveigar. www.jameson.ie
Háskólinn Trintiy College, College
Green, Dublin 2
Írski háskólinn Trinity College er
í sama gæðaflokki og hinir bresku
Oxford og Cambridge. Fallegar
byggingarnar og garðarnir eru skoð-
unarverðir ásamt bókasafninu, The
Trinity Library, en þar eru geymdar
helstu bókmenntaperlur Íra.
www.tcd.ie
Næturlífið í Temple Bar, Dublin 2
Í Temple Bar hverfinu er nætur-
lífið næstum jafnfjörugt og í Reykja-
vík en flestar krár loka engu að síður
um miðnættið. Í Dublin eru um 1.000
barir og krár og það er því um auð-
ugan garð að gresja og alls konar
stemmningu að finna. Að sitja á
heimilislegri írskri krá er ómissandi
fyrir þá sem vilja komast örlítið nær
írsku þjóðarsálinni en það kjaftar
oftar en ekki á borgarbúum hver
tuska. Í hverfinu er einnig margir
listamenn með aðstöðu og sýningar á
samtímalist.
Menningin í miðborginni
Menningin í Dublin blómstrar,
jafnt tónlist sem leikhús en þau síð-
götu og þar er Þorláksmessu-
stemning allar helgar. Göngugatan
var gerð upp fyrir nokkrum árum og
er heildarmyndin einstaklega vel
heppnuð. Búðirnar eru allar „írskar“
í ytra útliti, jafnt hinar alþjóðlegu
keðjur sem innlendar verslanir eins
og Dunnes Stores og verðlagið er
jafnvel hagstæðara en í mörgum evr-
ópskum stórborgum.
Við götuna er einnig Harrods
þeirra Dublinarbúa, verslunarmið-
stöðin Thomas Brown. Írar leggja
mikla áherslu á handverk og við
Grafton Street og aðrar verslunar-
götur eins og Henry Street, er fjöldi
sérverslana með silfur, skartgripi,
antík og fjölbreyttar írskar prjóna-
vörur. www.dublintourist.com/directory/
shopping
Rithöfundarsetrið James Joyce
Centre, No. 35 North Great
George’s Street
James Joyce (1882–1941) er einn
af mörgum merkum rithöfundum
Íra sem haft hafa aðsetur í Dublin og
eru menjar hans víða um borgina.
Mörgum finnst bækur Joyce erfiðar
yfirlestrar, hin fræga Ulysses og
Finnegans Wake, sem báðar eru
tímamótaverk á enskri tungu. Smá-
sagnasafn hans, Dubliners, er hins
vegar fínt fyrir byrjendur auk þess
að vera skemmtilegur aldarspegill á
samtíma rithöfundarins. Á meðal
annarra merkra rithöfunda sem
tengjast Dyflinni eða Írlandi má
nefna nóbelsverðlaunaskáldin W.B
Yeats, sem hlaut verðlaunin árið
1923, G.B Shaw (1925), Samuel Bec-
Morgunblaðið/Þorkell
Borgarlíf Menningin í Dublin blómstrar, enda borgin skemmtileg heim að sækja.
Áhugaverðir
staðir – topp 10
Verslunargatan Á Grafton street
er að finna fjölda verslana.
Líflegt næturlíf Um 1.000 barir eru
í Temple Bar hverfinu.
kett (1969) og Seamus Heaney
(1995). www.jamesjoyce.ie
Dublinarkastalinn Dublin Castle ,
Dublin 2
Í hjarta borgarinnar er Dublinar-
kastali en um 930 varð hann aðsetur
danskra og síðan norskra víkinga og
miðstöð verslunar með þræla og silf-
ur í Írlandi. Kastalinn varð síðan vígi
margra stríða í Dublin og skipti
nokkuð oft um eigendur.
www.dublincastle.ie
Kirkjurnar í Dublin
Í borginni er fjöldi kirkna, flestar
eru þær kaþólskar eða mótmælenda.
Þeirra á meðal eru St. Catherinés
Church, St Patricks og Christ
Church Cathedral.
www.dublinchurches.com
ferðalög
30 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DÖKKI
bjórinn
Guinness,
viskíið
Jameson
og bleiki
líkjörinn
Bailey’s
eru drykk-
ir sem get-
ið hafa sér
gott orð á
heimsvísu
og tilvalið
er að njóta
í írsku um-
hverfi. Heimilislegu krárnar
bjóða margar upp á staðgóða
málsverði á hagstæðu verði. Ann-
ars er líkt og í flestum öðrum
stórborgum hægt að finna alla
heimsins flóru í mat og drykk í
Dublin, austurlenska mat-
sölustaði, skandinavíska og úr
austurvegi auk Miðjarðarhafseld-
hússins. Eftirmiðdagste að bresk-
um hætti en með írsku ívafi svík-
ur heldur engan á fimm stjörnu
hótelinu The Westbury Hotel,
Grafton Street, eftir versl-
unarferð á strætinu.
Matur og
drykkur
FRÁ Íslandi er ekki nema tveggja tíma flug
til Dublinar. Í vetur er Úrval-Útsýn með
pakkaferðir til borgarinnar en einnig eru
seld stök flugsæti á 37.230 kr. Ef flogið er frá
Íslandi til London má fá hagstæð fargjöld
með lággjaldaflugfélögum eins og Ryanair
(www.ryanair.com) frá London Stanstead til
Dublinar en verð á þeim er frá 25 til 50 evrur
eða um 2.500–5.000 krónur aðra leið fyrir ut-
an skatta sem eru um 1.500 kr. Ryanair flýg-
ur einnig frá Gatwick-flugvelli til Dublinar.
Flugtími er um klukkustund. Air Lingus
(www.airlingus.com) flýgur frá Heathrow-
flugvelli í London til Dublinar og býður flug-
ferðir á sambærilegu verði.
Almenningssamgöngur í Dublin eru ágæt-
ar en þar eru gulu tveggja hæða strætis-
vagnarnir mest áberandi auk léttlesta. Far-
gjald leigubíla er sanngjarnt og þar sem
vegalengdir milli hótela og áhugaverðustu
staðanna í miðborginni (Dublin 2) eru stuttar
er það oft þægilegasti kosturinn fyrir ferða-
menn en töluvert má einnig komast á tveim-
ur jafnfljótum. Leigubílaferð innan miðborg-
arinnar hleypur yfirleitt á 500–1.000
íslenskum krónum en leigubíll frá flugvell-
inum kostar um 3.500 íslenskar krónur.
Gistingu af öllum stærðum og gerðum er
að finna í borginni og sé leitarorðunum
„Hotels in Dublin“ slegið upp á leitarvélinni
www.google.com birtast fjölmargar síður
um gistimöguleika á alls konar verði.
Flug, hótel og
samgöngurdublin
Maður er manns gaman í Dublin, höf-
uðborg eyjarinnar grænu í Atlantshafinu,
og eyjaskeggjar taka vel á móti megin-
landsbúum sem og öðrum eyjabúum. Unn-
ur H. Jóhanns-
dóttir dvaldi í
Dyflinni,
drakk Guin-
ness, skoðaði
minjar víking-
anna og vals-
aði verslunar-
strætin.