Morgunblaðið - 01.11.2006, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2006 25
GÓÐAR samgöngur skipta
landsbyggðina afar miklu máli.
Raunar má segja að þær séu líf-
æðarnar sem geri landið byggilegt,
vel gerðir þjóðvegir, hafnir og
flugvellir, grundvöllur þess að at-
vinnulíf á landsbyggðinni sé sam-
keppnishæft. Sterkt þéttbýli gerir
búsetu í dreifbýlinu auðveldari og
eftirsóknarverðari. Þessu til við-
bótar má segja að nettenging sé
hluti af samgöngukerfinu og jafn
mikilvægt og aðrir þættir þess.
Undir forystu Sjálfstæðisflokks-
ins hefur samgöngukerfi lands-
manna tekið gríðarlegum breyt-
ingum til hins betra. Nú er verið
að tvöfalda Reykjanesbraut sem
var löngu tímabær framkvæmd og
forysta og frumkvæði Suðurnesja-
manna í því verkefni er virkilega
aðdáunarverð. Enn bíða þó mörg
og mikilvæg verkefni.
„Skuggagjöld“
Næst í röðinni hlýtur að vera
tvöföldun vegarins yfir Hellisheiði.
Sterklega kemur til greina að um
framkvæmdina verði stofnað hluta-
félag með aðkomu sveitarfélaga á
Suðurlandi ásamt tryggingafélag-
inu Sjóvá sem hefur sýnt mikinn
áhuga og frumkvæði í málinu.
Sú hugmynd hefur verið nefnd
að hið nýja fyrirtæki sjái bæði um
verkefnið og rekstur vegarins á
næstu árin á svipaðan hátt og
Spölur gerir með Hvalfjarðagöng.
Hins vegar er ekki ætlunin að veg-
farendur greiði toll fyrir afnotin
heldur ríkissjóður og þá með svo-
kölluðum „skuggagjöldum“ sem
byggjast á greiðslu pr. ökutæki
samkvæmt sjálfvirkri talningu á
umferð.
Suðurstrandarvegur frá Grinda-
vík til Þorlákshafnar er tvímæla-
laust mjög nauðsynlegur. Mik-
ilvægast er þó sú staðreynd að
með honum opnast greið leið milli
Suðurlands og Reykjaness og þá
verður ekki lengur þörf á að aka
um höfuðborgarsvæðið. Þetta
skiptir allt atvinnulífið mjög miklu
máli og ekki síst ferðaþjónustuna í
landinu.
Samgönguvandi
Eyjamanna
Samgöngur við
Vestmannaeyjar
hafa verið talsvert
vandamál und-
anfarin ár og er
hreint ótrúlegt að
flug þangað skuli
hafa verið með
þeim vandkvæðum
sem raun er á. Þess
vegna er fagnaðar-
efni að ríkisstjórnin
hafi tryggt fastar flugferðir og
þannig verður það að vera til
framtíðar.
Herjólfur er barn síns tíma og
nú er ástæða til að ljúka sem fyrst
við rannsóknir á höfn í Bakkafjöru.
Með henni eða álíka lausn myndu
verða miklar breytingar
á högum Eyjamanna.
Stutt ferjuleið er mikil
kostur sem þýðir tíðari
ferðir og þar með meiri
og auðveldari
tækifæri fyrir heima-
fólk jafnt sem ferða-
menn að fara á milli.
Um leið verða allir vöru-
flutningar öruggari.
Atvinnulífið
Fyrir uppsveitir Ár-
nessýslu eru einkum
tvær vegabætur sem nauðsynlegt
er að nefna hér. Önnur er er nýr
Gjábakkavegur sem liggja mun
milli Laugarvatns og Þingvalla-
vatns. Hin er ný brú yfir Hvítá við
Flúðir.
Hvort tveggja eru áríðandi
framkvæmdir sem styrkja mannlíf
og atvinnulíf á þessum slóðum.
Á samönguáætlun er brú yfir
Hornarfjarðarfljót. Hún er mikið
hagsmunamál fyrir heimamenn
jafnt sem aðra landsmenn. Gamla
brúin er löng, einbreið og orðin
mjög slitin. Ný brú mun liggja
mjög nálægt Höfn og hafa mikil
áhrif á umferð þangað, öllum til
hagsbóta. Gott samgöngunet er
hluti af góðri byggðastefnu, því
hljóta allir að vera sammála og þar
af leiðandi er ljóst að atvinnulífið
stendur og fellur með greiðum
samgöngum. Ég vil gera mitt til að
koma því til leiðar að hvort
tveggja verði sterkara til fram-
tíðar.
Góðar samgöngur
eru byggðamál
Kjartan Ólafsson
skrifar um samgöngur »Raunar má segja að þær séu líf-
æðarnar sem geri
landið byggilegt …
Kjartan Ólafsson
Höfundur er alþingismaður Sjálf-
stæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
Hlíðarsmára 11, Kópavogi
sími 517 6460
www.belladonna.is
Réttu stærðirnar
Fréttir
í tölvupósti