Morgunblaðið - 01.11.2006, Síða 1

Morgunblaðið - 01.11.2006, Síða 1
STOFNAÐ 1913 297. TBL. 94. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is BLEIKA HETJAN FLÓKI GUÐMUNDSSON GLEÐST YFIR ÞVÍ AÐ BARBAPABBI HEFUR SNÚIÐ AFTUR >> 33 PENINGAAÐALL MILLJÓNAMÆRINGAR RÚSSLANDS, SAMEINIST OG RÁNDÝR ÓÞARFI >> 15 London. AP, AFP. | Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, komst naumlega hjá skaðlegum ósigri á breska þinginu í gærkvöldi þegar þingið felldi tillögu um tafarlausa rannsókn á stefnu stjórnarinnar í Íraksmálunum. Tillagan var felld með 298 at- kvæðum gegn 273 eftir heitar um- ræður á þinginu. Flokkar þjóðern- issinna í Skotlandi og Wales lögðu tillöguna fram og vildu að skipuð yrði sjö manna þingnefnd til að skoða ástandið í Írak og stefnu bresku stjórnar- innar ofan í kjöl- inn. Tólf upp- reisnarmenn Margaret Bec- kett utanríkisráð- herra sagði fyrir atkvæðagreiðsluna að tillagan myndi skapa óvissu um bresku her- mennina í Írak og stofna lífi þeirra í hættu. Forystumenn Íhaldsflokks- ins sögðu að umræðan hefði veikt Tony Blair og að þeir hygðust leggja til í næsta mánuði að rann- sókn færi fram eftir um það bil ár, eða þegar íraskar öryggissveitir hafa tekið við hlutverki bresku her- sveitanna í Írak. Þingmenn Íhaldsflokksins greiddu atkvæði með tafarlausri rannsókn og tólf „uppreisnarmenn“ í þingliði Verkamannaflokksins. Blair komst naumlega hjá rannsókn á Íraksmálunum Tony Blair Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is KÆRULEYSISLEGUR frágang- ur á málmrörum varð til þess að þau féllu af tengivagni flutningabíls þegar honum var ekið inn á hring- torg á Vesturlandsvegi síðdegis í gær. Rörin runnu beint út fyrir veg og ollu aðeins skaða á ljósastaur en augljóslega er vegfarendum mikil hætta búin af þungum farmi sem er svo illa festur að hann rennur af flutningabílum þegar minnst varir. Stuttu síðar stöðvaði lögreglan í Reykjavík annan vörubíl en í því tilviki voru fjórar stroffur til að festa átta tonna farm og hvorki var notast við styttur né þverbönd. „Um leið og þetta hallast eitthvað fer þetta af bílnum,“ sagði varð- stjóri lögreglunnar. Í gildi er reglugerð um hvernig eigi að festa farm en hún virðist hafa verið hunsuð þegar rörin voru sett á tengivagninn. Í reglugerð- inni segir m.a. að til að koma í veg fyrir að farmur renni til hliðar skuli setja klossa, styttur eða skjólborð og skuli hæð þeirra vera fjórð- ungur af hæð farmsins. Á palli vörubílsins sem flutti málmrörin höfðu reyndar verið lagðar spýtur sem virðast hafa átt að gegna slíku hlutverki en þær voru einungis ör- lítið brot af hæð röranna og komu að litlu gagni. Í samtali við Morgunblaðið sagði Ágúst Mogensen, forstöðumaður rannsóknarnefndar umferðarslysa, að þar að auki hefði vagninn tæpast virst nógu breiður til að flytja rör- in. Mildi væri að ekki hefðu orðið slys. Ágúst sagði aðspurður að bíl- stjórar bæru ábyrgð á farmi, nema þegar um væri að ræða innsiglaða gáma. Þeir ættu því með réttu að neita að flytja farm nema hann væri tryggilega festur. Ágúst tók fram að hann þekkti ekki málsatvik í þessu tilviki en hann kvaðst hafa ákveðna samúð með bílstjórum. Þeim væri boðið upp á ýmislegt s.s. varðandi ástand ökutækja. „Í lög- unum segir að þeir beri ábyrgð á þessu öllu saman en við vitum stundum betur. Að það er einfald- lega sagt við menn: Þú ferð þessa ferð eða þú ferð ekki fleiri ferðir fyrir mig.“ Ágúst sagði óvíst hvort það færð- ist í aukana að farmur væri fluttur með ótryggum hætti en það væri á hinn bóginn öruggt að vitund- arvakning hefði orðið meðal öku- manna almennt og þeir hringdu nú í lögreglu, rannsóknarnefndina eða fjölmiðla og tilkynntu um farma sem hætta stafaði af. Ótraustar festingar brustu á hringtorginu Annar flutningabíll stöðvaður stuttu síðar með illa festan 8 tonna farm Morgunblaðið/Júlíus Lán í óláni Rörin runnu út af tengivagninum og beint út fyrir veg. Enginn slasaðist. Lítið hald Þessar spýtur virtust eiga að gegna hlutverki klossa en þær komu að litlu gagni. Í HNOTSKURN » Rörin runnu af tengi-vagninum á hringtorgi. » Til að varna því að farm-ur renni til hliðar á að setja klossa, styttur eða skjólborð og á hæð þeirra að nema 1⁄4 af hæð farmsins. » Bílstjórar bera ábyrgð áöryggi farms en for- stöðumaður rannsókn- arnefndar umferðarslysa segir þá oft í erfiðri stöðu. Canaveral-höfða. AP. | Geimrannsóknastofn- un Bandaríkjanna, NASA, tilkynnti í gær að hún hygðist senda geimferju til að gera við Hubble-sjónaukann. Senda átti geimfar til sjónaukans fyrir þremur árum en hætt var við ferðina af öryggisástæðum vegna Columbia-slyssins. Stjörnufræðingar fögnuðu ákvörðun NASA, en þeir höfðu óttast að geimsjón- aukinn yrði ónothæfur árið 2009 og jafn- vel fyrr ef búnaður hans yrði ekki end- urnýjaður. Gert er ráð fyrir því að ferðin verði farin í maí 2008 og hægt verði að nota Hubble til ársins 2013. Reuters Öflugur Hubble hefur sent stórbrotnar myndir af fjarlægum sprengistjörnum. Geimferð til að gera við Hubble ÍSLENSKU bankarnir fjórir, Kaupþing banki, Landsbankinn, Glitnir og Straumur- Burðarás, greiða samtals 13,2 milljarða í opinber gjöld á þessu ári. Kaupþing banki greiðir mest eða tæplega 7 milljarða. Álagður tekjuskattur lögaðila á tekju- árinu 2005 nemur 34,7 milljörðum. Hann hefur hækkað frá fyrra ári um nær 11 millj- arða eða 46%. Fjöldi gjaldenda tekjuskatts er nær 15.000 og hefur þeim fjölgað frá fyrra ári um 11%. Tekjuskattur lögaðila hefur hækkað nær stöðugt frá því skatt- hlutfall var lækkað í 18% tekjuárið 2002. Samtals greiða lögaðilar 73,9 milljarða í opinber gjöld á þessu ári. | 10 Greiða 13,2 milljarða í skatta EIÐUR Smári Guðjohnsen kom tals- vert við sögu í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi þegar hann tók á móti sín- um gömlu félögum úr Chelsea á Nou Camp í Barcelona. Leiknum lauk með 2:2-jafntefli og gerði Eiður Smári síðara mark Barcelona, 2:1, en Didier Drogba jafnaði í blálokin. Þetta var fyrsta mark hans á Nýv- angi. Eiður Smári var fluttur meidd- ur af velli stundarfjórðungi fyrir leikslok en læknar félagsins telja meiðslin ekki alvarleg, að sögn Arn- órs, föður Eiðs Smára, sem var á Nou Camp. | Íþróttir Skoraði og meiddist Reuters

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.