Morgunblaðið - 01.11.2006, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 01.11.2006, Qupperneq 21
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is OFFITA eykur líkurnar á því að fá astma, samkvæmt niðurstöðum ný- legrar fjölþjóð- legrar rann- sóknar, sem Íslendingurinn María Gunn- björnsdóttir hef- ur meðal ann- arra unnið að. María er sérfræðingur í almennri lyflækn- isfræði og lungnasjúkdómum og hefur undanfarin tíu ár starfað við Akademíska háskólasjúkra- húsið í Uppsölum í Svíþjóð, en hún varði doktorsritgerð sína á þessu sviði hinn 22. september sl. Offita og andþyngsli að næturlagi Rannsóknin leiddi í ljós að með- al einstaklinga, sem þjáðust af of- fitu, voru 60% meiri líkur á því að fá astma en hjá einstaklingum í eðlilegum holdum. Offita reyndist að sama skapi áhættuþáttur fyrir önnur öndunarfæraeinkenni eins og surg í brjósti og andþyngsli að næturlagi. Aðrir áhættuþættir, sem horft var til, voru bakflæði og hrotur. Tíðni bakflæðis og hrotna eykst hjá fólki sem þjáist af offitu og reyndist bakflæðið vera áhættuþáttur fyrir astma. Þessi tengsl voru ekki til staðar fyrir hroturnar, að sögn Maríu. Einnig voru rannsökuð tengslin á milli öndunarfæraeinkenna og raka í húsum. „Raki í húsum er algengur, bæði á Íslandi og á hin- um Norðurlöndunum. Samtals höfðu 18% af þátttakendum haft vatnsleka, mygluvöxt eða raka- skemmdir í gólfefni á umliðnu ári. Einstaklingar, sem bjuggu í röku húsnæði, höfðu oftar ein- kenni frá lungum, svo sem hósta og surg í brjósti og einnig var astmi algengari meðal þeirra. Þannig reyndist raki vera áhættu- þáttur fyrir astma og önd- unarfæraeinkenni,“ segir María. Tíu ára Svíþjóðardvöl á enda Doktorsvörn Maríu byggðist á faraldsfræðilegri rannsókn sem Ísland, Noregur, Danmörk, Sví- þjóð og Eistland tóku þátt í. Meira en sextán þúsund ein- staklingar svöruðu spurningalista um heilsu og heimilishagi. Sömu einstaklingar höfðu átta árum áð- ur svarað spurningalista á vegum svokallaðrar Evrópurannsóknar sem gerði það að verkum að unnt var að meta hina ýmsu áhættu- þætti fyrir astma og að fá önd- unarfæraeinkenni. María segist nú vera að fara að pakka niður eftir tíu ára Svíþjóð- ardvöl og hefur hún störf sem sérfræðingur á Landspítalanum í janúar næstkomandi. Eiginmaður Maríu er Gunnar Hólmsteinn Ár- sælsson og eiga þau tvö börn. Veikindi Einstaklingar, sem bjuggu í röku húsnæði, höfðu oftar einkenni frá lungum, svo sem hósta og surg í brjósti. María Gunnbjörnsdóttir Þættir eins og offita og raki ýta undir astma AP MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2006 21 KRYDDKJARNI, sem er að finna í karríi, gæti hjálpað til við að vernda fólk gegn gigtveiki og beingisnun, samkvæmt staðhæf- ingum bandarískra sérfræðinga. Turmerik, sem er í ætt við karrí, er austur-indísk jurt með gildan gulleitan jarðstöngul sem notuð hefur verið um aldir í asísk lyf til að meðhöndla ýmis bólguvanda- mál. Einnig er þennan kjarna að finna í vestrænum fæðubót- arefnum. Vísindamenn við Arizona- háskóla hafa nú fundið það út að þetta krydd hefur læknisfræðileg áhrif á mannslíkamann. Að mati sérfræðinga má vænta þess að ný lyf úr þessum krydd- efnum líti dagsins ljós í framtíðinni, en ólíklegt er að aukin neysla þess- ara kryddefna ein og sér skili sér í heilsusamlegu samhengi. Klínískar rannsóknir þurfa að fara fram áður en hægt er að mæla með turmerik eða karríi í lækningaskyni. Fyrri athuganir við Arizona- háskóla sýna að turmerik geti kom- ið í veg fyrir bólgumyndanir í rott- um. Svo virðist sem kryddkjarninn haldi aftur af prótíni, sem stýrir genum í liðamótum. Sérfræðingar telja að með þessu megi ef til vill líka beina sjónum að öðrum sjúk- dómum á borð við astma, æða- og taugasjúkdóma og ristilvandamál. Krydd Menn eru nú farnir að beina sjónum að karríi í lækningaskyni. Karrí spornar gegn gigtveikinni Fréttir í tölvupósti Hotel Corinthia Towers 5 Lúxushelgi í Prag 16. eða 23. nóvember frá kr. 49.990 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Nú er upplagt að skreppa til Prag og dekra við sig í aðbúnaði í þessari einstak- lega fögru borg. Prag hefur skipað sér sess sem eftirlæti Íslendinga sem fara þangað í þúsundatali á hverju ári með Heimsferðum. Fararstjórar okkar gjör- þekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu. Haustið er frábær tími til að heimsækja borgina. Bjóðum nú frábært tilboð á Hotel Corintia Towers sem er glæsilegt fimm stjörnu hótel. Gríptu tækifærið og skelltu þér í helgar- ferð til þessarar frábæru borgar og njóttu þess að hafa allan aðbúnað í toppi. Verð kr.49.990 Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi 16. eða 23. nóv. í 4 nætur á Hotel Corintia Towers  með morgunmat.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.